Morgunblaðið - 02.07.2003, Page 16
AKUREYRI
16 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ferðalag út úr bænum (þ.á.m. sundlaugarferð) í lok hvers námskeiðs.
Ferðin er frá kl. 09.30 - 17.00.
Kennarar eru m.a. Broddi Kristjánsson íþróttakennari,
Írena Óskarsdóttir íþróttafræðingur,
Jónas Huang badmintonþjálfari,
Skúli Sigurðsson badmintonþjálfari,
Árni Þór Hallgrímsson badmintonþjálfari o.fl.
Innanhúss: Badmintonkennsla, borðtennis, minni tennis, körfubolti, bandý
og leikir
Úti (við TBR-hús og í Laugardalnum): Knattspyrna, sund, frjálsar íþróttir
á Laugardalsvelli, t.d. spretthlaup, langstökk, spjótkast, kúluvarp og hástökk.
Leikir, svo sem hafnabolti, ratleikur o.fl.
Farið er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal
Upplýsingar og innritun í TBR húsinu Gnoðavogi 1 og í síma 581 22 66.
Sumarskóli TBR 2003
Íþróttaskóli fyrir 6 - 13 ára börn í sumar
Námskeiðin eru virka daga kl. 9-13 eða kl. 13-17.
Fjölbreytt íþróttakennsla á dagskrá með áherslu á badminton.
7. júlí - 18. júlí
5. ágúst - 18. ágúst
Námskeiðin eru 10 virka daga í senn sem hér segir:
Verð er kr. 7400. Skipt er í hópa eftir aldri.
Veittur er systkinaafsláttur.
Einnig er veittur afsláttur ef farið er á fleiri
en eitt námskeið.
SJÖFN hf. á Akureyri keypti í gær öll hlutabréf
Skeljungs hf. í Hans Petersen hf. Hlutafé Hans
Petersen er 101 milljón króna og Sjöfn eignaðist
öll bréf í fyrirtækinu utan hvað einn einstaklingur
á enn 50.000 króna hlut í félaginu eftir viðskiptin í
gær.
Hans Petersen hf. er eitt af elstu fyrirtækjum
landsins og hefur verið með umboð fyrir Kodak
vörur á Íslandi í meira en áttatíu ár. Fyrirtækið
hóf starfsemi árið 1907 með opnun verslunar í
Bankastræti 4 í Reykjavík, þar sem það rekur enn
þann dag í dag eina af verslunum sínum. Auk
hennar rekur Hans Petersen sex aðrar verslanir á
höfuðborgarsvæðinu og er með samstarfssamning
við tólf verslanir utan höfuðborgarsvæðisins undir
merkjum Kodak Express. Auk ljósmyndavöru-
þjónustu rekur Hans Petersen heildsölu með ljós-
myndavörur, vörur fyrir heilbrigðisþjónustuna og
prentiðnaðinn.
Í stjórn Hans Petersen hf. verða Baldur Guðna-
son, framkvæmdastjóri Sjafnar hf., stjórnarfor-
maður, Steingrímur Pétursson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sjafnar hf., og Eiríkur S.
Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kaldbaks hf.
Karl H. Sigurðsson verður áfram framkvæmda-
stjóri Hans Petersen hf.
„Aðdragandi kaupanna er nokkrar vikur. Við
fengum upplýsingar um að Skeljungur vildi selja,
aðrir fjárfestar sýndu fyrirtækinu líka áhuga en
mál þróuðust þannig að Skeljungur gekk til samn-
inga við okkur, og gengið var formlega frá kaup-
unum í dag,“ sagði Baldur Guðnason í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Aðspurður sagði Baldur Sjöfn ekki hafa verið í
starfsemi á tengdum vettvangi til þessa, „en það
er í samræmi við stefnu Sjafnar að vera í fjárfest-
ingum og breytingastjórnun; við höfum leitað eftir
þátttöku í fyrirtækjum sem eru áhugaverðar fjár-
festingar. Viljum fjárfesta í fyrirtækjum til að
auka verðmæti þeirra og hámarka arðsemi.“
Baldur lagði áherslu á að nýir eigendur vildu
efla enn frekar og styrkja rekstur Hans Petersen,
„með hagræðingu og aukinni markaðssókn. Við
byggjum á traustum grunni fyrirtækisins, sem er
eitt af elstu fyrirtækjum landsins, og hyggjumst
laga rekstur þess að þeim breytingum sem eru að
verða í ytra umhverfi þess,“ segir Baldur.
Þegar spurt er um breytingar í rekstrinum seg-
ir Baldur:
„Fyrsta verk okkar verður að halda starfs-
mannafund [árdegis í dag] og fara yfir áherslur
nýrra eigenda og ræða framhaldið. Nýjum eig-
endum fylgja náttúrlega alltaf nýjar áherslur og
einhverjar breytingar en hverjar þær verða kem-
ur í ljós á næstu misserum.
Á þessu ári er áætluð velta Hans Petersen hf.
um einn milljarður króna en velta Skeljungs hf. á
síðasta ári var tæpir 15 milljarðar króna. Salan á
Hans Petersen hefur óveruleg áhrif á afkomu
Skeljungs á þessu ári. Eiginfjárhlutfall Hans Pet-
ersen er 63%. Starfsmenn Hans Petersen eru um
65 talsins. Nýir eigendur tóku við rekstri Hans
Petersen við undirritun kaupsamnings.
Sjöfn hf. á Akureyri hefur
eignast Hans Petersen hf.
Velta Hans Petersen er
áætluð um einn millj-
arður króna á þessu ári
SÁ fáheyrði atburður gerðist fyrir
stuttu að álft réðst á ungan vinnu-
skólapilt, Hinrik Frey Hinriksson,
og sló hann niður þegar hann var að
raka saman gras við andapollinn á
Akureyri. Hinrik, sem er 14 ára og
nemandi í Brekkuskóla, sagði við
Morgunblaðið að hann hefði verið að
raka í rólegheitum þegar álftin kom
aftan að honum og sló hann niður.
„Sennilega hefur hún verið að
verja ungana sína, en þeir voru í um
fjögurra til fimm metra fjarlægð.
Hún sló í fótinn á mér með vængn-
um, að ég held, og eftir að ég datt þá
reyndi hún að bíta mig, en ég náði að
hlaupa í burtu,“ sagði Hinrik.
Hinrik var einn dag frá vinnu, en
fóturinn sem álftin sló í bólgnaði upp
við atvikið og var hann allur blár og
marinn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hinrik Freyr við andapollinn í gær. Í baksýn gætir svanaparið unga sinna. Það var karlfuglinn, vinstra megin á
myndinni, sem réðst á Hinrik og svanurinn lét vel í sér heyra á meðan Morgunblaðsmenn stöldruðu við.
Álft réðst
á vinnu-
skólapilt
RÚMLEGA tvítugur karlmaður
hefur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmdur til að greiða
110 þúsund krónur í sekt til rík-
issjóðs, en hann var kærður fyrir
fíkniefnalagabrot. Var maðurinn
með í fórum sínum fjórar e-töflur
og um 2 grömm af kókaíni í apríl í
fyrra.
Fyrir dómi játaði maðurinn sök
sína, en vísaði til þess að kókaínið
hefði verið verulega blandað með
sykri. Við ákörðun refsingar var
m.a. litið til þess að maðurinn hafði
í sínum vörslum sterk og hættuleg
efni, sem líkleg eru til að valda um-
talsverðu og varanlegu heilsutjóni
einstaklinga, þar á meðal minnis-
tapi. Áður hefur maðurinn greitt
sekt fyrir brot á ávana- og fíkni-
efnalöggjöf og tvívegis vegna auðg-
unarbrota. Efni þau sem lögregla
lagði hald á við rannsókn málsins
voru gerð upptæk. Þá var mann-
inum gert að greiða sakarkostnað.
Dæmdur til greiðslu 110
þúsund króna sektar
Var með
e-töflur og
kókaín í fór-
um sínum
Miðvikudagur 2. júlí
Opnunarsýningu Jóns Laxdals
Halldórssonar á Listasumri 2003
„Tilraun um prentað mál“ lýkur í
dag. Af því tilefni mun listamaður-
inn vera með leiðsögn um sýninguna
kl. 16.30 og er aðgangur ókeypis.
Fimmtudagur 3. júlí
Jazz – Deiglan. Heitur fimmtu-
dagur kl. 21.30. Kvartett Ómars
með latinsveiflu. Ómar Einarsson,
gítar, Snorri Sigurðsson, trompet,
Stefán Ingólfsson, rafbassi og Bene-
dikt Brynleifsson, trommur. Að-
gangseyrir kr. 800.
Föstudagur 4. júlí
Föstudagshádegi í Ketilhúsinu kl.
12.00. Þrjár systur ásamt Jóni
Ólafssyni. Trompetsystur eru: Hjör-
dís Elín, Þórunn og Ingibjörg Lár-
usardætur. Aðgangur kr. 1000.
Systurnar munu einnig spila og
syngja í Laxárvirkjun laugardaginn
5. júlí kl. 15.00 í boði Landsvirkj-
unar.
Myndlist – Ketilhúsið kl. 14.00. 40
sýningar á 40 dögum. Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir. Frumsýnd verður
stuttmynd eftir Arnar Ómarsson,
sem ber yfirskriftina „Við undirbún-
ing 40 sýninga“ og er unnin í sam-
vinnu við Aðalheiði. Allir velkomnir.
Laugardagur 5. júlí
Myndlist – Ketilhúsið kl. 14.00.
Opnun á sýningu Magnúsar V. Guð-
laugssonar „Vindheimar“, mynd-
band, hljóðverk og ljósmyndir í að-
alsal og Stefáns Jónssonar á svölum.
Myndlist – Listagilið. 40 sýningar
á 40 dögum. Aðalheiður S. Eysteins-
dóttir opnar skúlptúrasýningu í
Listagili.
Minjasafnið kl. 15.00. Leiðsögn
um sýninguna Akureyri – bærinn
við Pollinn.
Tónleikar – Deiglan kl. 22.00.
Hljómsveitin Lífs. Meðlimir: Arnar
Guðjónsson, söngur, gítar, Haukur
Hallsson, bassi, Arnar Ólafsson, gít-
ar, Nói Steinn Einarsson, trommur,
Andri Ásgeirsson, hljómborð. Að-
gangseyrir kr. 500.
Sunnudagur 6. júlí
Minjasafnið – söguganga kl. 14.
Gengið um innbæinn og fjöruna.
Lagt upp frá Laxdalshúsi.
Nonnahús kl. 12.00–17.00. Líf og
fjör í Nonnahúsi.
Sumartónleikar í Akureyrar-
kirkju kl. 17.00. Voces Thules. Söng-
menn eru: Sverrir Guðjónsson, Sig-
urður Halldórsson, Guðlaugur
Viktorsson, Einar Jóhannesson, Ei-
ríkur Hreinn Helgason og Eggert
Pálsson. Björn Steinar Sólbergsson,
orgel.
KARLMAÐUR á þrítugsaldri
hefur í Héraðsdómi Norður-
lands eystra verið dæmdur til
að greiða 30 þúsund krónur í
sekt til ríkissjóðs vegna brots
gegn valdstjórninni. Maðurinn
var ákærður fyrir að hafa í
febrúarmánuði síðastliðnum
veitt lögreglumanni högg í and-
litið sem leiddu til áverka; mars
og eymsla í kinnbeini. Játaði
maðurinn brot sitt. Greiði mað-
urinn ekki sektina skal hann
sæta 4 daga fangelsi. Þá var
honum gert að greiða sakar-
kostnað.
Veitti lög-
regluþjóni
áverka
Útsala
Útsala
Útsala
COS
Undirfataverslun • Glæsibæ • S: 588 5575