Morgunblaðið - 02.07.2003, Qupperneq 34
DAGBÓK
34 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag eru væntanleg
Vilnyus, Ophelia, far-
þegaskipið Maxim
Gorkiy, Brúarfoss,
Mánafoss, farþega-
skipið Paloma I og
Dettifoss.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru væntanleg Rán
HF og Fornax.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofan er lokuð í júlí og
ágúst. Sími formanns
er 892 0215.
Mannamót
Aflagrandi. Versl-
unarferð í dag kl. 20.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og opin handa-
vinnustofa, kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofa. Keila í
Mjódd kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
10.30 bankinn, kl. 13–
16.30 bridge/vist.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 aðstoð við
böðun, hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 13.30
söngstund, kl. 14.30
bankaþjónusta, kl.
14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 9
silkimálun, kl. 13–16
körfugerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. kl.
13.30 bankaþjónusta.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16 op-
in vinnustofa, kl. 9–12
hárgreiðsla, kl. 9–16.30
fótaaðgerð.
Félagsstarfið Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 hár-
greiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
er lokuð frá og með 30.
júní til 6. ágúst. Við-
vera í Gjábakka fellur
niður á sama tíma.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag:
Glerlist kl. 13, pílukast
kl. 13.30.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Lokað vegna
sumarleyfa frá 30. júní
til 12. ágúst.
Félag eldri borgara
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. S. 588 2111.
Föstudaginn 4. júlí
dagsferð: Rangárvellir
– Hraunteigur – Oddi.
Komið að Odda, í Sögu-
setrið á Hvolsvelli, að
Þingskálum ofl. Súpa
og brauð á Hvolsvelli.
leiðsögn Pálína Jóns-
dóttir.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 13 félagsvist, kl.
17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
handavinnustofan opin
frá kl. 13–16.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin handavinnustofa,
kl. 9 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 10 pútt, kl.
11 banki, kl. 13 bridge.
Miðvikudaginn 9. júlí
verður farið í Þjórs-
árdal og að Háafossi og
Gjánni. Stoppað verður
í Árnesi og þar fáum
við okkur súpu, brauð
og kaffisopa. Skráning
á skrifstofu í síma
587 2888.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
10.30 ganga. Fótaað-
gerðir og hársnyrting.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofa lokuð vegna sum-
arfría. kl. 9–16 fótaað-
gerð, kl. 13–13.30
banki, kl. 14 félagsvist.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 12.15–
14.30 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14 mynd-
bandssýning.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 10 morg-
unstund, fótaaðgerð,
kl. 12.30 verslunarferð.
Minningarkort
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM&K gegnt
Langholtsskóla) sími
588 8899.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju eru til
sölu í kirkjunni í sím-
um 587 9070
eða 587 9080. Einnig er
hægt að nálgast kortin
í Kirkjuhúsinu, Lauga-
vegi 31, Reykjavík.
Líknarsjóður Dóm-
kirkjunnar. Minning-
arspjöld seld hjá
kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í
síma 456 2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafn-
arfirði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Minningarkort Hjarta-
verndar, fást á eft-
irtöldum stöðum á
Reykjanesi: Kópavogs
Apótek. Lyfja, Set-
bergi. Sparisjóðurinn,
Strandgata 8–10.
Í dag er miðvikudagur 2. júlí,
183. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Allt sem faðirinn gefur
mér, mun koma til mín, og þann
sem kemur til mín, mun ég alls
eigi brott reka.
(Jóh. 6,37.)
Fréttavefurinn Tunga.issegir menntamála-
ráðuneytið telja að ekk-
ert mæli gegn því að Rík-
isútvarpið nýti sér nýja
tækni til miðlunar frétta
og afþreyingarefnis. Það
halli á samkeppnisstöðu
einkarekinna vefmiðla og
því verði vefurinn ekki
uppfærður frekar.
Íslensk stjórnvöld hafameð bréfi mennta-
málaráðuneytisins ákveð-
ið að veita Ríkisútvarp-
inu heimild til eyðslu
allra þeirra fjármuna
sem stofnunin kýs til að
byggja upp vef sinn ruv.-
is,“ segir í yfirlýsingu á
Tunga.is. „Ríkisútvarpið
hefur jafnframt heimild
íslensku ríkisstjórn-
arinnar til að leggja und-
ir sig íslenska net-
auglýsingamarkaðinn.
Reyndar stendur ekkert
um Internetið í lögum
þeim sem gilda um Rík-
isútvarpið. Samkeppnis-
staða örfyrirtækja eins
og Tunga.is á íslenskum
fjölmiðlamarkaði er eng-
in. Markmiðið að efla
miðlun íslensks efnis,
meðal annars Internet-
sjónvarps/útvarpsefnis,
munu ekki nást. Jafn-
framt verður útilokað að
sinna fréttaskýringum
með þeim hætti sem von-
ir höfðu staðið til.
Tunga.is hyggst ekkikeppa við ótakmark-
aðan ríkisstyrktan frétta-
vef ruv.is. Uppsagnir
fréttamanna Stöðvar 2
hinn 27. júní 2003 lýsa
kannski að einhverju
leyti því erfiða rekstr-
arumhverfi sem fjöl-
miðlar á íslensku búa við.
Breytingar á hinni ágætu
útvarpsstöð Útvarp Saga
frá töluðu máli í tónlist
ættu einnig að vekja
áhugamenn um lýðræð-
islega umræðu til um-
hugsunar,“ segir á vefn-
um.
Þar kemur fram aðrekstrarútgjöld Rík-
isútvarpsins án afskrifta
jukust um 3% á síðasta
ári. Ef gert er ráð fyrir
slíkri aukningu næstu 10
árin verða heildarrekstr-
arútgjöldin 35.588 millj-
ónir eða rúmir 35 millj-
arðar að meðtöldum
afskriftum. „Ef gert er
ráð fyrir því að umfang
alls ruv.is vefsins sé 5%
af heildarstarfsemi rík-
isfjölmiðilsins og umfang
fréttavefsins væri 2,5%
heildarstarfseminnar þá,
eins og áður sagði, eyðir
Ríkisútvarpið á næstu 10
árum 889,7 milljónum í
fréttavef sinn þar af
koma 250,7 milljónir frá
auglýsingatekjum en
639,4 milljónir fást með
afnotagjöldum. Vitaskuld
gæti Ríkisútvarpið eytt
lægri fjárhæðum í vef
sinn en einnig mun
hærri.“
Þá segir Tunga.is úti-
lokað fyrir nýtt íslenskt
fjölmiðlafyrirtæki að
hasla sér völl á Inter-
netinu með ríkisrisa sem
geti eytt 500 milljónum,
1.000 milljónum eða
1.500 milljónum í frétta-
vef sinn á næstu tíu
árum.
STAKSTEINAR
Ríkisrisi á
veraldarvefnum
Víkverji skrifar...
ÍLEYNDARDÓMUM Snæfellsjök-uls eftir Jules Verne er talað um
Búðir sem „smáborg á fögrum stað
við ströndina“. Þar er ferðamönn-
unum veittur næturgreiði áður en
þeir hefja atrennuna að jöklinum og
finna opið að miðju jarðar. Enn býðst
ferðamönnum næturgreiði að Hótel
Búðum, sem var opnað á ný í vor, og
varla hægt að hugsa sér betri næt-
urstað. Þar myndast skarpar and-
stæður í úfnu hrauni, grónum mosa,
gullinni strönd og tignarlegum jökl-
inum. Einnig er notalegt á tjaldstæð-
inu á Arnarstapa. Stapa er lýst þann-
ig af Verne: „Hér sáum við, hvernig
náttúran getur byggt sínu bygging-
arlagi eins og af manna höndum væri
gert, svipast því að notaður hefði ver-
ið hallamælir, sirkill og reglustika.“
Óneitanlega nýstárleg sýn á skap-
arans verk.
x x x
NÓTTIN var erfið hjá Víkverja,því dóttir hans vaknaði með
heiftarlega eyrnabólgu og öskraði af
sársauka. Aldrei hefur Víkverji verið
eins vanmáttugur og þá. Þar sem
hann ýmist æddi um gólf eða sat hálf-
volandi af samúð á rúmbríkinni með
litluna. Hún hafði verið á biðlista hjá
eyrnalækninum í tvær vikur. Á með-
an komst eyrnabólgan á alvarlegt
stig. Og litla stelpan öskraði af sárs-
auka. Þetta er engum bjóðandi – bið-
listar. Heilbrigðiskerfi biðlista er
ávísun á þjáningar.
x x x
ÁBERANDI auglýsingar Og Voda-fone á þjóðhátíðardaginn 17. júní
vöktu athygli og umræður. Séra
Hjálmari Jónssyni dómkirkjupresti
var gengið um prestakallið og sá
hann að nokkur umskipti höfðu orðið
á ytri umbúnaði hátíðarhaldanna:
Hátíð gleður farsælt Frón,
fáni vor er dýrleg sjón.
Kveður nú við nýjan tón,
nefnilega Vodafone.
x x x
HJÁLMAR Freysteinsson hafði áorði að hann hefði gerst róm-
antískur í kvöldblíðunni:
Flugurnar suða í sælutón
í sólskini baða sig álftahjón
við hafflötinn slétta,
já himneskt er þetta
veður – í boði Og Vodafone.
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
Vinkonur og ósvífinn hundur við Grafarósinn í Breiðuvík á Snæfellsnesi.
Kannast þú við
myndirnar?
ÉG ER í sambandi við konu
í Ameríku sem er að rann-
saka ættir sínar. Hún á
sömu langömmu og ég, sem
gerðist landnemi í Kanada.
Flestar myndir í eigu þess-
arar langömmu okkar eyði-
lögðust í bruna, en fáar
fundust og langar mig til að
spyrja hvort nokkur kann-
ast við þessar myndir sem
hér birtast. Nafn lang-
ömmu minnar er Ingibjörg
Laurína Norðfjörð Jóns-
dóttir, kaupmanns í
Reykjavík.
Þuríður Guðjónsdóttir,
sími 568 5990, netfang
pallo@mi.is.
Haldið
köttunum inni
ÉG ER svo sannarlega
sammála Þóru, sem skrif-
aði í Velvakanda, og telur
ketti vera plágu. Þeir eru
plága í görðum þar sem
þeir róta upp plöntum og
skíta í blómabeð og sand-
kassa, fyrir utan að veiða
fuglana.
Kattaaðdáendur ættu að
halda köttum sínum hjá
sér, og lofa okkur hinum að
vera í friði.
H.B.
Þakkir til RÚV
ÉG ÞAKKA RÚV fyrir að
senda út frá gullmóti í
frjálsum íþróttum og frá-
bærar lýsingar Samúels og
félaga gera mikið. Það
vantar þó margar greinar,
einungis hluti af mótinu er
sýndur. Úr þessu þarf að
bæta því þetta er frábært
mót.
Vilhjálmur Sigurðsson.
Ert þú
aflögufær?
ÉG VIL þakka fyrir góðar
undirtektir í garð fólksins í
Hátúni 10, 10a og 10b, sem
fékk garn, föndur og spil að
gjöf. Nú er þetta allt upp
urið.
Ef svo vildi til að einhver
væri aflögufær um eitthvað
meira; t.d. garn, spil fyrir
fullorðna eða föndur, er allt
sem berst þegið með þökk-
um. Upplýsingar í síma
551 8727 eða 891 8727.
Stella.
Tapað/fundið
Gleraugu
fundust
GLERAUGU fundust við
Dalveg í Kópavogi rétt hjá
gróðrarstöðinni 25. júní sl.
Umgjörðin er svört og
gyllt. Upplýsingar í síma
824 3698.
Bækur
gleymdust
ÞAÐ gleymdust 4 bækur í
10–11 í Staðarbergi, Hafn-
arfirði, fyrir um 2 mánuð-
um. Þetta eru bækur um
sögu Hafnarfjarðar og
Hafnfirðinga. Eigandi get-
ur vitjað þeirra í síma
555 3511.
10–11, Staðarbergi.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
FJÓRIR kettlingar fást
gefins, eru staðsettir í
Garðabæ. Upplýsingar í
síma 698 6402.
Magnús.
Ungur högni fannst
UNGUR, ómerktur högni,
grár og hvítur að lit, fannst
í Fossvoginum 25. júní sl.
Upplýsingar í síma
568 7406.
Hefur þú séð óvenju-
lega litan kött?
TIGER Lily týndist hinn
26. júní frá Blásölum 9 í
Kópavogi. Hún er ársgöm-
ul og grönn, óvenjuleg á lit-
inn, brúnbröndótt með gul-
brúna bringu. Hún er með
rauða ól með bjöllu og
eyrnamerkt með tattú í
hægra eyra. Ef einhver
hefur séð hana, vinsamlega
hringið í síma 867 5762.
Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 blotna, 4 beitir tönnum,
7 kvabbs, 8 blauðum, 9
handlegg, 11 listi, 13
skotts,14 móðir, 15
skjóla, 17 ófríð, 20 kveik-
ur, 22 myrkur, 23 nið-
urgangurinn, 24 út,
25 stólpi.
LÓÐRÉTT
1 starfs, 2 gerir kaldara,
3 sleif, 4 brjóst, 5 munn-
biti, 6 orðasenna, 10
hæsi, 12 tunna, 13 mann,
15 ól, 16 vanin, 18 marg-
tyggja, 19 les, 20 reynd,
21 veisluréttur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1nafnbótin, 8 ennið, 9 illan, 10 inn, 11 numið, 13
nánar, 15 glans, 18 kasta, 21 ker, 22 látna, 23 alurt, 24
nauðstödd.
Lóðrétt: 2 afnám, 3 níðið, 4 Óðinn, 5 iglan, 6 senn, 7
snær, 12 iðn, 14 ása, 15 gola, 16 aftra, 17 skarð, 18 kraft,
19 stund, 20 akta.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16