Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Umbylting almenningssamgangna á höfuðborgarsvæð- inu er í undirbúningi. Hjálmar Jónsson ræddi við Ás- geir Eiríksson, framkvæmdastjóra Strætó bs. Innrás Hrókanna Grænlandsmótið í skák var haldið í Qaqortoq á Suður- Grænlandi í júnílok og var skáksamband Grænlands stofnað um sama leyti. Ómar Óskarsson fylgdist með. Sögur af snæuglunni Snæuglan er sjaldgæfur varpfugl á Íslandi. Guðmundur Guðjónsson og Kjartan Þorbjörnsson leituðu uppi vís- bendingar um varp uglunnar á Melrakkasléttu. Á ferð með strætó á sunnudaginn BÆJARSTJÓRA SAGT UPP Meirihluti bæjarstjórnar Vest- mannaeyja tilkynnti í gær að Inga Sigurðssyni bæjarstjóra yrði sagt upp og Bergur Elías Ágústsson tæki við af honum. Uppsögn Inga var mótmælt í gærmorgun af um 300 manna hópi íbúa sem þeyttu bílflautur sínar fyrir framan Ráðhús Vestmannaeyja. Gert er ráð fyrir að Bergur Elías taki við bæjarstjóra- stöðunni 15. júlí nk. Ný rannsóknamiðstöð Fjölmenni var samankomið í Há- skólanum á Akureyri í gær þegar Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra tók fyrstu skóflu- stungu að Rannsókna- og nýsköp- urnarhúsi sem rísa mun á háskólasvæðinu. Með húsinu verður til fyrsta flokks aðstaða fyrir kennslu og rannsóknir í raunvís- indum með hagnýtingarmöguleika fyrir hin ýmsu svið þjóðlífsins og þar mun verða miðstöð rannsókna- og þróunarstarfs á Norðurlandi. Nær ekki til ákæruvalds Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra segir skýrt að vald utanrík- isráðuneytisins nái ekki til ákæru- valdsins frekar en vald dómsmálaráðuneytisins. Þetta hafi breyst með lagasetningu árið 1962 er ákæruvaldið var fært frá dóms- málaráðherra og þar með einnig ut- anríkisráðherra í þeim tilvikum sem það á við. Viðurkennir vanda í Írak George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, viðurkenndi í gær að við öryggisvandamál væri að etja í Írak en þá höfðu borizt fréttir um að tveir bandarískir hermenn hefðu fallið í árásum í landinu. Tommy Franks, hershöfðingi í Bandaríkjaher, sem leiddi innrás herja bandamanna í Írak, tjáði hermálanefnd full- trúadeildar Bandaríkjaþings í gær að búast mætti við því að bandarísk- ir hermenn yrðu enn í Írak eftir fjögur ár. Óttast hrinu hryðjuverka Yfirvöld í Moskvu sögðu í gær að búast mætti við hrinu hryðjuverka í borginni eftir að tétsensk kona reyndi að sprengja veitingahús í miðborginni í loft upp, nokkrum dögum eftir sprengjuárásir sem kostuðu sextán manns lífið. Þótt árás konunnar hefði mistekizt beið sprengjusérfræðingur bana þegar hann reyndi að gera sprengjuna óvirka. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 28 Viðskipti 11/12 Viðhorf 32 Erlent 14/16 Minningar 32/39 Höfuðborgin 18 Bréf 40 Akureyri 18/20 Dagbók 42/43 Suðurnes 22 Sport 44/47 Austurland 33 Leikhús 48 Landið 24 Fólk 48/53 Listir 24/25 Bíó 50/53 Umræðan 26 Ljósvakamiðlar 54 Menntun 27 Veður 55 * * * F Ö S T U D A G U R 1 1 . J Ú L Í 2 0 0 3 B L A Ð B  SKIPTIR LITUM EFTIR ÁRSTÍÐUM /2  LEITAÐ AÐ LJÓSHÆRÐUM DRENG /3  ÉG VIL EKKI HORFA Í AUGUN Á FÓLKI /4  ÆVINTÝRI Á GÖNGUFÖR /5  FJARSTADDIR FEÐUR /6  ÚR PRENTI Í 360°C FISKA /7  MARGT er þaðsem æskandundar sérvið og gamlir leikir öðlast nýtt líf með nýjum kynslóðum. Ófáir eiga minningar frá harki upp við húsvegg og enn í dag leika krakk- ar sér að því að harka með krónupeninga. En nú hafa marglitir Drakkókarlar (Dracco) rutt sér til rúms í harkinu og þá gilda sömu gömlu regl- urnar – þótt tilbrigði þróist vissulega innan ólíkra hópa. Leikendur kasta hver sín- um Drakkókarli upp að vegg og hann verður að skella á veggnum og velta til baka. Sá sem á karlinn sem nemur staðar næst veggnum slær eign sinni á alla karla í því kasti. Þannig er hægt að vinna Drakkókarla af öðrum og safna þeim. Þeir bekkjarbræður og vinir, Alexander Örn Júlíusson og Sigurður Stefán Flygenring, eiga hvor um sig þónokkuð safn af Drakkókörlum og Sig- urður á auk þess nokkra Jojo’s-karla sem hann keypti sér á ferðalagi í Frakklandi í fyrrasumar. Þeim finnst gaman að harka og segja að einnig sé hægt að spila með þessum körlum á annan hátt. „Þá er körlunum kastað upp í loft og maður fær mismun- andi stig eftir því hvernig þeir lenda. Erfiðast er að fá þá til að lenda standandi en ef það tekst þá fær maður tíu stig. Ef þeir lenda á bakinu eða hliðinni þá fær maður fimm stig en ekkert stig ef þeir lenda á maganum.“ Á Drakkókarlana eru ennfremur letraðar misháar tölur, sem gerir þá misjafnlega verðmæta og leikinn þar með meira spennandi hjá þeim sem taka þá breytu með í reikninginn. Þeir félagar voru ný- komnir frá Vest- mannaeyjum þar sem þeir voru að keppa á fótboltamóti drengja og sögðust hafa nýtt tímann á milli leikja til að spila fótboltaspil með skrúftöppum af gosflöskum sem þeir segja mjög vinsælt. „Þessi leikur gengur út á það að skora mark og vinna þannig stig. Sá sem er fyrstur til að vinna sér inn fimm stig, hann vinnur.“ Þremur töppum á hvolfi er stillt upp í röð og sá sem spilar hverju sinni á að skjóta miðjutappanum fram með þumalfingri. Hinir, einn eða fleiri, búa til mörk með vísifingri og litlaputta og leikmaðurinn á að skjóta töppunum til skiptis í átt að einhverju markinu og reyna að skora. Á leið tappanna að markinu má aðeins skjóta tappa á milli hinna tappanna tveggja, ekki má skjóta aftur á bak og tapp- arnir mega ekki snerta hver annan, þannig að það getur verið þónokkur kúnst að fá stig. Sigurður og Alexander segjast spila þessa leiki bæði úti og inni, ýmist tveir eða fleiri. Þeir segja gott að grípa til þeirra inni við til þess að láta sér ekki leiðast þegar sumarveðrið verður of blautt til útiveru. HARK fellur seint úr gildi Morgunblaðið/Arnaldur Drakkókarl- arnir eru frekar ólögulegir og kúnst- ugir á svip. Alexander býr sig undir að skjóta tappa á milli tveggja annarra og ætlunin er að hitta í markið sem Sigurður hefur búið til með fingrunum. Einbeiting Alexanders leynir sér ekki þegar litríkum Drakkókarli er kastað enda skiptir öllu máli að karl- inn nái að snerta vegginn en fari þó ekki langt til baka. Sigurður fylgist grannt með karlinum fljúgandi og bíður spenntur eftir úrslitum. PÁLL Agnar Pálsson, fyrrverandi yfirdýra- læknir, andaðist á Land- spítala í Fossvogi í gær. Páll Agnar fæddist 9. maí árið 1919 að Kletti í Reykholtsdal. Foreldrar hans voru Páll Zóph- óníasson, skólastjóri, búnaðarmálastjóri og al- þingismaður í Reykjavík og kona hans Guðrún Hannesdóttir húsmóðir. Páll varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1937 og lauk prófi frá dýralæknahá- skólanum í Kaupmannahöfn 1944. Hann var við dýralæknastörf á Jót- landi 1944–45 og lagði síðar stund á framhaldsnám í sýkla- og meinafræði húsdýra í Danmörku, Svíþjóð og á Bretlandi. Fór hann einnig í náms- ferðir til Bandaríkjanna, Bretlands, Svíþjóðar og Danmerkur. Páll Agnar var sérfræðingur við Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum á árunum 1948–1956 og 1979–1998 og var forstöðumaður þeirrar stofnunar á árunum 1959–– 1967. Páll Agnar gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum og átti m.a. sæti í stjórn Tilraunaráðs búfjárræktar 1960–65, í dýraverndarnefnd 1958– 78, í stjórn Vísinda- sjóðs 1972–75 og var formaður fisksjúk- dómanefndar um ára- bil. Þá sat hans ýmsa fundi og ráðstefnur um búfjársjúkdóma er- lendis og flutti erindi um það efni víða um lönd. Páll Agnar var kjör- inn félagi í Vísindafélag Íslendinga árið 1965. Hann var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Den kongelige Vet- erinær- og Landbohøj- skole í Kaupmannahöfn árið 1974, við Norges Veterinærhöjskole 1985 og við læknadeild Háskóla Íslands 1986. Hlaut hann heiðursverðlaun úr sjóði Ásu Wright árið 1976 og varð heið- ursfélagi í Finlands Veterinærför- bund árið 1992. Einnig varð hann heiðursfélagi í Íslenska dýralækna- félaginu árið 1994. Páll Agnar lagði stund á ritstörf og ritaði fjölda rit- gerða, einkum um búfjársjúkdóma, sem birst hafa í innlendum og erlend- um tímaritum. Páll Agnar kvæntist eftirlifandi konu sinni, Kristen Henriksen dýra- lækni, 22. júní árið 1946. Eignuðust þau tvær dætur og fjögur barnabörn. Andlát PÁLL AGNAR PÁLSSON LJÓST er að ekki var farið að reglum þegar maurasýra var sett í sama gám og 15% klórlausn en gámurinn valt á svæði Landflutninga við Skútuvog í fyrrakvöld. Hvarfist þessi efni saman myndast lífshættulegt og ætandi gas. Anna Guðný Aradóttir, markaðs- stjóri Samskipa, segir að vandlega verði farið yfir hvað fór úrskeiðis og gripið hafi verið til aðgerða hjá fyr- irtækinu til að reyna að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki. Víðir Kristjánsson, deildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu, segir að sam- kvæmt reglum um flutning á hættu- legum farmi sé bannað að flytja efni sem geta hvarfast hættulega hvort við annað. Því megi ekki flytja klór og maurasýru saman en stundum geti verið erfitt að átta sig á því hvaða efni falli í þennan flokk. Til að fá réttindi til að flytja hættulegan farm þurfa bíl- stjórar að fara á námskeið. Víðir er sá eini sem kennir á þessum námskeið- um og segist hann alltaf minnast á að bannað sé að flytja klór og maurasýru saman. Bílstjórarnir sjá á hinn bóginn ekki alltaf um að ferma bílana heldur hlaðmenn sem þurfa engin réttindi til þess. Í gámnum var ýmis efnavara, m.a. terpentína og rafgeymasýra. Í fréttatilkynningu frá Samskipum kemur fram að bilun í svokölluðum gámastól flutningabílsins varð til þess að tengivagn með gámnum valt á hlið- ina. Nokkuð af klórlausn hafi lekið út úr gámnum þegar umbúðir skemmd- ust en ekkert af maurasýrunni. Vegna hárréttra viðbragða starfs- manna Landflutninga, lögreglu og slökkviliðs hafi skjótt tekist að ná tök- um á aðstæðum. Ekki farið að reglum um flutning hættulegra efna Morgunblaðið/Júlíus Reglur voru brotnar er maurasýra og klórlausn voru sett saman í gám. BROTIST var inn í fiskiðjuna Fisco við Kalmarsvelli á Akra- nesi í fyrrinótt og stolið tæp- lega einu tonni af humri og öðrum fiski. Þjófarnir brutu sér leið inn um glugga. Að sögn lögreglu hafa þeir opnað stórar dyr og ekið þar inn með flutningstæki og hlaðið humr- inum í bílinn. Humarinn var geymdur í kæliklefa. Svo virð- ist sem mennirnir hafi brotist gagngert inn í Fisco til að stela humrinum því önnur verðmæti á staðnum voru ekki snert. Mikil verðmæti Vinna í fiskiðjunni lá niðri vegna sumarfría. Eigendurnir komu á staðinn um kl. tíu í gærmorgun og uppgötvuðu þá að brotist hafði verið inn. Afurðirnar sem stolið var voru að mestu fullunnar og er um mikil verðmæti að ræða. Engar eftirlitsmyndavélar voru í fiskiðjunni. Lögregla óskar eftir upp- lýsingum um mannaferðir við staðinn í fyrrinótt. Stálu tæpu tonni af humri BAUGUR hefur keypt sportvöru- verslunina Nanoq í Kringlunni af Kaupþingi Búnaðarbanka. Fyrir átti Baugur fyrirtækið Útilíf, sem rekur samnefndar verslanir í Glæsibæ og Smáralind. Jón Björnsson, fram- kvæmdastjóri Baugs Ísland, segir að Útilíf sé sjálfstætt fyrirtæki í eigu Baugs Ísland og það hafi nú yfirtekið rekstur Nanoq. Hann segir að engar breytingar séu áformaðar á rekstr- arfyrirkomulagi fyrst um sinn að minnsta kosti. Hlutirnir hafi gerst hratt og nú eigi eftir að fara betur yf- ir reksturinn. Jón segir að Útilíf sé mun stærra fyrirtæki en Nanoq-verslunin ein hafi verið, en aðspurður sagðist hann ekki vita nákvæmlega hver hlutdeild Útilífs yrði á sportvörumarkaðnum eftir yfirtöku Nanoq. Jóhann Pétur Reyndal, sérfræð- ingur í fyrirtækjaráðgjöf hjá Kaup- þingi Búnaðarbanka, segir að Kaup- þing hafi keypt Nanoq af skiptastjóra í framhaldi af gjaldþroti fyrirtækisins í fyrra. Kaupþing hafi síðan gert töluverðar breytingar til að straumlínulaga reksturinn, meðal annars hafi húsnæðið verið minnkað um helming og sé nú á einni hæð í stað tveggja áður. Jóhann Pétur segir að eftir að reynsla hafi verið komin á rekstur- inn eftir hagræðingu hafi skapast tækifæri til að selja og að fljótlega hafi náðst ágætis samningar við Baug. Hann segist telja að báðir að- ilar geti unað vel við þessi viðskipti, en sagði aðspurður að kaupverðið væri trúnaðarmál. Verslunin Nanoq var stofnuð árið 1999 á tveimur hæðum í nýrri við- byggingu Kringlunnar. Fyrirtækið Íslensk útivist ehf. rak verslunina og eigendur voru þrír, Hjálparsveit skáta í Reykjavík, Eignarhaldsfélag- ið Hof sf. og Einar Sigfússon. Um mitt ár í fyrra eignaðist Fasteigna- félagið Þyrping, sem var að meiri- hluta í eigu Kaupþings, allt hlutafé í Íslenskri útivist. Þyrping hafði átt rúm 30% í fyrirtækinu, en nýtti sér forkaupsrétt sinn til að eignast tæp- lega 70% í viðbót þegar sá hlutur var seldur. Í júlí var versluninni lokað og beiðni lögð fram um gjaldþrota- skipti. Í tengslum við gjaldþrotið kom fram að verslunin hefði frá upp- hafi verið rekin með tapi. Þá kom fram að ýmislegt hefði verið reynt til að bjarga fyrirtækinu, meðal annars hefðu átt sér stað þreifingar við Int- ersport um sameiningu og viðræður við Baug um sameiningu við Útilíf. Útilíf yfirtekur Nanoq
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.