Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 24
LANDIÐ 24 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR EKKI virðist öll von úti um vin- sældir karlakvartetta ef marka má mikla aðsókn að tónleikum Út í vorið í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar s.l. þriðjudag, þar sem bæta þurfti við mörgum aukasætum þrátt fyrir áformaða endurtekningu. Kvart- ettinn fagnar tíu ára starfsafmæli þetta sumar og var þess getið í tón- leikaskrá að frumraun hans hefði ein- mitt átt sér stað á sama vettvangi. Enn eimir eftir af þeim afdæla vist- arbandskæk að hirða lítt um frum- heiti erlendra laga (og stundum jafn- vel höfunda þeirra [„lagið er erlent“]), þegar fyrst er kominn inn- lendur söngtexti. Eða hver þekkir orðið vals Johanns Strauss „Eitt sinn í æskutíð“ eingöngu af samnefndu ljóði Emils Thoroddsen? Þetta blítt sungna lag var fyrst á dagskrá og næst á eftir fylgdu nokkrir fastir liðir úr gamalgrónum handraða – hið ljúfa „Enn syngur vornóttin“ (M. Schra- der), „Persneskt ástarljóð“ (Anton Rubinstein) og Parísarvalsinn „Hvar er sú ást“ (Charles Tenet). Capríljóð- ið ítalska var kannski í hægasta lagi en rann samt ljúflega niður og sömu- leiðis hinn gamli, sígræni smellur Melles Weersma, „Litla Reykjavík- urmær“ (já, hvað skyldi hann nú ann- ars heita upphaflega, hvers lenzkur er hann og frá hvaða ári?). Varfærinn harmonikumeðleikur Daníels Þor- steinssonar samhliða píanóleik Bjarna virtist allur útskrifaður og gæddi síðastgreindu þrjú lög skemmtilegri gamaldags farmanna- rómantík. Næst kom Ég vildi að ég væri eftir Jón Jónsson frá Hvanná, frekar dauft lag sem á ugglaust ljóði Davíðs Stef- ánssonar mikið að þakka. Úr Skila- boðaskjóðu Jóhanns G. Jóhannssonar við texta Þorvalds Þorsteinssonar – eftir tónlistinni að dæma einn bezt heppnaði barnasöngleikur okkar í áraraðir – söng ÚÍV tvö lög í útsetn- ingu höfundar, hinn kankvísa Söng dverganna og Hugrenningar Rauð- hettu, sem áttu hlýlegar undirtektir sínar fyllilega skildar. Þegar spurt er hvers vegna meist- aralegir söngdansar Jóns Múla og Jónasar Árnasona lágu lengi í þagn- argildi á 9. og 10. áratug, kemur upp sú hugsun að kannski hafi þeir nærri því verið kyrjaðir í hel með syrpum 14 Fóstbræðra sem, með fullri virðingu fyrir flytjendum og útsetjanda, voru leiknar lon og don á öldum ríkisljós- vakans. Og voru nánast einar um hit- una, þar til djassliðum rann loks blóð- ið til skyldunnar á allra síðustu árum. En meðferð ÚÍV á Múlalögunum fimm í útsetningu Bjarna Þ. Jónat- anssonar – Gettu hver hún er, Elegía Andrésar oftskorna, Hvað er að, Undir Stórasteini og Í hjarta þér – sýndi svo ekki varð um villzt að þess- ar smáperlur eiga bráðvel við kar- lakvartettsöng. Að vísu verða Hvað er að og Elegían (sem lifir aðallega á fyndni textans) varla taldar með stór- smellum Múlans. Undir Stórasteini hefði þurft á ofurlítillli sveiflu að halda, sem er ekki aðalsmerki hins settlega kreppuárastíls ÚÍV, og Í hjarta þér hefði mátt vagga aðeins meir af lostafengnum beguine. Að aukalögum slepptum lauk dag- skránni með ljúfsárri stríðsárabal- löðu Sherwins A Nightingale Sang in Berkeley Square, er Jónas Árnason staðfærði lipurlega með Á leiðinni yf- ir Arnarhól, og einkennislagi kvart- ettsins, túlípanavalsinum Blómin frá Amsterdam eftir Ralf Arnic. Í heild voru miðsumartónleikar hópsins skemmtilegir og furðufjöl- breyttir miðað við ráðsettan aldur mikins hluta verkefnavals, a.m.k. á mælikvarða dægurlaga. Jafnvægi milli radda var oftast til fyrirmyndar, þó að söngur og undirleikur hefðu stundum mátt vera tápmeiri, hraða- val almennt líflegra og tónstaða innradda aðeins hreinni en raun bar vitni. Ljúfsár kreppu- árarómantík TÓNLIST Sigurjónssafn Erlend og íslenzk lög eftir m.a. Jóhann G. Jóhannsson og Jón Múla Árnason. Kar- lakvartettinn Út í vorið (Einar Clausen & Halldór Torfason T, Þorvaldur Friðriksson & Ásgeir Böðvarsson B). Þjálfari, útsetj- ari og píanóleikari: Bjarni Þór Jón- atansson. Harmonika: Daníel Þor- steinsson. Þriðjudaginn 8. júlí kl. 20:30. KARLAKVARTETT Ríkarður Ö. Pálsson HANN er nýlega orðinn sextán ára og lauk grunnskólaprófi í vor. Þrátt fyrir það vann hann gull í karla- flokki á svonefndu Lagarfoss rodeo sem haldið var við Lagarfljóts- virkjun um síðustu helgi. Kristján Sveinsson, ungur og efni- legur Hvergerðingur, gerði sér lítið fyrir og vann bikarinn, langyngsti keppandinn á mótinu. Félagar hans í sportinu kalla hann „strákinn sinn“ vegna þess hversu mikill aldurs- munur er á honum og öðrum sem stunda kajaksiglingar. Elsti kepp- andinn á mótinu var kominn hátt á fertugsaldur. „Sá elsti er ekki mikið yngri en mamma,“ segir Kristján og glottir. En hvað kemur til að strákur sem býr lengst inni í landi ákveður að gerast siglingamaður? Kristján keypti sinn fyrsta kajak fyrir ferm- ingarpeningana sína eftir að Ragnar Karl, frændi hans, og vinir þeirra kynntu hann fyrir kajakróðri. „Þetta er því þriðja sumarið mitt í þessu,“ segir Kristján. „Við Mummi, æfingafélagi minn, æfum okkur mest í Þjórsá, þar er gott að æfa „trixin“. Við höfum líka verið í Varmánni og sl. haust fengum við að vera í sundlauginni í Laugaskarði að æfa okkur. Um helgar siglum við á ám sem hafa flúðir.“ Þegar Kristján er spurður hvort einhver námskeið séu í gangi, segist hann lesa sér til á Netinu: „Svo fer ég bara og æfi mig,“ segir hann og lætur eins og þetta sé ekkert mál, en þeir sem hafa séð kajakróður vita að það er meira en að segja það að róa á kajak og það er alveg á hreinu að magavöðvarnir þurfa að vera í góðu lagi. Kristján keppti líka í opnum flokki, þar sem útlendingum var leyft að keppa. Þar hafnaði hann í þriðja sæti og fékk bronsið. Gull- verðlaunahafinn í þeim flokki var Nepalbúi sem er atvinnumaður í greininni, býr hér á landi og vinnur við fljótasiglingar í Skagafirði. Silf- urverðlaunahafinn er enskur at- vinnumaður sem fer um heiminn og keppir. Ekki slæmt að vera næstur á eftir þeim. En hver ætli framtíðarplönin séu hjá gullverðlaunahafanum? „Í sum- ar vinn ég við smíðar, í haust fer ég í Vélskólann, annað er ekki ákveðið.“ Þetta er dýrt sport, allur búnaður er mjög dýr og sem dæmi um það þurfti Kristján að fá sér eina ár fyrir keppnina fyrir austan, hún kostaði fjörutíu og fimm þúsund krónur. Í framhaldi af samtali um hversu dýrt þetta er segir Kristján að það væri gaman að búa til myndband og senda út og athuga hvort einhver vilji styrkja hann. „Fyrirtæki gætu til dæmis auglýst á kajaknum,“ skýt- ur móðir Kristjáns, Helga Kristjáns- dóttir, inn í. Það verður án efa gam- an að fylgjast með Kristjáni í framtíðinni og eftir því sem Helga móðir hans segir hefur fólk mikinn áhuga á þessu, því að þegar þeir eru að æfa sig í Þjórsánni myndast oft bílalestir, fólk stoppar bílana sína og fylgist með þeim leika listir sínar á ánni. Keypti kajak fyrir fermingarpeningana Hveragerði Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Kristján Sveinsson, 16 ára gull- verðlaunahafi, með bikarinn sinn. ÞEIR áttu langa ferð fyrir höndum feðgarnir Svavar Þorbergsson og Gautur sonur hans sem komu norð- ur á Strandir úr Suður-Múlasýslu til að sækja heyþyrlu sem þeir höfðu fest kaup á. Svavar, sem er bóndi í Hamars- seli í Djúpavogshreppi, var að koma í fyrsta sinn á Strandir. „Þetta er bara skemmtiferð í leið- inni og gaman að sjá nýtt landslag og við köllum þetta nú bara ása sem þið kallið fjöll hérna,“ sagði hann þegar hann leit í kringum sig og miðaði þá við sína heimabyggð þar sem mikið er um þverhnípt klettabelti og skriðurunnar hlíðar og ekki er mögulegt að smala á hestum. Svavar og kona hans, Guðný Jónsdóttir, búa með sauðfé og hesta í Hamarsseli. Þau höfðu 428 fjár á fóðrum síðastliðinn vetur og Svavar segir mikla breytingu á af- komunni í sauðfjárbúskapnum síð- ustu ár. „Í kringum 1980 vorum við með um 500 lömb í innlegg og höfð- um það bara mjög gott án þess að vinna úti frá, en í dag starfar konan með búinu á Djúpavogi. Afurða- verðið hefur lækkað svo mikið síð- astliðin ár og mikil óvissa í sam- bandi við útflutningsverð til bænda.“ Svavar og Guðný hafa búið í Hamarsseli frá árinu 1961 og eru bæði Austfirðingar, hún úr Álfta- firði en hann frá Fáskrúðsfirði. Þau kynntust þó í Skagafirði þar sem Svavar var íBændaskólanum á Hól- um en hún í Húsmæðraskólanum á Löngumýri. Ekkert að gefast upp Svavar segist ekkert vera að gef- ast upp á búskapnum. „Það hlýtur nú að sjást á útliti karlsins að hann er ekki lengur til neinna stórræða. Við höfum verið svo lánsöm að hafa góða hjálp í heyskapnum og við sauðburðinn frá börnunum okkar en Gautur, sem er trésmiður og vinnur í Reykjavík, kemur oft aust- ur og hjálpar okkur mikið.“ Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir Svavar Þorbergsson, bóndi í Hamarsseli við Hamarsfjörð, og sonur hans Gautur leggja af stað þvert yfir landið með heyþyrluna og víluðu það ekki fyrir sér enda nóttin björt á þessum árstíma. Með heyþyrlu þvert yfir landið Strandir Laugardagur Kaffihúsið Græna kannan kl. 16: Sumarkabarett. Söngdagskrá Söng- sveitar Leikfélags Sólheima flytur m.a. lög úr Grease, eftir Bítlana, Abba o.fl. Sunnudagur Kaffihúsið Græna kannan kl. 16: Skálholtskórinn syngur nokkur vel valin lög undir stjórn Hilmars Arn- ar. Ingustofa er opin um helgina kl. 13–18: Sumarsýning Sólheima. Að þessu sinni er það leirgerð Sólheima sem sýnir afrakstur vinnu sinnar. Legósýning Árna Alexanders. Útimarkaður á aðaltorgi Sól- heima er opinn um helgina kl. 13– 17: Þar eru í boði listmunir og líf- rænt grænmeti. Þema helgarinnar er: Tré og hljóðfærasmiðja Sól- heima. Tré- og hljóðfærasmiðjan er opin almenningi og þar er hægt að fylgjast með listamönnum að störf- um. Græna kannan er opin kl. 13–18. Verslun og listhús Vala er opin kl. 11–18. Listasumar á Sólheimum Morgunblaðið/Jón Svavarsson Einn listamannanna að störfum. FYRIR nokkru undirritaði Krist- inn Jónasson, bæjarstjóri Snæ- fellsbæjar, í umboði bæjarfélag- anna fimm á Snæfellsnesi, Snæfellsbæjar, Grund- arfjarðarbæjar, Stykkishólms- bæjar, Eyja- og Miklaholtshrepps og Helgafellssveitar, samning við Staðardagskrá 21 um vottunar- verkefni á Snæfellsnesi. Með undirritun þessa samnings er stigið enn eitt skref í átt að því að Snæfellsnes fái fullnaðarvottun sem umhverfisvænn áfangastaður sem starfar með sjálfbæra þróun í ferðaþjónustu að leiðarljósi. Reiknað er með að fyrsti vinnu- fundur innlendra og erlendra að- ila, sem að verkefninu koma, verði haldinn í ágúst, en sumarfrí hamla því að hægt sé að halda hann fyrr. Reiknað er með því að undir- búnings- og úttektarferlið taki um 6–8 mánuði og því má gera ráð fyrir að Snæfellsnes verði vottað sem umhverfisvænn áfangastaður á fyrri hluta næsta árs. Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann Reg Easy frá vottunardeild Stað- ardagskrár 21 og Kristinn Jón- asson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, eftir undirritun samningsins. Staðar- dagskrá 21 staðfest Hellnar ERLA Norðdahl opnar sýn- ingu á klippimyndum (Collage) í sýningarsal Íslenskrar grafík- ur, Tryggvagötu 17, kl. 17 í dag, föstudag. Myndirnar hefur hún unnið sl. 2 ár og eru þær að mestu leyti unnar úr efni úr dagblöð- um. „Tilgangur þessarar sýning- ar er að sýna að klippimynda- tækni getur bæði verið undir- staða og sjálfstæð tjáning í myndsköpun. Myndefnið höfð- ar til myndflæðis okkar tíma eins og við sjáum hann sem stöðugt brot af stærri heild fjöl- miðla, svo sem blaða, tímarita og sjónvarps,“ segir Erla um sýningu sína. Opið frá kl. 14–18 fimmtu- daga til sunnudaga til 27. júlí. Klippimyndir í Íslenskri grafík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.