Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Karlotta Einars-dóttir fæddist í Hafnarfirði 3. októ- ber 1925. Hún lést á Dvalarheimili aldr- aðra sjómanna í Hafnarfirði 3. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Einar Helgi Nikulásson, f. 4.5. 1896, d. 19.9. 1966, og Friðrika Guðbjörg Eyjólfs- dóttir, f. 27.9. 1900, d. 17.9. 1996. Auk Karl- ottu eignuðust þau Eyjólf, f. 3.8. 1927, Ingveldi, f. 15.11. 1930, og Nikulínu, f. 2.12. 1931. Árið 1952 giftist Karlotta Guð- jóni Halldórssyni skipstjóra frá Ísafirði, f. 18.8. 1917, d. 2.10. 1991. Foreldrar hans voru Halldór Frið- geir Sigurðsson, f. 26.6. 1880, d. 17.11. 1960, og Svanfríður Al- bertsdóttir, f. 26.10. 1895, d. 20.6. 1966. Þau Karlotta og Guðjón áttu saman þrjú börn, þau Guðbjörgu, f. 31.10. 1951, Helgu, f. 7.8. 1953, og Halldór, f. 30.7. 1954. Guðbjörg giftist Ólafi Inga Reynissyni, f. 26.1. 1952, þau skildu. Hún eign- aðist með honum Ísak, f. 10.4. 1977, Ólaf Fannar, f. 23.6. 1981, og Mörtu Sif, f. 13.11. 1986. Helga giftist Birgi Jónssyni, f. 25.7. 1963 og átti með honum Söndru, f. 23.6. 1986. Einnig á Helga Brynjólf Helga, f. 10.2. 1979. Halldór eignaðist með fyrri konu sinni, Sigríði Baldursdótt- ur, f. 4.7. 1955, Guð- jón Má, f. 1.6. 1977, Baldur Arnar, f. 6.11. 1985, og Karl- ottu Laufeyju, f. 30.9. 1987, og með seinni konu sinni Sigríði Guðrúnu Baldursdóttur, f. 6.3. 1966, Baldur Hrafn, f. 6.11. 1990, og Gísla Jóhann, f. 7.7. 1998. Guðjón átti með fyrri konu sinni, Maríu Rebekku Sigfúsdótt- ur, þrjú börn, Svanfríði Maríu, f. 30.12. 1940, Gylfa, f. 2.5. 1944, og Selmu, f. 2.10. 1945. Þeirra börn og barnabörn eru nú orðin 27. Þau Karlotta og Guðjón bjuggu öll sín samvistarár í Hafnarfirði og vann Guðjón við störf tengd sjó- mennsku; var skipstjóri, útgerðar- maður og síðan starfsmaður við tilkynningaskyldu íslenskra skipa hjá Slysavarnafélagi Íslands. Karlotta vann nokkur ár við versl- unarstörf, um tíma hjá Landssím- anum og síðar við íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði, auk heimilisstarfanna sem oft kröfðust mikils af sjómannskonu. Útför Karlottu verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Karlotta Einarsdóttir var einstök kona á allan hátt. Hún ólst upp með systkinum sínum í foreldrahúsum í Hafnarfirði og ól allan sinn aldur í Hafnarfirði. Þegar hún varð stjúp- móðir mín á sínum tíma, mætti ég hjá henni hlýju og skilningi, sem varði alla okkar samveru fram að lokadegi. Hún var föður mínum stoð og stytta þegar hann réðst í að fara í útgerð með kaupum á vélbátnum Kóp GK, 17 tonna bát sem gerður var út frá Hafn- arfirði og var faðir minn skipstjóri á honum. Karlotta var þá nokkurs kon- ar útgerðarstjóri, sá um útborgun launa til áhafnar og annað sem hún komst yfir með sínu heimilishaldi og barnauppeldi. Síðar festu þau kaup á Víkingi RE-240, 36 tonna bát, sem gerður var út frá Reykjavík. Hún var ósérhlífin, afar nákvæm og traust við allt bókhald útgerðarinnar og naut sérstaks trausts og vináttu þeirra manna sem skipuðu áhöfn föður míns hverju sinni, ekki síst okkar þeirra yngri. Hún starfaði um árabil hjá Landssímanum og einnig mörg ár í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafn- arfirði. Karlotta var afar gestrisin kona, enda geislaði ávallt frá henni velvild og hlýju í allar áttir. Á heimili hennar var oft mjög gestkvæmt, bæði vegna útgerðarinnar og eins komu Vestfirð- ingar, systkini og frændfólk föður míns þar oft við og gisti þá gjarnan, eða þá að komið var saman í sum- arbústaðnum við Þingvallavatn, þar sem hún átti margar ánægjustundir með fjölskyldu og vinum. Karlotta var sonum okkar hjóna og barnabörnum sú besta amma sem hugsast getur, enda fékk hún oft heimsóknir þeirra síðustu ár sín, þar sem hún dvaldi á Hrafnistu í Hafnarfirði við afar gott atlæti. Við sendum Guðbjörgu, Helgu, Halldóri, fjölskyldum þeirra og öðrum aðstandendum Karlottu Einarsdóttur samúðarkveðjur og þökkum samfylgdina með henni. Gylfi Guðjónsson og fjölskylda, Mosfellsbæ. Nú er látin ástvinur okkar, Karlotta Einarsdóttir. Við fráfall ná- inna ættingja hrannast upp minning- ar um atburði og samverustundir sem gera lífið eftirminnilegra og fegurra. Við hjónin vorum svo lánsöm að fá að vera með Köllu og Guðjóni á lífs- leiðinni í langan tíma, bæði í daglegu lífi, á ferðalögum og í sumarleyfum í sumarbústöðunum fyrir vestan og síðar við Þingvallavatn. Þau Kalla og Guðjón voru ekki að- eins raungóð, alúðleg og gestrisin heldur einnig einstaklega trúir vinir. Efst í huga okkar standa minningarn- ar um veiðiferðir Guðjóns og Reynis á Þingvallavatni og spilakvöldin þar sem enginn gat skákað Köllu, sem alltaf fann ráð í hverjum vanda. Kalla var einstaklega minnug og leituðum við öll til hennar t.d. ef þurfti að finna nöfn og fæðingardaga og dagsetningar ýmissa atriða innan fjölskyldunnar. Allt sem Kalla kom nærri var gert með nærgætni, tillits- semi og kærleika sem alla snart, bæði unga og aldna. Við þökkum af alhug starfsfólki á sjúkradeild 28 á Hrafnistu í Hafnar- firði fyrir umönnun hennar og elsku- lega framkomu við hana og ættingja hennar og ástvini sem komu að heim- sækja hana. Við kveðjum mikinn öðling, elsku- lega móður, ömmu, langömmu og fóstru og erum innilega þakklát fyrir að hafa átt hana og þökkum að leið- arlokum alla ástúð og þann kærleika sem hún veitti okkur öllum. Svana og Reynir. Ég fékk símtal fyrir viku um að amma væri dáin. Blessunarlega gafst mér færi á að kveðja hana þar sem ég var á landinu seinnipartinn í júní. Þrátt fyrir að amma væri orðin lúin tveimur vikum fyrir andlát brosti hún og sýndi þá hlýju sem hún hefur alltaf sýnt okkur bræðrunum og fjölskyld- um okkar í gegnum tíðina. Eftir sitja margar góðar minningar um trausta og umhyggjusama konu sem gerði miklu meira af því að gefa en þiggja. Minningarnar eru margar, allt frá þeim fyrstu þar sem við bræðurnir þvældumst í fótunum á ömmu í eld- húsinu að leika í dótaskúfunni, yfir í margar gistinætur síðar meir, þar sem mikið var spjallað og spilað. Amma og afi í Hafnarfirði munu óneitanlega koma upp í hugann í framtíðinni þegar spil eins og Manni og Orusta verða spiluð. Mér verður stundum hugsað um þá þolinmæði sem hún amma hafði þegar ég er að kenna dætrum mínum þau spil sem amma kenndi mér. Því miður kom- umst við fjölskyldan ekki til að fylgja þér til hinstu hvílu, elsku amma, en hugur okkar er stöðugt hjá þér. Við kveðjum þig hér í hinsta sinn og þökk- um þér allar hlýju og góðu stundirnar sem þú hefur gefið okkur. Þínir vinir, Ólafur Gylfason og fjölskylda í Hollandi. Elsku besta Kalla amma. Nú þegar við systkinin kveðjum þig, langar okkur að þakka allar yndislegu sam- verustundirnar í gegnum árin. Því minningarnar um þig sem hrannast nú upp í hugann á þessari stundu eru yndislegar þar sem þú varst nú ein blíðasta og besta kona sem við systk- inin þekktum. Til ykkar afa var alltaf svo gott að koma. Í hugann koma kærar minningar um samverustundir með þér og afa Guðjóni í sumarbústaðnum Víkingi á Ísafirði, gamlárskvöldin ógleyman- legu á Lækjargötunni í Hafnarfirði, sólarlandaferðin til Mallorca þegar við vorum börn, ættarmótin, sum- arbústaðurinn á Þingvöllum og margt, margt fleira. Elsku besta Kalla amma, far þú í friði og Guð geymi þig. Ásta María, Guðjón Karl og fjölskyldur. KARLOTTA EINARSDÓTTIR ✝ Guðríður Svafars-dóttir fæddist á Akranesi 19. septem- ber 1915. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 30. júní síðastliðinn. Foreldrar Guðríð- ar voru Guðrún Finnsdóttir, f. á Sýru- parti á Akranesi 30. júlí 1885, en alin upp á Geldingará í Leirár- sveit í Borgarfirði, d. 25. apríl 1942, og Svafar Þjóðbjörns- son, f. í Deildartungu í Reykholtsdal 14. nóvember 1888, en alinn upp í for- eldrahúsum á Neðra-Skarði í Leir- ársveit í Borgarfirði, d. 1. maí 1958. Þau bjuggu allan sinn bú- skap í Sandgerði á Akranesi. Syst- ur Guðríðar eru: Guðfinna, f. 3. apríl 1918, d. 6. september 1999, Steinunn, f. 27. apríl 1920, d. 3. júlí 1957, Sesselja, f. 31. ágúst 1922, d. 4. janúar 2000, Kristín, f. 21. júní 1924, d. 11. júní 2003, Lilja, f. 30. júní 1926, og Sigríður, f. 22. desem- ber 1927, d. í maí 1928. Eftirlifandi eiginmaður Guðríð- ar er Ólafur Halldór Þórðarson, f. á Selskerjum í Múla- sveit í Barðastrand- arsýslu 25. október 1920. Þau giftu sig 28. ágúst 1946. Börn þeirra eru: 1) Svavar Rúnar, f. 3. júní 1947, kvæntur Árnýju Ingibjörgu Filippus- dóttur, þau eru bú- sett í Hveragerði, börn þeirra: Stefán Herbert, f. 27. apríl 1963, d. 28. júlí 1990, Guðríður, Ólafur og Berglind. 2) Guðrún Svava, f. 7.12. 1950, gift Hirti Lárusi Harðarsyni, bú- sett í Hafnarfirði, börn þeirra eru: Steinunn Ólöf, Erla Björk og Hjör- dís Lára. 3) Indriði Þórður, f. 16. apríl 1953, kvæntur Lovísu Guð- laugu Stefánsdóttur, þau eru bú- sett í Noregi, börn þeirra eru: Lill Terese og Alexandra. Guðríður var klæðskeri að mennt og handavinnukennari og vann við kennslu bæði í Barna- og Gagnfræðaskólanum á Akranesi. Útför Guðríðar verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Stundum sækja á mann spurn- ingar, og svörin virðast svo óra- langt í burtu. Og stundum er eins og svörin þurfi ekki að koma, því það er eins og þau hafi alltaf ver- ið til staðar. Þegar maður veltir fyrir sér spurningum um lífið þá verða svörin svo sjálfsögð. En þegar spurningarnar snúast um dauðann, er eins og svörin séu ekki til. Samt er það svo ein- kennilegt að maður getur verið sáttur þótt svörin komi ekki. Maður hefur óttast kveðjustund- ina, svo kemur að henni, þá vakna spurningar, svo líður tími, þá birtast minningar sem eru svo fallegar að þeim er ekki hægt að glata. Elsku amma mín, minningin um þig er einstök, minningin um þig og afa í hjólhýsinu, sem var ykkar sælureitur, minningin um ferðalögin okkar í húsbílnum er svo falleg að ég geymi hana að ei- lífu. Minningin um ykkur á jólum heima hjá pabba og mömmu er svo fögur að henni er ekki hægt að gleyma. Núna þegar komið er að kveðjustundinni, finn ég fyrir hlýjunni sem alltaf fylgdi þér, ég veit að þú ert hjá mér í hjólhýs- inu og ég veit að ég á eftir að finna hlýju þína á jólum. Ég á alltaf eftir að finna þessa hlýju, því hún er mér dýrmætari en öll heimsins auðæfi. Hann Guð hann mun þess gæta þú getir sofið rótt, hann lætur ljóssins engla lýsa þér um nótt. Þegar myrkrið mætir þú manst hann vel þín gætir, hann öll þín verk í veröldinni sér. Og þegar ljósið logar og lífið í þig togar þá fljúga himins englar yfir þér. (Kristján Hreinsson.) Elsku amma mín, ég þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér, alla þá fegurð sem þú færðir inní líf mitt, allar ferðirnar sem við fór- um um landið, alla þá hlýju og alla þá birtu sem þú leyfðir mér að njóta með návist þinni. Núna ert þú farin í ferð sem ég skil kannski ekki, en samt veit ég það í hjarta mínu, að hvert sem ég ferðast og hvert sem ég fer, mun ég finna fyrir þér. Bless, elsku amma mín. Guðríður Svavarsdóttir. Elsku amma. Þegar við skrifum þessar línur förum við að rifja upp kærar minningar, ferðalögin okkar um landið, samveruna í kofanum og einnig í Sandgerði, þetta voru góðar stundir. Við erum heppnar að hafa eignast ömmu eins og þig. Þú varst einstök móðir og amma. Þú og afi voruð vön að dekra við okkur þegar við komum í heim- sókn á Skagann. Þið afi kennduð okkur svo margt um náttúruna, fuglana, steinana og blómin, kennduð okkur að skoða og bera virðingu fyrir landinu. Sögðuð okkur sögur frá ferðalögunum ykkar um heiminn. Amma, þú varst einstaklega sterk og góð kona sem vildir allt fyrir okkur gera. Síðustu dagarnir þínir hér á jörð sýndu hve sterk þú raun- verulega varst. Við vitum að við hittumst á góðum stað og þá munt þú taka á móti okkur eins og ávallt. Erla Björk, Hjördís Lára og Steinunn Ólöf. Guðríður Svafarsdóttir var ein- stök kona, hæglát, nægjusöm, viljasterk og þrautseig. Ég kall- aði hana alltaf Gauju. Það var gott og gaman að fara upp á Skaga að hitta þau hjón Óla og Gauju. Við spjölluðum mikið sam- an, en oftast kom handavinna inn í umræðuna sem henni var mjög kær, enda kenndi hún handa- vinnu á Akranesi. Ekkert fannst henni eins skemmtilegt og að sjá okkur Svövu sitja og sauma, þá leið henni vel og sagði alltaf, mik- ið væri nú gaman að gera svona. Sjónin var orðin slæm en áhug- ann vantaði ekki. Góðar stundir áttum við í kofanum, þar sem Óli gerði veislukaffi og var ekki lengi að því. Þar leið þeim hjónum mjög vel, úti í náttúrunni enda þau hjón eins og farfuglarnir, flugu að heiman um leið og skól- anum lauk, ferðuðust mikið bæði inn- og utanlands, komu jafnvel ekki heim aftur fyrr en skólinn hófst að hausti. Þú ert enn lögð að stað í nýtt ferðalag og vil ég hér þakka þér samfylgdina, ég mun sakna þín. Ég votta Óla, Svövu, Svavari, Indriða og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Sigrún Guðjónsdóttir. GUÐRÍÐUR SVAFARSDÓTTIR Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, CARLS P. STEFÁNSSONAR, Lækjasmára 2. Guð blessi ykkur öll. Ásta Guðrún Tómasdóttir, Níels Carl Carlsson, Inger Anna Lena Þ. Ericson, Stefán Carlsson, Rannveig Ásbjörnsdóttir, Jón Carlsson, afabörn og langafabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkar samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs sonar míns, sambýlismanns, föður, fóstur- föður, bróður og mágs, HJÁLMARS STEINÞÓRS BJÖRNSSONAR, Tangagötu 24, Ísafirði. Petólína Sigmundsdóttir, Rán Höskuldsdóttir, Hanna Rósa Hjálmarsdóttir, Björn J. Hjálmarsson, Hermann Andrason, Guðbjörg J. Björnsdóttir, Gróa Björnsdóttir, Erna S. Guðmundsdóttir, Tryggvi Guðmundsson, Þórunn Guðmundsdóttir, Björgvin Guðmundsson, Elín Rögnvaldsdóttir og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.