Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 45
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 45 Stórleikur í Víkinni! Víkingur-Keflavík í kvöld kl. 20:00 ALLIR Á VÖLLINN! „ÞAÐ kom sér vel í kvöld að vera gamall markvörður,“ sagði Krist- inn Lárusson, leikmaður Vals, kampakátur að leik loknum í gær. Kristinn bjargaði meistaralega á línu skoti frá Birni Viðari Ásbjörns- syni, sóknarmanni Fylkis, í síðari hálfleik og tryggði þar með Vals- mönnum stigin þrjú. Kristinn hefur verið frá knattspyrnuiðkun frá því í ágúst 2001 vegna náms og meiðsla. „Það er alveg frábært að koma inn í þennan slag aftur. Þjálfarinn [Þor- lákur Árnason] setti mig í stöðu vinstri bakvarðar að þessu sinni og þá stöðu hef ég aldrei leikið en ég er ánægður svo lengi sem ég fæ að spila. Þetta var góður sigur og ég tel að munurinn á liðunum í kvöld hafi verið sá að okkur langaði meira í sigur en Fylkismönnum,“ sagði sigurreifur vinstri bakvörður Valsmanna. Fengum færin Haukur Ingi Guðnason, sókn- armaður Fylkis, gekk heldur hníp- inn af velli á Hlíðarenda í gær þeg- ar Morgunblaðið tók hann tali. „Það er alveg hræðilegt hvað okkur gengur illa á útivelli. Í kvöld vorum við staðráðnir í að snúa við blaðinu og ná toppsætinu en því miður hafðist það ekki. Við fengum nóg af færum í leiknum til þess að gera út um hann en okkur voru mislagðir fætur fyrir framan markið og meira að segja stundum fyrir fram- an opið markið. Nú mætum við Fram í næsta leik og það er ekkert annað að gera en að hysja upp um sig buxurnar og vinna þann leik og kveða þar með niður þessa útivalla- grýlu,“ sagði Haukur Ingi Guðna- son. „Kom sér vel að vera gamall markvörður“ Valur 1:0 Fylkir Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeildin, 9. umferð Hlíðarendi Fimmtudaginn 10. júlí 2003. Aðstæður: Austan kaldi, skýjað og 11 stiga hiti. Völlurinn ágætur. Áhorfendur: Um 1.100. Dómari: Eyjólfur Ólafsson, Víkingur R., 3 Aðstoðardómarar: Guðmundur H. Jónsson, Er- lendur Eiríksson. Skot á mark: 13(6) - 7(4) Hornspyrnur: 7 - 8 Rangstöður: 2 - 8 Leikskipulag: 4-3-3 Ólafur Þór Gunnarsson M Sigurður S. Þorsteinsson M Ármann Smári Björnsson M Guðni Rúnar Helgason M Kristinn Ingi Lárusson M (Hjalti Þór Vignisson 81.) Matthías Guðmundsson M Sigurbjörn Hreiðarsson M Jóhann H. Hreiðarsson (Stefán Helgi Jónsson 73.) Birkir Már Sævarsson (Jóhann Georg Möller 65.) Bjarni Ólafur Eiríksson Hálfdán Gíslason M Kjartan Sturluson M Kristján Valdimarsson (Gunnar Þór Pétursson 74.) Valur Fannar Gíslason (Kjartan Antonsson 17.) Hrafnkell Helgason M Þórhallur Dan Jóhannsson M Finnur Kolbeinsson Helgi Valur Daníelsson Ólafur Ingi Skúlason Björn Viðar Ásbjörnsson Jón B. Hermannsson (Ólafur Páll Snorrason 59.) Haukur Ingi Guðnason 1:0 (67.) Jóhann Hreiðarsson átti stungusendingu inn fyrir vörn Fylkismanna á Hálfdán Gíslason sem vippaði boltanum með laglegum hætti yfir Kjart- an Sturluson markvörð Fylkis og í netið. Gul spjöld: Matthías Guðmundsson, Valur (6.) fyrir brot.  Haukur Ingi Guðnason, Fylkir (17.) fyrir brot.  Ólafur Ingi Skúlason, Fylkir (60.) fyrir brot.  Ármann Smári Björnsson, Valur (82.) fyrir mótmæli.  Haukur Ingi Guðnason, Fylkir (89.) fyr- ir brot.  Rauð spjöld: Engin. KA 1:2 Grindavík Leikskipulag: 4-5-1 Landsbankadeildin, 9. umferð Akureyrarvöllur. Fimmtudaginn 10. júlí 2003. Aðstæður: Norðan þræsingur og hrá- slagalegt eftir því, 6 stiga hiti og blautur völlur. Áhorfendur: 420. Dómari: Egill Már Markússon, Gróttu, 4. Aðstoðardómarar: Kristján T. Sigurðsson, Einar Sigurðsson. Skot á mark: 8(3) – 20(3) Hornspyrnur: 7 – 4 Rangstöður: 0 – 4 Leikskipulag: 4-5-1 Sören Byskov Steinn V. Gunnarsson Ronnie Hartvig M Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson Steingrímur Örn Eiðsson Þorvaldur Makan Sigbjörnsson (Hreinn Hringsson 53.) Jón Örvar Eiríksson Óli Þór Birgisson M (Slobodan Milisic 87.) Pálmi Rafn Pálmason (Elmar Dan Sigþórsson 87.) Dean Martin M Steinar Tenden Ólafur Gottskálksson M Óðinn Árnason Sinisa Kekic M Ólafur Örn Bjarnason M Gestur Gylfason Ray Anthony Jónsson Guðmundur A. Bjarnason M Eysteinn Húni Hauksson Eyþór Atli Einarsson Paul McShane M Óli Stefán Flóventsson 1:0 (68.) Dean Martin gerði laglega hluti á vinstri væng og sendi að því búnu boltann fyrir á Steinar Tenden sen nýtti hæð sína vel og skallaði í net- ið. 1:1 (75.) Eftir hornspynu að marki KA-manna barst knötturinn til Óla Stefáns Flóventssonar sem var óvaldaður á fjærstöng og átti ekki í teljandi erf- iðleikum með að skora. 1:2 (81.) Ray Anthony Jónsson var staddur á vinstri væng er hann fékk þá hug- dettu að leika sjálfur inn í teig, sem hann gerði með ágætum og skaut síðan með föstu skoti að marki, Sören Byskov tókst ekki að verja. Gul spjöld: Steinn V. Gunnarsson, KA (16.) fyrir brot.  Gestur Gylfason, Grindavík (18.) fyrir brot.  Óðinn Árnason, Grindavík (25.) fyrir brot.  Rauð spjöld: Engin. „LEIKURINN spilaðist vænlega fyrir okkur. Við bökkuðum dálítið fyrst en fengum ágætar skyndisóknir. Eftir markið fórum við að pressa en KA-menn að bakka og við skoruðum tvö mjög góð mörk. Þetta var sanngjarn sigur því þeir fengu engin færi önnur en þetta eina. Það er stígandi í þessu hjá okkur og góð barátta. Þetta er sama liðið og átti erf- itt uppdráttar í byrjun mótsins en sjálfstraustið er komið og allir stað- ráðnir í því að berjast og þess vegna er staða liðsins önnur í dag,“ sagði Ólafur Örn Bjarnason, fyrirliði Grindvíkinga, og var afar sáttur með að liðið skyldi vera komið upp í 3. sæti deildarinnar. Sanngjarn sigur Það var snemma ljóst að Vals-menn ætluðu sér stóra hluti. Þeir tóku hressilega á móti Fylk- ismönnum og gáfu þeim engin grið úti á vellinum. Þorlákur Árnason þjálfari Valsmanna ákvað að stilla Kristni Lárussyni upp í byrj- unarliðið og þessi reyndi og sterki leikmaður, sem nýstiginn er upp úr erfiðum meiðslum, fór í stöðu vinstri bakvarðar og gegndi þeirri stöðu með miklum sóma og auðsýnt var að innkoma hans virkaði vel á samherja hans. Aðalsteinn Víg- lundsson gerði eina breytingu á liði sínu frá sigurleiknum á móti KA um síðustu helgi. Theodór Óskars- son gat ekki leikið vegna meiðsla og Haukur Ingi Guðnason tók stöðu hans. Fylkismenn urðu fyrir áfalli á 17. mínútu þegar Valur Fannar haltraði meiddur af velli og Kjartan Antonsson leysti hann af hólmi í vörninni. Eftir að Björn Viðar Ásbjörnsson fékk fyrsta fær- ið eftir stundarfjórðung, þegar hann skaut lausu skoti beint á Ólaf markvörð Vals, náðu Valsmenn betri tökum á leiknum. Á meðan Fylkismenn beittu kýlingum fram völlinn sem skiluðu litlu létu Vals- menn knöttinn ganga vel á milli sín en oftar en ekki bilaði síðasta send- ingin hjá þeim þegar þeir virtust vera að skapa sér góð færi. Besta færi hálfleiksins fékk þó hinn ungi Birkir Már Sævarsson á 34. mínútu en eftir glæsilega útfærða sókn skallaði hann framhjá Fylkismark- inu úr opnu færi eftir fyrirgjöf Bjarna Ó. Eiríkssonar. Jón B. Her- mannsson fór illa að ráði sínu á 42. mínútu. Hann fékk boltann á silf- urfati frá Ólafi markverði Vals en skot hans úr mjög góðu færi var misheppnað. Í síðari hálfleik hertu Hlíðar- endapiltar tökin á Árbæingum. Valsmenn réðu lögum og lofum á miðsvæðinu og það virtist bara spurning hvenær Valsmark liti dagsins ljós. Kjartan Sturluson sýndi frábæra markvörslu þegar hann varði þrumuskot Matthíasar af stuttu færi en réttlætinu var fullnægt á 67. mínútu þegar hinn feikiduglegi Hálfdán Gíslason af- greiddi snyrtilega stungusendingu frá Jóhann Hreiðarssyni. Við mark- ið var eins og Fylkismenn vöknuðu við vondan draum og síðustu 20 mínúturnar sóttu þeir á köflum mjög stíft að marki Valsmanna. Stuðningsmenn Fylkis voru sumir hverjir byrjaðir að fagna marki þegar Björn Viðar fékk sannkallað dauðafæri mínútu eftir mark Vals- manna en Kristinn Lárusson bjarg- aði skoti hans með tilþrifum á lín- unni og færið sem Ólafur Ingi Skúlason fékk tíu mínútum fyrir leikslok var ekki síðra. Ólafur Þór átti þá misheppnað úthlaup, boltinn féll fyrir fætur Ólafs en á óskiljan- legan hátt tókst honum að moka honum yfir markið með viðkomu í þverslánni. Eftir það ógnuðu Fylk- ismenn ekki marki Valsmanna og þeir rauðklæddu léku lokamínút- urnar af skynsemi og uppskáru sætan og sanngjarnan sigur. Valsmenn voru vel að sigrinum komnir. Þeir börðust eins og ljón, léku á köflum mjög góða knatt- spyrnu og sýndu bikarmeisturum Fylkis litla virðingu. Aftasta varn- arlínan var mjög traust, með Ár- mann og Guðna eins og kletta og sterkur leikur hjá Þorláki að tefla Kristni fram í bakvarðarstöðunni. Sigurbjörn og Matthías áttu góða spretti og unnu vel fram og til baka og Hálfdán vann geysilega vel, hef- ur greinilega öðlast sjálfstraust. Fylkisliðið var langt frá því að vera sannfærandi og áhyggjuefni Árbæjarliðsins hlýtur að vera hversu mikill munur er á leik liðs- ins heima og úti. Megnið af leikn- um beittu Fylkismenn löngum sendingum fram völlinn upp á von á óvon og fyrir vikið voru miðju- mennirnir sterku, Helgi Valur, Finnur og Ólafur Ingi, lítið inni í leiknum. Hrafnkell Helgason og Kjartan Sturluson stóðu einna helst upp úr í fremur döpru og andlausu Fylkisliði. Verðskuldaður sigur Valsmanna HÁLFDÁN Gíslason tryggði Valsmönnum verðskuldaðan sigur á bik- armeisturum Fylkis að Hlíðarenda í gærkvöld. Hálfdán skoraði eina mark leiksins um miðjan síðari hálfleik og Fylkismenn urðu að játa sig sigraða en Árbæjarliðið hefur ekki riðið feitum hesti frá útivelli í sumar. Liðið hefur enn ekki unnið útileik en tapað þremur og gert eitt jafntefli. Fylkismenn eru því tveimur stigum á eftir Þrótti í öðru sæti deildarinnar en Valsmenn eru í sjötta sæti. Guðmundur Hilmarsson skrifar Morgunblaðið/RAX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.