Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ E instæðar mæður eru baggi á þjóð- félaginu. Þær eru blóðsugur sem mergsjúga kerfið. Þær eru líka margar hverjar í sambúð án þess að vera skráðar sem slíkar, í þeim eina tilgangi að fá meiri peninga. Samt fá þær meðlag, hærri húsaleigubætur, hærri námslán, meiri barnabæt- ur og heimta sennilega árskort í strætó innan skamms. Þær þiggja félagslega aðstoð frekar en nokkur annar hópur, væla í mæðrastyrksnefnd þar sem flestar þeirra ná aldrei „endum saman“ um mánaðamót. Þær eru líka mun meira „þurfandi“ en aðrar konur, í víðasta skilningi þess orðs og „stinga undan“ öðr- um konum fái þær tækifæri til. Það sem hér að ofan stendur er engan veginn mitt eigið við- horf til ein- stæðra mæðra. Ég tilheyri nefnilega sjálf þessum hópi og hef gert um nokkurt skeið. Þetta er þó álit sem ég hef sjálf heyrt, annaðhvort frá fólki í kringum mig eða í fjölmiðlum. Fordóma gagnvart einstæðrum mæðrum er víða að finna því eins og aðrir minnihlutahópar (þó að einstæðar mæður séu í raun enginn minnihlutahópur lengur) er auðvelt að finna á þeim höggstað. Þær eru jú einar með börn sín, standa á eigin fót- um og geta ekki skýlt sér á bak við vísitölufjölskylduna. Ég man ekki eftir mörgum (ef nokkurri) jákvæðum fréttum um einstæðar mæður í fjölmiðlum. Auk þessarar dæmigerðu tuggu um að þær séu flestar upp á „kerfið“ komnar þá virðist það líka viðloðandi að þær séu illa menntaðar, í láglaunastörfum, búi í leiguíbúðum eða félags- legum íbúðum og hafa eignast börn á unglingsaldri. Þegar ég fletti ár aftur í tím- ann upp á leitarorðunum „ein- stæðar mæður“ í gagnasafni Morgunblaðsins er m.a. að finna eftirfarandi atriði: „Einhleypar konur og einstæðar mæður eru helmingur þeirra sem fá fjár- hagsaðstoð“, „það [er] algjörlega vonlaust fyrir einstæðar mæður með börn að lifa af bótum frá Félagsþjónustunni eða af at- vinnuleysisbótum ef þær þurfa að borga leigu, leikskóla eða lengda viðveru í skóla fyrir börnin“, „hér er um að ræða 90 fjölskyldur. Þetta eru fyrst og fremst einstæðar mæður, sem hafa litla sem enga menntun og hafa eignast börn mjög ungar. Sumar þeirra vinna utan heim- ilis en hafa lágar tekjur en aðrar eru atvinnulausar“. Þessar fréttir hafa vafalaust allar átt rétt á sér. En hafa já- kvæðar fréttir af einstæðum mæðrum ekki rétt á sér? Þær einstæðu mæður sem ég þekki eru stoltar konur, ábyrgðar- fullar, hagsýnar og útsjónar- samar. Þær búa einar með börn- um sínum og eru ekki að „svindla“ á kerfinu, hafa flestar aldrei sótt um neinar bætur um- fram það sem þær eiga rétt á, eru margar hverjar vel mennt- aðar í góðum stöðum eða eiga sér drauma um nám í framtíð- inni. Engin einstæð móðir vill þurfa að bera sig eftir aðstoð. Ég gæti meira að segja trúað að einstæðum mæðrum væri flest- um umhugað um að sýna að þær gætu það sem þær ætluðu sér, væru engum háðar og ætluðu einmitt EKKI að þiggja aðstoð annarra. Það felst nefnilega sjálfstæðisyfirlýsing í því að kjósa að vera einstæð móðir. Kjósa segi ég, því flestar þeirra kvenna sem ég þekki og eru í þessari stöðu hafa sjálfar átt frumkvæði að því að slíta sam- búð eða sambandi, auðvitað í þeirri von að öðlast betra og hamingjusamara líf. Ég þekki nokkrar mæður sem ekki eru einstæðar en eru öðrum fjárhagslega háðar. Ekki endi- lega einhverjum stofnunum eða líknarfélögum, heldur ætt- ingjum og vinum. Það eru nefni- lega fleiri en einstæðar mæður sem „ná ekki endum saman“. Eitt eiga flestar ef ekki allar einstæðar mæður sem ég þekki sameiginlegt og það er það þær hafa oft á tíðum mikið samvisku- bit gagnvart börnum sínum. Sennilega af því að við erum flestar í lykilhlutverki í lífi barna okkar og kannski ekki síð- ur af því að viðhorf annarra til okkar eru oft á neikvæðum nót- um eins og að framan er rakið. Einstæðar mæður finna því hugsanlega fyrir meiri pressu en hinar sem eru það ekki á að standa sig og hugsa sérstaklega vel um börnin sín. Ein vinkona mín sem var í háskólanámi sagði: „Þegar ég var að læra var ég með samviskubit yfir því að þurfa pössun og þegar ég var heima með barnið var ég með samviskubit yfir því að vera ekki að læra.“ Það er enginn barnaleikur að vera einn með barn, þó að sam- kvæmt stöðluðum hugmyndum séu börn okkar einstæðu mæðr- anna ávöxtur ábyrgðarlauss kynlífs á unglingsaldri. Er það ekki einmitt ábyrgðarhlutur að eignast barn og axla þá miklu ábyrgð sem því fylgir? Ég keypti mér íbúð fyrir ári. Mína fyrstu íbúð sem er ekkert óeðlilegt miðað við aldur. Ég hef samt fundið fyrir því að mörgum finnist alveg hreint ótrúlegt af- rek að einstæð móðir geti þetta þó að sumir hnýti svo aftan við: „Og þú fékkst náttúrlega 90% lán?“ „Jú,“ svara ég, „eins og 90% af öllum sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð, einstæðir eða ekki.“ Þó að við séum víst „ein- stæðar“ mæður á pappírum er- um við það flestar sem betur fer ekki í raunveruleikanum. Ég á t.d. yndislega fjölskyldu sem hefur í gegnum tíðina aðstoðað mig þegar á hefur þurft að halda. Þannig er því farið sem betur fer með flestar mæður, jafnt einstæðar sem aðrar. Einstæð móðir er því algjört rangnefni, sjálfstæð móðir er mun betra og meira lýsandi orð sem við margar kjósum að nota. Hafið þið heyrt um einstæða at- vinnurekendur? Hvað um sjálf- stæða atvinnurekendur? Sjálfstæð- ar mæður Einstæðar mæður eru líka mun meira „þurfandi“ en aðrar konur, í víðasta skilningi þess orðs og „stinga undan“ öðrum konum fái þær tækifæri til. VIÐHORF Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is ✝ Ingibjörg Finns-dóttir fæddist á Ísafirði hinn 19. október 1921. Hún lést á heimili sínu að Gullsmára 7 í Kópa- vogi hinn 30. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Auður Sigurgeirsdóttir, fædd á Hallgilsstöð- um í Fnjóskadal 2. apríl 1888, d. 30. júní 1935 og Finnur Jóns- son, alþingismaður og ráðherra, fæddur að Harðbaki á Mel- rakkasléttu, 28. september 1894, d. 30. desember 1951. Auður og Finnur bjuggu fyrst á Akureyri en síðar á Ísafirði þar sem Finnur starfaði sem póstmeistari og síðar alþingismaður. Systkini Ingibjarg- ar voru Þuríður, f. 27. júlí 1915, d. 25. september 1993, Birgir Þor- geir, f. 19. maí 1917, Ásta, f. 10. september 1919, Finnur, f. 29. jan- úar 1923, d. 23. október 2000, og Jón, f. 7. febrúar 1926. Hinn 7. febrúar 1942 giftist Ingi- björg Hrafni G. Hagalín, sem fæddur var á Seyðisfirði, 16. ágúst 1921, d. 7. apríl 1957. Þau slitu samvistir. Börn Ingibjargar og Hrafns eru þrjú: 1) Auður, símrit- ari, f. 23. nóvember 1938, gift Snorra Hermannssyni húsasmíða- Jóhann, Egil Rúnar, Hjört og Helga Pétur. Fyrri kona Guð- mundar er Sigrún Bára Friðfinns- dóttir og eiga þau fjögur börn, a) Stefán Hrafn, sambýliskona er Arndís Kristjánsdóttir og eiga þau einn son. Fyrir á Stefán tvo syni. b) Friðfinnur Örn sem á eina dóttur. c) Guðmundur Már, sambýliskona er Berglind Óskarsdóttir, þau eiga einn son. d) Halldóra Anna, sam- býlismaður er Hörður Jónsson. 4) Ingibjörg, þroskaþjálfi, f. 18. sept- ember 1963. Faðir hennar var Jón H. Guðmundsson skólastjóri, f. 3. desember 1913 d. 20. júní 1991. Eiginmaður Ingibjargar er Árni Ármann Árnason lögfræðingur, f. 23. apríl 1963 og þeirra börn eru a) Árni Þórólfur, b) Marta María, c) Haukur Húni og d) Birta Sóley. Ingibjörg ólst upp á Ísafirði og stundaði þar hefðbundið nám. Um tíma voru hún og fjölskylda henn- ar búsett í Reykjavík en árið 1952 flutti hún aftur til Ísafjarðar ásamt börnum sínum. Hún hóf þá störf hjá Kaupfélagi Ísfirðinga og starf- aði þar óslitið alla sína starfsævi. Ingibjörg var mikill baráttu- og jafnaðarmaður og tók virkan þátt í störfum Alþýðuflokksins. Hún starfaði lengi í Kvenfélagi Alþýðu- flokksins og hin síðari ár tók hún þátt í félagsstarfi Kvenfélags Ísa- fjarðarkirkju eða allt þar til hún fluttist suður í Kópavog í nóvem- ber árið 2000. Minningarathöfn um Ingibjörgu fór fram í Fossvogskapellu hinn 3. júlí. Úför hennar verður gerð frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. meistara. Þeirra börn eru a) Hrafn, eigin- kona Rannveig Björnsdóttir og eiga þau einn son. b) Ingi- björg, eiginmaður Há- varður G. Bernharðs- son. Fyrri maður Ingibjargar er Guð- björn Salmar Jó- hannsson og eiga þau þrjú börn. c) Snorri Már, eiginkona Krist- rún Helga Björnsdótt- ir og eiga þau tvö börn. d) Heimir, eigin- kona Ólína Fjóla Þor- kelsdóttir og eiga þau eina dóttur. e) Hermann Þór, eiginkona Helga Harðardóttir og eiga þau tvö börn. 2) Hrefna Kristín, bókari, f. 21. maí 1942, gift Sigurði Oddssyni tæknifræðingi. Þeirra börn eru a) Oddur, sambýliskona Guðbjörg Brá Gísladóttir. Fyrri kona Odds er Áslaug Nanna Ingvadóttir og eiga þau þrjú börn. b) Kristín, sam- býlismaður Einar Garðar Hjalta- son og eiga þau tvö börn. c) Arna Sigrún, sambýlismaður Fjalar Sig- urðarson og eiga þau tvö börn. Fyrir á Arna eina dóttur. 3) Guð- mundur, fjármálastjóri, f. 25. októ- ber 1949, kvæntur Jóhönnu B. Jó- hannsdóttur skrifstofumanni, f. 13.10. 1950 og eiga þau einn son, Grétar. Fyrir á Jóhanna fjóra syni, Móðir mín er látin, hún varð bráðkvödd aðfaranótt mánudagsins 30. júní. Daginn áður fylgdist hún stolt með því er eitt barnabarna hennar, Hermann Þór, lét skíra sitt annað barn. Hress og glöð sat hún í skírnarveislunni og sagði meðal annars frá því að hún ætti nú 17 barnabörn og 22 barnabarnabörn. Hún fylgdist stolt með afkomend- um sínum og beið spennt þegar fjölgunar var von í fjölskyldunni. Mamma var alin upp á Ísafirði á umsvifamiklu og mannmörgu heim- ili. Hún var aðeins þrettán ára þeg- ar móðir hennar lést og markaði það djúp spor í uppvöxtinn. Sautján ára eignaðist hún sitt fyrsta barn, Auði, og Hrefna fædd- ist svo fjórum árum síðar. Mamma, pabbi og stelpurnar fluttust til Reykjavíkur og þar fæddist ég, þriðja barnið þeirra. Nokkru síðar skildu þau og mamma flutti með hópinn sinn vestur. Áður var þó Auður flutt þangað til Ástu móð- ursystur sem hún bjó hjá í nokkur ár. Mamma fór að vinna í kaup- félaginu, fyrst í mjólkurbúðinni við Austurveg en tók nokkru síðar við búðinni í Silfurgötu 9 og fengum við íbúð á hæðinni þar fyrir ofan. Að vera alinn upp í kaupfélaginu, „Imbubúð“, var ekki amalegt. Mamma alltaf nálæg og stutt í skólann. Snemma fór maður að hjálpa til við að afgreiða í búðinni, leysti fyrst af í hádeginu svo mamma gæti skroppið upp og eld- að. Þó hún væri einstæð móðir með þrjú börn þá minnist ég þess ekki að hafa liðið fyrir það. Stóru syst- urnar áttu eðlilega stóran þátt í uppeldinu á mér og þurftu að gæta stráksins þegar mamma var að vinna. Á þessum árum var það sjálfsagt að unglingar færu að vinna strax um fermingu og gerð- um við það öll. Mamma studdi okk- ur og hvatti áfram til náms. Auður systir fór til Þýskalands um tíma, Hrefna til Noregs og ég í lýðhá- skóla í Danmörku. Ef eitthvað bjátaði á þá var skrifað til mömmu og einhvern veginn tókst henni að greiða úr hlutunum. Mamma var fæddur krati. Hún tók mig með sér strax á barnsaldri til að sendast með upplýsingar frá kjörstað og yfir í Alþýðuhúsið og seinna hlotnaðist mér sá heiður að merkja við á kjörstað og senda svo upplýsingarnar yfir. Mér skilst að þannig hafi þetta einnig verið hjá systrum mínum. Mamma stóð í ströngu í kökubakstri, kaffiveiting- um og ekki síst atkvæðaveiðum fyrir sinn flokk. Afarnir mínir báð- ir voru á kafi í pólitíkinni á Ísafirði, Finnur meira í landsmálunum en afi Hagalín í bæjarpólitíkinni. Mamma var ekki mjög hrifin af gengi Alþýðuflokksins síðari árin og leist „hreint ekkert á þessar sameiningarvitleysur“. En í vor var þó loks eins og hún fengi aftur kra- tatrúna er hún sá að „Samfylk- ingin“ var loks að verða eitthvað. Á seinni árum þegar flokksins naut ekki eins við og henni líkaði fyrir vestan, sneri hún sér að kvenfélagi kirkjunnar og hafði mikla ánægju af starfinu þar. Ástin velur sér ekki alltaf auð- veldan farveg. Mamma varð barn- ung móðir en samband hennar og pabba náði ekki að þroskast á far- sælan hátt. Hún var því ein með börnin sín að baslast. Það fór ekki hjá því að bæjarlífið titraði vestra og varð það aldrei samt í augum mömmu eftir að hún eignaðist dótt- ur með Jóni H. En mamma var föst fyrir, beit á jaxlinn og hélt sínu striki. En þessi yngsta systir okkar, Ingibjörg, varð mömmu og okkur systkinunum dýrmætur augasteinn og seinna börnin henn- ar nánustu ömmubörnin. Mamma naut alla tíð styrks og aðstoðar Auðar og Snorra, sem alltaf hafa búið á Ísafirði og eiga þau miklar þakkir skilið. Mamma tók sig upp árið 2000 og fluttist suður. Hún var orðin slæm í fótum og það háði henni mjög. Hún hafði yndi af að vera á ferð- inni, fara í leikhús, á tónleika eða sýningar ýmis konar með börnum sínum eða barnabörnum. Elsku mamma mín, þú fórst frá okkur alveg óskaplega snögglega. Við sem eftir stöndum trúum þessu vart og eigum erfitt með að sætta okkur við orðinn hlut. Eflaust er þetta þó sú leið sem þú helst vildir. Þú ert komin á nýjar lendur og vona ég og trúi að þar ríki eilíft vor. Hafðu þökk fyrir allt. Guðmundur H. Hagalín. Lífið er fljótt að breytast. Sunnudagurinn 29. júní var mikill gleðidagur hjá stórfjölskyldunni. Þá átti amma gleðilegar stundir við skírn nýjasta langömmubarnsins en þau eru komin á þriðja tuginn. En lífið er skrýtið. Hálfum sólar- hring síðar kvaddi hún þennan heim. Vissulega var líkaminn orð- inn lúinn en hennar tími var ekki kominn. Amma var ávallt skýr og ræðin, jafningi okkar í hugarfari og vel með á nótunum. Einmitt þess vegna var svo gaman að hitta hana. Hún fylgdist vel með afkomendum sínum og var annt um afdrif hvers og eins. Ef til vill þess vegna reyndi hún frá upphafi að hafa áhrif á stjórnmálaskoðanir niðja sinna. Fyrir margt löngu var hún spurð af kornungu ömmubarni sínu hvað kommúnisti væri. Brúnaþung svaraði hún um hæl: „Það er vond- ur maður!“ Hún var ákaflega gagn- rýnin á allt og alla, víðfræg fyrir að liggja aldrei á skoðunum sínum og viðraði þær gjarnan óumbeðin. Hún var gríðarlega pólitísk, reifst og skammaðist við útvarpið og sjónvarpið. Hún var sjálfri sér samkvæm – var ein þessara dæmi- gerðu hvunndagshetja sem byggt hafa landið. Hún vildi veg jafn- aðarstefnunnar sem mestan enda uppalin á krataheimili. Hún studdi málstað flokksins af einurð en barðist þó aldrei fyrir sæti. Hennar verður lengi minnst fyrir atkvæða- veiðar og kökubakstur í kosninga- baráttunni. Í henni sló kratahjarta. Minningabrotin hafa streymt fram undanfarna daga og af mörgu er að taka. Kjúklingaréttirnir í Túngötunni á öðrum degi jóla eru í fersku minni. Þetta var eini tími ársins sem við krakkarnir fengum kjúkling. Hann var eins og í besta veisluhúsi. Sú meginregla gilti að ekki mætti drekka með matnum. Smáfólki reyndist biðin oft á tíðum erfið. Amma var nú heldur ekki sú fljótasta að hafa sig til. Það var alltaf sami spenningurinn í Silfur- götunni fyrir klukkan sex á að- fangadag, hvort okkur tækist að koma ömmu í hús í tæka tíð og hringja saman inn jólin. Einhvern veginn lukkaðist þetta. Alltaf komu jólin. Amma var ekki mjög kirkjuræk- in fyrr en í seinni tíð. Þrátt fyrir það var hún mjög trúuð alla sína ævi og kunni margar bænir sem við svo lærðum af henni. Hún hafði áhyggjur af því að hafa aldrei fermst og ef til vill þess vegna var henni annt um að flytja sem flestar bænir, þ. á m. eftir Sigurð Jónsson frá Prestshólum. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Og alltaf var endað á Faðir vor- inu. Amma var nefnilega töluvert fyrir regluverkið. Til dæmis mátti ekki tala þegar búið var að fara með bænirnar og ef einhver sagði INGIBJÖRG FINNSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.