Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MEIRIHLUTI bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja tilkynnti í gær að Inga
Sigurðssyni bæjarstjóra yrði sagt
upp störfum og Bergur Elías
Ágústsson tæki við bæjarstjórastöð-
unni. Þegar fréttist af yfirvofandi
bæjarstjóraskiptum kom hópur
fólks saman fyrir utan Ráðhús Vest-
mannaeyja kl. 10 í gærmorgun á bíl-
um sínum og þeytti bílflautur til að
mótmæla uppsögn Inga Sigurðs-
sonar.
Talið er að um eða yfir 300 manns
hafi mætt til að mótmæla uppsögn
Inga Sigurðssonar. Ingi kom út úr
Ráðhúsinu og veifaði til fólksins.
Hann vildi ekki tjá sig um bæj-
arstjóraskiptin í samtali við Morg-
unblaðið í gærdag en sagðist vita af
þeim stuðningi sem hann ætti meðal
bæjarbúa.
Forsvarsmenn bæjarstjórn-
armeirihlutans boðuðu svo til frétta-
mannafundar í Safnhúsinu í Vest-
mannaeyjum kl. 11 fyrir hádegi.
Á fréttamannafundinum var
kynnt yfirlýsing um endur-
skipulagningu á stjórnskipulagi
bæjarins og greint var frá ástæðum
þess að skipt verður um bæj-
arstjóra.
Ekki nauðsynlegur trúnaður
Í yfirlýsingunni segir m.a.: „Frá
því að nýr meirihluti tók við hefur
ekki tekist að mynda þann nauðsyn-
lega trúnað sem verður að ríkja milli
bæjarstjóra og meirihlutans, en
bæjarstjóri á hverjum tíma er helsti
trúnaðarmaður meirihlutans. Í því
ljósi er það mat bæjarfulltrúa meiri-
hlutans og þeirra flokka sem að hon-
um standa að það þjóni best hags-
munum allra, ekki síst hagsmunum
bæjarbúa, að nýr einstaklingur taki
við starfi bæjarstjóra. Bæj-
arstjóraskiptin munu ekki hafa í för
með sér nein fyrirsjáanleg útgjöld
fyrir bæjarsjóð umfram það sem
ella hefði orðið,“ segir m.a. í yfirlýs-
ingu meirihlutans.
„Meirihluti bæjarstjórnar er
þeirrar skoðunar að þessi tími sé
réttur til að spyrna við fótum og
snúa af braut stöðnunar, hvar bæj-
arfélagið hefur verið undanfarin
þrettán ár undir forystu Sjálfstæð-
isflokksins og reyna að nýta þau
fjölmörgu tækifæri sem eru til stað-
ar hér í Vestmannaeyjum,“ segir
einnig í yfirlýsingu meirihlutans.
Fram kemur að til að vinna að
þessum markmiðum hafi meirihlut-
inn fengið til liðs við sig Berg
Ágústsson sem nýjan bæjarstjóra.
Þá voru einnig á fundinum kynnt-
ir fjórir nýir framkvæmdastjórar og
nýtt skipurit fyrir Vestmanna-
eyjabæ.
Verður Viktor Stefán Pálsson lög-
fræðingur framkvæmdastjóri
stjórnsýslu- og fjármálasviðs, Hera
Ósk Einarsdóttir félagsfræðingur
verður framkvæmdastjóri félags- og
fjölskyldusviðs, Andrés Sig-
urvinsson kennari verður fram-
kvæmdastjóri fræðslu- og menning-
arsviðs og Frosti Gíslason
iðntæknifræðingur verður fram-
kvæmdastjóri umhverfis- og fram-
kvæmdasviðs.
Gert er ráð fyrir að Bergur taki
við bæjarstjórastarfinu 15. júlí.
Bergur, sem er uppalinn í Vest-
mannaeyjum, stundaði nám við há-
skóla í Noregi. Frá því hann útskrif-
aðist sem sjávarútvegsfræðingur
hefur hann gegnt ýmsum stjórn-
unarstöðum.
Meirihlutinn í Eyjum segir upp Inga Sigurðssyni bæjarstjóra og ræður Berg E. Ágústsson
Lúðvík Bergvinsson, leiðtogi V-listans, útskýrir bæjarstjóra-
skiptin á blaðamannafundi í Vestmannaeyjum. Við hlið hans
situr nýi bæjarstjórinn, Bergur Ágústsson.
Morgunblaðið/Jóhann Ingi Árnason
Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan ráðhúsið klukkan 10 í gærmorgun
og mótmælti uppsögn Inga Sigurðssonar bæjarstjóra.
Ingi Sigurðsson, fráfarandi bæjarstjóri, kom út á
tröppur ráðhússins og veifaði til fólksins sem safnast
hafði saman til að mótmæla uppsögn hans.
Bílflautur þeyttar á fjölmennri
mótmælastöðu við ráðhúsið
BJÖRGUNARÞYRLA frá Strand-
gæslu Hjaltlandseyja bjargaði í gær
rúmlega fimmtugum Íslendingi sem
víðtæk leit hafði verið gerð að í
Norðursjó. Maðurinn var einn um
borð í 17 feta (5,2 metra) hraðbáti
og amaði ekkert að honum eftir 15
klukkustunda dvöl í bátnum. Hann
gaf strandgæslunni þær skýringar á
ógöngunum að hann hafi ætlað að
hitta seglskútuna Eldingu á til-
teknum stað en þegar ekkert bólaði
á skútunni hafi hann tekið stefnuna
til Hjaltlands en vegna veðurs ekki
komist á áfangastað.
Þyrstur og svangur
„Hann varð heldur betur ánægð-
ur þegar hann sá hvað þeir voru
með mörg súkkulaðistykki um borð
í þyrlunni,“ sagði Charlie Smith hjá
Strandgæslu Hjaltlandseyja þegar
hann var spurður um hvernig
manninum hafi liðið þegar björgun
barst. Hann hafi verið þyrstur og
svangur en annars hafi ekkert amað
að honum. Hann var engu að síður
fluttur á sjúkrahúsið í Leirvík en
þaðan var hann útskrifaður eftir
læknisskoðun.
Anders Bang-Andersen, upplýs-
ingafulltrúi Aðalbjörgunarmið-
stöðvarinnar í Stavanger, sagði að
samkvæmt þeirra upplýsingum hafi
ætlunin verið að sigla hraðbátnum
frá Bömlo til Hjaltlandseyja og það-
an til Íslands í samfloti við seglskút-
una Eldingu sem flutti vistir fyrir
hraðbátinn. Að sögn Bang-
Andersen skildi leiðir hraðbátsins
og skútunnar um klukkan 19 á mið-
vikudagskvöld þegar hraðbáturinn
tók á sig krók norður fyrir Frigg-
olíusvæðið. Ákveðið var að báturinn
kæmi að skútunni á ákveðnum stað
vestan við svæðið en ekkert sást til
bátsins á tilsettum tíma. Um klukk-
an 23 hafði Elding samband við olíu-
borpall í nágrenninu sem lét björg-
unarmiðstöðina í Stavanger vita
sem ákvað að hefja víðtæka leit að
bátnum. Um hádegisbil í gær fann
bresk Nimrod-eftirlitsflugvél bátinn
um 50 mílum norðvestur af olíu-
svæðinu. Þá voru Oríon-leit-
arflugvél, þyrla og birgðabátur frá
olíuborpalli einnig við leit. Mann-
inum var bjargað um borð í þyrluna
en báturinn skilinn eftir.
Bang-Andersen sagði að björg-
unarmiðstöðin hefði vísbendingar
um að siglingar- og fjarskiptabún-
aður um borð í hraðbátnum væri
ófullnægjandi. Þetta væri stórt haf-
svæði og VHF-talstöð eða farsími
væri ekki nægjanlegur fjar-
skiptabúnaður fyrir siglingu yfir
Norðursjó.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
tali af manninum, Valdimar I. Sig-
urjónssyni, í gær en Alec Wiley hjá
Strandgæslunni tók af honum
skýrslu. Maðurinn gaf þær skýr-
ingar á ógöngum sínum að hann
hafi siglt á þann stað þar sem ákveð-
ið hafi verið að hann myndi hitta
skútuna. Þangað hafi hann siglt og
beðið eftir skútinni. Þegar ekkert
bólaði á henni hafi hann ákveðið að
sigla í áttina að Hjaltlandseyjum á
„skynsamlegum“ hraða. Þegar leið
á siglinguna sótti að honum þreyta
og hafi hann því ákveðið að stöðva
bátinn og leggjast til svefns. Þegar
hann vaknaði hafði veðrið versnað
og hann taldi ekki óhætt að ræsa
bátinn á nýjan leik og hann ekki tal-
ið annað fært en að bíða björgunar.
Um borð var GPS-tæki sem var í
lagi en eina fjarskiptatækið var far-
sími. „Sem auðvitað virkar ekki út í
miðjum Norðursjó því á þessu svæði
eru engin farsímaloftnet,“ sagði
Wiley.
Sams konar báti siglt til Íslands
Seglskútan Elding er með vissu
víðförulasta skúta íslenska flotans.
Hafsteinn Jóhannsson smíðaði hana
og sigldi einsamall í kringum hnött-
inn 1991, til Vínlands árið 2000 og
hann er nú á heimleið úr löngum
leiðangri á slóðum víkinga í aust-
urvegi. Fyrir nokkrum árum sigldi
hann sams konar báti og týndist á
þriðjudag frá Noregi til Íslands. Á
leiðinni milli Færeyja og Íslands
hreppti hann vonskuveður og var
um sólarhring til Hafnar í Horna-
firði.
Ljósmynd/Malcolm Younger
Valdimar I. Sigurjónsson kominn til hafnar eftir sjóbjörgun strandgæsluliða.
Týndist í Norðursjó á 17 feta
löngum hraðbáti
Stefndi til
Hjaltlandseyja
þegar ekkert
bólaði á skútunni
!
"#"
!
FRIÐJÓN Arnar Guð-
röðarson, fyrrverandi
sýslumaður, lést í gær,
fimmtudaginn 10. júlí.
Friðjón fæddist 1.
ágúst árið 1936 í Nes-
kaupstað. Foreldrar
hans voru Hildibrandur
Guðröður Jónsson,
kaupfélagsstjóri í Nes-
kaupstað, og kona hans
Halldóra Sigfinnsdóttir
húsfreyja. Friðjón varð
stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri
árið 1956, lauk lagaprófi
frá Háskóla Íslands ár-
ið 1963 og fékk héraðsdómslög-
mannsréttindi árið 1964. Hann var
lögfræðingur Samvinnutrygginga
frá 1964–73, rak lögfræðiskrifstofu í
Reykjavík frá 1966–73 og var lög-
reglustjóri á Höfn í Hornafirði frá
1973 til 1976.
Friðjón var sýslumaður í Austur-
Skaftafellssýslu frá 1977 til 1985 þeg-
ar hann tók við sýslumannsembætti í
Rangárvallasýslu.
Friðjón gegndi fjölmörgum trún-
aðarstörfum og sat m.a. í stjórn
Varðbergs, félags ungra áhuga-
manna um vestræna
samvinnu 1965–1967.
Hann var varaformað-
ur fulltrúaráðs Fram-
sóknarfélaganna í
Reykjavík 1972–74 og
formaður bygginga-
nefndar safnahúss í
Skógum frá 1987. Einn-
ig sat hann sem vara-
formaður Dómara-
félags Íslands
1986–1988. Friðjón
gegndi formennsku í
fjölda annarra nefnda
og stjórna á vegum rík-
is, sveitarfélaga og
frjálsra félagasamtaka.
Friðjón lagði einnig fyrir sig rit-
störf og birtust eftir hann greinar í
blöðum og tímaritum. Meðal annars
var hann ritstjóri Skaftfellings, sem
gefið var út af Austur-Skaftafells-
sýslu og sat í ritstjórn Goðasteins,
Héraðsrits Rangæinga, frá 1986.
Friðjón kvæntist Sigríði Guð-
mundsdóttur og eignuðust þau fjög-
ur börn. Þau skildu. Seinni konu sinni
Ingunni Jensdóttur, balletdansara,
leikara og leikstjóra, kvæntist Frið-
jón 1979. Þau eignuðust eina dóttur.
Andlát
FRIÐJÓN
GUÐRÖÐARSON