Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 25
ÞORGEIR Þorgeirson hefur víða
komið við. Hann er m.a. rithöf-
undur, kvikmyndagerðarmaður,
þýðandi og lifði sín bernskuár milli
fagurra fjalla Siglufjarðar og bjó í
„afahúsi“, eins og Þorgeir kallar
það sjálfur. Í Gránu, bræðsluhúsi
Síldarminjasafnsins á Siglufirði
verður á morgun, laugardag,
þriggja þátta dagskrá helguð ævi
hans og störfum. Fjölmargir lista-
og fræðimenn koma fram í dagskrá
sem fléttuð er saman í tali, tónum
og kvikum myndum. Meðal þeirra
Anna Sigríður Einarsdóttir, Ari
Halldórsson, Dagný Kristjáns-
dóttir, Eggert Þorleifsson, Hákon
Már Oddsson, Gunnsteinn Ólafsson,
Tómas Gunnarsson, Viðar Eggerts-
son,Vilborg Dagbjartsdóttir, Þor-
steinn Jónsson og Örlygur Krist-
finnsson.
Fyrsti hluti dagskrárinnar hefst
kl. 13 þar sem sýnd verður í fyrsta
sinn í Gránu kvikmynd Þorgeirs
Maður og verksmiðja. Myndin hef-
ur hlotið margvísleg alþjóðleg
verðlaun og Þorgeir hlaut heiðurs-
verðlaun Eddunnar árið 2000 fyrir
framlag sitt til íslenskrar kvik-
myndagerðar og -menningar.
„Myndin var tekin í síldarverk-
smiðju Raufarhafnar árið 1966 og
er heimildarmynd um manninn í
verksmiðjunni en ekki um vinnu-
ferlið. Þarna sjáum við manninn á
móti hinum ógnvekjandi vélum í
hávaða og hitamollu. Hvað hann að-
hefst mitt í vinnunni, hvernig hann
þreyir hinar löngu og hávaðasömu
vaktir,“ segir Örlygur Kristfinns-
son safnstjóri. „Þegar ég sá þessa
mynd fyrir margt löngu hitti hún
mig í hjartastað enda er ég gamall
bræðslumaður. Hún segir það sem
satt var um okkur og þarna gæist
Þorgeir inn í hugarfylgsni okkar.
Þó er myndin óræð og áhorfandinn
upplifir hana á sinn hátt, með því
sýnir myndin að hún er sannkallað
listaverk. Henni verður varpað á
stórt tjald á 10 mínútna fresti með
tilheyrandi hávaða og gæðir safnið
sínu rétta lífi.“
Fyrsti hluti dagskrárinnar fjallar
um Siglufjörð og mótunarár Þor-
geirs. Í öðrum hlutanum verður
sjónum einkum beint að þýðand-
anum, rithöfundinum og leikhús-
manninum og í þeim þriðja verður
kvikmyndagarðarmaðurinn í
brennidepli. Fluttir verða kaflar úr
verkum Þorgeirs, bæði prósar og
ljóð og flutt tónlist auk þess sem
sýndar verða kvikmyndir Þorgeirs
og annarra og Hvíta tjaldið vígt.
„Hvíta tjaldið er táknrænt fyrir
rithöfundinn og kvikmyndagerðar-
manninn,“ segir Viðar Eggertsson
dagskrárstjóri. „Það er hinn hvíti
flötur sem listaverkið er búið til
fyrir, hvort sem við ræðum um
kvikmyndir eða ritlist og þess
vegna verður þetta tjald kallað
Hvíta tjaldið og fer vígslan fram á
sýningu kvikmyndarinnar Maður
og verksmiðja. Einnig verður frum-
sýnd stuttmynd Þorgeirs og Guð-
bergs Bergssonar, Feigðarsurg.
Hún fjallar um Málfríði Einars-
dóttur sem Guðbergur leigði her-
bergi hjá á sínum yngri árum. Guð-
bergur tók myndina upp á 8 mm
filmu og síðan settu þeir Þorgeir
hana saman, klipptu til og bjuggu
til stuttmynd. Guðbergur samdi síð-
an texta sem hann flytur í orðastað
Málfríðar.“
Á síðari hluta dagskrárinnar
verður m.a. sýnd heimildarmynd
Ara Halldórssonar og Hákons Más
Oddssonar, Samræða um kvik-
myndir og kvikmynd Þorgeirs
Grænlandsflug. Restina rekur síðan
Heimildarmynd um Ísland frá árinu
1938 eftir danska kvikmyndagerð-
armanninn Kaptein Dam. „Sá var
sjóliðsforingi og kvikmyndagerð-
armaður og ferðaðist um landið og
tók heimildamyndir um Ísland, m.a.
kom hann til Siglufjarðar. Myndin
er gerð á uppvaxtarárum Þorgeirs.
Hún er alveg einstaklega fallega
gerð og lýsir vel mannlífinu, alþýð-
unni, lífsháttum þess og vinnu-
brögðum. Við byrjum dagskrána á
frásögn Þorgeirs þar sem hann seg-
ir frá þeirri æskuminningu er mað-
ur kom til Siglufjarðar og varpaði
Chaplinmynd á snjóskafl og má
segja að þar hafi verið fyrsta hvíta
tjaldið. Dagskránni lýkur í raun
eins og hún hófst, með minningu,“
segir Viðar.
Síldarsöltun verður á Síldar-
minjasafninu kl. 15 og mun dansinn
duna við undirleik harmonikku-
leiks. Á sunnudag verða kvikmynd-
irnar Maður og verksmiðja og Sam-
ræða um kvikmynd sýndar til
skiptis á Hvíta tjaldinu kl. 10–18.
Dagskrá um Þorgeir Þorgeirson á Síldarminjasafninu
Hittir í hjartastað
Morgunblaðið/Einar Falur
Þorgeir Þorgeirson kvikmyndagerðarmaður með meiru.
EGGERT Pétursson og Stein-
grímur Eyfjörð eru tilnefndir til
myndlistarverðlauna Carnegie
Art fyrir árið 2004 og eru meðal
tuttugu og fjögurra listamanna
sem dómnefndin hefur tilnefnt til
sýningar Carnegie Art-verð-
launanna nú í haust. Allir eiga þeir
möguleika á að hljóta myndlistar-
verðlaunin en upprunalega gáfu
122 norrænir listamenn kost á sér
til sýningarinnar.
Í ár hefur verðlaunaféð verið
tvöfaldað; fyrstu verðlaun eru 1
millj. skr., önnur verðlaun 600
þús. skr. og þriðju verðlaunin 400
þús. skr. Myndlistarstyrkur að
upphæð 100 þús. skr. fellur í skaut
listamanna af yngri kynslóð.
Í ágúst verður tilkynnt hverjir
hljóta verðlaunin og þann 14.
október nk. verða verðlaunin af-
hent við opnun sýningarinnar í
Konstakademien í Stokkhólmi.
Sýningin færist síðan milli höfuð-
borga Norðurlanda og einnig til
Lundúna, frá og með haustinu
2003 og fram á vor ársins 2005. Á
Íslandi verður sýningin uppihang-
andi í Listasafni Kópavogs frá 6.
desember til 22. febrúar 2004.
Þátttakendurnir eru eftirfar-
andi, að Íslendingunum undan-
skildum: Kaspar Bonnén, Stig
Brøgger, Claus Egemose, Anette
H. Flensburg, Christian Schmidt
Rasmussen, Heine Skjerning og
Vibeke Tøjner frá Danmörku. Ell-
ina Brotherus, Robert Lucander,
Paul Osipow, Jorma Puranen,
Silja Rantanen og Nina Roos frá
Finnlandi. Olav Christopher
Jenssen, AK Dolven, Andreas
Heuch og Kira Wager frá Noregi.
Max Book, Jens Fäge, Jarl Ingv-
arsson, Ulrik Samuelson og Dan
Wolgers frá Svíþjóð.
Í dómnefnd fyrir Íslands hönd
situr Halldór Björn Runólfsson,
lektor við Listaháskóla Íslands.
Carnegie Art-verðlaunin
Eggert og Stein-
grímur tilnefndir
FJÓRÐU orgeltónleikar sumarsins í
Reykholtskirkju verða kl. 20.30 ann-
að kvöld, laugardagskvöld. Það er
Sigrún Magnea
Þórsteinsdóttir,
organisti Breið-
holtskirkju, sem
sækir staðinn
heim og leikur
verk eftir Louis
Marchand, Jo-
hann Sebastian
Bach og Felix
Mendelssohn.
Sigrún hóf nám
í orgelleik hjá Birni Steinari Sól-
bergssyni á Akureyri. Árið 1997
fluttist hún svo til Reykjavíkur þar
sem hún stundaði nám við Tónskóla
þjóðkirkjunnar. Kennarar hennar
voru Hörður Áskelsson og Kári Þor-
mar.
Sigrún útskrifaðist með kantors-
próf árið 2000 en stundar nú nám til
einleikaraprófs á orgel.
Til styrktar orgeli
Reykholtskirkju
Þetta er annað sumarið í röð sem
félagar í Félagi íslenskra organleik-
ara leggja fram krafta sína til styrkt-
ar nýuppsettu orgeli í Reykholts-
kirkju.
Orgelverk
eftir Bach og
Mendelssohn
Sigrún Magnea
Þórsteinsdóttir
STOFNFUNDUR Snjáfjallaseturs
á Snæfjallaströnd verður haldinn í
Dalbæ kl. 16 á morgun, laugardag.
Snjáfjallasetri er ætlað að safna
saman og varðveita muni, myndir og
önnur gögn sem tengjast sögu
byggðar í Snæfjalla- og Grunnavík-
urhreppum í þeim tilgangi að kynna
fyrir almenningi, m.a. með virkri vef-
síðu, útgáfu og skipulagningu ýmissa
viðburða á Snæfjallaströnd yfir sum-
artímann.
Snjáfjallasetur mun skrá, varð-
veita og miðla sögu byggðar í Snæ-
fjalla- og Grunnavíkurhreppum, at-
vinnulífssögu, sagnir um drauga,
huldufólk, tröll, álagabletti o.þ.h.
Jarðsögu svæðisins og þar með
Drangajökuls, kveðskap, leikrit,
bókmenntir og tónlist frá Snæfjalla-
og Grunnavíkurhreppum.
Setrið mun jafnframt setja upp og
reka sýningar á fyrrgreindu efni.
Skráningin mun fara fram í fjar-
vinnslu og mun starfsemin væntan-
lega einkum verða á Tálknafirði á
vegum Ingólfs Kjartanssonar, en at-
hugað verður með samstarf við fleiri
aðila í fjarvinnslu gagna á Vestfjörð-
um.
Ferðaþjónustan Dalbæ
sér um rekstur sýninga
Lagt er upp með það að heimilda-
söfnun, hönnun og útgáfa verði eink-
um á vegum Sögumiðlunarinnar og
að Ferðaþjónustan Dalbæ muni sjá
um rekstur sýninga Snjáfjallaseturs.
Þessir aðilar stóðu að þeirri byggða-
sögusýningu sem nú er í Dalbæ,
Horfin býli og huldar vættir í Snæ-
fjalla- og Grunnavíkurhreppum hin-
um fornu og rímnahátíð sem haldin
var sl. sumar.
Á stofnfundinum munu Snorri
Grímsson og Gísli Hjartarson flytja
erindi um gönguleiðir um Snæfjalla-
strönd, Grunnavík og Drangajökul
og Ólafur J. Engilbertsson og Ing-
ólfur Kjartansson kynna áform
Snjáfjallaseturs.
Stofnfundur
um Snjá-
fjallasetur
Nýr
sjóbirtingur
og
villtur lax
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1, sími 587 5070
—Góða grillhelgi—
GÍTARVEISLA verður á sjöttu tón-
leikum sumartónleikaraðar veitinga-
hússins Jómfrúrinnar við Lækjar-
götu á morgun,
laugardag, kl. 16.
Þar koma fram
gítarleikararnir
Ásgeir J. Ás-
geirsson og Henk
Sprenger, auk
bassaleikarans
Róberts Þórhalls-
sonar. Allir hafa
þeir komið við í
Hollandi. Henk
Sprenger er meðal fremstu gítar-
leikara Hollands og hefur verið
kennari við Konservatoríið í Amst-
erdam um langt árabil. Ásgeir
stundaði nám undir hans handleiðslu
og Róbert er nýlega útskrifaður með
hæstu einkunn úr djassnámi þar í
landi.
Leikið verður utandyra á Jóm-
frúrtorginu ef veður leyfir, en ann-
ars inni á Jómfrúnni. Aðgangur er
ókeypis.
Gítarveisla á
Jómfrúnni
Róbert
Þórhallsson
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opn-
ar sýningu hjá Kristjáni Steingrími
Jónssyni á Seltjarnarnesi. Opnun
sýningarinnar er liður í verkefninu
„40 sýningar á 40 dögum“.
Tríó Cantabile heldur stutta hádeg-
istónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur kl.
12.15. Í tríóinu eru Birna Helgadótt-
ir á píanó, Emilía Rós Sigfúsdóttir á
flautu og Sigríður Ósk Kristjáns-
dóttir sem syngur. Þær starfa sem
skapandi sumarhópur hjá Hinu hús-
inu. Tríóið leikur allt frá drama-
tískum verkum yfir í létt dægurlög.
Aðgangur er ókeypis.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
♦ ♦ ♦