Morgunblaðið - 11.07.2003, Qupperneq 11
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 11
SÓKN í skötusel hefur ekki verið
mikil hér við land. Hann var lengi vel
ekki nýttur en bein sókn í hann hófst
fyrir nokkrum árum. Kvóti var sett-
ur á skötuselsveiðar árið 2001 og var
hann 1.500 tonn fyrir fiskveiðiárið
2002/2003. Eins og kom fram í Úr
verinu í gær, fimmtudag, finnst sum-
um sjómönnum að gefa ætti skötu-
selsveiðar frjálsar. Sjávarútvegsráð-
herra segir að slíkt sé ekki inni í
myndinni en fiskifræðingur á Haf-
rannsóknastofnuninni segir að ekki
sé búið að fá úr því skorið hvort ekki
sé hægt að fá meira út úr þeirri auð-
lind sem skötuselurinn sé.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segir að það sé ekki inni í
myndinni að taka skötusel út úr
kvóta. „Ég jók kvótann um þriðjung
frá því sem var ráðlagt [af Hafrann-
sóknastofnuninni] þannig að það
ætti að vera yfirdrifið svigrúm.“ Árni
segir að það ætti að vera mögulegt
að færa yfir á næsta kvótaár það sem
ekki náist að veiða núna þannig að
sjómenn ættu að hafa næg tækifæri
til þess að leysa sín mál innan þeirra
marka sem felist í kerfinu.
Árni segir að ef skötuselurinn sé
tekinn út úr kvótanum lendi menn í
því sama og var ástæðan fyrir því að
hann var settur í kvóta á sínum tíma.
„Veiðarnar jukust miklu hraðar en
talið var forsvaranlegt en síðan ein-
hverra hluta vegna hafa þeir sem eru
með kvótann dregið sig út úr veið-
inni en ekki ráðstafað honum,“ segir
Árni og að þess vegna m.a. hafi kvót-
inn verið aukinn.
„Ef skötuselurinn yrði tekinn úr
kvótanum myndu menn rjúka til og
lenda í því sem hefur gerst bæði í
Frakklandi og Noregi, þar sem veið-
in hefur aukist mjög hratt og stofn-
inn hrunið.“ Þess vegna hafi skötu-
selurinn verið settur í kvóta
hérlendis árið 2001 þegar veiðin
hafði þrefaldast á tveggja ára tíma-
bili.Einar Jónsson, fiskifræðingur
hjá Hafrannsóknastofnuninni, segir
að svo virðist sem kvótasetningin
hafi nánast kæft beina sókn í skötu-
selinn þannig að kvótinn hafi ekki
náðst. Vandamálið sé að kvótinn
skiptist svo víða.
„Sóknin byrjaði 1999 til 2000 þeg-
ar aflinn fór upp í 1.500 tonn og upp
úr því var settur kvóti, sem er eina
tæki stjórnvalda til þess að hemja
afla,“ segir Einar. „Þá skiptist hann
svo víða að þetta virkaði hamlandi á
nýtingu stofnsins og aflinn dalaði
niður í 1.350 tonn árið 2001 og niður
fyrir þúsund tonn 2002. Þar með var
hann kominn á svipað ról og hann
hefur verið í áratugi sem aukaafli.“
Einar segir að sér sýnist að ekki
sé búið að fá úr því skorið hvort ekki
sé hægt að fá meira út úr þessari
auðlind sem skötuselurinn sé. Ekki
síst vegna þess að ástandið virðist
vera mjög gott á „selnum“, það sé
hlýtt í sjónum og hann virðist vera að
færa sig vestur fyrir land og út-
breiðslusvæðið þar af leiðandi að
stækka. Tveir stórir árgangar virðist
vera í stofninum.
„Þannig að ég álít að tillaga sjáv-
arútvegsráðherra sé svona kvóta-
tæknileg aðgerð til þess að komast
út úr þessum vítahring að skötuselur
er aðeins veiddur sem aukaafli án
þess að með því sé stefnt að því að
fara fram úr hámarksaflatillögu Haf-
rannsóknastofnunarinnar,“ segir
Einar.
Stofninn hryndi
ef veiðar yrðu
gefnar frjálsar
Morgunblaðið/Hjörtur Gíslason
Kristinn Arnberg Kristinsson, skipstjóri í Grindavík, vill að skötusels-
veiðar verði gefnar frjálsar. Ólíklegt er að svo verði en kvótinn hefur verið
aukinn úr 1.500 tonnum í 2.000.
Sjávarútvegsráðherra segir
slæma reynslu af afnámi kvóta
í Frakklandi og Noregi
Loðnan
innan
lögsögu
Grænlands
LOÐNUVEIÐARNAR ganga
mjög vel um þessar mundir, en nú
eru skipin að veiðum í grænlenzku
lögsögunni, um 100 mílur norður
af Horni. Samkvæmt upplýsingum
Samtaka fiskvinnslustöðva hefur
um 61.500 tonnum verið landað af
íslenzkum skipum og 22.000 tonn-
um af erlendum skipum.
Danir hafa nú lokið sínum veið-
um, en þeir höfðu 17.000 tonna
kvóta innan lögsögu Grænlands.
Þá hefur einn sænskur bátur verið
þar að veiðum og lauk hann þeim
með löndun í Neskaupstað á mið-
vikudag. Norsku skipin eru langt
komin með aflaheimildir sínar, en
þau hafa eingöngu veitt innan
grænlenzku lögsögunnar. Loks eru
nokkur færeysk skip að loðnuveið-
unum.
Töluvert hefur verið um það að
erlendu skipin hafi landað afla sín-
um hér til að spara sér langa sigl-
ingu heim og síðan á miðin aftur.
Mestu hafa þau landað hjá Hrað-
frystistöð Þórshafnar, um 8.000
tonnum og um 6.500 tonnum hjá
Síldarvinnslunni í Siglufirði.
langmestu af loðnu hefur verið
landað í Siglufirði, um 20.500 tonn-
um. 10.300 tonn hafa borizt til
Þórshafnar, 10.000 tonn til Krossa-
ness, 8.000 tonn til Raufarhafnar,
7.900 tonn til Grindavíkur og 7.000
tonn til Akraness. Aðrir staðir
hafa tekið á móti minna af loðnu.
Beitir NK er nú hættur loðnu-
veiðum, en hann náði 7 túrum á 20
dögum að meðtöldum þeim tíma
sem fór í leit. Alls var hann með
7.500 tonn og landaði hann tvisvar
í Grindavík, tvisvar á Raufarhöfn
og þrisvar í Siglufirði. Freysteinn
Bjarnason, útgerðarstjóri Síldar-
vinnslunnar, segir að nú fari Beitir
á kolmunna. „Menn fara í þann
hauginn sem mest er í,“ segir
Freysteinn.
Íslenzku skipin hafa nú landað
samtals 61.500 tonnum af kol-
munna og af erlendum skipum
hafa borizt 22.000 tonn á land.
Kolmunnakvótinn hefur verið auk-
inn í 547.000 tonn og því eru
óveidd langleiðina í hálfa milljón
tonna. Því munu skipin leggja
mikla áherzlu á að ná að veiða
kvótann til að styrkja stöðu sína
fyrir samningaviðræður um skipt-
ingu veiðanna, þegar að þeim kem-
ur.
Hvalfjarðargöng 5 ára
Hvalfjarðargöng voru opnuð fyrir umferð við hátíðlega athöfn fyrir fimm árum, 11. júlí 1998.
Það ríkti sannkölluð þjóðhátíðarstemning þegar þetta glæsilega samgöngu-
mannvirki var tekið í notkun, stærsta einkaframkvæmd í vegamálum á Íslandi.
Opnun ganganna markaði tímamót í umferðaröryggismálum þjóðarinnar.
Göngin voru hönnuð í samræmi við ströngustu kröfur um sambærileg samgöngu-
mannvirki og aðstandendur Spalar hafa ætíð haft öryggi vegfarenda í fyrirrúmi.
Óhöpp hafa verið fá, flest minni háttar, og engin alvarleg slys á fólki.
Alls hafa 5,8 milljón ökutæki farið um göngin frá 11. júlí 1998
til 11. júlí 2003, mun fleiri en ráð var fyrir gert í upphafi.
Nettótekjur Spalar af hverjum bíl, óháð stærð, hafa lækkað
um allt að 36% að raunvirði síðan göngin voru opnuð.
Við óskum landsmönnum til hamingju með daginn og þökkum
innilega fyrir viðskiptin og samskiptin
á fyrstu fimm árunum í rekstri Hvalfjarðarganga.
Stjórn Spalar ehf.
Ókeypis í göngin!
frá kl. 7:00 11. júlí til kl. 7:00 12. júlí
Mánabraut 20, 300 Akranes
Sími: 431 5900. www.spolur.is
22
20
.3
5
U
m
sj
ón
A
th
yg
li,
hö
nn
un
A
ug
lý
si
ng
as
to
fa
Þó
rh
ild
ar
,l
jó
sm
.H
re
in
n
M
ag
nú
ss
on