Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GEGN HÖFUÐVERK
Sandey
Sundaborg 9, 104 Reykjavík,
sími 533 3931, fax 588 9833
sandey@simnet.is
MARIANO LLorente Mendez, 27 ára Pamplonabúi, er stunginn á hol af
nauti í fjórða nautahlaupinu á San Fermin-hátíðinni í borginni í gær.
Samkvæmt upplýsingum lækna er Mendez alvarlega slasaður. Alls slös-
uðust þrettán manns í hlaupinu í Pamplona í gær, voru ýmist stungnir af
nautum eða troðnir undir. Alls hafa þá 23 slasast í nautahlaupunum á há-
tíðinni í ár.
San Fermin-hátíðin er haldin árlega í Pamplona á Spáni og samkvæmt
hefðinni er nautum sleppt út á götur borgarinnar snemma að morgni,
dagana sem hátíðin stendur, og látin hlaupa 800 metra leið að nautaats-
hringnum. Á undan hlaupa mörg hundruð manns sem freista þess að
sleppa frá nautunum. Hátíðin varð ekki síst fræg vegna umfjöllunar
bandaríska rithöfundarins Ernests Hemingways um hana í skáldsögunni
Og sólin kemur upp (The Sun Also Rises), en síðan 1924 hafa 13 manns
látið lífið á hátíðinni, síðast 1995.
EPA
Þrettán slasast í nautahlaupi í Pamplona
SJÖ manns létu lífið í árekstri
rútu og þriggja bíla á hraðbraut
sunnan við Manchester í Eng-
landi í gær. Sex slösuðust, þar af
tveir alvarlega. Tólf ferðamenn
voru í rútunni auk bílstjóra en
þeir voru á leið á flugvöllinn í
Manchester. Loka þurfti hrað-
brautinni í nokkra klukkutíma
eftir slysið.
Rembrandt
fór á 876
milljónir
SJÁLFSMYND málarans
Rembrandts, sem hafði verið
falin undir lögum af málningu í
yfir 300 ár, var seld í gær á 6,9
milljónir
punda eða
sem nemur
876 milljónum
króna. Sam-
kvæmt upp-
lýsingum frá
Sotheby’s sem
sá um upp-
boðið keypti
spilavítakóng-
ur frá Las
Vegas, Steph-
en Wynn, málverkið. Myndin
kom aðeins nýlega í ljós eftir að
búið var að hreinsa af gömul
málningarlög sem nemandi
Rembrandts hafði borið á hana.
Hún sýnir málarann, sem þá var
28 ára, með stóra alpahúfu á
höfði.
Viku í sömu
nærbuxunum
SJÖ prósent norskra karlmanna
og 6% kvenna klæðast sömu
nærbuxunum í að minnsta kosti
heila viku áður en þau skipta
um, samkvæmt nýrri könnun á
hreinlætisvenjum Norðmanna.
Af þeim 1.000 manns sem þátt
tóku í könnuninni sögðust 65%
skipta daglega um nærbuxur en
4% tvisvar á dag. Fólk á aldr-
inum 41–50 ára er lengst í sömu
nærbuxunum á meðan unga
fólkið, 18–30 ára, skiptir oftast
um, 73% á hverjum degi.
Forsætisráð-
herra rekinn
FORSETI Hvíta Rússlands, Al-
exander Lukashenko, vék for-
sætisráðherra landsins, Gen-
nady Novitsky, úr embætti í
gær. Fleiri háttsettir embættis-
menn voru reknir en forsetinn
sagði þá ekki hafa sinnt starfi
sínu nægilega vel og eiga sök á
fjárhagsvandræðum þjóðarinn-
ar. Andstæðingar hans sögðu
þetta hins vegar vera örþrifaráð
vegna minnkandi vinsælda for-
setans.
Svikahrappar
frá Írak
NÝ TEGUND svokallaðra Níg-
eríubréfa hefur litið dagsins ljós
í Asíu. Þau eru hins vegar ekki
frá Nígeríu heldur Írak og ferlið
hefst á viðskiptaspjallrásum á
Netinu en þróast svo yfir í tölvu-
póstsamband bíti fórnarlambið
á agnið. Bréfritarar kynna sig
sem fyrrum ráðherra í stjórn
Saddams Husseins, sem þurfi
aðstoð við að koma auðæfum
einræðisherrans úr landi, og
óska eftir upplýsingum um
bankareikninga viðtakenda
bréfanna.
STUTT
Sjö létust á
hraðbraut
Sjálfsmynd
Rembrandts.
TVEIR jarðskjálftar, 5,6 og 5,8
á Richterskvarða að styrk-
leika, riðu yfir suðurhluta Ír-
ans síðla dags í gær og ollu
dauða nokkurra þorpsbúa, eft-
ir því sem heimildarmenn AFP
sögðu.
„Nokkur þorp urðu illa úti.
Það er eitthvað um dauðsföll,
en við höfum enga nákvæma
tölu í bili,“ sagði heimildarmað-
ur fréttastofunnar innan ír-
anska innanríkisráðuneytisins.
Að sögn heimildarmannsins
skóku skjálftarnir sýsluna
Zahrindasht, nærri Jahrom í
Fars-héraði í suðurhluta lands-
ins. Svæðið er um 800 km suð-
ur af höfuðborginni Teheran,
ekki fjarri borginni Shiraz.
Að sögn íranska útvarpsins
höfðu björgunarsveitir náð á
svæðið í gærkvöldi, en haft var
eftir embættismanni héraðsyf-
irvalda að dauðsföll væru ekki
mörg af völdum jarðskjálft-
anna.
Jarðskjálftar eru algengir í
Íran.
Jarð-
skjálftar í
Suður-Íran
Teheran. AFP.
ÞÝSKIR fjölmiðlar gagnrýndu flestir
Gerhard Schröder, kanslara landsins,
í gær fyrir að hætta við að fara í frí til
Ítalíu vegna móðgandi ummæla
ítalsks aðstoðarráðherra um þýska
ferðamenn. Einungis dagblaðið Bild
tók upp hanskann fyrir kanslarann.
„Þessi bjánaskapur er að verða að
milliríkjadeilu,“ sagði blaðið Süd-
deutsche Zeitung. „Trúr þeirri af-
stöðu sinni að „Þýskaland, það er ég“
kveðst kanslarinn nú hafa verið
móðgaður í nafni allra Þjóðverja.“
Schröder aflýsti fyrirhuguðu fríi
sínu í Toscana á Ítalíu í kjölfar þess
að Stefano Stefani, aðstoðarferða-
málaráðherra Ítalíu, sagði í viðtali að
Þjóðverjar væru „einsleitar, of-
urþjóðernissinnaðar ljóskur sem
leggja með hávaða og látum undir sig
strendur Ítalíu“ á hverju sumri.
Berlínarblaðið Tagesspiegel sagði
kanslarann halda uppteknum lýð-
skrumarahætti og blanda saman ut-
anríkismálum og innanríkismálum.
„Allt er þetta vegna þess að hann hef-
ur á tilfinningunni að þetta mál sé
slæmt fyrir þjóðarsálina,“ sagði blað-
ið.
„Það er sannarlega þörf á að svara
Berlusconi og félögum, en það ætti að
gerast á sviði stjórnmálanna,“ sagði
blaðið Frankfurter Rundschau.
Einungis Bild virtist ánægt með
ákvörðun Schröders. „Ciao bella
Italia,“ sagði blaðið í fyrirsögn við
hlið myndar af kanslaranum, og fyr-
irsögn fréttarinnar var: „Kanslarinn
hefur engan áhuga á pasta.“
Blaðið birti mótmælabréf sem les-
endur gátu klippt út úr blaðinu og
sent Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, og fylgdi með mynd-
símanúmer ítalska sendiráðsins í
Berlín.
Með því að tilkynna að hann sé
hættur við að fara í ferðalag og ætli
að eyða fríinu í heimabæ sínum,
Hannover, hefur Schröder tryggt sér
á ný stuðning Bild, sem ekki hefur
alltaf verið ánægt með hann.
Ítölsk blöð gagnrýndu hlut þar-
lendra stjórnvalda í þessari deilu.
Tórínóblaðið La Repubblica sagði að
orðspor ítölsku stjórnarinnar erlend-
is hefði beðið hnekki, einkum eftir að
Berlusconi líkti þýskum fulltrúa á
Evrópuþinginu við fangavörð í út-
rýmingarbúðum nasista.
Kaupsýsludagblaðið Il Sole 24 Ore
birti grein um áhyggjuefni ítalskra
ferðaskrifstofa og hóteleigenda í kjöl-
far þess að skoðanakönnun sýndi að
mikill meirihluti Þjóðverja studdi
ákvörðun Schröders.
„Móðgaður í nafni
allra Þjóðverja“
Berlín. AFP.
AP
Gerhard Schröder, kanslari Þýska-
lands, á kaffihúsi fyrir framan
Markúsarbasilíkuna í Feneyjum
fyrir tveim árum.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti í fyrrakvöld að af-
létta banni George W. Bush forseta
við fjárveitingum til alþjóðlegra
hjálparsamtaka sem framkvæma
eða veita konum upplýsingar um
fóstureyðingar.
Niðurstaðan er mikið áfall fyrir
Bush sem hefur hótað að beita neit-
unarvaldi ef niðurstaðan yrði þessi
en 53 þingmenn vildu aflétta bann-
inu og 43 voru því andvígir. Sam-
þykktin tengist umfjöllun um 27
milljarða dollara aðstoð sem stjórnin
hyggst veita alþjóðlegum samtökum
sem veita fjölskylduráðgjöf.
Banninu, sem kallað hefur verið
Mexíkó-ákvæðið, var fyrst komið á
1984 af Ronald Reagan, þáverandi
forseta, en Bill Clinton felldi það úr
gildi 1993 og sætti sú ákvörðun hans
gagnrýni íhaldsmanna og trúarsam-
taka. Eitt fyrsta verk Bush er hann
tók við embætti 2001 var að koma
banninu á en honum var mikið í mun
að halda stuðningi íhaldsmanna.
Demókratinn Barbara Boxer lagði
fram tillöguna um að banninu yrði
aflétt í þinginu, m.a. með þeim rök-
um að með banninu væru samtök,
sem ynnu mikilvægt og fjölbreytt
starf í heilbrigðismálum, oft með fá-
tækum, svipt fjárhagsaðstoð sem
mikil þörf væri fyrir. Þá bryti bannið
gegn stjórnarskránni þar sem það
svipti samtökin tjáningarfrelsi.
Samþykkt að afnema ákvæði gegn fóstureyðingum
Áfall fyrir Bush forseta
Washington. AP, AFP.