Morgunblaðið - 11.07.2003, Page 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 39
MINNINGAR
Þig faðmi liðinn friður Guðs
og fái verðug laun
þitt góða hjarta, glaða lund
og göfugmennska í raun.
Við kveðjum þig með þungri sorg
og þessi liðnu ár
með ótal stundum ljóss og lífs
oss lýsa gegnum tár.
Guð blessi þig. Þú blóm fékkst grætt
og bjart um nafn þitt er.
Og vertu um eilífð ætíð sæl
við aldrei gleymum þér.
(Jón Trausti.)
Ég kveð þig með söknuði og varð-
veiti minninguna um þig.
Guðleif Sunna.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Guð geymi þig, elsku langamma.
Guðmundur Hrafn
Baldvinsson.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Sigrún María, Hlynur
Freyr og Sara Dís.
Okkur hjónin langar að minnast
með nokkrum orðum konunnar sem
kölluð var Dóra amma á okkar
heimili og hefur nú kvatt þetta jarð-
líf. Hún var reyndar ekki amma
okkar í Funafold 67, en frá fyrstu
kynnum varð hún Dóra amma.
Halldóra Guðmundsdóttir var
amma Baldvins Hrafnssonar,
tengdasonar okkar, og langamma
hans Guðmundar Hrafns, dóttur-
sonar okkar. Hún var fjölskyldunni
mjög kær, því það var auðvelt að
láta sér þykja vænt um hana.
Dóra amma bjó á sínu heimili við
Bergstaðastræti þegar við kynnt-
umst fyrst, en er heilsu hennar fór
að hraka flutti hún í íbúð aldraðra
við Lönguhlíð og síðar á hjúkrunar-
heimilið Sóltún. Hún var orðin sár-
lasin þegar hún kom á Sóltún og var
oft hætt komin í veikindum sínum
en alltaf reis hún aftur upp með þor
og áræðni í svipnum. Það var reisn
og hefðarbragur yfir Dóru ömmu,
hvort heldur hún stóð á eigin fótum,
studdist við göngugrind eða síðar,
þegar hjólastóllinn og súrefniskút-
urinn urðu hennar fylgdarsveinar.
Elsku Dóra amma var svo gjaf-
mild, að það var næstum svo að í
hvert sinn sem maður kom í her-
bergisdyrnar eða tyllti sér hjá henni
þá var hún með eitthvað fallegt við
höndina, sem hún vildi gefa viðkom-
andi. Þetta voru sannarlega gjafir
sem glöddu að innstu hjartarótum,
eins og yndislegar skrautheklaðar
körfur, prjónuð barnaleikföng og
saumaðir dúkar eða heklaðir. Einn
slíkan dýrgrip heklaðan í mínum
uppáhaldslit, „gammelrosa“, gaf
hún mér og hef ég hann undir gler-
plötu á náttborði mínu.
Góða vinkona, við þökkum þér
samfylgdina og vináttuna, ánægju-
stundirnar sem við áttum saman í
afmælum og útskriftarveislum.
Einnig yndislega stund á heimili
okkar hjóna þegar Guðmundur
Hrafn var skírður og að lokum
„Harmonikkustundirnar okkar“ í
Sóltúni, þar sem þú lést þitt ekki
eftir liggja, mættir uppábúin með
stolt í svip og ljómandi af tilhlökkun.
Jóhanna dóttir okkar sem vinnur
í Sóltúni saknar þess að geta ekki
lengur kíkt inn fyrir dyrastafinn,
rétt til að segja „hæ og bæ“ og
skiptast á við þig nokkrum spaugs-
yrðum og brosum.
Ég veit þú heim ert horfin nú
og hafin þrautir yfir
svo mæt og góð, svo trygg og trú
svo tállaus, falslaus reyndist þú
ég veit þú látin lifir!
(Steinn Sigurðsson.)
Ástvinum öllum sendum við hug-
heilar samúðarkveðjur. Ljúf er
minning mætrar konu, Halldóru
Guðmundsdóttur.
Hún hvíli í friði og blessun Guðs.
Álfheiður og Sævar.
Útsala
20-70% afsláttur
Bolir frá kr. 790
Kvartbuxur stærð 48-50.
Verð kr. 2.990
Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga 10-16
Glæsibæ – Sími 562 5110
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíu-
fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp
Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
Kirkja sjöunda dags aðventista.
Samkomur laugardag:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19. Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Lilja Ármannsdóttir.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Biblíufræðsla/guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Jóhann Grétarsson.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu-
maður: Hópur unga fólksins.
Safnaðarheimili Aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi. Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Eric Guðmundsson.
Safnaðarstarf
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum. Biblíufræðsla/ Guðs-
þjónusta kl. 10.30.
Röng tilboð frá
Bónusverslunum
Þau mistök urðu á neytendasíðu
í gær að tilboð frá Bónusversl-
unum reyndust röng. Hér á undan
fara réttu tilboðin.
Fjóla Rún í dómnefndinni
Í Morgunblaðinu í gær var rang-
lega farið með nafn Fjólu Rúnar
Björnsdóttur, fulltrúa Íslands í
dómnefndinni í Ólympíuleikunum í
stærðfræði, sem fram fara nú í
Japan. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Nöfn lögmanna víxluðust
Í Morgunblaðinu í gær víxluðust
nöfn lögmanna í frétt um dóm í
máli tveggja fyrrum starfsmanna
Landsbanka Íslands gegn bankan-
um. Sveinn Sveinsson hrl. flutti
málið f.h. starfsmannanna en Óttar
Pálsson hdl. flutti málið f.h. bank-
ans.
Tónbræður sungu
Rangt var farið með nafn kórs-
ins sem söng við útför Jóhannesar
Geirs Jónssonar listmálara í frétt
sem birtist sl. miðvikudag. Kórinn
heitir Tónbræður, en kallar sig
jafnframt Voces Masculorum. Beð-
ist er velvirðingar á þessu.
Hluti af texta féll niður
Í frétt um nýjan framkvæmda-
stjóra hjá Fróða í viðskiptablaðinu
í gær féll niður hluti af textanum
og birtist hún því hér í heild:
Frá og með 1. ágúst nk. tekur
Magnús E. Kristjánsson viðskipta-
fræðingur við starfi framkvæmda-
stjóra sölu- og markaðssviðs út-
gáfufyrirtækisins Fróða hf. Er þar
um nýtt starf að ræða.
Starfsemi Fróða hf. skiptist nú í
tvær megindeildir. Aðalstarfsemi
fyrirtækisins er útgáfa tímarita, en
fyrirtækið gefur út sjö mismun-
andi tímarit og er tölublaðafjöldi
tæplega 200 á ári. Hin rekstrar-
deild Fróða hf. er margmiðlunar-
deild og netþjónusta, sem sér m.a.
um útgáfu handbókarinnar Íslensk
fyrirtæki og býður upp á netlausn-
ir og nethótel. Að auki sér Fróði
hf. um útgáfu félagsblaða og kynn-
ingarefnis fyrir fyrirtæki og stofn-
anir og einnig hefur fyrirtækið
tekið þátt í sýningahaldi, m.a. með
aðkomu að Sjávarútvegssýning-
unni og sýningunum „Matur“ sem
haldnar hafa verið í Kópavogi.
Aðalstörf Magnúsar E. Krist-
jánssonar verða við framkvæmda-
stjórn tímarita- og sýningardeilda
fyrirtækisins.
Magnús E. Kristjánsson útskrif-
aðist frá The University of Strath-
clyde með próf í markaðsfræði og
stjórnun og frá Háskólanum í
Reykjavík með MBA-gráðu. Hann
hefur m.a. starfað sem markaðs-
ráðgjafi hjá Íslensku auglýsinga-
stofunni, rekið eigin ráðgjafafyr-
irtæki, verið framkvæmdastjóri
markaðssviðs Íslenska útvarps-
félagsins, veitt ráðgjöf vegna
markaðsmála í Bandaríkjunum,
Evrópu og Asíu og verið fram-
kvæmdastjóri AUK ehf., auk þess
að hafa setið í stjórnum fjölmargra
félaga.
Magnús er kvæntur Jónínu
Kristjánsdóttur hagfræðingi og
eiga þau börnin Svanhvíti Helgu
og Alexander Eðvald.
Rangt föðurnafn á söngkonu
Rangt var farið með föðurnafn
Erlu Berglindar Einarsdóttur í
frétt um tónleika í Hallgrímskirkju
í blaðinu í gær.
Var með 9,3% nafnávöxtun
Kaupþing Búnaðarbanki hefur
sent Morgunblaðinu athugasemd
vegna fréttar í Morgunblaðinu í
gær um ávöxtun bankareikninga.
Taldi bankinn að það vantaði inn
reikning hjá Frjálsa lífeyrissjóðn-
um leið III (sem samanstendur af
verðtryggðum innlánsreikningi)
sem skilaði 9,3% nafnávöxtun
fyrstu 6 mánuði á þessu ári.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er í
rekstri Kaupþings Búnaðarbanka.
Tekið skal fram að í fréttinni var
leitað til allra þeirra aðila banka
og sparisjóða sem koma fram í
fréttinni og töflu sem fylgdi með
og þeir beðnir um að koma með at-
hugasemdir ef einhverjar væru.
LEIÐRÉTT
BÓNUS
Gildir 10.–13. júlí nú kr. áður kr. mælie.verð
Thule léttöl .......................................... 49 59 98 kr. ltr
Bónus samlokur .................................. 99 Nýtt 99 kr. stk.
Bökunarkartöflur í áli ............................ 139 175 278 kr. kg.
Ali vínarpyslur ...................................... 479 719 479 kr. kg.
Burtons toffypops kex ........................... 89 99 712 kr. kg.
Gullkaffi mjúkur ................................... 199 Nýtt 398 kr. kg.
Nóa Kropp .......................................... 399 Nýtt 997kr. kg.
Chiquita ávaxtasafi .............................. 299 Nýtt 150kr. ltr
Kelloggs 3pk + handklæði .................... 999 Nýtt 999kr. ein.
Kirkjustarf
Garðblóm – fjölærar jurtir í garð-
inum. Hólmfríður A. Sigurðardóttir
garðyrkjukandidat fjallar um nokkr-
ar fjölærar jurtir til garðræktar, í
Grasagarðinum í Laugardal laug-
ardaginn 12. júlí klukkan 11. Eitt
stærsta safn Grasagarðsins er er-
lendar fjölærar jurtir en að sjálf-
sögðu eru þær ekki allar í ræktun
hér á landi, en athyglisvert er að
bera saman skyldleika algengra
garðblóma við aðrar tegundir og
skoða mismunandi yrki sömu teg-
undar. Hólmfríður er höfundur Ís-
lensku garðblómabókarinnar, hefur
haldið fræðslufundi og ritað greinar
um garðblóm í blöð og tímarit.
Allir eru velkomnir og boðið verður
upp á jurtate og ókeypis fræðslu fyr-
ir almenning.
Skák í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum. Skákfélagið Hrók-
urinn mun annast skákfræðslu í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Kennsla stendur yfir frá 14 til 14:30.
Róbert Harðarson, sem lenti í 4.–11.
sæti á afar sterku Grænlandsmóti,
teflir fjöltefli. Aðgangur er ókeypis
og allir þátttakendur fá frítt í garð-
inn og miða í leiktækin.
Æskulýðsmót Skógarhóla.
Helgina 12.–13. júlí 2003. Dagskráin
hefst strax á laugardagsmorgni og
heldur áfram fram á kvöld. Það
verða leikir, haldið verður Íslands-
mót í fíflagangi, sameiginlegur reið-
túr (hægt er að leigja hesta), óvænt-
ar uppákomur, grill og kvöldvaka.
Verðlaun verða gefin fyrir glæsileg-
ustu tjaldbúðirnar og verðlaun verða
veitt fyrir þátttöku í þrautabrautum.
Flestir mæta á föstudagskvöldi, til
að geta tekið þátt í allri dagskránni,
og gista í tvær nætur. Næg tjald-
stæði eru að Skógarhólum og einnig
er hægt að bóka sig í skála. Beit-
arhólf eru til staðar fyrir þá sem
taka með sér hesta.
Á MORGUN
Jóladagar í júlí. Helgina 12. og
13. júlí verða hinir árlegu jóladag-
ar í júlí. Það eru markaðsdagar
sem haldnir eru um mitt sumar til
að kenna fólki að það er hægt að
njóta jólaundirbúnings án streitu.
Boðið er upp á jólaöl og pip-
arkökur. Handverksfólk situr að
störfum og spjallar við gesti og
gangandi um handverk og jól.
Tombóla til styrktar Rauða kross-
inum. Kassastrimlahappadrætti.
Markaðurinn er opinn frá 10–18
laugardag og sunnudag. Hand-
verksfólkið situr að störfum milli
13 og 16 og jólasveinninn mætir kl
14 og er í klukkutíma. Frekari
upplýsingar á vefsíðunni
www.jolahusid.com.
Íslenska landsliðið í hesta-
íþróttum kynnt.
Heimsmeistaramót íslenska hests-
ins í hestaíþróttum verður haldið í
Herning á Jótlandi 29. júlí til 3.
ágúst í sumar. Landssamband
hestamannafélaga sendir 19
manna sveit landsliðsmanna og
-kvenna ásamt hestum til að taka
þátt í mótinu fyrir hönd Íslands.
19 þjóðir senda lið til keppninnar
með u.þ.b. 250–300 keppendur og
hesta.
Nú þegar hafa nokkrir knapar og
hross unnið sér sæti í landsliðinu,
Sigurður Sæmundsson lands-
liðseinvaldur á þó enn eftir að
velja hross og knapa í landsliðið.
Af þessu tilefni hefur verið ákveð-
ið að endanlegt og fullskipað
landslið Íslands í hestaíþróttum á
HM 2003 ásamt kynbótalandsliði,
verði kynnt á fréttamannafundi
sem haldinn verður á Cafe Flóru í
Grasagarðinum í Laugardal mánu-
daginn 14. júlí nk. klukkan 15.
Á fundinum verður m.a. skrifað
undir samninga við þrjá af
stærstu kostunaraðilum landsliðs-
ins, sem eru; Icelandair, Íslands-
banki og VÍS.
Á NÆSTUNNI
ÁREKSTUR varð laugardag-
inn 5. júlí sl. um kl. 7 á gatna-
mótum Stekkjarbakka og
Höfðabakka. Bifreiðinni
TR-119 sem er Hyundai H-1
hvít að lit, var ekið suður
Höfðabakka og bifreiðinni
ZU-122 sem er rauður Musso-
jeppi, var ekið Stekkjarbakka
til austurs. Á gatnamótunum
skullu bílarnir harkalega sam-
an en ágreiningur er um stöðu
umferðarljósanna er árekstur-
inn varð. Hugsanleg vitni eru
vinsamlega beðin um að hafa
samband við lögregluna í
Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
ATVINNA
mbl.is
AFMÆLIS- og minningar-
greinum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfvirkt um leið
og grein hefur borist) eða á
disklingi. Ef greinin er á disk-
lingi þarf útprentun að fylgja.
Nauðsynlegt er að tilgreina
símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusíma og heima-
síma). Ekki er tekið við hand-
skrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar séu um 300 orð
eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu
(17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmark-
ast við eitt til þrjú erindi. Einn-
ig er hægt að senda örstutta
kveðju, Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina