Morgunblaðið - 11.07.2003, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í 7. viku ársins, dagana 9. til 15. febr-
úar sl. var litskrúðug auglýsing í
Morgunblaðinu um undur Karíba-
hafs. Þar er auglýst tilboð frá
Heimsklúbbi Ingólfs: „Aðeins þessa
viku. Flogið frá Keflavík til Orlando,
gist þar eina nótt og daginn eftir
flogið niður til Dóminikana, 11 dagar
með fullu fæði og drykkjum inniföld-
um. Þá flogið aftur upp til Orlando,
gist þar 4 nætur án morgunverðar.
Íslensk fararstjórn. Aðeins 176.900
kr. Berið ekki saman krækiber og
melónu“.
Þegar allir voru búnir að greiða
ferðina fóru skrautfjaðrirnar að
detta af.
1. Hringt var frá Heimsklúbbi
Ingólfs og okkur tjáð að hóp-
urinn væri of fámennur (aldrei
minnst á neinn fyrirvara áður,
hvorki á prenti né munnlega)
við gætum ekki fengið íslensk-
an fararstjóra niður á Dóminik-
ana. Rosanne de la Cruz var
þess í stað fengin til að sjá um
hópinn á hótelinu og okkur
bent á að fara í kynnisferðir
með öðrum hótelgestum. Við
höfðum lagt ríka áherslu á
kynnisferðir við pöntun ferðar-
innar, en þær voru alltaf í at-
hugun hjá Heimsklúbbnum.
2. Sannleikurinn er sá að nær
engir gestir voru á þessu u.þ.b.
600 manna hóteli, bara 10 Ís-
lendingar, engir ferðamanna-
hópar, nokkrir ráðstefnugestir
og innlendar fjölskyldur um
helgar, sem ekki áttu samleið
með okkur.
3. Rosanne, „fararstjórann“,
sáum við aldrei eða heyrðum og
hótelið bauð ekki upp á
neinar kynnisferðir, ekkert að
gerast alla daga og öll kvöld.
Aðeins var boðið upp á góða
þjónustu í mat og drykk, og sól-
baðsaðstöðu. Ekki var áhuga-
vert nágrenni hótelsins, ótrú-
legt rusl, upprifnar götur og
óaðlaðandi malarvegir. Þegar
við bókuðum okkur út af hót-
elinu höfðum við á tilfinning-
unni að hótelrekstrinum yrði
hætt. Við værum síðustu gest-
irnir. Enda ekkert skilti sján-
legt með nafni hótelsins.
4. Ekki var beint flug frá Orlando
til og frá Dominikana, eins og
borgað var fyrir, heldur var
millilent í Miami og skipt um
flugvél í báðum ferðum. Allir
vita sem ferðast að við milli-
lendingu á svo stórum flugvelli
fara margir erfiðir klukku-
tímar.
5. Í Orlando ætluðum við svo
sannarlega að „skoða heiminn“
með íslenska fararstjóranum
okkar sem við vorum alveg viss
um að biði okkar. En viti menn,
enginn fararstjóri þar heldur.
Það hafði þá alveg farið
framhjá okkur öllum að við
höfðum keypt okkur ferð með
engri fararstjórn. Þetta var alls
ekki ferðin sem við borguðum
fyrir.
6. Þar sem Ingólfur Guðbrands-
son hefur opnað mörg framandi
lönd fyrir okkur Íslendingum
og oft á tíðum staðið sig stór-
kostlega í landkynningum er
þessi ferð sem við keyptum af
Heimsklúbbnum honum alls
ekki sæmandi. Strax eftir
heimkomu okkar hringdum við
öll og kvörtuðum. Stúlkurnar á
skrifstofu Heimsklúbbs Ingólfs
voru ósköp kurteisar en höfðu
greinilega enga úrlausn fyrir
okkur og ekki kom til greina að
Ingólfur talaði við okkur sjálf-
ur. Við eigum sem sagt bara að
sætta okkur við þessa ferð og
láta sem allt sé í fínu lagi. En
það getum við bara ekki. Við
hreinlega skömmumst okkar
fyrir að hafa farið með Heims-
klúbbi Ingólfs til Dominikana
við Karíbahaf og ekki haft
tækifæri til að sjá og kynnast
nokkru öðru en nær gestalausu
hóteli með mannlausri sund-
laug og einmana strönd.
Hinir vonsviknu ferðalangar eru:
GUÐRÚN BJÖRK
PÉTURSDÓTTIR,
Gásum 601 Akureyri,
FRIÐRIK GYLFI TRAUSTASON,
Gásum, Akureyri,
SIGURLAUG ALBERTSDÓTTIR,
Lækjasmára 78, Kópavogi,
EYÞÓR ÞÓRARINSSON,
Lækjasmára 78, Kópavogi,
RAGNHEIÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Stigahlíð 41, Reykjavík,
SVANHILDUR BJÖRNSDÓTTIR,
Barðavogi 13, Reykjavík,
ÞORGEIR HARALDSSON,
Bjarkargrund 39, Akranesi,
GUÐRÍÐUR
HALLDÓRSDÓTTIR,
Bjarkargrund 39, Akranesi.
Það vantar tvo farþega úr ferðinni.
Af persónulegum ástæðum skrifa
þau ekki undir.
Krækiberið
og melónan
Frá svekktum ferðalöngum:
vinnupallar
Sala - leiga
Sími 577 2050 · Fax 577 2055 · GSM 824 2050 · www.formaco.is