Morgunblaðið - 11.07.2003, Page 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 41
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Fótaaðgerðar-
fræðingur
Fótaaðgerðarfræðingur eða sjúkraþjálfari óskast
á nuddstofu í verslunar- og þjónustumiðstöð
í austurborginni. Mjög góð aðstaða í góðu
hverfi. Upplýsingar í síma 847 8855.
Íþróttakennarar
Kennara vantar við Grenivíkurskóla næsta vet-
ur til að kenna íþróttir og aðrar greinar, bókleg-
ar eða verklegar eftir samkomulagi.
Grenivíkurskóli er fámennur, heildstæður
grunnskóli með ríflega fimmtíu nemendur.
Skólinn er vel búinn í góðu húsnæði með nýju
íþróttahúsi og sundlaug.
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri
í síma 865 8131 eða 463 3131.
Leikskólinn Sólborg
Sandgerði
auglýsir lausar stöður.
50% staða leikskólakennara, umsjón með sér-
kennslu.
100% staða leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til 24. júlí nk.
Upplýsingar gefur Jórunn Guðmundsdóttir
leikskólastjóri í síma 423 7601/898 2540.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skrifstofuherbergi/leiga
Til leigu rúmgóð nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Reykjavík. Beintengt
öryggiskerfi. Sameiginleg kaffistofa.
Upplýsingar í síma 896 9629.
TIL SÖLU
Til sölu
Tilboð óskast í jörðina Stóru-Seylu í Skagafirði
að hluta eða alla. Staðsetning er skammt norð-
an Varmahlíðar. Landstærð er ca 700 ha, þ.a.
35 ha ræktaðir. Á jörðinni er 120 m2 íbúðarhús
byggt 1963 sem þarfnast lagfæringar. Jörðin
er án greiðslumarks. Veiðiréttindi eru á jörð-
inni.
Nánari uppl. í s. 462 7654. f. 25. júlí 2003. Selj-
andi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
TILKYNNINGAR
37. þing SUS í Borgarnesi
12.—14. september 2003
Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna ákvað
á fundi sínum þann 23. júní sl. að halda 37. þing
sambandsins í Borgarnesi 12.—14. september
nk. Egill, f.u.s. verður gestgjafi þingsins.
Dagskrá, samkvæmt lögum og venju, og til-
högun málefnastarfs verða auglýst síðar.
Samband ungra sjálfstæðismanna.
Bessastaðahreppur
Deiliskipulag við Hvol
Hreppsráð Bessastaðahrepps auglýsir hér með
tillögu að breytingu á deiliskipulagi íbúðar-
hverfis við Hvol í Bessastaðahreppi samkvæmt
1. mgr. 26. gr., sbr. 25. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997. Skipulagssvæðið af-
markast til norðurs af Jörfavegi og nær til lóðar
Hvols og íbúðabyggðar við götuna Fálkastíg.
Í skipulagstillögunni er gert ráð fyrir átta ein-
býlishúsum við Fálkastíg í stað þriggja í gild-
andi deiliskipulagi. Auk þess verður lóð fyrir
dreifistöð rafveitu staðsett við Jörfaveg.
Breytingartillagan verður til sýnis á skrifstofu
Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum, frá
kl. 8:00—16:00 alla virka daga frá 14. júlí til
26. ágúst 2003.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytingartillöguna. Frestur til að skila inn
athugasemdum rennur út 26. ágúst 2003.
Athugasemdum skal skilað til sveitarstjóra
Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillöguna
innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Sveitarstjórinn í
Bessastaðahreppi.
SMÁAUGLÝSINGAR
BÍLARBÍLAR
VW Vento GL 1800, '93,
ek. 117 þ.
Vínrauður, 4ra dyra, beinsk. Ný/
nýleg vetrar/sumard. Traustur
bíll í góðu standi. Verð 280 þús.
Upplýsingar í síma 696 6219.
FÉLAGSLÍF
Í kvöld kl. 20.00
Bæn og lofgjörð í umsjón Elsa-
betar og Miriam.
Allir hjartanlega velkomnir.
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um mats-
skyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
Miðhúsabraut og breyting á Þórunnarstræti
á Akureyri skuli ekki háð mati á umhverfisáhrif-
um samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat
á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun-
ar: www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 8. ágúst
2003.
Skipulagsstofnun.
Lítið notað fellihýsi
Til sölu Cheyenne fellihýsi árg. 2000 með for-
tjaldi og fleiru. Upplýsingar í s. 893 0076.
FRÉTTIR
mbl.is
ÁRLEG fjölskylduhátíð með
áherslu á hreyfingu og hollustu
verður haldin í Heiðmörkinni á
morgun, laugardag 12. júlí. Leikir
og hlaup hefjast við Elliða-
vatnsbæinn en leiða þátttakendur
síðan um Heiðmörkina í stuttar
eða langar ferðir.
Um morguninn eru ratleikur og
fjársjóðsleit á dagskrá. Verkefnin
byggjast á því að þátttakendur
leita að stöðvum sem merktar eru
á kort af Heiðmörkinni. Þátttak-
endur geta lagt af stað á tímabilinu
kl. 10–12 og farið á þeim hraða
sem þeim hentar. Eftir hádegi er
sprett úr spori. 10 km víðavangs-
hlaup, aðallega á skógarstígum,
hefst kl. 13 og skemmtiskokk,
rúmir þrír km, hefst kl. 14.
Leiktæki Skátalands verða við
Elliðavatnsbæinn, kunnir
skemmtikraftar sjá um upphitun
fyrir hlaupin og boðið verður upp
á veitingar.
Helstu vatnsból Reykvíkinga,
Gvendarbrunnar, eru á Heiðmerk-
ursvæðinu. Er hátíðin því jafnan
kennd við vatn og minnt á það með
ýmsum hætti.
Orkuveita Reykjavíkur býður til
hátíðarinnar í samvinnu við Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur, umsjón-
araðila Heiðmerkurinnar, Íþrótta-
félag Reykjavíkur og
Skátasamband Reykjavíkur.
Þátttaka er ókeypis og einnig
veitingar. Þátttakendur fá boli og
vatnsbrúsa og veitt eru ýmis verð-
laun fyrir góðan árangur. Skrán-
ing hefst kl. 9. Bílastæði eru við
Rauðhóla, skammt frá Suðurlands-
vegi, og þaðan er þátttakendum
ekið í hópferðabifreiðum að og frá
Elliðavatni.
Fjölskylduhátíð í Heiðmörk á morgun
OG VODAFONE býður viðskipta-
vinum sínum 20% afslátt á símtölum
úr farsímum á fjórum áfangastöðum
Íslendinga við Miðjarðarhafið yfir
sumarmánuðina. Tilboðið gildir á
Spáni, Ítalíu, Grikklandi og í Portú-
gal frá 10. júlí til 10. september.
„Samstarfssamningur Og Voda-
fone við Vodafone gerir félaginu
kleift að bjóða viðskiptavinum sínum
yfir 20 kr. afslátt á hverja mínútu í
sumum tilvika í þessum löndum,“
segir í frétt frá fyrirtækinu. Segir að
notendur þurfi að velja farsímanet
samstarfsfyrirtækjanna sem hér
segir:
„Spánn E VODAFONE eða E
AIRTEL, Ítalía VODA IT, Portúgal
VODAFONE, Grikkland VODA-
FONE eða PANAFON.
Að fenginni reynslu er ljóst að
þúsundir viðskiptavina Og Vodafone
munu ferðast á þessar slóðir yfir
sumarmánuðina. Tilboðið mun án efa
koma þeim til góða. Að gefnu tilefni
er þó ferðalöngum bent á að það er
áfram ódýrara að taka á móti símtöl-
um að heiman en að hringja heim.“
Bjóða 20% afslátt af
símtölum til sólarlanda