Morgunblaðið - 11.07.2003, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 43
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. júlí,
verður sextugur Svanur
Ingvason, húsgagnasmíða-
meistari, Skógargerði 4,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Rán Einarsdóttir. Þau
eru að heiman í dag.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. júlí,
er fimmtug Erla Kr. Bjarna-
dóttir, Heiðargerði 13,
Húsavík. Eiginmaður henn-
ar er Sigurgeir
Aðalgeirsson,
framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins Alli Geira hf.,
vöruflutningar. Þau verða
að heiman á afmælisdaginn.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. júlí,
er sextug Dóra Friðriks-
dóttir, Hríseyjargötu 21b,
Akureyri. Dóra er að heim-
an á afmælisdaginn.
90 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 12. júlí, er níræð Mar-
grét Guðmundsdóttir,
Stangarholti 3, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum á
afmælisdaginn kl. 15–17 á
Hjúkrunarheimilinu Eir, 4.
hæð, þar sem hún dvelur nú.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú átt auðvelt með að vinna
með öðrum og hefur yf-
irgripsmikla þekkingu á hin-
um ýmsu málum. Þú sýnir af
þér mikla hjálpsemi og
öðrum líkar það vel.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú munt að öllum líkindum fá
tækifæri til þess að veita fjöl-
skyldumeðlim hjálparhönd.
Það eru forréttindi að geta
hjálpað ættingjum sínum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vinátta sem hefst í dag og
lætur ekki mikið yfir sér gæti
orðið langvinn. Það ríkir
gagnkvæmur skilningur í
þessu vináttusambandi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt hafa gaman af því
að kaupa eitthvað sem eykur
viðringu þína í augum ann-
arra. Frestaðu kaupunum til
morguns. Það er betra.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert reiðubúinn til þess að
leggja töluvert á þig í dag til
þess að ná markmiðum þín-
um. Þú munt geta gert þetta
án þess að taka nokkuð frá
öðrum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Í dag er þér sérstaklega annt
um frelsi og velferð annarra.
Mundu að gleyma ekki þínu
eigin frelsi og þinni eigin vel-
ferð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það mun reynast auðvelt að
veita vini þínum hjálparhönd
í dag. Þú kýst að hjálpa öðr-
um ef þeir endurgjalda greið-
ann.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Öðrum finnst þú hafa mikla
útgeislun í dag. Þú ert ein-
staklega aðlaðandi og ein-
hver gæti fundið fyrir ást á
þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú kýst að eyða peningum og
skemmta þér í dag. Þú hefur
úr mörgu að velja þegar
kemur að skemmtunum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Einhver gæti gefið þér eitt-
hvað í dag sem setur svip á
heimili þitt. Þessi gjöf gæti
komið sér vel fyrir þig og
auðveldað lífið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Án þess að þú þurfir að
leggja nokkuð aukalega á þig
nærðu að fá alla á þitt band.
Njóttu þess á meðan það var-
ir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Góðar hugmyndir þínar í
vinnunni gætu fært þér
auknar tekjur í framtíðinni.
Ekki forðast það að láta
heyra í þér. Þú hefur mikið
fram að færa.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú finnur fyrir mikilli góðvild
í garð annarra. Spennandi
samband gæti hafist í dag.
Fólk hrífst af kærleik þínum
og sjálfsöryggi.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KVÖLD Í SVEIT
Kvöldblíðan lognværa kyssir hvern reit,
komið er sumar og fögur er sveit.
Sól er að kveðja við bláfjalla brún,
brosa við aftanskin fagurgræn tún.
Seg mér hvað indælla auga þitt leit
íslenska kvöldinu í fallegri sveit!
Guðmundur Guðmundsson
LJÓÐABROT
Á MEÐAN spilarar af
holdi og blóði sátu sveittir
og lúnir við græna borðið í
hitabylgjunni í Menton fór
fram hliðarmót harðgerð-
ari keppenda sem létu hit-
ann ekkert á sig fá: „Tölv-
urnar“ voru að heyja sitt
sjöunda heimsmeist-
aramót. Bridsforritin verða
æ fullkomnari og keppnin
á milli þeirra bestu er í
háum gæðaflokki. Níu for-
rit hófu keppni og í fyrstu
lotu spiluðu tölvurnar inn-
byrðis 20 spila leiki. Fjórar
efstu „sveitirnar“ kepptu
svo til úrslita. Hollenska
forritið Jack fór með sigur
af hólmi eftir að hafa unnið
Bridge Baron frá Banda-
ríkjunum í úrslitaleik. Í
undanúrslitum burstaði
Jack Micro Bridge frá Jap-
an, en Bridge Baron lagði
Frakkann Wbridge5 naum-
lega. Þessi fjögur forrit,
ásamt hinu breska Oxford
Bridge og þýska Q-Plus,
eru í sérflokki.
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ KG102
♥ G7
♦ Á2
♣K9876
Vestur Austur
♠ D ♠ Á98
♥ K109 ♥ 86543
♦ G853 ♦ D64
♣DG1043 ♣Á2
Suður
♠ 76543
♥ ÁD2
♦ K1097
♣7
Spilið er frá úrslitaleik
Jack og Bridge Baron. NS
eiga varla geimstyrk, en þó
er töluvert vit í því að
reyna fjóra spaða. Jack bjó
yfir tækni til að segja
geimið:
Vestur Norður Austur Suður
BB Jack BB Jack
Pass 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 2 grönd *
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Hækkun norðurs í tvo
spaða sýnir 12–14 punkta
og fjórlit í spaða. Suður
biður um nánari lýsingu
með tveimur gröndum og
norður lýsir yfir lágmarki
en góðu trompi með þrem-
ur spöðum. „Suður-Jack“
gat reiknað út frá því að
geim væri a.m.k. 40% og
sagði fjóra spaða.
Út kom laufdrottning,
sem var dúkkuð. Laufásinn
féll óbættur síðar í spilinu
og laufkóngurinn nýttist
sem niðurkast fyrir tígul.
Tíu slagir og 620.
Bridge Baron hafði ekki
sömu sagntækni og stans-
aði í þremur spöðum eftir
þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
Jack BB Jack BB
Pass 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 3 spaðar
Pass Pass Pass
Tígull kom út og Bar-
óninn í suður spilaði því
laufi á kóng og fékk aðeins
9 slagi: 140 og 10 IMPar til
heimsmeistarans í tölvu-
flokki.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 11. júlí, eiga gull-
brúðkaup hjónin Sólveig Júlíusdóttir og Þórður Þór-
arinsson frá Ríp, búsett á Víðigrund 9, Sauðárkróki. Þau
eru nú í óvissuferð.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. júlí,
er fimmtugur Ebeneser
Konráðsson, Ægisgrund
19, Garðabæ. Í tilefni af-
mælisins tekur hann á móti
gestum í safnaðarheimilinu
Kirkjulundi í Garðabæ milli
kl. 17 og 19 í dag.
1. c4 e6 2. Rc3 Rf6 3. g3 Be7 4. Bg2 O-O
5. b3 d5 6. cxd5 exd5 7. Bb2 d4 8. Re4
Rc6 9. Rxf6+ Bxf6 10. Bxc6 bxc6 11. h4
He8 12. d3 Dd5 13. Hh2 a5 14. Dc2 a4
15. b4 a3 16. Bc1 Be7 17. Bd2 Be6 18.
Rf3 Bg4 19. Kf1 Bxf3 20. exf3 Dxf3 21.
He1 Bd6 22. Hg2 Hxe1+ 23. Bxe1 He8
24. Dd2
Staðan kom upp á alþjóðlega Græn-
landsmótinu sem lauk fyrir skömmu.
Tomas Oral (2537) hafði svart gegn
Sveinbirni Jónssyni (1820). 24...Bxb4!
25. Dxb4 De2+ 26. Kg1 Dxe1+ 27.
Dxe1 Hxe1+ 28. Kh2 Hd1 29. f4 Hxd3
30. Hc2 Hc3 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
DAGBÓK
DILBERT mbl.is