Morgunblaðið - 11.07.2003, Side 48

Morgunblaðið - 11.07.2003, Side 48
Símaklefinn er þétt og snaggaraleg spennumynd með frumlegri fléttu. Andardráttur (Respiro) Mynd sem er sterk, falleg, tilgerðarlaus og nánast lifir eigin lífi, eins og hefðin er þegar best tekst til í evrópskri kvikmyndagerð. (H.L.) Háskólabíó. Matrix endurhlaðið (The Matrix Reloaded) Á heildina litið er Matrix endurhlaðið langt frá því að vera jafnheilsteypt, öguð og hugvekj- andi og forverinn. (H.J.)  Sambíóin. Einkenni (Identity) Unnið er skemmtilega með hrollvekjuhefð- ina í þessari snjöllu kvikmynd með þeim John Cusack, Ray Liotta og Amöndu Peet í aðalhlutverkum. Ómissandi fyrir aðdáendur spennutrylla og frumlegra sögufléttna. (H.J.)  Regnboginn. Didda og dauði kötturinn Didda er 9 ára gömul Keflavíkurmær sem gengur á milli bols og höfuðs á glæpalýð í Bítlabænum. Góður leikur, hollt, gott og gamaldags barnagaman. (S.V.)  Sambíóin. Símaklefinn (Phone Booth) Óvenjuleg spennumynd sem gerist í af- mörkuðu rúmi símaklefans en fjallar undir niðri um falska öryggiskennd, og næfur- þunna grímu yfirborðsmennskunnar. (S.V.)  Smárabíó, Regnboginn. Nói albínói Frumleg og vel gerð mynd í alla staði sem gerist í einangruðu sjávarþorpi þar sem óvenjulegur uppreisnarmaður á í stríði við menn og máttarvöld. Magnað byrjandaverk. Nú sýnd með enskum texta. (S.V.) Háskólabíó. Dökkblár (Dark Blue) Spilling í lögregluliði Los Angeles-borgar er slitið efni og fátt nýtt undir sólinni í annars laglega gerðri hasarmynd með Kurt Russell í fjórhjóladrifinu. (S.V.) ½ Háskólabíó, Sambíóin. Kunningjar mínir (People I Know) Býsna áhugaverð mynd um „PR-bisnissinn“ en handritið tæpast nógu gott. Kim Bas- inger sýnir hárfínan og dempaðan leik. (H.L.)  ½ Laugarásbíó. Ungi njósnarinn (Agent Cody Banks) Fyrir foreldra er Ungi spæjarinn alls ekki með því verra sem þeir sitja yfir, og fyrir unga krakka, 8–14 ára, er myndin bara besta skemmtun. (H.L.)  Regnboginn. Allt að verða vitlaust (Bringing Down the House) Klaufaleg gamanmynd þar sem tilraunir til að stefna saman ólíkum menningarheim- um reynast innantómar. Leikararnir Steve Martin, Queen Latifah og Eugene Levy standa sig þó vel. (H.J.) Sambíóin. Hollywood endir (Hollywood Ending) Þunnur þrettándi. Auðvitað bráðfyndin af og til, en oft á tíðum illa leikin, skotin á Hollywood eru fá og aum og endurtekning- arsöm. (H.L.) Háskólabíó Jói enski (Johnny English) Atkinson skemmtilegur að vanda í Clous- eau-stellingum í Bond-gríni sem skortir lokafínpússningu. (S.V.) Sambíóin, Háskólabíó. Heimskur, heimskarari: Þegar Harry hitti Lloyd (Dumb and Dumberer: When Harry Met Lloyd) Hefur litlu við upprunalegu gamanmyndina að bæta og sögufléttan sem spunnin er í kringum bernskubrek þeirra félaga er rýr og óáhugaverð. (H.J.) Laugarásbó, Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó Akureyri. Kengúru-Kalli (Kangaroo Jack) Eins brandara, fjölskylduvæn Bruckheimer- mynd um þjófótta kengúru og tvo hrak- fallabálka. Fyrir smáfólkið. (S.V.) Sambíóin. Lizzie McGuire (The Lizzie McGuire Movie) Afskaplega stöðluð, klippt og skorin ung- lingamynd, uppfull af tískudýrkun. Leikkon- an Duff býr þó yfir nægum sjarma til að halda myndinni uppi. (H.J.) Sambíóin. Reiðistjórnun (Anger Management) Sandler kominn í gamla góða formið. Gamli góði Nicholson hins vegar víðsfjarri í hugmyndasnauðri en ágætis dægrastytt- ingu.(H.L.) Smárabíó. Englar Kalla gefa í botn (Charlie’s Angels: Full Throttle) Kvenhetjur sem virðast ekki vera annars megnugar en að geta sparkað hátt þrátt fyr- ir að vera í mjög þröngum buxum. (H.J.) Smárabíó, Laugarásbíó, Regnboginn, Borgarbíó Akureyri og Sambíóin Keflavík Of fljót og fífldjörf (2 Fast 2 Furious) Tíðar gírskiptingar og túrbóstillingar virðast eiga að skapa tilfinningu fyrir hraða og spennu en þetta verður fljótt leiðigjarnt. Eft- ir situr aðeins pirringur í garð þeirrar van- vitalegu ranghugmyndar sem liggur mynd- inni til grundvallar, þ.e. að bílar séu leikföng. (H.J.) Sambíóin, Háskólabíó. Töfrabúðingurinn Byggð á gömlu áströlsku ævintýri, ekkert stórkostlegt listaverk, hún er lítil og bara ansi lífleg og hjartnæm teiknimynd. (H.L.)  Smárabíó. BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn FÓLK Í FRÉTTUM 48 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sambíóin Kringlunni frumsýna kvikmynd- ina Jet Lag (Dægurvilla). Leikstjórn: Danièle Thompson. Aðalhlutverk: Jul- iette Binoche og Jean Reno. ÞETTA er einn af þeim dögum þar sem allt virðist ganga á aftur- fótunum. Á Charles de Gaulle-flug- vellinum í París eru tölvurnar bil- aðar, veðrið er vont og flugvallar- starfsmenn eru í verk- falli. Felix og Rose eru á meðal þeirra sem eru strandaglópar á flugvellinum. Rose, sem er förðunarfræðingur, finnst líf sitt vera misheppnað og felur angist sína á bak við þykkt lag af farða. Hún er að flýja fyrrverandi kær- asta sinn og hefur keypt sér ódýran flugmiða til Mexíkó. Felix er viðskiptajöfur sem hefur grætt fúlgu á því að selja frosnar matvörur í Bandaríkjunum. Hann er við það að fá taugáfall en vill ekki viðurkenna það. Hann er á leið til München í leit að konunni sem hann heldur sig elska. Felix ferðast á fyrsta farrými. Hún er málgefin og áberandi. Hann er hlédrægur og fámáll. Þau eru algerar andstæður og alls ekki undir það búin að hitta hvort annað. Meg Ryan, sem lék m.a. í kvik- myndunum When Harry Met Sally og Sleepless in Seattle, sagði eitt sinn: „Allir vita hvernig rómantísk- ar gamanmyndir enda, það sem skiptir máli er ferðalagið.“ Hið kostulegasta ferðalag virðist vera í uppsiglingu hjá Felix og Rose, en leikstjóri myndarinnar, Danièle Thompson, segir: „Í myndinni halda Rose og Felix í ferðalag, jafn- vel þó að vélar þeirra fari ekki á loft.“ Kostulegt ferðalag Eiga farði og frosnar matvörur vel saman? SHARON Stone sleikir sárin eftir skilnaðinn við eiginmanninn Phil Bronstein í örmum leikarans Adr- iens Brodys. Hann hlaut Ósk- arsverðlaunin í ár fyrir frammi- stöðu sína í Pían- istanum og stendur á þrí- tugu en hún er 45 ára gömul. Sást til þeirra saman í góðu yf- irlæti á hóteli nokkru í Hollywood en tvennum sögum fer þó af eðli sambandsins, sumir segja það eldheitt ástarsam- band á meðan aðrir vilja meina að þau séu bara góðir vinir … Liam Gallagher er tilbúinn til að yf- irgefa fósturjörð sína og flytjast búferlum til Kanada. Ástæðan er sú að hann er orðinn langþreyttur á ágangi blaðasnápanna. Þetta full- yrðir unnusta hans og barnsmóðir, Nicole Appleton, sem er af kan- adísku bergi brotin. Segir hún karl sinn hafa róast stórlega upp á síð- kastið, hugnist fjölskyldulífið æ betur og sé tilbúinn að finna sínum nánustu öruggari samastað … Heimildir herma að Eminem sé bú- inn að velja gömul og sígild lög til að klæða í nýjan búning og gera að sínum á næstu plötu. Þar á meðal á hann að hafa gert „Moon River“ eftir Andy Williams að sínu, einnig „Puff the Magic Dragon“ sem Pet- er, Paul og Mary gerðu vinsælt og „That’s Amore“, standardinn hans Deans Martins. Eiga þessi lög að vera vísbending um að Eminem ætli sér að reyna að mýkja ímynd sína og sýna um leið hversu víð- sýnn hann sé … FÓLK Ífréttum BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR www.rvk.is/borgarskjalasafn Sími 563 1770 Hver var Lárus? Sýning um Lárus Sigurbjörnsson, skjala- og minjavörð Reykjavíkurbæjar 1954-1968 á 3. hæð, Tryggvagötu 15. Opin alla virka daga kl. 10-16. Aðgangur ókeypis. Minjasafn Reykjavíkur Árbæjarsafn - Viðey www.arbaejarsafn.is. Sími 577 1111 Tónleikar laugardag Íslenski safnadagurinn sunnudag Söguganga um Þingholtin kl. 14 Saga Reykjavíkur: Bókakynning og leiðsögn kl. 13-17 Ljúffengar veitingar í Dillonshúsi Viðey: Fjölskyldudagur sunnudag Ganga þriðjudag kl. 19.30 Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal (gegnt gömlu rafstöðinni) er opið kl. 13-17 alla daga nema mánudaga og eftir samkomulagi í síma 567 9000. Ljósmyndasafn Reykjavíkur www.ljosmyndasafnreykjavikur.is Frumefnin Fimm - Ferðadagbækur Claire Xuan 24. maí - 1. sept. 2003. Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi, nánari upplýsingar í síma 563 1790. Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga 12-19 og 13-17 um helgar. Aðgangur ókeypis. www.listasafnreykjavikur.is sími 590 1200 HAFNARHÚS, 10-17 Smekkleysa í 16 ár, Alþjóðleg samtímalist á Íslandi, Erró - Stríð Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00 KJARVALSSTAÐIR, 10-17 Íslensk samtímaljósmyndun, Kjarval Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00 ÁSMUNDARSAFN, 10-16 Ásmundur Sveinsson - Nútímamaðurinn Menningarmiðstöðin Gerðuberg. Sími 575 7700. Gerðubergi 3-5, 111 Rvík Lokað vegna sumarleyfa starfsmanna. Opnum aftur 12. ágúst. Fjölbreytt dagskrá framundan. www.gerduberg.is s. 563 1717 Bókmenntaganga Vegvísir um Reykjavík Bæklingur um Reykjavík í bókmenntum. Fæst í Borgarbókasafni. www.borgarbokasafn.is 8. SÝNING FÖSTUDAG 11/7 - KL. 20 UPPSELT 9. SÝNING LAUGARDAG 12/7 - KL. 15 UPPSELT 10. SÝNING LAUGARDAG 12/7 - KL. 20 UPPSELT 11. SÝNING MIÐVIKUDAG 16/7 - KL. 20 AUKASÝNING UPPSELT 12. SÝNING FIMMTUDAG 17/7 - KL. 20 UPPSELT 13. SÝNING FÖSTUDAG 18/7 - KL. 20 UPPSELT 14. SÝNING LAUGARDAG 19/7 - KL. 18 UPPSELT 15. SÝNING SUNNUDAG 20/7 KL. 17 AUKASÝNING ÖRFÁ SÆTI LAUS 16. SÝNING MIÐVIKUDAG 23/7 - KL. 20 UPPSELT 17. SÝNING FIMMTUDAG 24/7 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA ! Sumarkvöld við orgelið 12. júlí kl. 12: Roger Sayer orgel. 13. júlí kl. 20: Roger Sayer leikur verk m.a. eftir Elgar, Franck og Widor.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.