Morgunblaðið - 11.07.2003, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 11.07.2003, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 4, 7 og 10. B.i. 12. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Bi.14. HL MBL SG DV Roger Ebert Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 12 With english subtitles Sýnd kl. 6. Enskur texti. Fyndnasta Woody Allen myndin til þessa. Sjáið hvernig meistarinn leikstýrir stórmynd frá Hollywood blindandi.  Mike Clark/ USA TODAY  Peter Travers ROLLING STONE i l I  X - IÐ  DV Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. YFIR 42.000 GESTIR! SV MBL HK DV  SG Rás 2 Radio X  ÞÞ Frétta- blaðið ÓHT Rás 2 KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.50 og 8.  X - IÐ  DV Í frábærri rómantískri gamanmynd. Þegar tveir ólíkir einstaklingar verða strandaglópar á flugvelli, getur allt gerst. THE BATTLE OF THE SEXES JUST GOT SEXIER i í i i lí i i li l l lli ll TÖLVULEIKJAMÓTIÐ Smellur 3 verður haldið dag- ana 11. til 13. júlí, þ.e. frá næstkomandi föstudegi fram á sunnudag. Þetta er í 19. skiptið sem Smellur er haldinn en í seinni tíð hefur mætt vel á þriðja hundrað keppenda á Smellsmótin. Að þessu sinni fer keppnin fram í minni sal Laugardalshallarinnar og að vanda verður opið allan sólarhringinn og gæsla og önnur þjónusta á staðnum. Smellur er með öllu vímuefnalaus samkoma svo hvorki neysla áfengis né reykingar eru leyfðar á mótsstað. Keppendur mæta sjálfir með eigin tölvu og 3–5 metra netsnúru en á staðnum verður komið upp háhraðaneti. Keppt verður í leikjum á borð við Quake 3, Action Quake, War Craft III og hinum sívinsæla Counter Strike. Skráning er á heimasíðu Smells og þátttöku- gjald er 3.000 kr. Nítjánda Smellskeppnin haldin í Laugardalshöll Tími fyrir tölvuleiki Sportistar skjásins: Mikil aðsókn er að tölvuleikjamót- um á borð við Smell. TENGLAR ..................................................... www.smellur.net Morgunblaðið/Golli ÞÆR eru orðnar ófáar ofurhetjur kvik- myndanna sem runnar eru undan rifjum Marvel Comics myndasögu- smiðjunnar margfrægu. Hulk er nýjasta viðbótin og fylgir í fótspor Köngulóarmanns (Spid- er-Man), X-menna (X- Men) og Ofurhugans (Daredevil). Leið græna skrímslis- ins upp á hvíta tjaldið hefur verið löng og á stundum ströng en það birtist fyrst í allri sinni bræði í myndasögu árið 1962. Þá átti Marvel í harðri sam- keppni við erkifjanda sinn, DC Com- ics, sem glæddi ímyndunarafl ung- menna með sínum misfríða flokki ofurhetja þar sem fremstir fóru Of- urmennið (Superman) og Leðurblök- umaðurinn (Batman). Mannlegar Marvel-hetjur En hetjur Marvel-blaðanna, undir handleiðslu Stans Lees, voru öðru- vísi. Hugarfóstur Lees; Hulk, Köngulóarmaðurinn og X-menni m.a., áttu það nefnilega öll sameig- inlegt að vera tilfinningalega brot- hætt og hafa vissa veikleika – rétt eins og þau væru næstum því mennsk. Vegna þess gátu lesendur líka tengst þeim nánari böndum en ella, fundið sjálfa sig í þessum ofur- hetjum sem gjarnan bjuggu í banda- rískum smábæjum, fremur en tilbún- um og fjarlægjum stórborgum eins og t.d. heimaborg Leðurblökumanns- ins, Gotham City, var. Vinsældir Marvel-blaðanna jukust jafnt og þétt á kostnað DC-blaðanna og átti Hulk stóran þátt í þeim vinsældum enda var hann ætíð í uppá- haldi lesenda, kannski vegna þess hversu kval- inn hann var. Kvalinn Hulk Lee lýsti vísinda- manninum Bruce Bann- er sem tilfinningalega bældum manni, sem hafði kæft niður heiftina í garð hins ofbeldisfulla föður allt frá barnæsku. En slys á tilraunastof- unni er hann varð fyrir áhrifum frá ómældu magni gammageisla leysti þessa heift úr læðingi og út braust skaðræðis- skeppnan Hulk. Venjan er sú í ofurhetjubransan- um að ofurhetjurnar taka ofurkröft- um sínum fagnandi en raunin er önn- ur með Hulk. Togstreita hans tvöfaldast bara er hann lendir í þeirri kreppu að á meðan hluti af honum fyrirlítur reiði og ofbeldishneigð skrímslisins þá blundar í honum ann- ar hluti sem fær heilmikið út úr því að búa yfir þessum kröftum. Næsta Disney-veldi? Lee er nú áttræður og er enn að búa til sögur um Köngulóarmanninn. Hann sagði nýlega í viðtali við Ent- ertainment Weekly að líf hans hefði tekið stakkaskiptum eftir að fyrsta Fantastic Four myndablaðið kom út 1961. Velgengni blaðsins varð til þess að Lee breytti nafni útgáfunnar úr Timely í Marvel. Hann var við stjórn- völ útgáfunnar fram undir miðbik 8. áratugarins, en var þó ætíð iðinn við skriftir og að skapa nýjar hetjur. Hulk er enn ein ofurtekjulindin fyrir Stan Lee Marvel malar gull Stan Lee

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.