Morgunblaðið - 20.07.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SÍLDARKVÓTI Á ÞROTUM
Rúmlega áttatíu og átta þúsund
tonnum hefur verið landað af síld
það sem af er sumarvertíðinni. Kvót-
inn er rúmlega níutíu og eitt þúsund
tonn og því lítið eftir af honum. Ís-
lensk skip veiða nú kolmunna af
miklum krafti, en kolmunnakvóti er
nú sá mesti sem hefur verið.
27 milljónir farþega
Um 27 milljónir farþega hafa
ferðast með Flugleiðum síðan félag-
ið var stofnað fyrir þrjátíu árum. Í
upphafi var farþegafjöldinn um 600
þúsund farþegar á ári, en árið 2000
var sett farþegamet þegar 1.783
þúsund farþegar flugu með félaginu.
Olíufélög talin hafa blekkt
Olíufélögin þrjú eru talin hafa
blekkt bæði fjölmiðla og Samkeppn-
isstofnun til þess að komast hjá frek-
ari eftirgrennslan árið 1996 vegna
útboðs Landhelgisgæslunnar á elds-
neytiskaupum. Þetta kemur fram í
frumskýrslu Samkeppnisstofnunar
um meint samráð olíufélaganna.
Óheppinn þjófur
Maður, sem reyndi að greiða fyrir
dýrt úr með stolnu kreditkorti, hitti
fyrir ofjarl sinn þegar hann reyndi
að flýja af vettvangi. Innan við af-
greiðsluborðið var nýbakaður Ís-
landsmeistari í spretthlaupi, sem
hljóp þjófinn uppi og hafði gætur á
honum þar til lögregla handsamaði
hann.
Tony Blair í kreppu?
Breskir fjölmiðlar telja að lát
Davids Kellys, vopnasérfræðings
breska varnarmálaráðuneytisins,
kunni að valda mestu kreppu sem
Tony Blair, forsætisráðherra lands-
ins, hefur staðið frammi fyrir í sinni
stjórnartíð. Þá gagnrýndu þeir
bresk stjórnvöld og stjórnmálamenn
harðlega vegna dauða hans í gær.
Blair kvaðst harma lát Kellys mjög
en bað breska fjölmiðla um leið að
gæta „hófsemi“ í umfjöllun sinni um
málið.
Hert gæsla varnarliðsmanns
Varnarliðið hefur náð sam-
komulagi við utanríkisráðuneytið
um að herða gæslu varnarliðs-
mannsins sem ákærður er fyrir til-
raun til manndráps. Hann fær ekki
að yfirgefa híbýli sín á Keflavík-
urflugvelli án gæslumanns.
Sunnudagur
20. júlí 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 7.012 Innlit 13.174 Flettingar 56.478 Heimild: Samræmd vefmæling
Starfsfólk 20—45 ára
óskast í fullt starf og hlutastarf frá 1. sept.
Tíska, skart og gjafir.
Umsóknir óskast sendar á auglýsingadeild
Mbl. merktar: „ISIS“ eða á isis@isis.is fyrir
25 júlí.
Trésmiðir óskast
Byggingafélagið Baula óskar eftir að ráða tré-
smiði og verkamenn til starfa strax.
Upplýsingar í síma 690 0500 eða tölvupóstur
baula@baula.is .
LAUS STÖRF
• Stærðfræðikennara í Hjallaskóla
• Umsjónarkennara í Hjallaskóla
Nánari upplýsingar á:
www.kopavogur.is
og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is
Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra í Reykjavík
Yfirþroskaþjálfar
Svæðisskrifstofa Reykjavíkur mun í september
hefja rekstur á íbúðum fyrir fólk með einhverfu
í Jöklaseli 2, íbúðirnar eru 6 með sameiginlegri
starfsmannaaðstöðu
Svæðisskrifstofan leitar eftir tveimur þroskaþjálf-
um með áhuga og metnað til að taka þátt í mót-
un og uppbyggingu á innra skipulagi með það
markmið að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.
Yfirþroskaþjálfar munu ásamt forstöðumanni
bera ábyrgð á öllu faglegu starfi.
Leitað er eftir þroskaþjálfum sem:
Hafa jákvæð viðhorf og góða hæfni í sam-
skiptum og samstarfi.
Eru skipulagðir í vinnubrögðum.
Eru sveigjanlegir og tilbúnir að tileinka sér
nýjungar.
Hafa táknmálskunnáttu (ekki skilyrði).
Þekkja vinnubrögð byggð á TEACCH.
Eiga auðvelt með að samræma vinnubrögð
og miðla til annarra.
Svæðisskrifstofa býður:
Fræðslu, ráðgjöf og stuðning.
Góða starfsaðstöðu.
Námskeið í táknmáli.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Þ.Í. eða SFR
og ríkisins. Nánari upplýsingar um störfin veita
Margrét Guðnadóttir og Hróðný Garðarsdóttir
í síma 533 1388, dagana 24.—30. júlí milli
kl. 13—16. Umsóknarfrestur er til 5. ágúst nk.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist til Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra, Síðumúla 39, 108 Reykjavík.
Staða leikskólastjóra við leikskólann Holtaborg er laus
til umsóknar.
Í leikskólanum Holtaborg, Sólheimum 21 eru þrjár deildir
og þar dvelja 68 börn samtímis.
Helstu verkefni:
Ábyrgð á mótun heildarstefnu í uppeldis- og menntamálum
leikskólans, rekstri og almennri starfsmannastjórnun.
Leikskólastjóri í Holtaborg
Nánari upplýsingar veitir Bergur Felixson, framkvæmdastjóri í síma 563 5800.
Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu Leikskóla Reykjavíkur og á vefsvæði www.leikskolar.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun er áskilin.
Framhaldsmenntun í stjórnun er æskileg.
Stjórnunarhæfileikar og reynsla af stjórnun.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Tölvukunnátta og þekking á rekstri.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags
leikskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknum fylgi yfirlit um nám og fyrri störf og
skulu þær berast fyrir 5. ágúst n.k.
Frá Grunnskólanum í Breiðdalshreppi
Kennari
óskast að skólanum næsta skólaár.
Megináherslur: danska og almenn kennsla.
Umsóknarfrestur til 30. júlí. Upplýsingar í sím-
um 475 6602, 691 0533. Umsókn má senda á
netfang skólans: breiddal@ismennt.is.
Sunnudagur
20. júlí 2003
w w w . k r i n g l a n . i s u p p l ý s i n g a s í m i 5 8 8 7 7 8 8 s k r i f s t o f u s í m i 5 6 8 9 2 0 0
Ævintýraland er opið
frá kl. 13.00 til 17.00
alla sunnudaga í
sumar.
Kvikmyndahús,
Hard Rock Café og
Kringlukráin eru
opin lengur.
Eftirtalin fyrirtæki hafa opið:
Opið í dag kl. 13 - 17
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
KR
I
21
61
0
07
/2
00
3
Stærsta útsalan
Dótabúðin, Dressmann, Gallerí Sautján, Hagkaup, Hard Rock, Ísbúðin, Íslandia, Kebab
húsið, Konfektbúðin, Kringlubíó, Kringlukráin, Maraþon, Nanoq, Next, Noa-Noa, Oasis,
Skór.is, Síminn, Steinar Waage, Skífan, Tiger, Valmiki, Timberland, Nike-konur og börn,
NK-Kaffi, Monsoon, Accessorize, Park, Bison, Tékk-kristall, Gamedome, Body shop,
Retro, Veiðihornið Nanoq, Mótor, Ótrúlega búðin, Og Vodafone, Deres, Focus skór,
InWear, Knickerbox, Du pareil Au Meme, Iðunn, Eurosko, DNA, Stasía, Boozt barinn,
Eik, Gallabuxnabúðin, Bossanova, Bónus, Kiss, Markaðstorgið, Byggt og Búið,
Búsáhöld og gjafavara, Ice in a bucket, eX, B1-Blómaskreytar.
Nýtt kortatímabil
Legið fyrir
lágfótu
ferðalögHúsbílarsælkerarGrillbörnÆvintýranámskeiðbíóArnold Schwarzenegger
Lifað í skugga slyss
Fullorðnaðist á einum degi
„Þessir dagar í
ágúst fyrir
fimmtíu árum
hafa ekki liðið
mér úr huga.“
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Grenjaleit og -vinnsla hefur lengi verið stunduð til að halda tófustofninum í skefjum. Guðni Einarsson lagðist á
greni með grenjaskyttunum Sigurði Aðalsteinssyni frá Vaðbrekku og Sveini Pálssyni frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal./8
Yf ir l i t
Í dag
Skissa 6 Myndasögur 44
Listir 24/27 Bréf 44/45
Forystugrein 28 Dagbók 46/47
Reykjavíkurbréf 28/
29
Krossgáta 48
Skoðun 30 Leikhús 50
Þjónusta 34 Fólk 50/53
Minningar 36/43 Bíó 51/53
Myndasögur 44 Sjónvarp 54
Hugvekja 45 Veður 55
* * *
UMFERÐARFULLTRÚI Vest-
fjarða, Júlíus Ólafsson, og vinnu-
skóli Vesturbyggðar á Patreksfirði
tóku höndum saman og settu saman
stafi, sem mynduðu slagorðið „Aktu
edrú“ á lóðina við lögreglustöðina á
Patreksfirði á föstudag. Mynduðu
þau stafina úr tæplega 500 svif-
diskum. Nokkuð vandasamt var að
raða diskunum og nutu þau að-
stoðar lögreglu, slysavarnafólks á
Patreksfirði og bifhjólamanna sem
áttu leið um bæinn.
Að sögn Júlíusar Ólafssonar er
meðaltalskostnaður við tjón þar
sem ölvaður ökumaður á í hlut ein
milljón króna, skv. upplýsingum frá
Sjóvá-Almennum. Þá er ótalinn lög-
fræðikostnaður og vinnutap við-
komandi ökuníðings. Eitt mesta
fjárhagstjón sem hlotist hefur af
einu umferðarslysi þar sem ölvaður
átti í hlut er 8,5 milljónir króna, að
sögn Júlíusar.
„Þá eru ótalin dauðsföll og aðrar
þjáningar fólks sem að sjálfsögðu
verður ekki metið til fjár.“
„Aktu edrú“ úr 500 svifdiskum
ÍSLENSKI fáninn var hífður í hálfa
stöng á nokkrum stöðum á hálend-
inu í gær, þar á meðal í Kverk-
fjöllum, á Snæfelli og við Herðu-
breiðarlindir.
Þarna var um að ræða landverði
og skálaverði sem framkvæmdu
gjörninginn utan vinnutíma síns.
Landverðirnir mættu með eigin fána
og flaggstöng í Herðubreiðarlindir
sökum þess að í fyrra voru viðkom-
andi einstaklingar áminntir munn-
lega vegna þessa háttalags.
Björk Bjarnadóttir, meistaranemi
í umhverfisfræði og landvörður í
Herðubreiðarlindum og Öskju, segir
það hlutverk landvarða að gæta
landsins og verja það gegn skaða.
Segja fánann tákn
fyrir náttúru Íslands
„Við erum að minnast þess sorg-
ardags þegar Alcoa og Landsvirkjun
undirrituðu samning um Kára-
hnjúkavirkjun, þar sem hálendið
tapaði enn og aftur. Við notum fán-
ann af því að hann er tákn fyrir nátt-
úru Íslands.
Við flöggum ekki sem landverðir,
heldur sem einstaklingar, utan okk-
ar vinnutíma. Við viljum minna á
þær náttúruperlur sem við þurfum
að passa upp á og eru enn tiltölulega
ósnortnar. Það eru margar perlur á
skipulagskortum stjórnvalda og
Landsvirkjunar, til dæmis Þjórs-
árver og Torfajökulssvæðið, sem er
rétt hjá Landmannalaugum.
Við landverðir eigum í miklum
samskiptum við ferðamenn og erum
í náinni snertingu við þessi svæði.
Þau eru mörgum mikils virði og sem
víðerni eru þau ómetanleg.
Margir ferðamenn sem hafa farið
um Kárahnjúkasvæðið og nærliggj-
andi framkvæmdasvæði hafa komið
til okkar og lýst yfir sorg sinni og
óánægju með þá þróun sem á sér
stað hér á hálendinu með þessum
framkvæmdum. Þeim finnst með
ólíkindum að við skulum sóa auðlind-
um okkar svona.“
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Þórný Hlynsdóttir, skálavörður í Snæfellskála, dregur fánann í hálfa stöng.
Flaggað í hálfa
stöng á hálendinu
SÁTT hefur náðst milli íslenska
utanríkisráðuneytisins og varn-
arliðsins vegna gæslu banda-
ríska hermannsins sem ákærð-
ur er fyrir tilraun til mann-
dráps í Hafnarstræti og mun
hann sæta mun strangari
gæslu á vellinum en verið hef-
ur.
Samkvæmt upplýsingum úr
utanríkisráðuneytinu hefur
varnarliðið fallist á, eftir við-
ræður við embættismenn ráðu-
neytisins, að herða gæsluna yf-
ir manninum og mun hann ekki
lengur njóta ferðafrelsis innan
vallarins. Mun hermaðurinn
ekki mæta til vinnu eða yfirgefa
vistarverur sínar nema þá í
fylgd með gæslumanni.
Fullnægjandi gæsla
Að höfðu samráði við dóms-
málaráðuneyti og ríkissaksókn-
ara segist utanríkisráðuneytið
telja að verði gæslunni fram-
fylgt með þessum hætti geti
hún talist fullnægjandi.
Varnarliðið og utan-
ríkisráðuneytið
Sam-
komulag
um herta
gæslu
FERJAN Baldur hefur aldrei flutt
fleiri bíla yfir Breiðafjörð í júní en í
ár. Þröstur Magnússon skipstjóri
segir að yfir 1.100 bílar hafi farið
með ferjunni milli Stykkishólms og
Brjánslækjar á Barðaströnd þennan
mánuð. „Það er algjört met,“ en
venjulega er júlí besti mánuður árs-
ins í fólks- og bílaflutningum ferj-
unnar og voru um 1.700 bílar fluttir
þá í fyrra.
Þröstur segir 31 þúsund farþega
hafa ferðast með Baldri allt árið í
fyrra. Fjöldinn hafi haldist nokkuð
stöðugur frá því að nýtt skip hóf
þessar siglingar og gamli báturinn
var seldur. „Það fóru einungis sjö til
átta þúsund manns með gamla
Baldri á ári. Við gátum komið 12 bíl-
um fyrir í hverri ferð og þurfti þá að
hífa þá alla um borð, sem gat tekið
allt upp undir klukkustund. Árið
1990 kom ný og stærri ferja og far-
þega fjöldinn jókst strax upp í 27 til
28 þúsund farþega á ári,“ segir
Þröstur.
Baldur tekur 195 farþega og allt
að 20 bíla í hverri ferð. Þröstur segir
tímana hafa breyst; bílarnir stækka
og breikka og ekki er hægt að sinna
öllum sem vilja sigla með bátnum
sökum þessa. Það vanti breiðara
bíladekk. Hann nefnir sem dæmi að í
fyrrasumar hafi einungis verið hægt
að sinna litlum hluta af erlendum
ferðalöngum sem komu hingað til
lands á húsbílum. Skýringin sé m.a.
lítið miðjupláss á bíladekkinu þar
sem stærstu bílarnir eru geymdir.
„Ég hefði viljað getað sinnt þessu
fólki öllu betur,“ segir hann og er
greinilega umhugað um að anna eft-
irspurn ferðalanga betur. Þörf sé á
því til að styrkja ferðamannastraum-
inn þarna á milli og á Vesturlandi
öllu.
Kominn tími á nýja ferju
Hann segir tíma til kominn að
skoða nýja ferju fyrir þessar sigling-
ar enda eru allar ferðir sumarsins
fullbókaðar. „Það væri hægt að auka
flutning yfir fjörðinn um helming
hefðum við tæki til þess,“ segir hann
en þá togist á nokkur sjónarmið.
Sumir á suðurfjörðum Vestfjarða
vilja að allir peningar fari í að setja
bundið slitlag á leiðina suður, aðrir
vilja hraðskreiðari ferju til að kom-
ast á skemmri tíma á milli og enn
aðrir vilja frekar stærri ferju en
hraðskreiðari til að anna eftirspurn
eftir flutningum.
Þröstur segir suma ekki horfa
nógu langt fram í tímann því ferða-
mannastraumur myndi aukast og
byggð styrkjast. Hægt yrði að
byggja upp öflugri ferðaþjónustu í
kringum meiri fjölda ferðamanna.
Samhliða þessu sé nauðsynlegt að
styrkja samgöngur milli norður- og
suðurhluta Vestfjarða. Hann segir
þetta sóknarfæri sem þurfi að nýta.
Siglingaleiðin milli Stykkishólms
og Brjánslækjar var boðin út af
Vegagerðinni og segir Þröstur að
ríkið greiði um 55 milljónir á ári fyrir
þjónustuna. Það eru Sæferðir í
Stykkishólmi sem reka ferjuna. Hún
kemur við í Flatey á Breiðafirði á
siglingum sínum.
Sjálfur býr Þröstur í Stykkishólmi
en á ættir að rekja bæði til eyjanna á
Breiðafirði og upp á Barðaströnd.
Það má því segja að hann sé í starfi
sem tengi hann við æskustöðvar for-
eldra sinna og foreldra þeirra. „Ég
var á gamla Baldri með hléum frá
árinu 1981. Nú hef ég starfað sam-
fellt í þessum siglingum síðan 1987
og tók við skipinu 2001.“
Metfjöldi bíla yfir
Breiðafjörð í júní
Morgunblaðið/Björgvin Guðmundsson
Þröstur Helgason, skipstjóri Bald-
urs, tók við skipinu árið 2001.