Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 50
úr öllu valdi. „Harðkjarna KR-ingar sem eru því sem næst aldir upp hjá félaginu hafa sérstakan talanda,“ kímir Atli. „Það er hægt að heyra nokkurs konar hreim hjá þeim, ég get lofað því. Annars er Alli bara dæmigerður sjálfumglaður gæi sem er með allt sitt á hreinu. Hann er með – að því er honum finnst – mjög djúpa og öfluga lífsspeki sem hann hikar ekki við að deila með öðrum. Hann er að eigin mati alveg ofboðs- lega djúpvitur, veit þetta allt og er með allt á hreinu. Svo þegar öllu er á botninn hvolft eru þetta bara mjög einföld og hlægileg viðhorf sem hann hefur, og hann áttar sig alls ekki á hlutunum, eins og þegar hann segir: „Það eru bara til þrjár týpur af kon- um: Þær sem eru undir 25 og þær sem eru yfir 25.“ Ekki er laust við að Atli umbreyt- ist og fari í karakter Alla þar sem hann situr andspænis blaðamanni: „En þetta er samt mikil speki því hann er einlægur. Þetta er ofboðs- lega einlægur gæi með allt á hreinu, en ekki hvað síst töffaraskapinn.“ Það er einmitt svo að Alli í auglýs- ingunum frægu, þrátt fyrir að vera mikill spjátrungur, er viðkunn- anlegur á sinn hátt, mun frekar en ef hann væri sjálfumglaður hrokagikk- ur. Ekki skemmir fyrir að hafa hann Jobba með, sem alltaf lítur Alla sömu aðdáunaraugunum þegar hann segir sögur af því hvað hann er vel inni í málunum. Þannig hefur hann ratað á stall með öðrum vinsælum og vel þekktum persónum úr íslenskum auglýsingum, eins og „Ostakonunni“ sem Helga Braga Jónsdóttir leikur í auglýsingum fyrir Osta- og smjörsöl- una og „Homeblest-kallinum“ sem Sigurjón Kjartansson leikur í auglýs- ingum fyrir súkkulaðikexið fræga. Hvort eitthvert framhald verður á ævintýrum Alla veit Atli Þór ekki, en sjálfur er Atli hálfnaður með leiklist- arnám sitt og því aldrei að vita nema hann fari að birtast landsmönnum í öðrum hlutverkum en hans Alla gúmmítöffara. UM nokkurt skeið hafa ver- ið sýndar í íslenskum miðl- um auglýsingar um Atlas kreditkort þar sem í aðal- hlutverki er Alli, algjör gúmmítöffari og „tjokkó“ sem er óþreytandi að segja vini sínum Jobba hvernig lífið gengur fyrir sig. Aug- lýsingarnar þykja mjög skemmtilegar og er óhætt að fullyrða að meginþorri landsmanna hafi einhvern- tíma skemmt sér yfir heimskulegum lífsreglum hins misvitra Alla. Maðurinn á bak við Alla er ungur leiklistarnemi, Atli Þór Albertsson. Þegar blaðamaður sér hann fyrst er hann í vafa um hvort hann sé með réttan mann, enda er Atli gjörólíkur Alla. „Fólk verður oft hugsi á svip- inn,“ segir Atli þegar hann er spurð- ur hvort fólk þekki hann yfir höfuð úr auglýsingunum. „Það horfir kannski á mig um stund og spyr síðan: „Ertu, – ertu hann?““ Atli skellihlær: „Þetta er mjög algeng spurning, „Ertu hann?““ Blaðamaður var reyndar ómeð- vitað búinn að setja sig í stellingar til að hitta kjánaprikið Alla, og er hálf- partinn sleginn út af laginu að hitta fyrir svona jarðbundinn og heim- ilislegan pilt: „Þetta er ekki ég held- ur bara karakter. Það eru voða margir sem halda að þetta sé ég, en sem betur fer ekki of margir. Ég lendi oft í því að það er potað í mig niðri í bæ og sagt: „Þú ert fíflið í aug- lýsingunni!“ Ég hef nokkrum sinnum þurft að skamma menn fyrir að vera dónalegir.“ Atli er hvorki með aflitað hár, dökka ljósabekkjabrúnku né segir „bleessaaaður“. Hann er þvert á móti með nokkuð bangsalegt skegg og með ungan son sinn með í viðtal- inu og á föðurhlutverkið vel við hann, nokkuð sem seint yrði sagt um sögu- hetjuna Alla. Það var fyrir tilviljun að Atli fékk hlutverkið í auglýsingaseríunni. Vin- kona unnustu hans vinnur á auglýs- ingastofunni sem annaðist fram- leiðslu auglýsingasyrpunnar og var það í gegnum hana að hann var einn daginn boðaður í prufu og ráðinn í kjölfarið. Blanda af KR-ing og útvarpsmanni Hann grínast og segir persónu Alla hafa fengið innblástur hjá viss- um útvarpsmönnum, harðkjarna KR-ingum og síðan verið ýktur upp Atli Þór Albertsson er aðalleikarinn í vinsælum greiðslukortaauglýsingum „Ertu hann?“ „Þetta er ekki ég, heldur bara karakter.“ Atli Albertsson leiklistarnemi með syni sínum. asgeiri@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn 50 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 8 og 10.10. YFIR 25.000 GESTIR! Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og Powersýning kl. 10.15. B.i. 14 ára. Stríðið er hafið! FRUMSÝNING POWE R SÝNIN G KL. 10 .15. . Sýnd kl. 4. HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 13.30 Sýnd kl. 2. Ísl. tal. 500 kr. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14  X-IÐ 97.7  SV MBL  ÓHT RÁS 2  HK DV Sýnd kl. 4 og 6. Sýnd kl. 2, 3, 4.30 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og Powersýning kl. 10.30. B.i. 14 ára. kl. 3.30, 6, 8.30 og 11. YFIR 25.000 GESTIR! Stríðið er hafið! FRUMSÝNING POWE R SÝNIN G KL. 10 .30. . POWE R SÝNIN G KL. 10 .20. . Sumarkvöld við orgelið 20. júlí kl. 20: David M. Patrick. Verk ma. eftir Franck, Bach og Duruflé. Tónlistarhátíð í Reykholtskirkju 25.-27. júlí 2003 Opnunartónleikar föstudaginn 25. júlí kl. 20.00 Flutt verður tónlist eftir Franz Schubert m.a. strengjakvartett í a-moll, sönglög og Notturno op. 148. Miðdegistónleikar laugardaginn 26. júlí kl. 15.00 Jens Krogsgaard tenór og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari flytja verk eftir Beethoven, Strauss og Heise. Kvöldtónleikar laugardaginn 26. júlí kl. 20.00 Brindisi tríóið frá Englandi flytur verk eftir Fauré, Mozart og Brahms. Lokatónleikar sunnudaginn 27. júlí kl. 16.00 Frumflutt verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur við texta Snorra Sturlusonar. Einnig verða flutt verk eftir Haydn, Brahms o.fl. Flytjendur: Auður Hafsteinsdóttir, Ásdís Valdimarsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Caroline Palmer, Greta Guðnadóttir, Guðmundur Kristmundsson, Hulda Björk Garðarsdóttir, Jaqueline Shave, Jens Krogsgaard, Michael Stirling og Steinunn Birna Ragnarsdóttir. Sunnudaginn 27. júlí kl. 20.30 „Fyrirlestrar í héraði“ Guðrún Sveinbjarnardóttir heldur fyrirlestur í Snorrastofu sem nefnist; Fornleifarannsóknir í Reykholti. Miðapantanir í síma 891 7677 og 865 2474. Miðasala við innganginn. Heimasíða www.vortex.is/festival SNORRASTOFA - HEIMSKRINGLA - SAMHLJÓMUR 15. SÝNING SUNNUDAG 20/7 - KL. 17 AUKASÝNING UPPSELT 16. SÝNING MIÐVIKUDAG 23/7 - KL. 20 UPPSELT 17. SÝNING FIMMTUDAG 24/7 - KL. 20 UPPSELT 18. SÝNING LAUGARDAG 26/7 - KL. 17 UPPSELT 19. SÝNING MIÐVIKUDAG 30/7 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS 20. SÝNING FIMMTUDAGINN 31/7 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA !
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.