Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 35
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 35
GUÐNI Ásgrímsson á Vopnafirði hefur verið með
hákarlalínu skammt norðaustur af Bjarnarey í sumar
og er búinn að fá þrjá hákarla á línuna. Fréttaritari
Morgunblaðsins tók þessa mynd af Guðna þar sem
hann var að munda sig til að skera hákarl sem hann
fékk í fyrradag.
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Með hákarlalínu við Bjarnarey
Vopnafjörður
FÉLAG eldri borgara í Stranda-
sýslu stóð fyrir ferð á Snæfellsnesið í
lok júnímánaðar. Þetta er níunda
ferðin sem félagið stendur fyrir síðan
það var stofnað árið 1998. Fé-
lagsmenn eru 94 og tók nálægt helm-
ingur þeirra þátt í ferðinni að þessu
sinni. Lagt var upp frá Hólmavík að
morgni sunnudagsins 22. júní og far-
ið suður sýsluna og yfir Laxárdals-
heiði, en ferðalangar vítt og breitt úr
sýslunni bættust í hópinn á leiðinni.
Lá leiðin í Stykkishólm og þaðan í
eyjasiglingu með Sæferðum. Snædd-
ur var veislumatur um borð og gafst
m.a. kostur á að smakka skelfisk sem
sóttur var í sjóinn á leiðinni. Þá var
harmónikkuleikur um borð og
skemmtileg stemning, enda veður
með ágætum.
Eftir að hafa gist í Stykkishólmi
hélt hópurinn í hringferð um nesið.
Byrjað var á að aka Vatnaleið, sem
fyrir fáeinum árum leysti Kerl-
ingaskarðið af hólmi. „Ákaflega fal-
leg leið,“ sagði Ragnheiður Runólfs-
dóttir, ein ferðalanganna. Á leið um
nesið var meðal annars áð á Helln-
um, Sönghellir skoðaður og ekið upp
að hinum magnaða Snæfellsjökli.
Leiðsögumaður hópsins þennan dag
var Skúli Alexandersson, fyrrver-
andi alþingismaður.
Aftur var gist í Stykkishólmi og
þriðja daginn lá leiðin í Bjarnarhöfn
þar sem smakkað var á gómsætum
veigum eins og hákarli, reyktum
rauðmaga og heimabökuðu rúg-
brauði. Hildibrandur Bjarnason,
bóndi á staðnum, var hópnum til leið-
sagnar og sýndi meðal annars gömlu
bændakirkjuna sem stendur neðan
við bæinn. Loks var farið í Grund-
arfjörð þar sem Njáll Gunnarsson
fylgdi hópnum um staðinn. Meðal
þess sem bar fyrir augu þar var hin
fallega sóknarkirkja þeirra Grund-
firðinga. Um miðjan dag var svo
haldið heim á leið eftir vel heppnaða
ferð sem að sögn Ragnheiðar gekk
mjög vel og óhappalaust fyrir sig.
Að vanda var Hallfríður Sigurð-
ardóttir á Hólmavík hópnum innan
handar í ferðinni. „Halla er ásamt
Tryggva bílstjóra Ólafssyni á
Drangsnesi ómissandi ferðafélagi og
hafa þau bæði fylgt félagi eldri borg-
ara í öllum ferðum sem farnar hafa
verið til þessa,“ sagði Ragnheiður að
lokum. Dagsferð er áformuð á veg-
um félagsins síðsumars, en ekki er
ákveðið hvert henni verður heitið.
Ljósmynd/Hallfríður Sigurðardóttir
Hluti hópsins við gömlu bændakirkjuna í Bjarnarhöfn.
Eldri borgarar af
Ströndum ferðast
um Snæfellsnes
Hólmavík
TVÖ dönsk og eitt sænskt skip lönd-
uðu kolmunna í Neskaupstað í gær.
Aflann fengu skipin í Smugunni rétt
utan íslensku lögsögunnar austur af
landinu.
Frekar sjaldgæft er að skip frá
þessum þjóðum komi með afla til
löndunar í Neskaupstað. Þessi skip
eru úr hópi sex skipa sem veiða sam-
an og eru þau með tveggja skipa
troll. Þegar búið er að fylla eitt skip-
anna heldur það til löndunar en ann-
að kemur í staðinn og tekur við og
heldur áfram að toga og síðan koll af
kolli. Skipin eru fremur lítil miðað
við skip sem Íslendingar nota við
kolmunnaveiðarnar en hvert þeirra
um sig landaði um 400 tonnum.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Það fór vel um skipverjana af dönsku kolmunnaveiðiskipi sem brugðu sér í
bæinn og tylltu sér niður og sleiktu sólskinið. Auðvitað svöluðu þeir þorst-
anum að dönskum sið með léttöli, sem að sjálfsögðu var danskt.
Erlend skip landa kolmunna
Neskaupstaður
MÖGULEIKAR varðandi lausar
lóðir fyrir íbúðar- og atvinnuhús-
næði voru kynntir í Borgarnesi ný-
lega þegar nokkrir bæjarfulltúrar
ásamt bæjarritara komu saman í
Skallagrímsgarði þar sem vettvang-
ur kynningarinnar var. Búið var að
tjalda yfir kynninguna og vegfarend-
um boðið upp á kaffi og mungát um
leið og þeir fengu persónulega leið-
sögn um þá möguleika sem standa til
boða.
Deiliskipulag liggur fyrir um á
sjötta tug íbúðarlóða í nýju hverfi í
Bjargslandi en af þeim standa 24 lóð-
ir við nýja götu sem hefur hlotið
nafnið Kvíaholt. Þessar lóðir eru til-
búnar til úthlutunar og hefur sjö lóð-
um nú þegar verið úthlutað og tvö
hús eru risin. Með kaupum Borgar-
byggðar á húsnæði Byggingavöru-
verslunar KB var hægt að hefja
deiliskipulag í eldri hluta Borgar-
ness. Þarna er um að ræða timbur-
planið (Rauða torgið) sem liggur að
Brákarsundi ásamt kaupfélagsplan-
inu sem stendur ofar. Fyrstu drög að
deiliskipulagi liggja fyrir en það voru
VA-arkitektar sem sett hafa fram
þrjár tillögur að hugmyndum um
þetta svæði.
23 lóðir fyrir atvinnu- og iðnaðar-
starfsemi hafa verið skipulagðar í
tveimur kjörnum vestan við þjóðveg
nr.1 sem liggur til norðurs úr Borg-
arnesi. Annars vegar hafa verið
skipulagðar 12 iðnaðarlóðir við Sól-
bakka. Þarna er lóðastærð um 4.000
m2 að stærð. Hins vegar hafa verið
skipulagðar 11 lóðir sem hver er um
10.000 fermetrar að stærð. Þessar
lóðir eiga að standa við tvær götur
þ.e. Vesturás og Vallarás sem er
gegnt golfvellinum. Ölgerð Egils
Skallagrímssonar hefur þegar reist
eina byggingu á þessu svæði undir
vínframleiðslu sína.
Nýjar lóðir kynntar
í Borgarnesi
Borgarnes
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Sveinn G. Hálfdanarson, formaður
Verkalýðsfélagsins, og Ásgeir Ás-
geirsson, bókari Borgarverks,
kynna sér lóðaframboðið.
SKEMMTIFERÐASKIPIÐ Princ-
ess Danae sigldi inn Skjálfanda á
dögunum og létti akkerum fyrir
framan höfnina á Húsavík þar sem
skipið kemst ekki að bryggju þar
vegna stærðar sinnar.
Erindi skipsins til Húsavíkur var
að ná í um 280 farþega sem höfðu
farið frá Akureyri um morguninn í
skoðunarferð um Suður-Þingeyjar-
sýslu. Léttabátar Prinsessunnar
hófu strax siglingar með farþegana
að skipinu þar sem þeir stigu um
borð og að því loknu hélt skipið til
hafs á nýjan leik.
Princess Danae er byggt í Belfast
á Norður-Írlandi 1955. Það er 162,3
metrar að lengd og 21,3 á breidd.
Skipið siglir undir portúgölsku
flaggi, skráð á Madeira.
Farþegar
selfluttir um
borð í Princ-
ess Danae
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Farþegar Princess Danae voru selfluttir út í skipið.