Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ VAR nístingskuldi ogsvartamyrkur er égskjögraði á eftir Sejer,fótvissum, gamalreynd-um veiðimanni, sem leið lá út á nýísinn. Ísinn vaggaði værðarlega undan fótum okkar og sjórinn sullaðist upp yfir skóna. Við vorum staddir úti fyrir „Stað hinna stóru húsa“ eða Ittoqqort- oormiit eins og það útleggst á grænlensku. Flestir ættu að kann- ast við staðinn úr veðurfréttum Ríkisútvarpsins undir heitinu Scoresbysund. Erindi okkar út á ísinn var að skyggnast um eftir sel sem hægt er að skjóta í gegnum öndunarop á meðan ísinn er ekki orðinn of þykkur. Ferðalagið var í mínum huga hin mesta feigðarför, en fyrir fylgdarmann minn og aðra veiði- menn hluti af hversdagslegri lífs- björg. Hann kenndi mér hug- hreystandi að lesa úr ísnum eins og faðir hans hafði kennt honum fyrir hartnær hálfri öld síðan. „Gættu að því að stíga ekki á dökka bletti ... haltu þig á hvítum ís ... ekki standa þarna ... stökktu hérna ...“ Byrjendabragurinn leyndi sér ekki, „þú ber þig að eins og dönsk piparmey,“ sagði hann og skellihló. Ég mátti hafa mig allan við að endasendast ekki niður um ísinn og ofan í ískalt hafið. Mér gekk illa að skilja hvernig honum tókst að koma auga á önd- unaropin, þessar agnarsmáu rifur í ísnum. Selurinn krafsar með klón- um í ísinn og mótar þannig holur sem hann notar til að laumast óséður í súrefni á yfirborðinu. Við staðnæmdumst við örsmáa rifu sem Sejer hafði komið auga á. Op- ið eru oftast á toppi keilulagaðrar ísþúfu, er myndast þegar selurinn kemur upp og blæs frá sér loftinu sem frussast ásamt vatninu upp úr holunni. Til að ganga úr skugga um það hvort holan væri fersk og í notkun blés Sejer ofan í gatið, at- hugaði hvort hægt væri að koma auga á vatn ofan í holunni og steig svo í kringum opið til að kanna viðnámið í ísnum. „Selurinn,“ sagði hann, „er skynsöm skepna og þess vegna verðum við að leika á hann.“ Mér var skipað að leika á selinn með því að ganga rösklega burt frá öndunaropinu, en Sejer stóð með riffilinn kláran, svo að sel- urinn héldi að veiðimaðurinn væri horfinn á braut. Ég brölti í burtu en var ekki kominn langt þegar selurinn rak upp hausinn inni í ís- keilunni og var svarað með riff- ilskoti. Við hjálpuðumst að við að brjóta gat á ísinn og draga selinn upp og að því loknu héldum við heim með skepnuna í eftirdragi. Gjöfular veiðislóðir Í Ittoqqortoormiit búa u.þ.b. 500 manns er lifa á þjónustu fyrir hið opinbera og veiðum á sjávarspen- dýrum. Húsin eru, eins og í mörg- um öðrum grænlenskum þorpum, smágerð, fagurlega máluð timbur- hús sem mörg hver eru án renn- andi vatns og búa flestir afar þröngt. Byggðin er án efa ein ein- angraðasta byggð Grænlands en næsta byggða ból er uppi á Ís- landi. Hingað koma tvö flutninga- skip á ári, ef ísalög leyfa, og einu almenningssamgöngurnar eru flug Flugfélags Íslands til flugvallarins í Constable Pynt, en þaðan er ferðast með þyrlu til bæjarins. Ástæðan fyrir einkennilegri staðsetningu byggðarinnar er sú að Danir stóðu fyrir því árið 1925 að flytja u.þ.b. 80 manns frá Amm- assalik hingað norður og hugðust með því slá tvær flugur í einu höggi: Tryggja yfirráð sín yfir norðausturströnd Grænlands og bæta lífskjör íbúa austurstrand- arinnar. Staðurinn hefur um langt skeið verið ein afkastamesta veiði- mannabyggð Grænlands enda byggðin vísvitandi staðsett við af- burða veiðisvæði. Enda þótt margt hafi breyst hér sem og í öðrum veiðimannabyggðum Grænlands gegna veiðarnar enn lykilhlutverki í heimilisbúskapnum en síðast en ekki síst fyrir sjálfsmynd og menningu heimamanna. Ein helsta forsendan fyrir byggð, svo langt mót norðri, var og er sú að hérna við minni Kangersuttuaqfjarðar, stærsta fjarðar í veröldinni, mynd- ast stóreflis vakir í ísnum sem aldrei frjósa og þar safnast saman aragrúi veiðidýra. Ísinn, pendúll samfélagsins „Landsins forni fjandi“ er hér boðberi góðra tíðinda og fyrirheita um aukna veiði en hjartsláttur samfélagsins er nátengdur snjóa- og ísalögum. Veiðivertíðin, og að sumra mati andrúmsloftið í bæn- um hvort tveggja hjá veiðimönnum og launafólki, er samofið hringrás náttúrunnar. Það er ekki svo að skilja að heimamenn lifi undir klafa náttúrulögmálanna heldur að nálægðin og aðgengið að nátt- úrunni gegni mikilvægu hlutverki í sjálfsmynd og lífsgæðamati flestra íbúa. Umbreytingarnar í náttúrunni eru tröllauknar en skipta má árinu niður í ís og íslaus tímabil. Hafið er að mestu íslaust frá enda júlí fram undir miðjan október að frá- töldum smærri ísjökum og tign- arlegum borgarísjökum sem enn lóna eins og hvítþvegnar freigátur úti á haffletinum. Júlí og ágúst gefa kærkomið tækifæri til að ferðast á bátum um svæðið og til að tína krækiber, leggja urriðanet og síðast en ekki síst komast í færi við sauðnaut. Sauðnautakjöt er hefðbundinn hátíðarmatur heima- manna og er eins konar sambland af lamba- og nautakjöti. Septem- ber, október og nóvember geta verið atvinnuveiðimönnunum þungir í skauti því veðrið er óstöð- ugt og daginn tekur að stytta. Það eru fáir sem hafa ráð á að eignast og reka öfluga hraðbáta og er nú svo komið að flestir hraðbátar eru í eigu launamanna, með frístunda- veiðikort. Það bætir ekki úr skák að erfitt er að ná selnum upp á yf- irborðið eftir að búið er að skjóta hann því sumarfitulagið er þunnt og oftar en ekki sekkur selurinn samstundis til botns. Náhvalaveið- ar eru kærkomin búbót fyrir allt samfélagið en hvalirnir ganga í vöðum inn á firðina og meðfram ströndinni á haustin. Einstaka sinnum ganga hvalirnir þétt við bæinn og allir sem hendi geta veif- að hlaupa frá vinnu til að reyna að koma skoti á hvalina og öðlast með því hlutdeild í veiðinni. Tennurnar náhvalsins eru nýttar í minjagripi, kjötið til heimabrúks en húðin, sem er hið mesta lostæti, er fryst og seld til vesturstrandarinnar. Selurinn gefur litlar en stöðugar tekjur. Þegar dagurinn er sem stystur ná selveiðarnar árlegu lág- marki, en sólin kveður bæinn í nóvember og birtist ekki aftur fyrr en um miðjan janúar. Sumir veiði- menn bregða á það ráð að skrá sig á atvinnuleysisskrá og bíða íssins óþreyjufullir. Vélsleðar bannaðir við veiðar Fyrsti ísinn er venjulega kom- Örar loftslagsbreytingar á norðurslóðum hafa haft mikil áhrif á veiðimanna- samfélög á Austur-Græn- landi. Jónas Gunnar Allansson bjó síðastliðið ár í Scoresbysundi og var þar við vettvangsrannsóknir. Ljósmynd/Jónas Gunnar Vorið nálgast og vakir opnast, veiðimaður rær með ísröndinni þar sem oft er von um góðan feng. „Landsins forni fjandi“ er á þessum slóðum boðberi góðra tíðinda og fyrirheita um aukna veiði. Á þunnum ís Veiðimaður skyggnist eftir náhval að vori, en þá koma vöður af þessari eftirsóttu bráð. Veiðimaðurinn sem felldi ísbjörninn beið eftir símhringingu, hvort einhver hefði séð björninn á undan honum. Sá sem fyrstur sér ísbjörn á rétt á húðinni. Selir eru veiddir þegar þeir koma í öndunarop sín í ísnum. Þessi veiði- maður var búinn að ná sel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.