Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FORSTÖÐUMAÐUR hjá Skeljungi sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að loknu útboði Landhelgis-
gæslunnar haustið 1996 að mjög hörð samkeppni
ríkti á olíumarkaðinum og „slegist væri um sölu á
hverjum einasta olíudropa“.
Samkeppnisstofnun telur gögn sýna að í útboði
Landhelgisgæslunnar hafi tilboð olíufélaganna
þriggja verið í samræmi við það sem ákveðið hafði
verið á sameiginlegum fundum þeirra. Í skýrslu
Samkeppnisstofnunar kemur fram að eftir-
grennslan stofnunarinnar hafi verið hætt á þess-
um tíma vegna skýringa olíufélaganna, sem hún
tók þá trúanlegar.
Í skýrslu Samkeppnisstofnunarinnar segir að
yfirmaðurinn hjá Skeljungi hafi reynt að dylja
samvinnu félaganna með röngum yfirlýsingum í
Morgunblaðinu.
Fjölmiðlar blekktir
með fullyrðingum
Forsaga málsins var sú að Landhelgisgæslan
hafnaði öllum tilboðum olíufélaganna sumarið
1996 með vísun til þess að lítill munur hefði verið
á tilboðunum og vakti það athygli fjölmiðla.
Morgunblaðið ræddi við Friðrik Þ. Stefánsson,
forstöðumann markaðssviðs Skeljungs, vegna
málsins 30. október 1996 og sagði hann lítinn
verðmun í tilboðunum í raun bera vott um
„hversu hörð samkeppni olíufélaganna“ væri.
„Það er slegist um sölu á hverjum einasta olíu-
dropa og við teygðum okkur eins langt og við gát-
um í þessu útboði,“ sagði framkvæmdastjórinn.
Umfjöllun fjölmiðla varð þó til þess að Sam-
keppnisstofnun ákvað að óska eftir upplýsingum
frá félögunum um tilboðin í útboðinu. Ekkert svar
barst frá Skeljungi en í svörum ESSO og Olís
kom fram að að tilboð þeirra hefði verið í sam-
ræmi við magn og umfang viðskiptanna og var
tekið fram í svari Olís að samkeppnin væri mjög
hörð. „Samkeppnisstofnun tók þessar skýringar
trúanlegar, og var málinu því talið lokið,“ segir í
skýrslunni.
Samkeppnisstofnun telur olíufélögin hafa gefið rangar upplýsingar 1996
„Það er slegist um sölu á
hverjum einasta olíudropa“
STAÐFEST hefur verið að
dínamítið sem fannst í vegræsi
undir Bláfjallaafleggjara síðdegis
í fyrradag kom úr geymslu á
Hólmsheiði austan Rauðavatns
sem brotist var inn í 4. júlí sl.
„Þetta er nákvæmlega það
sem var stolið,“ segir Karl Stein-
ar Valsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni í Reykja-
vík. „Við létum endurtelja út úr
geymslunni í gærkvöldi [fyrra-
kvöld] og niðurstaðan er sú að
það stemmir miðað við það sem
var tekið.“
Í vörslu fyrirtækisins
á nýjan leik
Efnið var í vörslu Landhelg-
isgæslunnar í fyrrinótt að beiðni
lögreglunnar en var afhent fyr-
irtækinu sem brotist var inn í,
Ólafi Gíslasyni & Co., í gær eftir
að sprengjusérfræðingar Land-
helgisgæslunnar og sérfræðingar
lögreglunnar höfðu gengið úr
skugga um að það væri
óskemmt. Efnið er nú komið í
geymslu fyrirtækisins á nýjan
leik. Ekki er enn vitað hverjir
voru að verki þegar brotist var
inn í dínamítgeymsluna á Hólms-
heiði 4. júlí sl.
Jafnmikið af dínamíti
og saknað hafði verið
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan kannar sprengiefnið.
HIN árlega fréttaljósmyndasýning
World Press Photo var opnuð í
Kringlunni í Reykjavík á föstudag
en hún er nú haldin í 46. skipti.
Samhliða eru sýndar nokkrar sér-
valdar myndir Ólafs K. Magn-
ússonar ljósmyndara sem starfaði á
Morgunblaðinu um áratugaskeið.
Eru myndirnar frá fyrstu 20 ára-
tugum starfs hans á blaðinu, 1947
til 1967.
Fréttaljósmynd ársins er valin af
alþjóðlegri dómnefnd og var sig-
urmyndin í ár tekin af bandarísk-
armenska ljósmyndaranum Eric
Grigorian. Hún sýnir ungan íransk-
an dreng halda á buxum föður síns
eftir harðan jarðskjálfta í norðvest-
urhluta Írans 23. júní í fyrra. Her-
menn og þorpsbúar eru í óðaönn
allt í kring að grafa lík fórnarlamba
skjálftans og búa sig undir að
koma líki föðurins fyrir í gröf sinni.
Rúmlega 500 manns fórust í jarð-
skjálftanum.
Sýningin stendur næstu tvær
vikur.
Morgunblaðið/Sverrir
Bestu fréttamyndirnar
VORIÐ 2001 kom íslenska rækju-
skipið Merike í Hafnarfjarð-
arhöfn, en það stundaði veiðar á
fjarlægum miðum, m.a. á
Flæmska hattinum og hugðist
taka olíu, og rataði þá starfs-
maður Esso í nokkur vandræði,
að því er fram kemur í skýrslu
Samkeppnisstofnunar um meint
ólögmætt samráð olíufélaganna.
Taldi hann annaðhvort Olís eða
Skeljung hafa boðið skipinu elds-
neyti samkvæmt nýju sam-
komulagi sem félögin höfðu með
sér um sölu á olíu til erlendra
skipa en það samkomulag átti
alls ekki að taka til íslenskra
skipa.
Orðinn ber að okri
„Nú sit ég uppi með að vera
hinn mesti okrari og veit ekki
alveg hvernig ég á að snúa mér
út úr þessu. Mér er skapi næst
að hætta nú þegar þessu sk.
samkomulagi fyrst byrjunin lof-
ar ekki betra en þetta,“ segir í
tölvupósti starfsmanns Esso til
hinna í framkvæmdanefnd félag-
anna sem sjá átti um fram-
kvæmd samkomulagsins.
Nýja samkomulagið, sem gert
var skömmu áður en Merike
kom til landsins, fól í sér að til-
tekið álag var lagt ofan á verð
eldsneytis á markaðinum í Rott-
erdam vikuna á undan og var
m.a. tilkomið vegna þess að sala
á olíu á hafi úti gerði félögunum
erfitt að halda föstu listaverði
til erlendra skipa.
Starfsmaður Esso taldi sam-
komulagið hafa verið brotið og
var óhress með að verið væri að
veifa lægra olíuverði framan í
Íslendinga:
„Annar hvor ykkar hefur farið
heldur illa með mig núna. Þið
hafið gefið verð í Merike sem er
í Hafnarfjarðarhöfn skv. sk.
samkomulagi, en ég gaf þeim
listaverðsafslátt, sem er nokkuð
vel fyrir ofan hitt verðið. Þegar
talað var um samkomulag var
aldrei meiningin að þau verð
væru látin til Íslendinga, sem
eru ekkert með skipin hér í
höfnum, nema í kringum ára-
mótin áður en þau fara á fjarlæg
mið. … Það er nóg að þurfa að
búa við það að erlendir útgerð-
armenn fari að leka í kollega
sína hér þótt við séum ekki að
veifa þessu framan í Íslend-
inga,“ segir í tölvupósti starfs-
manns Esso.
Óþarfi að veifa
lágu verði framan
í Íslendinga
SAMTÖK atvinnulífsins fyrir hönd
Ístaks og Afl, starfsgreinafélag Aust-
urlands, ásamt Verkalýðsfélagi Reyð-
arfjarðar, hafa samið um nýjan sér-
kjarasamning vegna vinnu við
Fáskrúðsfjarðargöng.
Í samkomulaginu er kveðið á um
tólf tíma vaktir, tíu daga vinnulotur,
ferðir til og frá vinnustað og úrbætur
á öryggis- og tryggingamálum starfs-
manna. Nýi samningurinn er viðauki
við aðalkjarasamning og verður ekki
borinn undir atkvæði starfsmanna.
Hann gildir til næstu áramóta.
Nú er unnið bæði Reyðarfjarðar-
og Fáskrúðsfjarðarmegin í göngun-
um og var fyrsta fyllan sprengd sunn-
an megin í vikunni. Vinna við göngin
þeim megin fer þó ekki á fullt fyrr en í
byrjun ágúst því að enn á eftir að
koma upp vinnubúðum með tilheyr-
andi aðstöðu. Ístaksmenn eru komnir
200 metra inn í fjallið Reyðarfjarð-
armegin og gengur vinnan vel með
nýjum og öflugum þriggja bómu bor
sem kom nýlega á svæðið.
Samið á ný vegna
Fáskrúðsfjarðarganga
Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Stórtækar vinnuvélar eru notaðar við gerð Fáskrúðsfjarðarganga.
LÖGREGLAN á Selfossi stöðv-
aði ökumann á bifhjóli á Hellis-
heiði fyrir ofsaakstur um hálf-
tíuleytið á föstudagskvöld.
Hraði mannsins mældist 187
km/klst.
Maðurinn var stöðvaður efst í
Hveradalabrekku en hann var á
leið austur. Ökumaður bifhjóls-
ins var færður á lögreglustöðina
á Selfossi þar sem hann var
sviptur ökuréttindum til bráða-
birgða.
Töluvert var um hraðakstur í
umdæmi lögreglunnar á Selfossi
í fyrradag og fyrrinótt. Í kring-
um 20 ökumenn voru stöðvaðir
fyrir of hraðan akstur, þar af
voru tveir grunaðir um ölvun.
Á 187 km
hraða á
Hellisheiði