Morgunblaðið - 20.07.2003, Side 47

Morgunblaðið - 20.07.2003, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 47 DAGBÓK VISA-bikar karla 8-liða úrslit Víkingur-KA Í Víkinni í dag kl. 17:00 ÚT- SALA Hefst á morgun miðvikudag 1. ágúst Aðeins í nokkra daga Minnst 40% afsláttur Kringlunni 7, sími 588 4422 Tíska • Gæði • Berta verð Hefst í dag miðvikudag 31. júlí tr 2 STJÖRNUSPÁ Frances Drake KRABBI Afmælisbörn dagsins: Þú sækist eftir ævintýrum og heillast af glæsileika og velgengni. Fólk dáist að þér vegna sjálfstæðis þíns. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur mikla löngun til þess að tala við aðra í dag. Þú vilt vera til staðar þegar ein- hver þarfnast nærveru þinn- ar og skilnings. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hinn mikli erill sem einkenn- ir líf þitt gæti komið niður á þér núna. Reyndu að eyða einhverjum tíma í einrúmi og safna kröftum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú kýst að vernda vin þinn í dag og munt gera allt sem í þínu valdi stendur til þess að hjálpa þessari persónu. Hjálpsemi þín er vel metin. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Hafðu varann á og gættu þess að persónulegar upplýs- ingar um þig komist ekki á allra vitorð í dag. Hvort sem þér líkar það betur eða verr ertu í sviðsljósinu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Löngun þín til þess að gera eitthvað öðruvísi veldur eirð- arleysi. Af hverju ekki að gerast ferðamaður á sínum heimaslóðum í dag? Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Í dag gætir þú dregið til þín fólk sem býr ekki yfir and- legum stöðugleika. Ekki gera neitt sem gæti komið því úr jafnvægi. Njóttu heldur fé- lagsskaparins. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ósætti gæti komið upp vegna þess að þú átt það til að bregðast of harkalega við áreiti. Þú átt þó rétt á því að sýna viðbrögð, er það ekki? Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Nú er kjörið að beina athygl- inni að heimilinu og sinna jafnvel hannyrðum og öðrum tómstundum. Hvaðeina sem viðkemur heimilinu mun gleðja þig. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Rómantísk sambönd eru óvenjulega hlý og ánægjuleg í dag. Ástvinir þínir kunna vel að meta þig og það veldur þér vellíðan. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú þarft að gefa þér einhvern tíma í dag til þess að vera í ró og næði. Það verða allir að geta slakað á af og til. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Í samskiptum þínum við ann- að fólk getur þú treyst innsæi þínu. Í dag hefur þú einnig næmt auga fyrir góðum ákvörðunum er tengjast fjár- málum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú festir kaup á einhverju í dag. Þörfum þínum verður ekki fullnægt með þessum kaupum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. UM HANA SYSTUR MÍNA Sáuð þið hana systur mína sitja lömb og spinna ull? Fyrrum átti ég falleg gull. Nú er ég búinn að brjóta og týna. Einatt hefur hún sagt mér sögu. Svo er hún ekki heldur nízk: Hún hefur gefið mér hörpudisk fyrir að yrkja um sig bögu. Hún er glöð á góðum degi, – glóbjart liðast hár um kinn, – og hleypur þegar hreppstjórinn finnur hana á förnum vegi. Jónas Hallgrímsson LJÓÐABROT 50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 20. júlí, er fimmtug Rannveig Ein- arsdóttir, Hlíðarhjalla 74, Kópavogi. Eiginmaður hennar er Christopher John Taylor. Þau taka á móti gestum í sumarbústað sín- um í landi Nesja við Þing- vallavatn í dag milli kl. 14– 18. ÞÓRÐUR Sigfússon hef- ur verið að skella inn á textavarpið einni og einni bridsþraut (síða 326). Við- fangsefni síðustu viku leit þannig út: Norður ♠ K ♥ 1032 ♦ 10432 ♣ÁKD92 Vestur Austur ♠ 765 ♠ 432 ♥ -- ♥ ÁG98765 ♦ KG987 ♦ -- ♣G10876 ♣543 Suður ♠ ÁDG1098 ♥ KD4 ♦ ÁD65 ♣-- Suður spilar sex spaða og fær út laufgosa. Það tekur tímann sinn að greiða úr þessu og ef lesandinn vill gera atlögu að spilinu er vissara að lesa ekki lengra að sinni. Fyrstu hugrenningar: Ellefu slagir eru auðsóttir: sex á spaða, einn á hjarta, tígulás og þrír á lauf. Kannski kviknar sú hug- mynd að henda hjörtum strax í ÁKD í laufi, en sú slagfórn virkar ekki. Betra er að taka þrisvar tromp og sækja slag á hjarta og reyna svo að endaspila vestur í tígli. En það er ekki aldeilis sama hvernig það er gert. Til að gera frekar langa sögu styttri, þá er lausnin þessi: Lausn: Fyrsti slagurinn er tekinn í borði og tígul- drottningu hent heima!! Síð- an er tromp tekið þrisvar og laufi og tígli hent úr borði. Því næst er slagur sóttur á hjarta – kóngnum spilað. Ef austur tekur með ás þarf hann að spila frá hjartagosa eða laufi upp í gaffal, svo hann er tilneyddur til að dúkka. Þá spilar sagnhafi litlum tígli að tíunni í þess- ari stöðu: Norður ♠ -- ♥ 103 ♦ 1043 ♣KD9 Vestur Austur ♠ -- ♠ -- ♥ -- ♥ ÁG9876 ♦ KG98 ♦ -- ♣10876 ♣54 Suður ♠ 1098 ♥ D4 ♦ Á65 ♣-- Vestur fær slaginn, en er um leið endaspilaður, verð- ur að gefa slag á laufníu eða tígultíu. Við sjáum nú betur mik- ilvægi þess að henda tígul- drottningu heima í fyrsta slag. Ef smáum tígli er hent og drottningunni spilað í stöðunni að ofan getur vest- ur hnekkt spilinu með því að dúkka! (Og hitt gengur heldur ekki að trompa fyrsta laufið, því þá þvingast blindur þegar þriðja tromp- ið er tekið.) Ýmsir sendu Brids- sambandinu svör (símleiðis eða í tölvupósti), en aðeins einn var með lausnina rétta. Sá var hinn gamalreyndi stórmeistari, Hjalti Elías- son. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson Þessar duglegu stúlkur, Guðmunda Birta Jónsdóttir og Sólrún Ósk Árnadóttir, héldu hlutaveltu og söfuðu 1.520 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. 1. Rf3 Rf6 2. g3 d5 3. Bg2 c6 4. O-O g6 5. b3 Bg7 6. Bb2 O-O 7. c4 a5 8. d3 a4 9. Ra3 Ra6 10. Rc2 Bg4 11. Db1 Bxf3 12. Bxf3 axb3 13. axb3 e6 14. b4 b5 15. Ha5 Db6 16. Bd4 Db7 17. cxb5 cxb5 18. Db2 Re8 19. e4 Rac7 20. Hfa1 Hc8 21. exd5 exd5 22. Re3 h5 23. Kg2 Dc6 24. Ha7 Dd6 25. h4 Bxd4 26. Dxd4 Re6 27. Dxd5 Dxb4 Staðan kom upp á sterku alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Esbjerg. Lasaron Bruzon (2614) hafði hvítt gegn Peter Heine Nielsen (2636). 28. Hxf7! Hxf7 staða svarts hefði ekki verið frýnileg eftir 28. ...Kxf7 29. Dd7+. 29. Dxe6 Rd6 30. Dxg6+ og svartur sá sæng sína upp reidda enda erfitt að finna viðunandi svör við margvíslegum hótunum hvíts. Lokastaða mótsins varð þessi: 1.–3. Alexey Dreev (2698), Luke McShane (2619) og Krishn- an Sasikiran (2654) með 6½ vinning af 9 mögulegum. 4. Curt Hansen (2618) 4½ v. 5.–7. Peter Heine Nielsen (2636), Lenier Dominguez (2610) og Mikhail Krasen- kov (2585) 4 v. 8.–9. Lazaro Bruzon (2614) og Lars Schandorff (2525) 3½ v. 10. Humpy Koneru (2468) SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. ÁRNAÐ HEILLA HLUTAVELTA Myndrún/Eva Vestmann BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Grundarkirkju 21. júní sl. af séra Solveigu Láru Guðmundsdóttur þau Kristín S. Ólafsdóttir og Baldur Benediktsson. Heimili þeirra er í Banda- ríkjunum. Dömurnar fyrst!! KIRKJUSTARF Háteigskirkja. Eldri borgarar. Félagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Pútt alla daga kl. 10 ef veður leyfir. Hallgrímskirkja. Sumarkvöld við orgelið. Orgeltónleikar kl. 20. David M. Patrick frá Englandi leikur. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tek- ið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag kl. 19.30. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða- smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir. Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601. Í kvöld er samkoma kl. 20.00. Sigrún Ein- arsdóttir talar. Lofgjörð og fyrirbænir. Barnagæsla fyrir 1–7 ára börn á sam- komutíma. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Allir eru hjartanlega velkomnir. Morgunblaðið/Árni TorfasonHallgrímskirkja Safnaðarstarf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.