Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 49
UM DAGINN var ég að velta því fyrir mér hvernig ég hefði eig- inlega fengið plönturnar mínar. Ég komst svo sem ekki að neinum stóra-sannleik um það en víst er að þær eru fengnar með ýmsu móti. Trjáplönturnar eru lang- flestar keyptar en það er flóknara hvernig ég eignaðist blóm- plönturnar. Ég hef svo sem eignast fleiri plöntur en ég hef keypt, sníkt eða sáð fyrir og þær plöntur hafa komið óumbeðnar í garðinn minn. Aðferðir jurtanna við að dreifa sér eru mjög margvíslegar, mér liggur við að segja að þær komi skríðandi, hlaupandi, stökkvandi og fljúgandi og þær eru ekki allar jafnvelkomnar af garðeigandan- um. Ég á a.m.k. fleiri tegundir af „illgresi“ en mér gott þykir og þær er sannarlega ekki allar auð- velt að uppræta. Í landinu okkar er t.d. túnfífilsbreiða undir göml- um þingvíði, sem er ótrúlegt augnayndi síðast í maí, fagurgul breiða móti grábrúnum trjástofn- inum og ljósgrænu laufinu, sem er að springa út. Eins eru biðukoll- urnar fallegar og gaman að sjá hvernig fræin berast með vind- inum. En svo fer að vandast mál- ið. Fjúkandi fræin minna mig helst á myndir af fallhlífaher- mönnum, svona eins og maður sér í bíómyndum, sem lauma sér að baki óvinahernum og reyna að gera sem mestan usla. Og það gera fræin sannarlega þegar þau lenda í blómabeðunum mínum og spíra þar og skjóta rótum, sem nær ómögulegt er að uppræta, upp af hverri rót virðast spretta hundrað fíflar. Fuglarnir dreifa líka fræjum með því að éta berin. Í sumarbú- staðnum erum við með töluvert af berjarunnum, sem fuglarnir eru a.m.k. jafnhrifnir af og ég. Ung- plöntur af berjarunnum finn ég svo undir trjám eins og öspum, sem aldeilis ekki fjölga sér með berjum. Í Bólstaðahlíðinni er reyniplanta, sem vex upp úr þak- rennu á þriggja hæða húsi, hún var orðin meira en eins metra há þegar ég sá hana síðast. Ekki hef- ur hún komist þangað fyrir tilstilli húseigandans. Undir hlyninum í garðinum okkar finn ég stundum ylli-plöntur og svo eru bæði reyni- og úlfareynisplöntur á ólíklegustu stöðum þótt flestar séu undir trjám, jafnvel óskyldum trjám. En það var planta sem ég fann fyrir nokkrum árum undir reyni- trénu okkar, sem varð eiginlega kveikjan að þessum skrifum mín- um. Eitt vorið rak ég augun í örsmáan rósarræfil, sem var að teygja sig upp úr moldinni. Ná- lægt þessum stað voru nokkrar rósir, en þessi ræfill var dálítið ólíkur þeim, svo ég setti ungviðið í pott og gaf því gott að borða. Það er stundum sagt að sjaldan launi kálfur ofeldið, en það máltæki átti svo sannarlega ekki við núna. Rósaranginn stækkaði og stækkaði og það var kominn tími til að velja hon- um framtíðarstað. Þar sem ég vissi ekk- ert um ætt rósarinn- ar minnar eða upp- runa, því varla er unnt að telja rósir „þrastardætur“, fór ég með hana í sum- arbústaðinn okkar svona til að sjá hvað úr henni myndi verða. Og viti menn, strax næsta sumar blómstraði litla stýrið, var beinlín- is þakið blómum. Þessi blóm eru hreinlega ótrúlega falleg, dásam- lega rósbleik, hálffyllt og bærilega stór og standa nokkuð vel. Hún er hins vegar ekki dugleg að mynda aldin, sem ekki er að undra, þar sem blómin eru hálffyllt. Þótt rós- in blómstraði svona vel dró það ekkert úr vextinum, hún bara stækkaði og stækkaði. Það var löngu tímabært að gefa henni nafn, því ekki dugði að kalla hana þrastarrósina eða reynirósina, nei flott skyldi það vera. Þessi dýrð- arinnar planta hlaut nafnið ’Rosa Bella‘. Og sú hin fagra ber sannarlega nafnið með sóma, hún er eins og suð- ræn fegurðardís, gneistandi falleg og þokkafull, þar sem hún ber höfuðið hátt og skiptir vel litum, rósbleik og dökk- græn. Hún ilmar að vísu ekki mikið, en ilmurinn minnir einna helst á daufan sítrónuilm. En hún kann líka að verja sig sé á hana ráðist, því sé óvarlega við hana komið, stinga þyrnarnir óþyrmi- lega. Eins vill hún sjálf ráða sín- um vaxtarstað og þarf töluvert olnbogarými. En hún er ekki neinn pappírsbúkur, um það get- um við vottað, því síðastliðið sum- ar vorum við að gróðursetja nýtt skjólbelti og þangað settum við nokkrar smáplöntur af ’Rosa Bella‘, sem ég hafði komið til þá um vorið. Núna í sumar hafa þær blómstrað þótt þær standi á ber- angri, svo við komum til með að gróðursetja fleiri rósir í skjólbelt- um í náinni framtíð, svo þau verða ekki bara einsleitt græn, heldur bleik líka, virkilegt tilhlökkunar- efni. Núna er ’Rosa Bella‘ komin á sjötta ár, ætti að vera orðin senjora í fullum þroska. Hún er ekki há, líklega tæpir tveir metr- ar, en töluvert bústin, á að giska tveir metrar á kant og mjög auð- velt er að fjölga henni, því hún setur töluvert út rótarskot, svo hún á varla heima í lítilli garð- holu. Ég hef því miður aldrei fengið neinn í heimsókn sem hefur teg- undargreint ’Rosa Bella‘. Mér finnst hún eiga margt sameigin- legt með Rosa pimpinellifolia, þyrnirósinni, a.m.k. eru ungar greinar grannar, rauðbrúnar og uppstæðar með þéttstæðum fín- gerðum þyrnum. Algengasti blóm- litur þyrnirósarinnar er þó hvítur, þótt líka komi fyrir gulleit og rauðleit blóm. Þyrnirós er þó sögð lægri en ’Rosa Bella‘ er, aðeins um einn m á hæð. Hún er ásamt glitrósinni eina rósin sem tilheyrir hinni villtu flóru Íslands. Þótt ekki væri nema þess vegna er gaman að gæla við þá hugmynd að ’Rosa Bella‘ sé ættingi íslensku þyrnirósarinnar, framræktuð og kynbætt í suðrænu umhverfi. ’ROSA BELLA‘ VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r nr. 496 S.Hj. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 49 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun varðandi fram- tíð varnarliðsins á Íslandi sem fram- kvæmdastjórn Ungra jafnaðar- manna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, sendi frá sér: „Framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna skorar á íslensk stjórnvöld að nýta tækifærið nú og skoða kosti þess að Ísland verði her- laust land. Ungir jafnaðarmenn hafna öllum hugmyndum um stofnun íslensks hers og telja æskilegra að Ísland verði herlaust kjósi Banda- ríkjamenn að fara. Ungir jafnaðar- menn telja að Íslendingar eigi að skoða þann möguleika vel hvernig Evrópusambandsaðild myndi snerta varnarhagsmuni þjóðarinnar. Afar mikilvægt er að mæta þeim vanda í atvinnumálum og björgunar- málum sem brottför varnarliðsins myndi hafa í för með sér. Að því hef- ur ríkisstjórnin að engu leyti hugað. Fráleitt er að grátbiðja Bandaríkja- menn um að vera út frá öryggisleg- um sjónarmiðum þegar öllum er ljóst að vandinn er fyrst og fremst atvinnulegs eðlis. Óvíst er að öryggi þjóðarinnar sé meira með Banda- ríkjaher en án hans. Loks fordæma Ungir jafnaðar- menn þá leynd sem ríkissstjórnin hefur viðhaldið um framtíð varnar- liðsins, ekki síst það ótrúlega fram- ferði ríkisstjórnarflokkanna að leyna grundvallarupplýsingum um málið fram yfir alþingiskosningar.“ Vilja að Ísland verði herlaust Rangt nafn á leikara Rangt var farið með nafn leikara í myndatexta með umsögn í föstu- dagsblaði um sýningu Light Nights í Iðnó. Rétt nafn leikarans er Páll S. Pálsson. Er beðist velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Fjölskyldudagur í Viðey. Fjöl- skyldudagur í Viðey hefst kl. 13.30 með siglingu frá Reykjavíkurhöfn, þ.e. smábátahöfninni fyrir neðan Hafnarbúðir. Örlygur Hálfdanarson sér um leiðsögn á siglingunni og í Viðey og eftir það verður stutt helgistund. Leiktæki fyrir börnin verða á staðnum, auk þess sem verður grillað en boðið er upp á kaffi og þjóðlegt meðlæti fyrir full- orðna fólkið. Hljómlistarmenn leika létta tónlist á meðan. Dagskráin kostar 1.600 kr. fyrir fullorðna og 800 kr. fyrir börn en fjölskyldu- pakki kostar 4.000 kr. (tveir full- orðnir og tvö börn yngri en tólf ára). Í DAG FÉLAG áhugafólks um íþróttir aldr- aðra (FÁÍA) undirbýr nú námskeið fyrir leiðbeinendur um íþróttir aldr- aðra svo og aðra sem ætla að hefja það starf. Námskeiðið verður einnig opið öllu áhugafólki um almenna lík- amsþjálfun og heilsueflingu eldra fólks, ekki síst starfsfólki í öldrunar- þjónustu á hinum ýmsu sviðum. Markmið námskeiðsins er að vekja áhuga á líkamsþjálfun eldri borgara, meðal annars þeirra sem bundnir eru við hjólastól, leiðbeina um viðhaldsæf- ingar sem stuðla að varðveislu á hreyfigetu þessa aldursflokks og kynna sjálfboðaliðum hvernig unnt sé að stuðla að hreyfingu aldraðra í heimahúsum og víðar. Námskeiðið verður haldið í Bláa salnum í Laugardalshöll dagana 25. og 26. ágúst n.k. kl. 9 til 16. Nám- skeiðsgjald er 2000 kr. og er kaffi og léttur hádegisverður innifalið í verð- inu. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst n.k. og skal umsóknum skila til skrif- stofu UMFÍ, Fellsmúla 26, Reykja- vík, eða til formanns félagsins, Guð- rúnar Nielsen, Lerkihlíð 4, Reykjavík. Námskeið um íþróttir aldraðra ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.