Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Allir þátttakendur fá bol, verðlaunapening, pastamáltíð, drykki, boðsmiða í sund o.fl. Skráning og upplýsingar á S TOFNDAGUR Flugleiða hf. er 20. júlí 1973 þegar Flugfélag Íslands og Loftleiðir sameinuðust í hinu nýja fyrirtæki. Mán- uði fyrr höfðu stjórnir beggja fyrirtækjanna samþykkt samkomulag frá 14. mars það ár um sameiningu. Félagið tók síðan til starfa 1. ágúst 1973 og hófst þá eiginleg vinna við að sameina skrifstofur, söluskrifstofur erlendis, samræma flugáætlanir og fleira. Hef- ur félagið tekið margháttuðum breyt- ingum allar götur síðan eins og Sig- urður Helgason forstjóri greinir frá hér á eftir í samtali við Morgunblaðið. „Sameining Flugfélags Íslands og Loftleiða hafði verið rædd mánuðum og árum saman og félögin voru í raun nálægt þroti þegar úr sameiningunni varð, ekki síst fyrir atbeina ríkis- stjórnarinnar,“ segir Sigurður. Hann tók við sem forstjóri félagsins sum- arið 1985 en hafði starfað þar allt frá árinu 1974, fyrst í fjármálum en tók síðar við sem yfirmaður Flugleiða í Bandaríkjunum. „Þreifingar höfðu byrjað kringum 1970 en þá hafði Flugfélaginu til dæmis verið veitt ríkisábyrgð vegna lána til kaupa á þotu félagsins og Loftleiðir voru með ríkisábyrgð vegna yfirdráttarlána.“ Sigurður seg- ir að í kjölfar blómaskeiðs Loftleiða á sjöunda áratugnum hafi efnahags- ástandi hérlendis hrakað í lok hans þegar síldin hvarf og flugfélögin verið í harðri samkeppni. Þetta hafi allt ýtt undir viðræður um sameininguna svo og tilburðir hóps innan Loftleiða um kaup á hlutabréfum í Flugfélagi Ís- lands. Skrifstofurnar sameinaðar fyrst Forstjórar Flugleiða voru í upphafi tveir, þeir Alfreð Elíasson og Örn Ó. Johnson. Skömmu síðar var ákveðið að Sigurður Helgason (eldri) yrði þriðji forstjórinn. En hvernig fór sameiningin fram? „Í fyrstunni voru skrifstofurnar sameinaðar. Fyrsta skrefið var sam- eining söluskrifstofa félaganna á Norðurlöndum, í Glasgow og Lond- on. Það var í ársbyrjun 1974. Um sumarið voru skrifstofurnar hér heima sameinaðar. Flugfélag Íslands hafði aðalaðsetur í Bændahöllinni og Loftleiðir í skrifstofuhluta Loftleiða- hótelsins. Þar voru settar upp höfuð- stöðvar Flugleiða en markaðsdeilin var þó áfram í Bændahöllinni um tíma. Hún var svo flutt hingað þegar búið var að stækka skrifstofubygg- inguna nokkru síðar. Það er svo ekki fyrr en nokkrum árum síðar að flug- rekstardeildirnar eru sameinaðar þegar Flugleiðir taka formlega við öllum flugrekstri beggja félaganna.“ Sigurður segir að fram að því hafi flugrekstrardeildin í raun verið svip- uð og félögin tvö störfuðu áður. Loft- leiðaflugmenn sinntu einkum flugi milli Bandaríkjanna og Lúxemborg- ar á DC-8 þotum og flugfélagsmenn sinntu einkum Evrópufluginu á Boeing 727-þotunum svo og innan- landsfluginu. Hann segir að samein- ing flugfélaganna tveggja hafi verið mjög merkileg og fyrsta sameining íslensks fyrirtækis af þessari stærð- argráðu. Hún hafi tekið langan tíma, yfirbygging fyrirtækisins lengi verið mikil og þung í vöfum. Árið 1976 er fyrsti aðalfundur félagsins haldinn og þá urðu nokkrar breytingar á stjórn og sumarið 1979 eru gerðar ýmsar breytingar á yfirstjórn félagsins og Sigurður Helgason verður einn for- stjóri í kjölfar þeirra. Skin og skúrir skiptast á „Við höfum stundum skipt þessari 30 ára sögu í nokkur tímabil,“ heldur Sigurður áfram. „Fyrsta tímabilið snýst um sameininguna og stendur allt fram undir 1980. Þá urðu miklar þrengingar í kjölfar olíukreppunnar og frjálsræðis í flugi í Bandaríkjunum og fleiri atriða sem krepptu mjög að fluginu. Þá var um þriðjungi starfs- manna sagt upp og mjög dregið úr öllum rekstri. Næstu árin höldum við sjó ef svo má segja en svo koma aftur bjartari tímar og við hefjum nýja sókn. Á þessum árum er eigið fé félags- ins orðið neikvætt og við stóðum frammi fyrir tveimur kostum. Ann- aðhvort að halda óbreyttri starfsemi með tiltölulega litlu flugi milli Banda- ríkjanna og Evrópu og miða áætlun- arflugið einkum við þarfir Íslendinga. Hinn kosturinn var að endurnýja all- an búnað félagsins og auka starfsem- ina. Við völdum þann kost.“ Stjórn félagsins og Sigurður, sem þá var nýlega orðinn forstjóri, settu fram framtíðarsýn og hófu í kjölfarið uppbyggingu. Sigurður segir að fyrsta verkið hafi verið að endurnýja flugvélakostinn. DC-8-þoturnar og B727-þoturnar hafi verið orðnar óhagkvæmar, áhafnakostnaður mikill og þær dýrar í rekstri og viðhaldi. Ákveðið var að hefja endurnýjun flot- ans með B737- og B757-þotum. Var rekstrarkostnaður á hvert sæti um 40% lægri á 757-þotum en DC-8-þot- unum. Fyrst komu B737-þotur og hinar í kjölfarið og þannig var flotinn endurnýjaður á örfáum árum. Jafn- framt segir Sigurður að ráðist hafi verið í endurnýjun á Hótel Esju og Hótel Loftleiðum, bílaleigunni, flug- eldhúsi, þjónustubyggingu og síðar viðhaldsstöðinni á Keflavíkurflug- velli. Í kjölfar nýrrar flugstöðvar hafi svo verið unnt að bjóða nýja mögu- leika í áætlunarfluginu. „Þá var orðið hægt að bjóða fólki uppá að hafa við- dvöl í stöðinni á leiðinni milli Evrópu og Bandaríkjanna. Við endurskipu- lögðum leiðakerfið út frá því, jukum ferðatíðni á áfangastaði í Evrópu og bættum við nýjum áfangastöðum í Bandaríkjunum og gátum tengt þá mörgum borgum í Evrópu í gegnum leiðakerfið.“ Nýr grunnur lagður Sigurður segir að með þessari sókn hafi verið lagður nýr grunnur að starfi félagsins og uppúr því hafi það verið skilgreint sem ferðaþjónustu- fyrirtæki en ekki aðeins flugfélag. Skýrari markmið og h Alfreð Elíasson (lengst til vinstri) og Örn Ó. Johnson voru fyrstu forstjórar Flugleiða. Síðar var Sigurður Helgason (eldri) ráðinn þriðji forstjórinn. Grunnur var lagður að endurskipulagningu og uppbyggingu hjá Flugleiðum með endurnýjun flugflotans sem hófst fyrir áratug. Sigurður Helgason forstjóri ávarpar gesti við athöfn í viðhaldsstöð fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli. Margháttaðar breytingar hafa orðið á starfi Flugleiða á þeim þrjátíu árum sem liðin eru frá stofnun félags- ins. Sigurður Helgason for- stjóri ræðir þessar breyt- ingar í viðtali við Jóhannes Tómasson, m.a. þá að skipta félaginu í nokkur sjálfstæð fyrirtæki á ýmsum sviðum ferðaþjónustunnar. FLUGLEIÐUM hf. hefur verið skipt í dótturfyrirtæki sem sam- an mynda Flugleiðasamsteyp- una. Fyrirtækin eru nú ellefu. Icelandair, sem annast milli- landaflugið og leigir öðrum dótt- urfélögum flugvélar. Sigurður Helgason er forstjóri þess jafn- framt því að vera forstjóri Flug- leiða. Flugfélag Íslands sér um innan- landsflugið. Framkvæmdastjóri er Jón Karl Ólafsson. Hefur eigið flugrekstrarleyfi og flugflota. Loftleiðir Icelandic annast leigu- flugsverkefni víða um heim og leigir til þess vélar frá Icelandair. Framkvæmdastjóri er Sigþór Einarsson. Flugleiðir frakt sér um fraktflug og leigir einnig vélar af Ice- landair. Framkvæmdastjóri er Pétur J. Eiríksson. Flugþjónustan Keflavíkur- flugvelli sinnir þjónustu við flug- vélar og afgreiðslu þeirra. Fram- kvæmdastjóri er Gunnar Olsen. Tækniþjónustan Keflavík sem rekur viðhaldsstöðina og sér um verkefni hennar. Fram- kvæmdastjóri er Valdimar Sæ- mundsson. Kynnisferðir skipuleggja hóp- ferðir og annast akstur flug- farþega milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur. Framkvæmda- stjóri er Stefán Eyjólfsson. Flugleiðahótel reka tvær hót- elkeðjur, átta heilsárshótel undir vörumerkinu Icelandair hotels og fimmtán sumarhótel undir merkjum Hótels Eddu. Fram- kvæmdastjóri er Kári Kárason. Ferðaskrifstofa Íslands skipu- leggur og selur ferðir innanlands og utan. Framkvæmdastjóri er Hörður Gunnarsson. Bílaleiga Flugleiða starfar undir merkjum alþjóðlegu bílaleig- unnar Hertz. Framkvæmdastjóri er Hjálmar Pétursson. Fjárvakur sem annast bókhald og fjármálaþjónustu fyrir félögin. Framkvæmdastjóri er Magnús Kr. Ingason. Ellefu dótturfyrirtæki 14. mars 1973Samkomulag næst um samein- ingu Flugfélags Íslands og Loft- leiða. 28. júní 1973 Aðalfundir Loftleiða og Flug- félags Íslands samþykkja sam- komulagið um sameiningu. 20. júlí 1973 Stofndagur Flugleiða. Forstjórar Alfreð Elíasson og Örn Ó. John- son. 6. október 1973 Millilandaáætlun Flugfélags Ís- lands og Loftleiða samræmd. 1. janúar 1974 Skrifstofur félaganna á Norð- urlöndum, Glasgow og London sameinaðar. 6. febrúar 1976 Matsnefnd leggur fram álitsgerð um að Flugfélag Íslands eigi 45,9% hlut í Flugleiðum og Loft- leiðir 54,1%. 1. október 1978 Flugleiðir taka formlega við öll- um flugrekstri Flugfélags Íslands og Loftleiða. 5. janúar 1979 DC-10 breiðþota Flugleiða lendir í fyrsta sinn á Keflavíkurflugvelli. 1. apríl 1984 Flugleiðir taka upp skipt farrými í Norður-Atlantshafsfluginu og er fyrsta farrými nefnt Saga Class. 3. júní 1984 Samið við Boeing um kaup á B737 og B757 þotum. Febrúar 1993 Samið um samstarf við SAS og ferðatíðni milli Kaupmannahafn- ar og Íslands stóraukin. 26. mars 1995 Fyrsta evrópska flugfélagið með eingöngu reyklaust flug. Sögubrot Loftleiðir ráku DC-8 þotur og Flugfélag Íslands Boeing 727 fyrir millilanda- flugið þegar félögin sameinuðust.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.