Morgunblaðið - 20.07.2003, Page 33
daginn að sálfræðingurinn og
kenningasmiðurinn hefur smíðað
ýmsa af hinum fallegu innan-
stokksmunum sínum, bæði bekki
og borð. Í kjallaranum er ekki að-
eins stórt skjalasafn hans í köss-
um, vandlega flokkað eftir árum,
sem raðað er eftir heilum lang-
vegg, heldur líka hefilbekkur og
gnótt handverkfæra.
Það bærist í Holland hagleiks-
maður og hann og Ásta eiga sam-
eiginlegan mikinn áhuga á hönnun
og fallegum hlutum. Þegar áhuga-
svið fólks falla saman er um nóg
að ræða.
Þegar á hann er gengið viður-
kennir Holland að vera píanóleik-
ari til allra ára og ekki nóg með
það. Hann hefur nýlega uppgötvað
áhuga sinn á söng og barítónrödd,
sem á betra skilið en að liggja í
þagnargildi. Hann dreif í því að
fara í söngtíma, sem hann kallar
reyndar raddtíma, vegna þess að
honum virðist sýnna að taka hóli
fyrir fræðistörf sín en frístunda-
iðju. Nú kemur í ljós að hann er
nýbúinn að syngja á nemendatón-
leikum og Holland segir okkur að
reynsla sín sem fyrirlesari hafi
gert það að verkum að hann var
ekkert taugaóstyrkur. Hann er
ánægður með það.
Á efri hæðinni eru ekki færri en
þrjár skrifstofur og alla veggi
prýða málverk sem hvert á sína
sögu. Innan um málverkin hanga
viðurkenningar og staðfestingar á
ýmsum afrekum húsráðanda.
Hann beinir sjónum okkar bros-
andi stoltur að einu slíku, þar sem
stendur að dr. John Lewis Holland
sé veitt sérstök viðurkenning fyrir
að standast freistingu þess að
ástunda það sem Bandaríkjamenn
kalla „Political Correctness“.
Skjalið er undirritað af nánum
samstarfsmanni og vini.
Innrásinni frá Íslandi er lokið,
en íslensk náttúra liggur eftir í lit-
prentuðum bókum á stofuborðinu.
Húsráðandi kveðst ekki hafa séð
svo fagrar ljósmyndir áður og hug-
leiðir hvort hann geti komið því við
að bæta Íslandi á lista þeirra staða
sem hann vill heimsækja.
Sólin baðar blóm og runna þeg-
ar hinn aldni heiðursmaður kveður
okkur fyrir dyrum úti. Hann minn-
ir á að hann hafi áhuga á að fylgj-
ast með framþróun NemaCode-
verkefnisins. Það er gott að heyra,
því enginn getur mótmælt því að
dr. John Lewis Holland veit hvað
hann syngur um áhuga.
Höfundur er tónlistarmaður.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 33
Áhugasviðsgreiningar erusálfræðileg mælitækisem notuð eru víða umlönd. Markmiðið er aðaðstoða einstaklinga til
að finna út hvaða nám eða starf sam-
svari áhugasviðinu.
Flestar áhugasviðsgreiningar
byggjast á RIASEC-kenningu
bandaríska sálfræðingsins dr. John
L. Holland. Kenningin greinir áhuga-
svið manna í sex meginflokka sem
mynda heildstætt kerfi og vísa í nám
og störf.
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir,
náms- og starfsráðgjafi, hefur um
árabil þróað nýja framsækna aðferð
til að lesa úr niðurstöðum áhuga-
sviðsgreininga og kallar aðferðina
NemaCode. Hún og Valgeir Guðjóns-
son vinna nú að margmiðlunardiski
sem inniheldur forrit aðferðarinnar.
Dr. John Holland kynnti sér þessa
nýju útfærslu á áhugasviðsgreiningu
og gaf henni sín bestu meðmæli eins
og lesa má um í meðfylgjandi grein.
Ásta segir að þekkt alþjóðlegt vís-
indatímarit á sviði náms- og starfs-
ráðgjafar hafi einnig kynnt sér að-
ferðina og vilji fá ritrýnda grein um
aðferðina og hafi Holland boðist til að
aðstoða hana við það.
Möguleikar NemaCode-aðferðar-
innar eru því góðir um þessar mundir
og spurði blaðamaður Ástu í hverju
aðferðin fælist í stuttu máli.
Fyrst ber að segja hvaða mann-
gerðar og viðfangsefnis stafirnir sex
vísa til: RIASEC en hver þeirra er
eitt horn í sexhyrningnum: R merkir
raunsæja/jarðbundna manneskju, I
íhugla/rannsakandi manngerð, A list-
ræna/skapandi, S félagslynda/gef-
andi, E athafnasama/hvetjandi og C
reglufasta/námkvæma manngerð. Þá
fær hver hópur ákveðna vísbendingu
eins og t.d. regluföst eða skipulögð
manneskja í C hóp ætti að vinna við
störf sem krefjast nákvæmni og
reglufestu, yfirsýnar og skipulags,
úrvinnslu og markvissrar framsetn-
ingar upplýsinga, útreikninga og úr-
vinnslu tölulegra upplýsinga, skjala-
vörslu og gagnaflokkunar.
Skoða má sexhyrninginn út frá því
sjónarhorni að vinstra hvel hans
(RCE) spanni hlutlæg, áþreifanleg
gildi en hægra hvel (IAS) huglæg og
óáþreifanleg gildi. Ásta bætir síðan
við nýrri vídd í líkanið með því að yf-
irfæra þessa tvískiptingu á hvern
hóp. „NemaCode er eins konar milli-
stykki á milli greiningarinnar og ein-
staklingsins,“ segir Ásta, „hverjum
hópi er þannig skipt í hægra og
vinstra hvel í stað einnar heildar.“
Segja má að innan hópanna séu
tvær meginvíddir sem tákna megi
með hlutlægum orðum og huglægum.
„Hver einstaklingur getur hins vegar
sveiflast á milli þessara tveggja vídda
eftir atvikum.“ Segir hún að einstak-
lingurinn taki þátt í því að skapa nið-
urstöðurnar með því að staðsetja sig
milli hvelanna. Hann tekur virkan
þátt í ferlinu og býr sig þannig betur
undir að taka ákvörðun um nám,
starf og önnur persónuleg málefni.
NemaCode-nálgunin á að gæða
niðurstöðurnar lífi og efla skilning
einstaklinga á sjálfum sér og um-
hverfi sínu. Niðurstöðurnar í forrit-
inu munu meðal annars birtast í
myndrænu formi sem gerir einstak-
lingum hægara um vik til að vinna
með niðurstöðuna.
Ásta segir að á liðnum vetri hafi
hópur ráðgjafa beitt NemaCode að-
ferðinni til tilraunar og í ljós hafi
komið að túlkunarferlið henti mjög
vel til greininga. Aðferðin nýtist ein-
staklingum vel til að taka upplýsta
ákvörðun um nám og störf út frá
áhugasviði og styrkleika sínum. Hug-
myndin er að einstaklingar njóti sín
best í störfum sem spanna áhugasvið
þeirra.
„NemaCode-túlkunarferlið felst í
þrennu,“ segir Ásta, „í prófi, fræðslu
og túlkun. Eftir að einstaklingurinn
hefur tekið afstöðu til tiltekins fjölda
viðfangsefna og aðstæðna fær hann
ítarlega fræðslu um virkni og eðli
sexhyrningsins. Þá er hann tilbúinn
að taka við niðurstöðunum og að taka
virkan þátt í túlkun þeirra,“ segir
hún. „Þetta er ekki þannig að hann
fái ákveðin svör um tiltekin störf sem
hann eigi að sækja um, heldur fær
hann innsýn í eðli viðfangsefna sem
líkleg eru til að veita honum ánægju
við leik og störf.“
Samsetning stafanna er eins konar
kóðanir eða lyklar. Einstaklingurinn
þarf að geta lesið úr táknunum um
eðli starfa og jákvæðar og neikvæðar
upplifanir gagnvart þeim. Nema-
Code er aðferð til að finna þessa lykla
og opna gáttir að skilningi á eigin
þörfum. Aðferðin er skilvirk og
myndræn fyrir ráðgjafa sem aðstoða
einstaklinga við að greina áhuga sinn.
Nýir lyklar opna gáttir
Ásta Kr. Ragnarsdóttir hef-
ur þróað nýja aðferð til að
lesa úr niðurstöðum áhuga-
sviðsgreininga. Gunnar Her-
sveinn spurði hana í hverju
hún felst.
Morgunblaðið/Arnaldur
„NemaCode er einskonar millistykki á milli greiningarinnar og einstaklingsins,“
segir Ásta Kr. Ragnarsdóttir
TENGLAR
..............................................
www.nema.is
guhe@mbl.is
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
Nýtt á skrá: Til sölu/leigu samtals 1.000 fm tveir eignahlutar 706 fm á tveimur hæðum, innréttaðir sem
aðgerða- og læknastofur. Einnig 294 fm á annarri hæð, innréttaðir fyrir sjúkraþjálfun og skrifstofur.
Mjög góð staðsetning, mjög góð aðkoma. Mögulegur byggingarréttur. Verð tilboð.
ÁLFTAMÝRI/TIL SÖLU/LEIGU
Rauðalækur - glæsileg
Sumarbústaður í Skorradal
Hvassaleiti - laus strax
Vorum að fá í sölu sérstaklega
fallega og bjarta 112 fm neðri
sérhæð í 4-býlishúsi. Íbúðin
skiptist m.a. í tvær samliggjandi
stofur og tvö herbergi (þrjú skv.
teikningu). Sérinngangur.
Hæðinni fylgir 30 fm bílskúr.
V. 17,7 m. 3234
Vorum að fá í sölu góða 149 fm
6 herbergja íbúð í fjölbýli. Þar af
er eitt herbergjanna í kjallara og
er möguleiki að leigja það út. 21
fm bílskúr fylgir íbúðinni. Íbúðin
er laus strax. Verið er að ljúka
við viðgerð á húsinu og mála
það. Nánari upplýsingar veitir
Magnea Sverrisdóttir í síma 861 8511. V. 16,4 m. 3497
Einstaklega fallegur 52 fm sum-
arbústaður á besta stað í
Skorradalnum. Bústaðurinn
stendur nálægt vatninu, 100 fm
timburverönd í kringum bústað-
inn. Þrjú svefnherbergi. Stofa,
baðherbergi, eldhús, geymsla,
milliloft. Furugólfborð. Glæsilegt
útsýni út á vatnið í gegnum stór-
an stofuglugga. Loftið er panel-
klætt. Baðherbergið er með sturtu. Upphitun er með rafmagni. Kalt
vatn. Hitadunkur. Uppl. veitir Ragna í síma 820 3405. V. 8,5 m.
3209