Morgunblaðið - 20.07.2003, Síða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 43
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, dóttur og systur,
JÓNÍNU MARGRÉTAR ÞÓRÐARDÓTTUR.
Ófeigur Sigurðsson,
Sigurður Ófeigsson, Sigurbjörg Sandra Guðnadóttir,
Þórður Ófeigsson,
Elsa Ófeigsdóttir,
Elsa Sigurðardóttir,
Björgvin Þórðarson,
Helga Þórðardóttir.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför ástkærs föður okkar, stjúp-
föður, tengdaföður, afa og langafa,
BERGÞÓRS FINNBOGASONAR
kennara
frá Hítardal,
Sólvöllum 13,
Selfossi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Sjúkrahúsinu Selfossi og á Ljós-
heimum.
María Friðriksdóttir,
Teitur Bergþórsson, Guðný María Hauksdóttir,
Kristín Fjóla Bergþórsdóttir, Guðmundur Örn Böðvarsson,
Friðrik Hafþór Magnússon, Sólveig Höskuldsdóttir,
Einar Baldvin Sveinsson, Jóna Sólmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Einlægar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR KRISTJÁNS BALDVINSSONAR
frá Hjalteyri,
Núpalind 2,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar fyrir góða
umönnun.
Magðalena Stefánsdóttir,
Esther Sigurðardóttir, Helgi Sigurðsson,
Stefán Baldvin Sigurðsson, Anna S. Jóhannesdóttir,
Sigurbjörg Sigurðardóttir Rollini,
Sigrún Jensey Sigurðardóttir, Kristján Bjarndal Jónsson,
Sigurður Sigurðarson, Hildur Sandholt,
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og kveðjur við and-
lát og útför
JÓHANNESAR GEIRS JÓNSSONAR
listmálara.
Geir Reginn Jóhannesson
og systkini hins látna.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
PÁLS ÓLAFSSONAR
bifreiðastjóra,
Melgerði 14,
Reykjavík.
María Guðmundsdóttir,
Hilmar Guðmundsson, Sigríður Kristjánsdóttir,
Hrönn Pálsdóttir,
Sigrún Pálsdóttir,
Ellen Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
MINNINGARGREINUM í
Morgunblaðinu hefur fjölgað
verulega á undanförnum árum.
Til að öllu efni Morgunblaðsins
verði haganlega fyrir komið
reynist nauðsynlegt að setja
minningargreinum, sem og öðru
efni, ákveðin lengdarmörk. Því
hefur verið ákveðið að fyrir utan
aðalgrein verði aðrar greinar
1.500 slög (með bilum), sem eru
um 50 línur í blaðinu (17 dálks-
entimetrar) og í kringum 300
orð.
Hinsta kveðja
– nýtt form
Jafnhliða þessu verður tekin
upp nýjung sem kölluð er
HINSTA KVEÐJA þar sem
hægt verður að senda örstutta
kveðju (5–15 línur), þegar það á
við. Þetta form á við þegar votta
á virðingu án þess þó að það sé
gert með langri grein (sjá sýn-
ishorn).
Lengd minningargreina
Hæfileg lengd. Til þess að sjá
lengd minningargreinar í t.d.
Word-ritvinnslu, þá er valið
Tools-valblaðið og síðan Word
Count. Þá opnast þessi upplýs-
ingagluggi og sýnir orðafjöldann
(Words); slagafjölda án orðabila
(Characters (no spaces)); slaga-
fjölda með orðabilum (Characters
(with spaces)): 1.500.
g
fa
g
n
ar
n
k,
a
ð-
m
g
m
n-
r
r
ð
r-
i.
m
r-
n-
í
ar
l-
u
í
ð
ð-
gg g
Sú hugsun að svo kynni að fara var
manni þó oftast fjarri, svo mikill var
lífsþróttur hennar, hugurinn vökull
og atorkan óbilandi.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj.
lkasdjf laksjf laks jdf.
Laksdjælaskdjfæalskjfaæls
kdjfaæl sk djfalæs kd.
Jón Jónsson og
Jónína Jónsdóttir
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ
ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs
kd fdh fg df df df n dfhndfghdfh
dfgh dfgh dfh fdgh.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
djfæalskjfaæls kdjfaæl sk.
Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj
aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj
lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask-
HINSTA KVEÐJA
Elsku Lóló og amma. Við kveðjum
þig með söknuð í hjarta og varðveit-
um minninguna.
Þögninni einni segjum okkar sorg.
Sungin var gleðin út í vind sem blés.
Spor lágu burt úr dalnum annan dag,
Dögg féll af greinum lítils reynitrés.
Þögninni einni segjum okkar sorg.
(Halldóra B. Björnsson.)
Hvíl í friði.
Regína, Guðbjörn Sævar og
Kristófer Aron.
HALLDÓRA
JÓNS-
DÓTTIR
✝ Halldóra Jónsdóttir fæddist íReykjavík hinn 18. júní 1937.
Hún andaðist á heimili sínu
þriðjudaginn 1. júlí síðastliðinn og
var útför hennar gerð frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík 8. júlí.
MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endur-
gjaldslaust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og
grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja.
Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda
(vinnusíma og heimasíma). Tekið er á móti afmælis- og minning-
argreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykja-
vík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri.
Ekki er tekið við handskrifuðum greinum.
Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um
hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dá-
inn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útför-
in verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálf-
um.
Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri
lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög
(með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar).
Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einn-
ig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Grein-
arhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi,
mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á
föstudegi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skila-
frests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss
er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær
berist á réttum tíma.
Birting afmælis- og
minningargreina
Útför Þráins, bónda í
Oddakoti í Austur-
Landeyjum, var gerð
frá Voðmúlastaðakap-
ellu hinn 12. júlí sl. að viðstöddu fjöl-
menni.
Þráins hefur verið minnst í Morg-
unblaðinu, en mig langar að minnast
og þakka með fáum orð hið kirkju-
lega samstarf okkar í Krosskirkju,
sem og vináttu hans og fjölskyldu
hans, er þetta góða og trygglynda
fólk sýndi mér og mínu heimili. Og
það er ekki aðeins að ég minnist
þessa nú, heldur er það fyrst og
ÞRÁINN
ÞORVALDSSON
✝ Guðni ÞráinnÞorvaldsson
fæddist í Kirkju-
landshjáleigu í Aust-
ur-Landeyjum 11.
mars 1945. Hann
andaðist á Sjúkra-
húsi Suðurlands 27.
júní síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Voðmúlastaða-
kapellu 12. júlí.
fremst þakkað.
Seint á sl. öld urðu
meðhjálparaskipti við
Krosskirkju í Austur-
Landeyjum. Nýi með-
hjálparinn og hringjar-
inn, sem sóknarnefndin
réð til starfa var Þráinn
í Oddakoti. Hann var
þá í blóma lífsins með
ferskar og ágætar hug-
myndir. Það var mér og
fjölskyldu minni mikið
happ að eignast vináttu
hans. Og alveg var
sama hvort hann kom
heim til okkar að Berg-
þórshvoli eða við komum á heimili
hans og hans góðu fjölskyldu, alltaf
voru vináttustundirnar góðar og eft-
irminnilegar. Það er því ofur eðlilegt
að Þráinn og fjölskylda hans hafi
verið okkur einkar þær, allt frá
fyrstu kynnum.
Falsleysi og einlægni Þráins auðg-
uðu líf okkar. Þráinn sýndi svo ekki
fór á milli mála að þegar hann
hringdi inn helgar tíðir var hugur
hans allur í því starfi og það svo að
þá naut sín hans markvissi röskleiki.
Hann var samviskusamur, staðfast-
ur og trúr. Tæki hann eitthvað að sér
rækti hann það vel og myndarlega.
Háttvísi Þráins og nærgætni sá ég
einna best við jarðarfarir. Þar fundu
líka syrgjandi ástvinir þá hlýju og
góðvild sem grundvallast af heilræð-
inu góða: Aðgát skal höfð í nærveru
sálar. Þetta, sem nú hefur verið
nefnt var einmitt sá þáttur í starfi
Þráins sem mér þótti alltaf vænst
um.
Kirkjulega samstarfið okkar stóð í
einn áratug eða þar til ég sagði af
mér embætti sóknarprests í Berg-
þórshvolsprestakalli vegna aldurs.
Fátt er einum sóknarpresti nauðsyn-
legra en meðhjálpari, sem er í einu
og öllu hægt að treysta. Þannig man
ég Þráin og hans ágætu skipulags-
hæfileika, t.d. í sambandi við ferm-
ingar. Hann túlkaði svo vel hin
gömlu og góðu gildi íslensku Ung-
mennafélagshreyfingarinnar, að ég
hef löngum lýst Þráini svona:
Hann var drengur góður.
Ég bið Guð að blessa minningu
Þráins og ég bið Guð að blessa og
styrkja þá, sem honum voru kærast-
ir og nú sakna hans mest. Og nú að
leiðarlokum kveð ég minn góða vin
með þessum orðum:
Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið,
boðorðið, hvar sem þér í fylking standið,
hvernig sem stríðið þá og þá er blandið:
Það er að elska, byggja og treysta á landið.
Þá héðan ég úr heimi fer,
minn hjartkær Jesú, tak við mér,
frá þrautum leystan leið mig inn,
í ljóss og friðar bústað þinn:
Þar lát um eilífð lifa mig
og líta, heyra og tigna þig.
(H.H.)
Þannig eru einlægar þakkir mínar
til Þráins.
Páll Pálsson prestur.