Morgunblaðið - 20.07.2003, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞAÐ má segja um Framsóknarflokk-
inn, að oft veltir lítil þúfa þungu
hlassi. Alveg magnað hvað svona lítill
flokkur getur
endalaust mælt
fyrir hinum verri
málum og þvælst
fyrir góðum.
Lygilegt hvað
hann hefur mikil
áhrif og hvernig
hann notar þau.
Já, þær eru
lúmskar litlu þúf-
urnar í túnunum og erfitt að sjá við
þeim.
Ef þjóðin trúir því sem stjórnar-
flokkarnir báru fyrir frestun Héðins-
fjarðarganga, þá er ekki trúleysinu
fyrir að fara. Ég legg ekki mat á
hvort göngin eru hagkvæm, aðeins að
augljóst er að ekki átti að standa við
loforðin. Það er mergur málsins og
meira að segja bókstafstrúaðir fram-
sóknarmenn í norðri sjá það og vilja
leggja félögin niður. Ef Samfylkingin
kemst ekki af án Framsóknarflokks-
ins er henni voðinn vís. Hún verður að
hrista af sér slenið og vinna á eigin
forsendum. Illur fengur illa forgeng-
ur. Samfylkingin á ekki að standa á
annarra fótum, hún er alveg í stakk
búin að standa á eigin. Vitað er að
ekki er hægt að gera allt, en það má
forgangsraða og hagræða. Ég vil sjá
Samfylkinguna stokka upp í eigin
ranni. Til að komast til valda verður
hún fyrst og fremst að vinna tiltrú
þjóðarinnar. Eftir það er leiðin greið,
en fljót að verða ófær ef sérhags-
munaseggir komast að. Slíkir eru
ætíð snauðir af því sem til vegs má
færa. Flokkar sem iðka klækjabrögð
og pólitísk hrossakaup glata virðingu
og verða gagnslausir.
Von margra er að Samfylkingin
vinni þjóðinni af heilindum og láti eft-
irfarandi til sín taka án sýndar-
mennsku og skiptimiða.
Viðbrögð ríkisstjórnarinnar við til-
kynningu Bandaríkjamanna um
brotthvarf herflugvéla héðan eru til
vansæmdar. Hagsmunir okkar og
Bandaríkjamanna hafa fléttast sæmi-
lega, nema tímann sem landið var
þröskuldur í vegi óvina þeirra. Þá
vorum við skotmark. Nú er herinn
óþarfur, en Bandaríkjamenn bera
ábyrgð á vörnum landsins þótt úr
fjarlægð sé. Við eigum aldrei að
stofna her, hann mundi í engu
gagnast og yrði eyðsla til einskis. Sér-
sveit lögreglunnar nægir, en við eig-
um að fjölga lögreglumönnum og
auka fé til þeirra. Það skilar sér
margfalt. Á Íslandi er góðæri fyrir þá
sem geta bjargað sér og eru á góð-
ærislaunum. En fyrir þá sem ekki eru
sjálfbjarga og þá sem eru á hallær-
islaunum er góðærið böl því það er
notað til að leyna vandanum. Ofskött-
un fjötrar láglaunafólk og öryrkja.
Ný tegund fjárhirða hefur skotið rót-
um, fjármagnsfyrirtæki sem glepja
sýn ungu fólki og auðtrúa fullorðnum.
Þau auglýsa, að það taki nokkrar
mínútur að fá lán fyrir bíl og ferðalög-
um, en það fylgir ekki að það geti tek-
ið alla ævina að borga. Samfara þessu
er gríðarlegur harmleikur og má
hugsanlega rekja þunglyndi, aukn-
ingu sjálfsvíga og aðra ógæfu þar til.
Þeir sem fleyta rjómann af dugnaði
þjóðarinnar eru henni verstir og hafa
lögleg og ólögleg arðrán aukist og
valda miklum skaða. Sérkapítuli eru
auðlindaarðránin og eignatilfærsl-
urnar. Mikið er að í húsnæðismálum
þegar hægt er að leigja út bílskúr
sem íbúð á 55 til 65 þúsund kr. og
tveggja herbergja íbúð á 80 til 100
þúsund. Ólöglegt rán er þó að gefa
ekki leiguna upp. Lægst setta starfs-
fólk félagsþjónustunnar er á svo
skammarlega lágum launum að það
hlýtur að bitna á þjónustunni. Mun-
urinn á launum þessa fólks og óskilj-
anlega háum launum embættis-
manna, forstjóra og þrýstihópa er
vítavert misrétti.
Í félags- og heilbrigðiskerfunum er
krónunni kastað fyrir aurinn. Þar er
lögð ofuráhersla á að fækka fólki í
lægst launuðu störfunum, en slíkt
eykur vinnuálag og kostnað. Vitur-
legra er að koma í veg fyrir að fólk
veikist af þrældómi og áhyggjum því
slíkt færist á börnin og samfélagið. Í
stjórnun má ekki vera fólk sem hugs-
ar eftirá, eða ræður ekki við skap sitt.
Fólki þarf að líða vel í vinnunni. Ég
veit dæmi þar sem framkoma for-
stjóra við þá sem honum eru ekki að
skapi er hreint og klárt einelti. Margt
vantar í þessa upptalningu mála sem
Samfylkingin þarf að kryfja til mergj-
ar. Yfirborðsmennska og misrétti
verður að víkja fyrir skilningi og jafn-
rétti. Annars verður Samfylkingin lít-
il eins og gamli Alþýðuflokkurinn
varð þegar hann gróf sér álíka gröf og
Framsóknarflokkurinn rembist nú
við.
ALBERT JENSEN,
Sléttuvegi 3, Reykjavík.
Samfylkingin og
litlu þúfurnar
Frá Alberti Jensen:
Morgunblaðið/Jim Smart
Það er óþarfi að Íslendingar hafi her, segir greinarhöfundur og telur að
Víkingasveitin dugi. Hér má sjá Víkingasveitarmenn á æfingu.