Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 46
DAGBÓK
46 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Rotterdam kemur og
fer í dag. Selfoss og
Þerney koma í dag.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Dagsferð 7.
ágúst, Land-
mannalaugar. Ekið um
Þjórsárdal og Sigöldu í
Landmannalaugar.
Kaffi og meðlæti í
Hestheimum. Leið-
sögn Þórunn Lár-
usdóttir uppl. skrif-
stofu FEB Faxafeni 12
sími 588 2111.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið Hraunsel
verður lokað frá og
með mánudeginum 21.
júlí til 10. ágúst.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Lokað vegna
sumarleyfa til 12.
ágúst. Sund og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug á mánudög-
um, miðvikudögum og
föstudögum kl. 9.30.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Ferð í
Listasafn Kópavogs
verður mánudaginn 21.
júlí kl. 13.30.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður á
morgun mánudaginn
21. júlí kl. 14 við
Brekkuhús.
Minningarkort
Minningarkort Hjarta-
verndar, fást á eft-
irtöldum stöðum í
Reykjavík: Skrifstofu
Hjartaverndar, Holta-
smári 1, 201 Kópavogi,
s. 535-1825. Gíró og
greiðslukort. Dval-
arheimili aldraðra
Lönguhlíð, Garðs Apó-
tek Sogavegi 108, Ár-
bæjar Apótek
Hraunbæ 102a, Bók-
bær í Glæsibæ Álf-
heimum 74, Kirkju-
húsið Laugavegi 31,
Bókabúðin Grímsbæ v/
Bústaðaveg, Bókabúð-
in Embla, Völvufelli 21,
Bókabúð Grafarvogs,
Hverafold 1–3.
Minningarkort Hjarta-
verndar, fást á eft-
irtöldum stöðum á
Reykjanesi: Kópavog-
ur: Kópavogs Apótek,
Hamraborg 11. Hafn-
arfjörður: Lyfja, Set-
bergi. Sparisjóðurinn,
Strandgata 8–10,
Keflavík: Apótek
Keflavíkur, Suðurgötu
2, Landsbankinn Hafn-
argötu 55–57.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á
Vesturlandi: Akranes:
Hagræði hf., Borg-
arnes: Dalbrún, Bráka-
braut 3. Grund-
arfjörður: Hrannarbúð
sf, Hrannarstíg 5.
Stykkishólmur: Hjá
Sesselju Pálsd., Silf-
urgötu 36. Ísafjörður:
Póstur og sími, Að-
alstræti 18. Stranda-
sýsla: Ásdís Guð-
mundsd. Laugarholti,
Brú.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á
Austurlandi: Egils-
staðir: Gallery Ugla,
Miðvangur 5. Eski-
fjörður: Póstur og s.,
Strandgötu 55. Höfn:
Vilborg Einarsdóttir
Hanarbraut 37.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á
Norðurlandi: Ólafs-
fjörður: Blóm og gjafa-
vörur Aðalgötu 7.
Hvammstangi: Versl-
unin Hlín Hvamms-
tangabraut 28. Ak-
ureyri: Bókabúð
Jónasar Hafnarstræti
108, Möppudýrin
Sunnuhlíð 12c. Mý-
vatnssveit: Pósthúsið í
Reykjahlíð. Húsavík:
Blómasetrið, Héðins-
braut 1, Raufarhöfn:
Hjá Jónu Ósk Péturs-
dóttur, Ásgötu 5.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á Suð-
urlandi:
Vestmannaeyjar: Apó-
tek Vestmannaeyja
Vestmannabraut 24.
Selfoss: Selfoss Apótek
Kjarninn.
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla) sími
588-8899.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju eru til
sölu í kirkjunni í síma
587 9070 eða 587 9080.
Einnig er hægt að
nálgast kortin í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31,
Reykjavík.
Líknarsjóður Dóm-
kirkjunnar, minning-
arspjöld seld hjá
kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í
síma 456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafn-
arfirði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Minningarkort Ás-
kirkju eru seld á eft-
irtöldum stöðum:
Kirkjuhúsinu Lauga-
vegi 31, þjón-
ustuíbúðum aldraðra
við Dalbraut, Norð-
urbrún 1, Apótekinu
Glæsibæ og Áskirkju
Vesturbrún 30 sími
588-8870.
Í dag er sunnudagur 20. júlí,
201. dagur ársins 2003. Skál-
holtshátíð, Þorláksmessa á sumri.
Orð dagsins: Biðjið og yður mun
gefast, leitið og þér munuð
finna, knýið á, og fyrir yður
mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Eiríkur Bergmann Ein-arsson segir á vefrit-
inu Kreml.is að nýlega
hafi verið gefin út reglu-
gerð fjármálaráðuneyt-
isins um tollfríðindi vara
sem flutt eru inn frá fá-
tækustu ríkjum heims.
En reglugerðin er ekki
eins góð og lítur út í
fyrstu að hans mati. „Við
lesturinn vekur strax at-
hygli að það þurfi heilar
25 þéttskrifaðar síður til
að útlista jafneinfaldan
hlut og tollfríðindi til
handa sárafátækum þjóð-
um – og það í 28 greinum
og 8 mismunandi köflum.
Bara útlistanir á nauð-
synlegum skilyrðum,
vottorðum og eyðublöð-
um valda hausverk. Jæja
gott og vel, það verður
víst að tryggja að upp-
runareglur og tilhlýðileg
öryggisatriði séu upp-
fyllt. Kannski bara eðli-
legt þótt það torveldi
auðvitað viðskipti. Látum
það vera.
Meiri undrun vekur aðí reglugerðinni sem
er ætlað að tryggja toll-
fríðindi fyrir fátækustu
ríki heims – sem flest
framleiða fyrst og fremst
landbúnaðarafurðir –
skuli vera viðamikill við-
auki um þá vöruflokka
sem ekki skuli njóta toll-
fríðinda. Er það ekki
mótsögn í sjálfu sér?
Þetta er heldur enginn
smáviðauki. Hvorki
meira né minna en 113
vöruflokkar (tollanúmer)
eru undanþegnir tollfríð-
indum eins og rækilega
er útlistað í reglugerð-
inni. Og viti menn, þau
eru öll í landbúnaði. Ég
endurtek: Í reglugerð um
tollfríðindi við innflutn-
ing vara sem upprunnar
eru í fátækustu þróun-
arríkjum heims – sem
fyrst og fremst framleiða
landbúnaðarvörur – eru
113 vöruflokkar, einmitt í
landbúnaði, sem bera
misháa tolla. Er þetta
grín?“ spyr Eiríkur.
Verndarstefna í land-búnaði er einn versti
og langlífasti löstur í
hagkerfum Vesturlanda.
Og það tapa allir á þess-
ari stefnu; neytendur
greiða hærra verð fyrir
vöru sem framleidd er
ódýrara annars staðar og
þau ríki sem hafa yf-
irburði í framleiðslu
landbúnaðarvara verða
af viðskiptum sem ykju
hag þeirra. Í tölublaði
The Economist í fyrra
var því haldið fram að
þróunarlöndin yrðu af
100 milljörðum dollara
vegna verndarstefnu ríku
landanna. Það eru 7.765
milljarðar íslenskra
króna sem eru tæplega
þrjátíuföld útgjöld ís-
lenska ríkisins í ár. Þessi
upphæð samsvarar tvö-
faldri aðstoð Vesturlanda
við þróunarlöndin á ári.
Fátæku ríkin hafa lítiðað gera við tollfríð-
indi á bifreiðum og DVD-
spilurum, sem þau fram-
leiða ekki, á meðan háir
tollar eru til að mynda á
kakói og kornmeti, sem
þau framleiða í stórum
stíl,“ segir Eiríkur.
STAKSTEINAR
Tvískinnungur í afnámi
verndartolla
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI á það til að bregða sérút úr bænum um helgar. Hann
ferðast iðulega með börnum sem eru
sjúk í að stoppa í sjoppum, þessum
dæmigerðu vegasjoppum við hring-
veginn. Hyrnan í Borgarnesi er í
mestu uppáhaldi hjá börnunum enda
er þar hægt að fá ýmislegt annað en
nammi og hamborgara, t.d. ýmislegt
skemmtilegt og ódýrt sumardót.
x x x
VÍKVERJI er annars ekkert sér-staklega ánægður með vega-
sjoppurnar. Þar fæst lítið annað en
óhollusta svo oft breytast ferðalög
Víkverja í allsherjar sukkferðir um
landið. Víkverji væri alveg til í að
geta keypt ávexti, pastarétti og ann-
an léttan mat í vegasjoppunum og er
nokkuð viss um að fleiri taka undir
það.
x x x
AKUREYRI er framandi staðurfyrir Víkverja og var ferð hans
þangað á dögunum einkar ánægju-
leg. Honum finnst Akureyri heillandi
og skemmtilegur bær í glæsilegu
umhverfi þar sem margt er hægt að
dunda sér við. Það sem kom Vík-
verja og syni hans skemmtilegast á
óvart voru ferhyrnd flatbrauð. Í
Reykjavík er þetta brauðmeti kallað
„flatkökur“ og er hringlaga. Víkverji
var hins vegar alinn upp við flat-
brauð enda finnst honum það eiga
lítið skylt við kökur sem eru sætar.
Sonur Víkverja rak líka upp stór
augu þegar hann sá að mjólkurfern-
urnar voru öðruvísi í laginu á Ak-
ureyri og það setur óneitanlega svo-
lítið „útlenskan“ blæ á fríið að
drekka mjólk úr fernum sem eru há-
ar og mjóar og líka til í tveimur lítr-
um!
x x x
VÍKVERJI var reyndar kominn tilAkureyrar til að fylgjast með
pollamóti í fótbolta. Ekki voru það
þó litlir pollar sem þar öttu kappi
heldur stæðilegir karlmenn komnir
á besta aldur. Stemningin á Þórs-
svæðinu þar sem mótið fór fram var
virkilega skemmtileg þó að rigning
hafi orðið til þess að vellirnir voru
aðeins farnir að láta á sjá í lok móts-
ins.
x x x
ÁDÖGUNUM fór Víkverji ásamtbörnum í Húsafell og setti upp
tjaldbúðir við á, spölkorn frá Húsa-
fellssjoppunni. Unglingahópur tjald-
aði við hlið Víkverja og hann lá því
andvaka hluta nætur þar sem ná-
grannarnir voru mjög málglaðir og
söngelskir fram eftir nóttu. Víkverji
má til með að deila nýju orðatiltæki
sem hann heyrði tvo unga menn
segja fyrir utan tjaldið þessa nótt.
Þeir voru að tala um stúlku sem
hafði verið að reyna við annan
þeirra, en sögðu þess í stað að stúlk-
an hefði verið að „míga utan í“ pilt-
inn. Það þýðir sum sé að gera hosur
sínar grænar fyrir einhverjum. Vík-
verja finnst þetta frekar ósmekklegt
orðalag og vonar að það hverfi sem
fyrst.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Nóg af pylsum, borgurum og sæl-
gæti í vegasjoppunum. Minna fer
fyrir ávöxtum og annarri hollustu.
Ofsaakstur
skaðar ketti
LAUFEY hafði samband
við Velvakanda og lýsti yfir
ánægju sinni vegna greinar
Elísabetar sem birtist í
Velvakanda 15. júlí sl. Í um-
ræddri grein var þeim for-
mælt er stunduðu þá iðju
að aka yfir ketti og halda
för sinni áfram líkt og ekk-
ert hefði í skorist. Laufey
er búsett í Sigtúni og ber
hún ökumönnum þar ekki
góða söguna. Þeir valda
köttum, sem og öðrum líf-
verum, töluverðum áhyggj-
um með ofsaakstri sínum.
Laufey tekur undir með El-
ísabetu og vill sekta þá sem
aka yfir ketti.
Íslendingaþættir
fást gefins
ÍSLENDINGAÞÆTTIR,
blað sem fylgdi Tímanum á
sínum tíma, fæst gefins.
Um er að ræða nokkra ár-
ganga af blaðinu og er það
geymt í möppum og í góðu
ásigkomulagi. Á sama stað
er nóg til af sultukrukkum
sem fást gefins. Upplýsing-
ar í síma 565 6344.
Reynslusaga
MÍN reynsla er sú að viljir
þú senda vini þínum á
landsbyggðinni heillaóska-
skeyti sem hann á að fá á
laugardegi, þarftu að senda
það til ritsímans á fimmtu-
degi svo öruggt sé að hann
fái skeytið á réttum tíma.
Edda Magnúsdóttir.
Góðar móttökur
í Grímsey
NÚ Á dögunum lagði ég
fyrsta sinni leið mína út í
Grímsey. Ég var á ferð
ásamt tveimur erlendum
ferðalöngum sem ólmir
vildu skoða fuglalíf eyjar-
innar. Þegar í eyna var
komið varð fyrsti áfanga-
staður okkar handverks-
húsið og veitingasalan Gall-
erí Sól. Þar hittum við fyrir
einstaklega yndislegar
konur sem reka húsið. Þær
gerðu allt sem í þeirra valdi
stóð til þess að leiðbeina
okkur og greiða götu okkar
svo að fáeinna klukku-
stunda heimsókn til eyjar-
innar yrði sem eftirminni-
legust. Kann ég þeim bestu
þakkir fyrir greiðviknina
og hvet sem flesta ferða-
langa að leggja leið sína til
þessarar yndislegu nátt-
úruperlu.
Þorlákur Einarsson.
Geysilega góð
þjónusta
KRISTÍN hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri þakklæti
til fyrirtækisins Poulsen.
Hún sagði þjónustuna á
þeim bænum vera til fyrir-
myndar. Hún keypti hjá
þeim heitan pott og fékk
leiðbeiningar um uppsetn-
ingu hans í gegnum síma
seint um kvöld. Þessi þjón-
usta er til fyrirmyndar að
sögn Kristínar og ef hún
væri ekki stödd úti á landi
myndi hún færa þeim blóm-
vönd.
Dýrahald
Högni óskast
EINLITUR steingrár
högni, kassavanur, óskast
gefins. Hann má ekki vera
eldri en tveggja mánaða.
Þeir sem hafa yfir slíkum
ketti að ráða og vilja gefa
hann, vinsamlegast hafið
samband við Dýravin í síma
557 6206.
Birta er týnd
LÆÐAN Birta tapaðist frá
Fellasmára í Kópavogi,
laugardaginn 5. júlí sl.
Birta er 10 ára gömul, mjög
mannelsk og góð. Hún er
með brotna vígtönn og ber
enga ól. Fólk er vinsamleg-
ast beðið að líta í bílskúra
og geymslur. Þeir sem hafa
orðið varir við Birtu eru
vinsamlegast beðnir að
hafa samband í síma
564 2001 eða 690 3920.
Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
LÁRÉTT
: 1 ritað plagg, 4 flug-
vélar, 7 handbendis, 8
slitið, 9 dugur, 11 beltið,
13 at, 14 vonda, 15 þorp-
ara, 17 halarófa, 20
agnúi, 22 galdrakerlinga,
23 snákur, 24 sveiflu-
fjöldi, 25 nirfill.
LÓÐRÉTT
1 hljóðfæri, 2 bíll, 3
taugaáfall, 4 kauptún, 5
seinka, 6 fiskúrgangur,
10 svipað, 12 veiðarfæri,
13 herbergi, 15 gagns-
lítil, 16 líffærið, 18 gufa,
19 kaka, 20 karlfugl, 21
næturgagn.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 óforsjáll, 8 karri, 9 reika, 10 pat, 11 plati, 13
asann, 15 garðs, 18 sigla, 21 kóp, 22 lekur, 23 jafnt, 24
vinmargar.
Lóðrétt: 2 furða, 3 reipi, 4 jurta, 5 leifa, 6 skip, 7 kaun,
12 tuð, 14 sói, 15 gull, 16 rakki, 17 skrum, 18 spjör, 19
gifta, 20 atti.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16