Morgunblaðið - 20.07.2003, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Nú kemur
þú golfinu
á kortið
Golfkort Búnaðarbankans –
nýtt fullgilt kreditkort hlaðið
golftengdum fríðindum.
www.bi.is
MINNINGARSKJÖLDUR um tvo
breska námsmenn, þá Ian Harrison
og Tony Proser, sem týndust á
Öræfajökli fyrir nær hálfri öld var af-
hjúpaður í Skaftafelli sl. fimmtudag.
Dr. Jack D. Ives, fjallavistfræðing-
ur og Íslandsvinur, kom hingað til
lands ásamt hópi fólks sem tók þátt í
breskum rannsóknarleiðöngrum til
Íslands á árunum 1952–54. Ives var
leiðangursstjóri og var aðallega feng-
ist við rannsóknir á Morsárjökli í
Öræfum. Þeir Harrison og Proser
ætluðu á Öræfajökul og safna jarð-
vegs- og snjósýnum á leiðinni. Ian
Harrison var reyndur fjallamaður og
hafði m.a. klifið mikið í Ölpunum. Eft-
ir að þeir fóru á jökulinn kom óveður
og þeir skiluðu sér ekki aftur. Fund-
ust þeir aldrei þrátt fyrir mikla leit.
Ives segir í viðtali í blaðinu í dag að
örlagadagarnir í ágúst 1953 hafi ekki
liðið úr huga sér einn einasta dag
síðan.
Ég varð fullorðinn/B2
Týndra
fjallamanna
minnst í
Öræfum
KRINGUM 27 milljónir farþega hafa
ferðast með Flugleiðum á þeim þrjá-
tíu árum sem fyrirtækið hefur starf-
að. Meðalfarþegafjöldi fyrstu árin
var kringum 600 þúsund en síðast-
liðin ár hefur fjöldinn verið milli 1.400
og nærri 1.800 þúsund manns.
Nærri lætur að hver Íslendingur
hafi ferðast um 100 sinnum með
Flugleiðum á þessum þrjátíu árum ef
notuð er sú viðmiðun að meðalíbúa-
fjöldinn sé um 270 þúsund manns á
þessum árum. Hefur þá hver lands-
maður farið kringum 3,3 ferðir á ári
með félaginu.
Eins og fyrr segir var farþegafjöldi
Flugleiða um 600 þúsund fyrstu árin
en fór niður í um 500 þúsund á sam-
dráttarárum í fluginu kringum 1980.
Árið 1987 var fjöldinn kominn í tæp-
lega 900 þúsund og aftur varð stökk
með uppbyggingu leiðanetsins 1995
þegar farþegar voru orðnir liðlega
1.200 þúsund. Árið 2000 var metár
þegar farþegar voru 1.783 þúsund en
þeim hefur síðan fækkað og voru þeir
1.651 þúsund 2001 og 1.468 þúsund í
fyrra. Gert er ráð fyrir álíka mörgum
farþegum í ár.
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, segir í samtali við Morgun-
blaðið í dag að með skiptingu Flug-
leiða í 11 dótturfyrirtæki sé allur
rekstur sveigjanlegri og markmið
skýrari. Sigurður hefur verið for-
stjóri Flugleiða frá árinu 1985 og hef-
ur nú einn lengsta starfsaldur meðal
forstjóra flugfélaga í Evrópu.
Skýrari markmið/18
Þrjátíu ár frá stofnun Flugleiða
27 milljónir far-
þega á 30 árum
ÁHUGAMENN um kvartmíluakstur geta æft og
fengið tíma sinn mældan á braut Kvartmílu-
klúbbsins í Hafnarfirði á föstudagskvöldum.
Talsverður mannfjöldi safnaðist þar saman sl.
föstudagskvöld þar sem ökuþórar reyndu tæki
sín. Er mældur tíminn eftir 60 fet, 200 metra og
síðan kvartmílan öll og jafnframt mældur hraði
bílanna við endamarkið.
Þórður Tómasson var í hópi ökumanna sem
spreyttu sig á brautinni en bíll hans mun vera
einn sá kraftmesti og hraðskreiðasti á landinu,
vél með rúmlega 1.300 hestöfl. Þórður þekkir vel
til kvartmíluaksturs, stundaði íþróttina af kappi
þar til fyrir rúmum áratug en tók aftur til við
fyrri iðju í vetur. Hann segir heilmikinn tíma
fara í viðhald á ökutækinu, einkum fyrst um sinn
þegar menn eru að fara af stað í greininni.
Keppt var á kvartmílubrautinni í gær.
Morgunblaðið/Sverrir
Tækin reynd á kvartmílubrautinni
BÍRÆFINN þjófur sem
reyndi árangurslaust að
svíkja hágæðaúr út úr
verslun Franch Michel-
sen á Laugavegi í
Reykjavík með stolnu
debetkorti á mánudag
hitti fyrir ofjarl sinn þeg-
ar hann freistaði þess að
hlaupa af vettvangi. Hin-
um megin afgreiðslu-
borðsins var Róbert
Michelsen, 19 ára nýbak-
aður Íslandsmeistari
unglinga, 19–22 ára, í
100 og 200 metra sprett-
hlaupi, sonur eiganda
verslunarinnar. Róbert
elti manninn frá Klapp-
arstíg þar sem hann
hafði falið sig í porti, nið-
ur Hverfisgötu í átt að Þjóðleikhús-
inu og loks inn í port á bak við
danska sendiráðið. Á meðan á þessu
stóð var hann í símasambandi við
lögreglu sem var á leiðinni á staðinn.
Lögregla yfirbugaði manninn að lok-
um.
Atvikið varð með þeim hætti að
maður á fertugsaldri vatt sér inn í
verslun Franch Michelsen skömmu
upp úr kl. 14 á mánudag og spurði
um „ódýrasta dýra úrið“ í verslun-
inni. „Ég skildi hann ekki alveg,“
segir Róbert í fyrstu. „Þá spurði
hann: „Hvað kostar ódýrasta Rolex-
ið hjá ykkur?““
Róbert tjáði manninum að ódýr-
asta karlsmannúrsið frá Rolex sem
verslunin seldi kostaði 340 þúsund
krónur.
„Nei, nei, það er allt of dýrt, allt of
dýrt,“ sagði maðurinn og spurði:
„En hvað með önnur merki eins og
Cartier eða Omega?“
Róbert sýndi manninum tvö Mov-
ado-lúxusúr á 115 og 125 þúsund
krónur. „Hann skoðaði úrin en virt-
ist samt ekki vera áhugasamur held-
ur saug upp í nefið og spurði hvort
hann gæti fengið bréf til þess að
snýta sér.“ Eftir nokkurt þóf um
greiðsluskilmála tók maðurinn upp
veski og dró upp úr því gulldebet-
kort. „Það sérkennilega við þetta var
að undantekningarlaust biðja menn
sem staðgreiða um staðgreiðsluaf-
slátt sem hann gerði ekki. Ég labb-
aði að peningakassanum og leit aft-
an á kortið og sá þá að þetta var allt
annar maður. Ég kallaði á pabba og
spurði hann hvað ég ætti að gera.“
„Ég sagðist bara vera að
hlaupa á eftir manninum“
Faðir hans spurði manninn hvort
hann væri með önnur skilríki og tók
maðurinn þá upp ökuskírteini með
sama nafni. „Pabbi sagði við mann-
inn: „Þetta er ekkert sérstaklega
líkt þér,“ en maðurinn sagðist þá
hafa grennst mikið.“
Ákveðið var samt að renna kort-
inu í gegn og maðurinn því næst
beðinn að skrifa undir kvittunina.
„Hann skrifaði „Jón“ mjög svipað og
stóð á bakhlið kortsins en pabbi
sagði að það dygði ekki, hann yrði að
skrifa fullt nafn. Þá kom fát á hann,
hann leit upp og leit á mig eins og
hann væri að hugsa: „Hvað heitir
maðurinn?“ Síðan lagði hann
bara frá sér pennann og
labbaði út.“
Þeir feðgar hringdu í lög-
regluna og Róbert náði í far-
símann sinn og bað pabba
sinn að segja lögreglumönn-
unum að hringja í sig, hann
ætlaði á eftir manninum.
Eftir nokkra leit sá hann
manninn koma á fleygiferð
úr porti neðarlega á Klapp-
arstígnum og inn á Hverfis-
götu í átt að Þjóðleikhúsinu.
Róbert tók á rás á eftir hon-
um en á því augnabliki
hringdi síminn. Lögreglan
var í símanum.
„Ég sagðist bara vera að
hlaupa á eftir manninum, ég
væri á harðahlaupum á eftir
honum og að hann væri að hlaupa að
Þjóðleikhúsinu og yfir Hverfisgötu.
Hann bókstaflega stökk yfir Hverf-
isgötu og inn í skot á bak við danska
sendiráðið, ég sagði við lögguna að
hann væri þar, beið þar og meira
vissi ég ekki,“ segir Róbert. Hann
segist ekki hafa viljað fara á eftir
manninum þangað af ótta við að
hann biði hans vopnaður.
Lögreglan kom hálfri mínútu
seinna og yfirbugaði manninn fljótt.
„Eftir á göntuðumst við með það að
hann hefði verið mjög óheppinn því
ég er nýbakaður Íslandsmeistari í
100 og 200 metra hlaupi, þannig að
hann hefði nú þurft dágott forskot,“
segir Róbert og kímir. Í ljós kom
einnig að lögreglumaðurinn sem
náði honum í portinu er einn sá
sprettharðasti í lögreglunni. Á
manninum fannst gullhringur í
öskju og nýr farsími en veskinu
hafði hann hent á hlaupunum.
Róbert æfir með Breiðabliki og
varð tvöfaldur Íslandsmeistari í
spretthlaupi unglinga á Íslandsmóti
um síðustu helgi. Hann er á samn-
ingi í úrsmíði jafnframt því sem
hann stundar nám í framhaldsskóla.
Nýbakaður Íslandsmeistari í spretthlaupi hljóp uppi þjóf
Spurði um „ódýrasta
dýra úrið“ í versluninni
Morgunblaðið/Arnaldur
Róbert Michelsen, úrsmíða- og framhaldsskólanemi og
spretthlaupari, á æfingu með Breiðabliki í Kópavogi.