Morgunblaðið - 26.07.2003, Page 14
ERLENT
14 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SADDAM Hussein og synir hans
tveir, Uday og Qusay, yfirgáfu ekki
Bagdad fyrr en um miðjan apríl,
nokkrum dögum eftir að Banda-
ríkjaher hafði tekið völdin í borg-
inni. Þetta segir fyrrverandi líf-
vörður Udays, elsta sonar
Saddams, í viðtali við breska blaðið
The Times í gær. „Þeir hefðu getað
farið frá Bagdad hvenær sem þeir
vildu en þeir hugðust berjast,“ seg-
ir maðurinn, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, en er kallaður Abu
Tiba í fréttinni.
Bandaríkjamenn tilkynntu í vik-
unni að bæði Uday og Qusay hefðu
fallið í skotbardaga í borginni Mos-
ul í Norður-Írak. Voru birtar
myndir af líkum þeirra á fimmtu-
dag.
Tókst nærri því að
drepa Saddam
Lífvörðurinn fyrrverandi segir
að Bandaríkjamönnum hafi næst-
um því heppnast að drepa Saddam
í sprengjuárás sem gerð var á til-
tekna byggingu í Bagdad, eftir að
þeir höfðu fengið upplýsingar um
að hann væri staddur á þeim slóð-
um. Sagði Tiba að hann grunaði að
íraskur uppljóstrari hefði látið
Bandaríkjamenn vita af verustað
Saddams.
Sagði Tiba að Saddam hefði beð-
ið meintan uppljóstrara um að út-
vega hús í Mansour-hverfinu þar
sem hægt yrði að halda leynilegan
fund. Mætti Saddam til fundarins
ásamt föruneyti sínu en yfirgaf
staðinn næstum strax, fór út um
bakdyrnar. „Tíu mínútum eftir að
þeir fóru rigndi sprengjunum yfir
húsið,“ sagði Tiba, sem er 28 ára
gamall.
Var meintur uppljóstrari þegar
tekinn af lífi, að sögn Tiba. Á með-
an staðhæfðu embættismenn
bandaríska varnarmálaráðuneyt-
isins að Uday og Qusay hefðu lík-
lega beðið bana í sprengjuárásinni.
Skipulögðu andspyrnu
eftir stríð
Tiba sagðist ennfremur hafa ver-
ið viðstaddur þegar Saddam og
synir hans komu saman opinber-
lega í síðasta skipti. Þetta var 11.
apríl, tveimur dögum eftir að
Bandaríkjamenn náðu Bagdad á
sitt vald, en þá mættu Saddam,
Uday og Qusay óvænt til bæna-
stundar í mosku í úthverfi Bagdad,
Adhamiya. Voru bandarískir her-
menn ekki langt undan.
„Það var fólk hvarvetna og göm-
ul kona kom til Saddams og spurði:
Hvað hefur þú gert okkur?“ sagði
Tiba. „Saddam setti hendur sínar
að höfðinu og spurði: Hvað get ég
gert? Ég treysti herforingjunum en
þeir voru svikarar og sviku Írak.
En við vonum að innan tíðar verð-
um við aftur við völd og að hægt
verði að færa allt í samt lag.“
Höfðu Saddam og næstráðendur
hans samkvæmt þessu ekki gert
ráð fyrir því að Bagdad félli og
hugðust dvelja þar áfram og halda
borginni. Sagði Tiba að sú and-
spyrna, sem nú er háð af dyggum
stuðningsmönnum Saddams, hefði
ekki verið skipulögð fyrr en eftir
stríðið. „Það var haldinn lokaður
fundur fimm eða sex dögum eftir
stríðið og það var þá sem þeir tóku
að ræða um að halda upp and-
spyrnu.“
Tiba sagði að Saddam, Uday og
Qusay hefðu verið í fararbroddi
þessarar andspyrnu eftir að þeir
flúðu Bagdad, en hún hefur m.a.
falið í sér árásir gegn bandarískum
og breskum hersveitum.
„Þetta var það sem þeir ræddu
um á síðasta fundinum sem þeir
héldu í Bagdad. Eina sem Uday gat
hugsað um var að fara fyrir and-
spyrnunni,“ sagði Tiba, en hann
sagði skilið við Uday er hann flúði
Bagdad. Hafði hann þá verið líf-
vörður Udays í sex ár. „Ég held að
hann hafi enn verið í fararbroddi
Fedajeen [sérsveitanna] þegar
hann dó,“ bætti Tiba við.
Saddam flúði ekki Bagdad
fyrr en um miðjan apríl
Fyrrverandi lífvörður Udays Husseins lýsir síðustu
dögum Saddam-stjórnarinnar fyrir fall hennar í vor
London. AFP.
’ Þeir hefðu getaðfarið frá Bagdad
hvenær sem þeir
vildu en þeir hugð-
ust berjast. ‘
FULLTRÚAR breska forsætisráð-
herrans, Tonys Blairs, báru í gær til
baka fréttir breska útvarpsins, BBC,
um að afsögn Al-
istairs Camp-
bells, almanna-
tengslafulltrúa og
eins helsta ráð-
gjafa Blairs, væri
væntanleg.
„Þetta er ósk-
hyggja af hálfu
BBC,“ sögðu tals-
menn Blairs um
frétt Andrews
Marrs. „Pólitískur ritstjóri BBC
[Marr] hefur ekki rætt við Alistair
Campbell um þessi mál,“ sögðu tals-
menn Blairs um frétt Marrs sem
birtist í fyrrakvöld. Í frétt Marrs
hafði komið fram að Campbell myndi
segja af sér vegna dauða Davids
Kelly, vopnasérfræðingsins sem
framdi sjálfsmorð í síðustu viku.
Kelly var heimildarmaður BBC
vegna fréttar um að Campbell hefði
ýkt hættuna sem stafaði af gereyð-
ingarvopnaeign Íraka svo auðveld-
ara væri að réttlæta árás á landið.
Campbell hafði mjög gagnrýnt þenn-
an fréttaflutning BBC.
The Guardian sagði hins vegar í
frétt í gær að Blair hefði tekist að
telja Campbell á að fara hvergi.
Neita fréttum um
afsögn Campbells
London. AFP.
Alistair Campbell
BANDARÍKJAHER sýndi frétta-
mönnum líkin af Uday og Qusay
Hussein í gær en fram kom í máli út-
fararstjóra og meinafræðinga
Bandaríkjahers að átt hefði verið við
andlit bræðranna þannig að líkin
líktust þeim sem mest eins og þeir
voru í lifanda lífi. Mátti sjá að skegg
bræðranna hafði verið rakað og
snyrt en alskegg Qusays hafði m.a.
þótt villa mönnum nokkuð sýn á
myndunum, sem voru birtar opin-
berlega í fyrradag. Þá kom fram hjá
fulltrúum Bandaríkjahers að á hvoru
líki fyrir sig væri að finna meira en
tuttugu sár eftir byssukúlur.
Bandaríkjamenn leggja allt kapp
á að sannfæra Íraka um að þeir
Uday og Qusay séu allir, enda telja
þeir að þannig sannfærist fólk best
um það að dagar ríkisstjórnar Sadd-
ams Husseins séu sannarlega á enda
runnir í Írak. Þar sem margir efuð-
ust enn eftir að Bandaríkjamenn
birtu myndir í fyrradag af bræðrun-
um var hópi óháðra fréttamanna
boðið að skoða líkin í gær.
Líkin geymd í frysti
Bæði líkin voru illa lemstruð,
slæmar skeinur voru sjáanlegar og
einnig brunasár. Líkin voru þó
minna blóðug en á myndunum sem
voru birtar í fyrradag. Sögðu frétta-
menn reyndar að andlit bræðranna
hefðu verið snyrt svo mikið að þau
líktust helst andlitum vaxbrúða.
Uday er talinn hafa dáið af völdum
höfuðhöggs. Tvö skotsár eru hins
vegar á höfði Qusays, að sögn krufn-
ingarlækna, annað á bak við hægra
eyrað. Sögðust læknarnir ekki telja
að bræðurnir hefðu sjálfir veitt sér
þessi sár en því hefur verið fleygt að
hugsanlega hefði Uday sjálfur ráðið
sér bana þegar honum var orðið ljóst
að hann ætti enga undankomuleið.
Fulltrúar Bandaríkjahers sögðu
að líkin yrðu geymd í frysti á al-
þjóðaflugvellinum í Bagdad þar til
einhver ættingi gerði kröfu til
þeirra. Viðræður hafa þó staðið yfir
við fulltrúa framkvæmdaráðs Íraks,
sem nýverið var sett á laggirnar, um
hvernig unnt er að varðveita líkin í
samræmi við trúarsiði múslíma.
Einn úr læknasveit Bandaríkja-
hers sagði að lík Udays og Qusays
hefðu hlotið sömu meðhöndlun og öll
önnur. Er gert ráð fyrir að loka-
skýrsla um dauða bræðranna liggi
fyrir innan sex vikna. Fréttamenn
fengu m.a. að sjá járnbita sem skurð-
læknar fjarlægðu úr líki Udays, en
bitanum var komið fyrir í fæti hans í
skurðaðgerð árið 1996, sem fram-
kvæmd var eftir að reynt var að ráða
hann af dögum. Læknar sögðu enn-
fremur að krufning hefði leitt í ljós
að bræðurnir hefðu verið við góða
heilsu þegar þeir féllu í skot-
bardaganum á þriðjudag.
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hefur varið
myndbirtingu af líkum Udays og
Qusays en sagði þó að ákvörðun þar
að lútandi hefði ekki verið auðveld.
Mikilvægt væri hins vegar fyrir
Íraka að sjá með eigin augum að þeir
væru liðnir fyrir fullt og allt.
Fréttamönnum leyft að sjá snyrt lík bræðranna Udays og Qusays Husseins
Bandaríkjaher leggur allt
kapp á að sannfæra Íraka
Bagdad. AP, AFP.
AP
Bagdad-búar fylgjast með útsendingu arabísku Al-Jazeera-stöðvarinnar á myndum af líkum sona Saddams í gær.
SÆNSKA lögreglan kvaðst í gær
hafa fengið upplýsingar um að fyrr-
verandi upplýsingamálaráðherra
Íraks, Mohamm-
ed Said al-Sahaf,
sem uppnefndur
var „kotroskni
Ali“, hafi verið
bendlaður við
óupplýst morð á
landflótta, írösk-
um útsendara í
Stokkhólmi 1985.
Sahaf varð
sendiherra í Sví-
þjóð skömmu eftir að útsendarinn,
Majid Husain, var myrtur, en Husa-
in hafði leitað hælis í Svíþjóð og
hugðist veita upplýsingar um leyni-
þjónustukerfi Saddams Husseins,
þáverandi Íraksforseta, í Evrópu, að
því er Svenska Dagbladet segir.
„Við fengum ábendingu um það
(...) að ráðlegt væri að yfirheyra
[Sahaf],“ sagði yfirmaður rannsókn-
arlögreglunnar í Stokkhólmi, Bo Is-
aksson. „Við munum kanna málið, en
teljum það ekki áríðandi.“
Síðast sást til Sahafs er hann kom
til Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna 11. júlí og sagðist hann þá ætla
að dvelja þar ásamt fjölskyldu sinni.
Hann er ekki á lista Bandaríkja-
manna yfir eftirlýsta, íraska emb-
ættis- og ráðamenn.
Majid Husain hvarf í janúar 1985
og fannst lík hans í mars s.á., hlutað í
54 parta í tveim ferðatöskum.
„Kotroskni Ali“
bendlaður við morð
Stokkhólmi. AFP.
Sahaf
SENDIHERRA Sádi-Arabíu í
Bandaríkjunum brást í gær ókvæða
við aðdróttunum um að sádi-arabísk
stjórnvöld kunni að hafa komið ná-
lægt undirbúningi hryðjuverkaárás-
anna 11. september 2001. Sagði hann
aðdróttanir þessa efnis, sem er að
finna í rannsóknarskýrslu Banda-
ríkjaþings um aðdraganda hryðju-
verkanna er birt var í fyrradag, vera
„algerlega rangar“.
Sendiherrann, Bandar bin Sultan
prins, segir í yfirlýsingu vegna þing-
skýrslunnar að strikað hafi verið yfir
þá kafla í skýrslunni þar sem fjallað
væri um hugsanlegan þátt sádi-arab-
ískra stjórnvalda vegna þess að ekki
hefði reynzt unnt að færa trúverðug
rök fyrir þess háttar aðdróttunum.
Hvíta húsið hefur neitað að aflétta
leynd af 28 síðum í skýrslunni, en sú
ákvörðun hefur verið harðlega gagn-
rýnd af þingmönnum á Bandaríkja-
þingi.
Liður í áætlun um að knýja
fram stjórnarfarsbreytingar?
Sádi-arabískir stjórnmálaskýr-
endur segja aðdróttanirnar í banda-
rísku rannsóknarskýrslunni vera lið
í tilraun „hauka í Washington“ til að
auka pólitískan þrýsting á stjórnvöld
í Riyadh og knýja jafnvel fram álíka
róttæka breytingu á stjórnarháttum
þar og Bandaríkjamenn eru nú búnir
að ná fram í Írak.
„[Haukarnir] vonast til að það sem
gerðist í Afganistan og Írak gerist
líka í Sádi-Arabíu. Þeir vilja róttæk-
ar, algerar breytingar. Það er þess
vegna sem þeir beina spjótum sínum
að konungdæminu,“ tjáði sádi-arab-
íski stjórnmálafræðingurinn Turky
al-Hamad AFP-fréttastofunni.
Sádar
reiðast
aðdrótt-
unum
Washington, Riyadh. AFP.