Morgunblaðið - 26.07.2003, Page 19
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 19
LANDIÐ
ÞAÐ er óhætt að segja að mikið hafi
gengið á á svæði mótorkrossmanna í
Ólafsfirði síðustu daga. Kannski ætti
frekar að segja fyrrverandi svæði
mótorkrossmanna, því lögreglan
hefur nú að tilskipan sýslumanns
lokað svæðinu.
Forsaga málsins er sú að sænskur
mótorkrossþjálfari, Martin Dygd,
var fenginn til Ólafsfjarðar til að
kenna. Æfingar hófust á laugardags-
morgun og stóðu eitthvað fram á
dag, en þá mætti lögreglan á svæðið
og krafðist þess að æfingin yrði
stöðvuð.
Að sögn Helga Reynis Árnasonar,
mótorkrosskappa í Ólafsfirði var það
gert á þeim forsendum að það væru
ekki öll hjólin skráð, og ekki allir
ökumenn með skírteini, en slíkt segir
Helgi að ekki þurfi í lokuðum braut-
um. Mótorkrossmenn mótmæltu því
að æfingin yrði stöðvuð, og var m.a.
Helgi Reynir handtekinn. Hann
neitaði að svara spurningum lög-
reglu nema hafa lögfræðing sinn hjá
sér, en var þá sleppt. Æfingunni var
síðan haldið áfram eins og ekkert
hefði í skorist til kvölds. Um kl. 23:00
á laugardagskvöld mætti lögreglan á
svæðið og lokaði því með borðum, og
eftir því sem næst verður komist
verður það ekki opnað aftur.
„Við fluttum síðan æfinguna á
sunnudaginn til Akureyrar, og þar
var engin lögregla að amast við okk-
ur, enda virðast gilda aðrar reglur í
Ólafsfirði en annars staðar á land-
inu,“ segir Helgi Reynir. „Það hefur
allt verið reynt af hálfu yfirvalda hér
til að stoppa okkur af, og nú virðist
það hafa tekist.“
Höfðu ekki tilskilin leyfi
Ástríður Grímsdóttir, sýslumaður
segir að leyfi fyrir brautinni í Ólafs-
firði sé skilyrðum háð, þ.e. að ein-
göngu sé ekið á tímabilinu frá 13:00-
19:00, að menn séu með ökuréttindi
og á skráðum hjólum. Brautin sé
ótryggð, og því var þetta samkomu-
lag gert á sínum tíma til þess að eldri
ökumenn gætu notað hana.
Á laugardaginn voru þarna yngri
krakkar að aka, og fór lögreglan á
staðinn til að kanna hvort farið væri
eftir settum reglum. Svo reyndist
ekki vera og því var leyfið fyrir
brautinni afturkallað, eftir að
ábyrgðarmaður neitaði að fara eftir
ábendingum lögreglu. Þeir hefðu
hins vegar getað sótt um leyfi fyrir
því að láta yngri krakka aka í braut-
inni, en þá þurfa tryggingar að vera
fyrir hendi.
Stjórn MSÍ (Mótorsamband Ís-
lands) hefur ákveðið að funda um
málefni Ólafsfirðinga.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Martin Dygd sýnir hér áhugamönnum hvernig á að bera sig að.
Mótorkrosssvæðinu
í Ólafsfirði lokað
Ólafsfjörður
HANDKNATTLEIKSDEILD
kvenna hjá ÍBV hélt sinn árlega
bryggjudag sl. laugardag í ein-
muna blíðu og muna elstu Eyja-
menn ekki annað eins í mörg ár.
Slíkur var hitinn að fólk klæddist
að suðrænum sið í nokkra daga
kringum síðustu helgi. Mikið var að
gera hjá handknattleiksfólkinu við
sölu á alslags sjávarfangi og var
verðið á afurðunum ekki til þess að
hrinda fólki frá. Að sögn Hlyns Sig-
marssonar frá handknattleiksdeild-
inni tókst bryggjudagurinn með
eindæmum vel, enda gátu gestir
skemmt sér við músík í kaffitjaldi
þar sem boðið var upp á kaffi og
meðlæti.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Bryggjudagar í
blíðskaparveðri
Vestmannaeyjar
FJÖLBREYTTUR heimilisiðnað-
ur svo sem vefnaður, prjónaðar
peysur, vettlingar, húfur, sokkar,
sjöl og dúkar einkenna verslun
Kaðlín handverkshópsins á Húsa-
vík sem nú hefur starfað í nítján
ár og verið með sölustarfsemi allt
frá árinu 1994.
Það er margt forvitnilegt sem
laðar að ferðamennina í hand-
verkshúsið en þeir nú flykkjast í
bæinn enda fjölgar aðkomufólki
gríðarlega yfir sumarið og margir
líta við bæði til þess að skoða og
versla t.d. ullarvörur, ýmislegt úr
roði, tré og hrosshári; einnig
heimagerðar sultur, fjallagrös,
handunnin kort o.m.fl. Þá hafa
leyndarmálakrúsir og lopapeysur
á dúkkuna „Baby-born“ vakið at-
hygli.
Handverksverslunin er í Pakk-
húsinu sem er eitt af gömlu húsum
Kaupfélags Þingeyinga sem búið
er að endurbyggja og þar er búið
að innrétta bæði vinnuaðstöðu og
aðstöðu til þess að reka verslun
enda húsið á mjög góðum stað í
miðbænum.
Þarna gefur m.a. að líta vefstól
sem oft er unnið í og á verslunar-
tíma má sjá ýmsar vinnuaðferðir
við handverk sem margir hafa
gaman af að kynnast og prjónað
er og heklað eftir því sem tími er
til á milli þess sem rætt er við við-
skiptavinina.
Kaðlín handverkshópurinn
samanstendur af 14 konum í bæn-
um og skiptast þær á að vera í
búðinni sem er opin alla daga vik-
unnar yfir sumarið.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Elín Jónasdóttir handverkskona með prjónana fyrir utan verslun Kaðlíns.
Kaðlín handverkshús
með margt á boðstólnum
Laxamýri. Morgunblaðið.
Við verðkönnun á bætiefnum kom í ljós að verð á fjölda bætiefna var miklu lægra í
Heilsuhúsinu en í matvöruverslunum, lyfjabúðum og öðrum sérverslunum. T.d. var verð
á Ester-C vítamíni næstum þrisvar sinnum dýrara í sumum lyfjabúðum og stórmörkuðum
en í Heilsuhúsinu. Gerðu verðsamanburð!
Ester-C (kalsíum pólýaskorbat) inniheldur C-vítamín í margs konar formi og er
því talað um það sem fjöl-askorbat (pólýaskorbat). Það inniheldur askorbat,
dehydróaskorbat (það form sem C-vítamín þarf að breytast í, áður en frumur
líkamans geta tekið við því), og önnur náttúruleg form C-vítamíns sem henta
líkamanum.
Einkaleyfi er á framleiðslu Ester-C. Það er ekki súrt eins og C-vítamín er annars,
hefur svipað sýrustig og eimað vatn og áreitir því meltingarfærin afar lítið.
- Líkaminn nýtir hærra hlutfall af Ester-C en öðru C-vítamíni.
- Frásogast tvöfalt hraðar en kalsíum askorbat
- Það helst í líkamanum og nýtist honum tvöfalt lengur en venjuleg askorböt
- Það hækkar C-vítamín magn í vefjum fjórfalt meira en venjulegt C-vítamín
- Það hækkar C-vítamín magn í blóði tvöfalt á við kalsíum askorbat
Ester-C vítamín
Nature‘s Bounty
Solgar
Now
Solgar
Solgar
Costmedic
90
50
90
50
50
64
kr. 1.295,-
kr. 1.659,-
kr. 1.431,-
kr. 1.745,-
kr. 1.665,-
kr. 1.422,-
131%
11%
143%
131%
54%
Nánari upplýsingar um Ester-C
má finna á www.heilsa.is
HÆTTULEGAR eftirlíkingar
af þekktu áfengi eru í umferð í
Finnlandi. Einn maður hefur
látist og nokkrir veikst alvarlega
eftir neyslu eftirlíkinga af meðal
annars Absolut vodka og Capta-
in Morgan rommi. Einn maður í
Noregi er í öndunarvél af sömu
sökum. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá ÁTVR. Í
eftirlíkingunum er meðal annars
tréspíri og frostlögur.
„Ekki er ástæða til að óttast
vöru sem seld er eftir viður-
kenndum leiðum og hægt er að
rekja beint til framleiðanda,“
segir í tilkynningunni. Öll vara
sem seld er í ÁTVR er keypt af
viðurkenndum umboðsaðilum
og fer í gegnum strangt gæða-
eftirlit. Munu verslanir aðeins
taka við skilum eftirfarandi teg-
unda gegn framvísun kassa-
kvittunar og eftir nákvæma
skoðun.
Umboðið fylgist vel með
Umboð beggja tegunda er
Karl K. Karlsson hf. Í fréttatil-
kynningu frá fyrirtækinu segir
að eftirlíkingarnar séu fram-
leiddar í Eistlandi. Beinir um-
boðið eindregnum tilmælum til
neytenda og veitingahúsa að
beina viðskiptum sínum einung-
is til viðurkenndra framleiðenda
og söluaðila. Á heimasíðu fyrir-
tækisins, www.karlsson.is, eru
upplýsingar um merkingar teg-
undanna svo neytendur geti full-
vissað sig um að vera með
ósvikna vöru undir höndum.
Svikið
romm og
vodka