Morgunblaðið - 26.07.2003, Qupperneq 38
ÍÞRÓTTIR
38 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÓLAFUR Stefánsson, leikmaður með Magde-
burg, sem var útnefndur handknattleiks-
maður ársins í Þýskalandi tvö ár í röð, 2001 og
2002, missti nafnbótina besti leikmaður
Þýskalands til Christian Schwarzer, Lemgo,
sem fékk 77 atkvæði. Markus Baur, félagi
hans hjá Lemgo, var annar með 34 atkvæði og
síðan kom Ólafur með 20 atkvæði.
Schwarzer var í efsta sæti hjá 13 þjálfurum
og átta fyrirliðum. Ólafur var í fyrsta sæti hjá
tveimur þjálfurum, Ross hjá Eisenach og Fitz-
ek hjá Göppingen – og tveimur fyrirliðum,
Wolf hjá Grosswallstadt og Köhrmann hjá
Wilhelmshavener. Það var handknattleiks-
blaðið Handball Magazin sem sá um kjörið, en
fyrst var útfefnt 1998. Þá varð Daniel Steph-
an, Lemgo, fyrir valinu, 1999 Kyung-Shin Yo-
on, Gummersbach, 2000 Magnus Wislander,
Kiel og Ólafur síðan tvö ár í röð.
MICHAEL Phelps frá Bandaríkjunum virðist vera óstöðvandi á
heimsmeistaramótinu í sundi því hinn 18 ára gamli Phelps setti
tvö heimsmet í gær. Það fyrra í undanúrslitum í 100 metra flug-
sundi og það síðara í úrslitasundi í 200 metra fjórsundi þar sem
hann bætti eigið heimsmet. Phelps náði ótrúlegum tíma í 200
metra fjórsundi og kom í mark á 1.56,04 mín en gamla heims-
metið sem hann setti sl. fimmtudag var 1.57,52 mín.
Ian Thorpe frá Ástralíu varð á 1.59,66 mín og ólympíu- og
heimsmeistari Massimiliano Rossi frá Ítalíu þriðji á 1.59,71 mín.
Phelps hefur sett fjögur heimsmet í Barcelona, í 200 metra fjór-
sundi í tvígang, í 200 metra flugsundi og 100 metra flugsundi.
Úkraínumaðurinn Andrii Serdinov setti heimsmet í undan-
úrslitum í 100 metra flugsundi á HM í gær er hann kom í mark á
51,76 sekúndum en hann fékk aðeins að njóta áfangans í um 5
mínútur því Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps bætti metið í
síðari undanúrslitariðlinum er hann synti á 51,47 sekúndum. Það
má því búast við mikilli baráttu á milli þeirra Serdinov og Phelps í
úrslitasundinu sem fram fer í dag.
Amanda Beard jafnaði heimsmetið í 200 metra bringusundi er
hún vann gullverðlaun á HM í Barcelona í dag en hún synti á
2.22,99 mínútum.
Phelps slær í gegn
á HM í Barcelona
HEIMIR Ríkharðsson, þjálfari
unglingalandsliðsins í handknatt-
leik, skipað leikmönnum undir 19
ára aldri, hefur valið leik-
mannahóp sinn, sem tekur þátt í
lokakeppni Evrópukeppni lands-
liða. Keppnin hefst í Slóvakíu 8.
ágúst. Tólf þjóðir taka þátt í EM
og verður leikið í tveimur riðlum
og síðan um sæti – sigurvegarar
riðlana um gull. Ísland er í riðli
með Ungverjalandi, Slóvakíu,
Þýskalandi, Rússlandi og Slóven-
íu. Leikmanahópur Heimis er
Björgvin Gústavsson, HK og
Pálmar Pétursson, Val, mark-
verðir. Aðrir leikmenn eru: Árni
Björn Þórarinsson, KA, Árni Þór
Sigtryggsson, Þór, Ásgeir Örn
Hallgrímsson, Haukar, Arnór
Atlason, KA, Ingvar Árnason,
Val, Andri Stefan, Haukum, Jó-
hann Gunnar Einarsson, Fram,
Davíð Guðnason, Víkingi, Ragnar
Hjaltested, Víkingi, Einar Ingi
Hrafnsson, UMFA, Hrafn Ingv-
arsson, UMFA, Kári Kristján
Kristjánsson, ÍBV, Sigfús Páll
Sigfússon, Fram, og Ívar Grét-
arsson, Selfossi.
Heimir hefur valið
sextán Slóvakíufara
kom hingað og það er að klára mót-
ið vel.“ Hún spilaði fyrri níu holur
vallarins á pari en var á einum yfir
á seinni níu og kom inn með mjög
góðan hring, 71 högg sem setur
hana í forystusætið með fjögurra
högga forystu. Hún bætti sig um
sex högg milli daga og segir sitt-
hvað hafa fallið sér í hag seinni dag-
inn. „Ég var reyndar að tapa högg-
um í röffinu sem er þungt á
vellinum, tvö högg fóru bara í það
að koma sér aftur á braut en ég sló
nokkur góð upphafshögg og eins
inn á grínin þannig að það var eig-
inlega allt svona nokkuð gott hjá
mér í dag. Svo voru líka að detta
pútt, ég fékk tvö góð ofan í í dag
sem vantaði alveg í gær og ætli það
sé ekki meginmunurinn á spila-
mennskunni í dag og í gær.“ Hún
Efstur var Birgir Leifur Haf-þórsson GKG á 67 höggum en
fast á hæla hans kom núverandi Ís-
landsmeistari Sigurpáll Sveinsson
GA Á 68 höggum. Síðan komu þeir
Örn Ævar Hjartarson GS, Magnús
Lárusson GKJ, Davíð Már Vil-
hjálmsson GKJ og Ólafur Már Sig-
urðsson GK allir á 69 höggum. Á
öðrum degi lék Birgir Leifur svo á
65 höggum og er því átta undir pari
þegar mótið er hálfnað. Í öðru sæti
er svo Magnús Lárusson GKJ sem
spilaði mjög vel á öðrum degi, 66
höggum og er þremur höggum á
eftir Birgi. Sigurpáll er svo í þriðja
sæti á fjórum undir pari. Þeir þrír
hafa skorið sig talsvert frá hinum
keppendunum og stefnir í einvígi
þeirra á milli síðustu tvo daga móts-
ins. Reyndar skal ekki afskrifa þá
Björgvin Sigurbergsson GK, Ólaf
Má Sigurðsson GK og Örn Ævar
Hjartarson GS sem eru þar á eftir.
Nú hefur keppendum verið fækkað
úr 98 í 72 og var hæsta skor sem
slapp í gegnum niðurskurðinn heil-
um 29 höggum frá efsta sætinu.
sagði að heldur minni vindur hafi
verið fyrri níu holurnar í gær. „Svo
þarf maður bara að venjast vell-
inum og ná mesta stressinu úr sér,
það er alltaf mest á fyrsta hring í
svona móti.“ Mikið hefur verið rætt
um rigninguna sem spáð hefur ver-
ið en hefur ekki látið sjá sig á
Heimaey það sem af er. „Það er
bara fínt ef það fer að rigna, þá
reynir vel á það sem ég hef verið að
æfa mig í.“ Hún bar vellinum vel
söguna. „Hann er alveg virkilega
góður og ég hef aldrei spilað völlinn
í Eyjum svona góðan, hann Alli
(Aðalsteinn Ingvarsson vallarstjóri)
er greinilega að gera frábæra hluti
hérna og fær hann tíu fyrir það,“
sagði Ólöf.
Björgvin slapp
við niðurskurð
Gauti Grétarsson úr Nesklúbbn-
um var sá kylfingur sem „slapp síð-
astur í gegnum hliðið“ þegar kepp-
endafjöldi í karlaflokki á
Íslandsmótinu var skorinn niður.
Alls voru 94 sem tóku þátt en 72 fá
að leika tvo síðustu keppnisdagana.
Það voru engin „stór nöfn“ sem
féllu úr leik að þessu sinni en þeir
sem léku á 21 höggi yfir pari eða
minna komust áfram. Þar má nefna
Björgvin Þorsteinsson, GA, sem er í
þessum hópi en hann er sexfaldur
Íslandsmeistari og keppir í fertug-
asta skipti á Íslandsmóti að þessu
sinni. Úlfar Jónsson, GK, er einnig
sexfaldur Íslandsmeistari en hann
er samtals sex höggum yfir pari og
í hópi tuttugu efstu sem stendur.
Allir keppendur í kvennaflokki,
alls 16 keppendur, fá að leika næstu
tvo daga en þar rekur fyrrum Ís-
landsmeistari í golfi lestina, Steinun
Sæmundsdóttir úr GK.
„Vertu þolinmóður,“ gæti Elísabet Halldórsdóttir, unnusta
Birgis Leifs Hafþórssonar, verið að segja í Eyjum í gær.
Birgir Leifur og Ólöf
María byrja vel í Eyjum
Morgunblaðið/Sigfús Guðmundsson
Björgvin Þorsteinsson, margfaldur meistari á árum áður, komst
í gegnum niðurskurðinn á 40. Íslandsmóti hans frá upphafi.
VEÐRIÐ hefur leikið við þátttak-
endur í Íslandsmótinu í höggleik
sem haldinn er í Vestmanna-
eyjum þessa helgi og völlurinn í
sínu besta ástandi í mörg ár.
Þáttakendur eru þó í færri kant-
inum, 98 þátttakendur skráðu
sig til leiks í karlaflokki og að-
eins 18 í kvennaflokki. Allir
fremstu kylfingar landsins létu
sig þó ekki vanta og þeirra á
meðal atvinnumennirnir Birgir
Leifur Hafþórsson og Örn Ævar
Hjartarson. Byrjað var að keppa
á fimmtudag og komu sjö leik-
menn í karlaflokki inn á skori
undir pari vallarins.
Í kvennaflokki voru þrjár stúlkur
efstar og jafnar eftir fyrsta daginn
á 77 höggum, þær Ólöf María Jóns-
dóttir og Þórdís Geirsdóttir úr GK
og Nína Björk Geirsdóttir úr GKJ.
Ólöf María spilaði svo feikna vel á
öðrum degi og kom inn á 71 höggi
og samanlagt á 148. Hún náði fjög-
urra högga forystu en í öðru sæti er
Ragnhildur Sigurðardóttir GR á
152 höggum og í því þriðja Þórdís
Geirsdóttir á 154 höggum. Flestar
stúlkurnar bættu skor sitt frá fyrri
degi og enn allt opið í kvenna-
flokknum.
Ólöf María segir að forysta sín
eftir tvo daga skipti litlu, enda nóg
eftir af mótinu. „Ég ætla bara að
halda áfram að slá eitt högg í einu
og halda þolinmæðinni en takmark-
ið hjá mér er það sama og þegar ég
FÓLK
GIANFRANCO Zola, 37 ára, sem
er orðinn vinsælasti leikmaður
Cagliari á Ítalíu, var heldur betur á
skotskónum í sínum fyrsta leik með
liðinu – hann skoraði fjögur mörk í
æfingaleik gegn Rap Valgusana,
11:0. Vinsældir Zola eru það miklar
að menn fjölmenna á æfingar til að
sjá listamanninn æfa sig í að taka
aukaspyrnur.
STOKE hefur kallað hollenska
markvörðinn Raimond van der
Gouw, 40 ára, til æfinga. Hann var í
herbúðum West Ham sl. keppnis-
tímabil, en nú samningslaus. Hann
lék eitt sinn með Man. Utd.
ALLT bendir nú til að Fernando
Hierro, 35 ára, sem var í herbúðum
Real Madrid, sé á förum til Qatar til
að leika knattspyrnu.Þar í landi
leika margir gamalkunnir leik-
menn, eins og Gabriel Batistuta,
Stefan Effenberg og Frank Lebo-
euf.
SYLVAIN Distin verður fyrirliði
enska úrvalsdeildarliðsins Man-
chester City á komandi leiktíð.
Distin tekur við hlutverkinu af Ali
Bernabia, sem hætti að leika með
liðinu fyrr í þessari viku.
ANNA Kournikova, tenniskona
frá Rússlandi, mun ekki taka þátt í
Opna bandaríska meistaramótinu
sem fram fer í næsta mánuði. Ko-
urnikova er meidd í baki. Brott-
hvarf hennar frá mótinu er móts-
höldurum mikið áfall því hún er afar
vinsæl í Bandaríkjunum.
BROTTHVARF Kournikovu er
ekki eina áfallið fyrir keppnina.
Bandaríkjamaðurinn Pete Sampr-
as, sem sigraði í fyrra, mun heldur
ekki taka þátt. Sampras hefur lítið
æft í ár og segist skorta hungrið til
að fara að æfa aftur af krafti.
ALEKSANDAR Linta, sem lék
þrjá leiki með Skagamönnum í
efstu deild karla í sumar, er geng-
inn til liðs við Víking Ólafsvík sem
leikur í 3. deild.
ÞÝSKI kylfingurinn, Bernhard
Langer, verður fyrirliði Evrópu-
liðsins í næstu Ryderkeppni sem
fram fer í Bandaríkjunum á næsta
ári. Langer tekur við starfi Sam
Torrance sem leiddi Evrópu til sig-
ur í fyrra gegn Bandaríkjunum á
Belfry-vellinum á Írlandi í fyrra.
HAL Sutton verður hinsvegar
fyrirliði Bandaríkjamanna, sem
vilja eflaust ná fram hefndum.
MIKIL leikmannaskipti urðu í
gær í NBA-deildinni í körfubolta
þar sem þrjú lið skiptu á fimm leik-
mönnum. Sacramento fær stjörnul-
iðs miðherjann Brad Miller frá In-
diana. Indiana fær Scot Pollard frá
Sacramento og Danny Ferry frá
San Antonio. Þá fær San Antonio
Tyrkjann, Hedo Turkoglu frá
Sacramento og Ron Mercer frá
Indiana.
Ólafur Stefáns-
son í þriðja sæti
í Þýskalandi