Morgunblaðið - 26.07.2003, Page 39
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 39
Öllum þátttakendum er boðið í pastamáltíð í
Laugardalshöll 15. ágúst nk. kl. 18:00-21:00.
Skráning og upplýsingar á
MARGIR af leikmönnum norska úr-
valsdeildarliðsins Lyn í knattspyrnu
eru ósáttur við þjálfara liðsins, Teit
Þórðarson, og segir í fréttum út-
varpsstöðvarinnar P4 í Noregi í gær
og einnig í sjónvarpsfréttum TV2 að
upplausnarástand ríki í herbúðum
liðsins. TV2 segir í frétt sinni að fyr-
ir æfingu liðsins á föstudag hafi
Teitur safnað saman leikmönnum á
fund úti á æfingasvæði liðsins þar
sem Teitur sagði m.a. að fjórir leik-
menn liðsins hefðu ekki verið meidd-
ir eins og þeir sögðust vera fyrir leik
liðsins í bikarkeppninni gegn Rosen-
borg.
Lyn tapaði leiknum 5:0.
Leikmennirnir Jonny Hanssen,
Thomas Lagerlöf, Jan Derek Søren-
sen og Thomas Andre Ødegaard
voru á meiðslalista félagsins fyrir
leikinn en þeir gengu út af æfingu
liðsins fyrr í vikunni án skýringa.
TV2 segir ennfremur að Teitur
hafi hækkað röddina svo um munaði
á þessum fundi og að leikmennirnir
fjórir hafi svarað fyrir sig fullum
hálsi.
Lyn varð í öðru sæti deildarinnar
á síðustu leiktíð en Teitur tók við
sem þjálfari liðsins sl. haust og hefur
náð 16 stigum í hús þegar 13 um-
ferðum er lokið.
TV2 telur sig hafa heimildir fyrir
því að margir af leikmönnum liðsins
vilji að Teitur verði ekki þjálfari liðs-
ins áfram en hvorki Teitur, leik-
menn né forráðamenn liðsins tjáðu
sig við norska fjölmiðla í gær um
málið.
Leikmenn Lyn
vilja losna við Teit
Birgir Leifur spilaði frábært golf áöðrum degi Íslandsmótsins og á
tímabili voru menn farnir að tala um
nýtt vallarmet en það
á Helgi Dan Steins-
son GS sem fór á 63
höggum á stigamóti
GSÍ í fyrra. Hann tók
metið einmitt af Birgi Leifi sem hafði
farið á 64 höggum. En honum tókst
ekki að slá vallarmetið en kom engu
að síður inn á frábæru skori, 65 högg-
um og þriggja högga forysta stað-
reynd þegar mótið er hálfnað. „Já, ég
er mjög sáttur við spilamennskuna og
er bara að uppskera það, að ég hef æft
stíft að undanförnu og er búinn að
koma mér í gírinn. Síðasta vika var
einnig góð hjá mér og það er ágætt að
vita að maður er ekki búinn að gleyma
henni, ég hef greinilega náð að vista
þetta eitthvað á harða diskinn og vona
að það verði þar lengi.“
Birgir var sex undir pari þegar tólf
holur voru búnar en á síðustu sex hol-
unum, sem margir telja að séu hol-
urnar sem eiga eftir að ráða úrslitum í
Eyjum enda erfiðasti partur vallar-
ins, fékk hann tvo skolla og missti af
tækifærinu á vallarmeti. „Ég fékk
skolla á fimmtándu og sautjándu og
það var frekar klaufalegt hjá mér, ég
þrípúttaði fimmtándu og missti stutt
pútt á þeirri sautjándu en í heildina
var þetta mjög gott, ég setti niður tvö
góð pútt og spilaði bara nokkuð stöð-
ugt. Ég tók allar ákvarðanir rétt í dag
og fylgdi því, stundum liggur það ekki
alveg fyrir manni en það gerði það í
dag og það var sérstaklega ánægju-
legt að hafa klárað á fugli á átjándu.“
Birgir Leifur sagði að veðrið hafi ver-
ið mun betra en hann hafi átt von á
enda gáfu veðurspár ekki til kynna þá
blíðu sem leikið hefur við kylfinga
fyrstu tvo keppnisdagana. „Þetta er
algjör bónus, maður var nokkrum
sinnum á „snús“ takkanum á vekjara-
klukkunni í morgun enda bjóst maður
við rigningu en þetta er búið að vera
flott hvað hefur ræst úr veðrinu.“
Birgir Leifur segist ánægður með
þær breytingar sem gerðar hafa verið
á vellinum. „Það er búið að þrengja
hann talsvert og vallarstarfsmenn
hafa aðeins sleppt sér í röffunum en
mér finnst það bara gott mál, þú þarft
að vera beinn til þess að geta skilað
góðum bolta á flatirnar. Völlurinn er
bara frábær.
Ég reikna nú með að mótið vinnist
á skori undir pari en veðrið getur auð-
veldlega sett þar strik í reikninginn,
en maður er svo sem ekkert að hugsa
um það heldur tekur eitt högg í einu,“
sagði Birgir Leifur.
Guðmundur sagði að hápunkturmótsins væri koma Jóns Arn-
ars Magnússonar, tugíþrótta-
manns, og Þóreyjar Eddu Elís-
dóttur, stangarstökkvara. „Það er
mjög spennandi að fá þau hingað
heim og eykur áhugann á mótinu.
Það verður gaman að sjá hvort
Þóreyju Eddu takist að setja Ís-
lands- og Norðurlandamet í stang-
arstökki. Auðvitað munu aðstæður
skipta miklu máli en ef þær verða
ágætar þá geta áhorfendur búist
við miklu af Þóreyju Eddu, sem
hefur stokkið mjög vel að und-
anförnu og hefur reglulega stokkið
yfir 4.40 á þessu tímabili.
Magnús Aron reynir við
HM-lágmark í kringlukasti
Auk þeirra þá verður athyglis-
vert að fylgjast með Magnúsi
Aroni kringlukastara. Hann er sí-
fellt að reyna við lágmarkið fyrir
heimsmeistaramótið sem er í
næsta mánuði í París og vonandi
tekst honum ætlunarverk sitt í
Borgarnesi.
Þá hafa Sunna Gestsdóttir og
Silja Úlfarsdóttir verið mjög
sterkar í sumar. Ég gæti alveg
trúað því að Sunna kæmist nálægt
Íslandsmetinu í langstökki. Að
undanförnu hefur hún verið að
skipa sér í hóp þeirra bestu í Evr-
ópu í langstökki.
Kynslóðaskipti
Ákveðin kynslóðaskipti eru í
frjálsum íþróttum á Íslandi í dag.
Það er af sem áður var þegar við
áttum mikið af góðum kösturum,
en í staðinn hefur orðið uppsveifla
í öðrum greinum í kjölfar góðs ár-
angurs Jóns Arnars, Völu Flosa-
dóttur og Þóreyjar Eddu á erlend-
um vettvangi,“ sagði Guðmundur
Karlsson.
Tímaseðill meistaramótsins er í
dálknum Um helgin á bls. 40.
Meistaramót Íslands í frjálsum
íþróttum í Borgarnesi
Koma Jóns
Arnars og
Þóreyjar Eddu
hápunkturinn
MEISTARAMÓT Íslands í frjálsum íþróttum fer fram á Skallagríms-
velli í Borgarnesi um helgina og hefst það í dag. „Mér líst mjög vel á
meistaramótið nú í ár. Það verður eflaust fullt af heimafólki úr
Borgarnesi að horfa á og ég er sannfærður um að það verði góð
stemmning á staðnum. Oft er meira fjör þegar mótin eru haldin fyrir
utan Stór-Reykjavíkursvæðið,“ sagði Guðmundur Karlsson, lands-
liðsþjálfari, sem spáði í spilin fyrir meistaramótið.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þórey Edda Elísdóttir.
Morgunblaðið/Sigfús Guðmundsson
„Sigurkossinn“? Birgir Leifur sem er efstur á Íslandsmótinu
smellir „einum“ á kylfuberann Elísabetu Halldórsdóttur.
„Mjög sáttur
við spila-
mennskuna“
BIRGIR Leifur Hafþórsson virðist kunna vel við sig í Eyjum en síðast
þegar keppt var í Vestmannaeyjum, árið 1996, sigraði hann með
nokkrum yfirburðum. Það var síðast þegar Birgir Leifur keppti á Ís-
landsmótinu og miðað við byrjunina hjá honum ætti hann vel að
geta endurtekið leikinn frá 1996.
Eftir
Sigursvein
Þórðarson
FÓLK
EIÐUR Smári Guðjohnsen skor-
aði eitt af mörkum Chelsea, sem
lagði landslið Malasíu að velli í móti
í Malasíu, 4:1. Hann kom inná sem
varamaður þegar á 60. mín. Chelsea
mætir Newcastle í úrslitaleik.
ÁSDÍS Hjálmsdóttir, Ármanni,
kastaði kringlu 40,57 m á Evrópu-
meistaramóti unglinga, 19 ára og
yngri, í Tampere í Finnlandi í gær.
Ásdís hefði þurft að kasta fimm
metrum lengra til að komast í úrslit.
ÁSDÍS keppir í spjótkasti í dag
eins og Sigrún Fjeldsted, FH.
BIRGIR Guðjónsson, formaður
tækninefndar Frjálsíþróttasam-
bands Íslands, er eftirlitsdómari á
mótinu í Tampere.
SVEINN Margeirsson, UMSS,
varð áttundi í 3000 m hindrunar-
hlaupi á alþjóðlegu móti í Karlstad í
Svíþjóð á tímanum 9.12,61 mín.
KOLBRÚN Ýr Kristjánsdóttir,
sundkona frá Akranesi, varð 25 af
56 keppendum í undanrásum í 50
metra flugsundi á heimsmeistara-
mótinu í Barcelona í gær – á 28,61
sek.
HEIÐAR Ingi Marinósson, SH,
varð 62. af 165 keppendum í und-
anrásum í 50 metra skriðsundi á
24,02 sek.
JENS Lehmann, markvörður hjá
Dortmund, gekk til liðs við Arsenal
í gær, eftir að hann hafði staðist
læknisskoðun. Hann mun hitta leik-
menn Arsenals í æfingabúðum í
Austurríki á morgun. „Ég get ekki
annað en fagnað því að vera genginn
til liðs við Arsenal, sem er eitt besta
lið Evrópu og með því leika margir
frábærir knattspyrnumenn,“ sagði
hinn 33 ára Lehmann eftir að hann
hafði staðist læknisskoðun.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenals, var einnig ánægður,
þegar hann tjáði sig um Lehmann –
eftir að Arsenal vann Austria Vín í
æfingaleik í gær, 2:0. Dennis Berg-
kamp og Francic Jeffers skoruðu
mörkin. „Það er mikill styrkur fyrir
okkur að fá Lehmann, sem er frá-
bær markvörður.“
PEIRSOL frá Bandaríkjunum
sigraði í úrslitasundi í 200 metra
baksundi í gær en hann sigraði einn-
ig í 100 metra baksundi. Peirsol er
ólympíumeistari í greininni og kom í
mark á tímanum 1.55,92 mín., Kró-
atinn Gordan Kozulj varð annar á
1.57,42 mín en bronsið fékk Frakk-
inn Simon Dufour sem var á tím-
anum 1.57,90 mín.
GRANT Hackett sigraði í 800
metra skriðsundi karla og Finnar
fengu sitt fyrsta gull frá upphafi á
HM í sundi þegar Hanna-Maria
Seppala kom fyrst í mark í 100
metra skriðsundi. Hin 18 ára gamla
Seppala varð 11. í sömu grein á EM
fyrir ári.