Morgunblaðið - 26.07.2003, Side 40
ÍÞRÓTTIR
40 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
Þór frá Akureyri komst í annaðsæti 1. deildar í knattspyrnu er
þeir lögðu HK að velli í gær með
þremur mörkum
gegn einu.
Fyrri hálfleikur
var tíðindalítill til að
byrja með og liðin
skiptust á að sækja án þess að skapa
sér umtalsverð færi. Gísli Ólafsson
var með varnarmönnum Þórs til að
byrja með, hann komst í ágætt færi á
10. mínútu sem Atli Már Rúnarsson í
marki Þórs varði í horn. Leikurinn
var í jafnvægi og fátt markvert gerð-
ist allt fram að 34. mínútu þegar
Freyr Guðlaugsson fékk boltann úti
við hægri hornfána, lék á varnar-
mann HK, þá út í teig og skaut loks
fram hjá Gunnleifi Gunnleifssyni í
marki HK og kom Þórsurum yfir,
1:0. Hörður Már Magnússon fékk
ákjósanlegt færi til að jafna metin
mínútu síðar en Atli Már sá við hon-
um. Þórsarar sóttu stíft það sem eft-
ir lifði hálfleiksins en þeim tókst ekki
að auka forystuna áður en flautað
var til leikhlés.
Þórsarar voru betri aðilinn í seinni
hálfleik og juku forystu sína sann-
gjarnt á 65. mínútu þegar Alexander
Santos afgreiddi fyrirgjöf Péturs
Kristjánssonar í netið. Gestirnir
gerðust einum of værukærir eftir
markið og það nýttu leikmenn HK
sér og minnkuðu muninn í 2:1. Þar
var að verki Hörður Már en skot
hans hafði viðkomu í varnarmanni á
leið sinni í mark Þórs. HK lagði allt í
sölurnar til þess að jafna metin á
kostnað varnarinnar og það gátu
Þórsarar notfært sér á 90. mínútu
þegar Jóhann Þórhallsson innsiglaði
sigur gestanna og skoraði þriðja
mark Þórs og sitt 13. á tímabilinu.
Hlynur Birgisson og Pétur Kristj-
ánsson áttu fínan leik fyrir Þór, einn-
ig var Jóhann Þórhallsson áberandi
en hann fór þó illa með nokkur prýð-
isgóð færi. Hjá HK átti Hörður Már
góðan leik og Gísli Ólafsson var
áberandi í fyrri hálfleik.
Maður leiksins:
Hlynur Birgisson.
KNATTSPYRNA
Laugardagur.
2. deild karla:
Fjölnisvöllur: Fjölnir - Sindri ...................14
Helgafellsvöllur: KFS - KS .......................16
Framvöllur: Léttir - Völsungur ................16
1. deild kvenna B:
Sindravellir: Sindri - Fjarðabyggð ...........14
Ólafsfj.: Leiftur/Dalvík - Höttur ...............16
Sunnudagur.
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
KR-völlur: KR - Fram ..........................19.15
3. deild karla A:
Fífan: Drangur - Grótta.............................13
Torfnesvöllur: BÍ - Víkingur Ó. ................14
1. deild kvenna B:
Sauðárkrókur: Tindastóll - Höttur...........14
Mánudagur:
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Hlíðarendi: Valur - FH .........................19.15
1. deild kvenna A:
Kópavogur: HK/Vík. - Þrótt./Haukar 2 ...20
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Meistaramót Íslands fer fram í Borgarnesi
í dag og á morgun, sunnudag.
Undankeppni hefst kl. 10 báða dagana. Öll
úrslit, nema í sleggjukasti, fara fram kl. 14–
16 báða daga, eins og sést hér á tímaseðli
mótsins.
Laugardagur:
14.00 Spjótkast kvenna
14.00 Langstökk karla
14.00 Stangarstökk karla
14.00 100 m grindahlaup kvenna - Úrslit
14.10 110 m grindahlaup karla - Úrslit
14.20 100 m hlaup kvenna - Undanúrslit
14.30 100 m hlaup karla - Undanúrslit
14.40 3000 m hindrunarhlaup karla
14.55 100 m hlaup kvenna - Úrslit
15.00 100 m hlaup karla - Úrslit
15.00 Langstökk kvenna
15.00 Hástökk karla
15.00 Spjótkast karla
15.10 400 m hlaup kvenna
15.15 400 m hlaup karla
15.20 1.500 m hlaup kvenna
15.30 1.500 m hlaup karla
15.45 4x100 m boðhlaup karla
15.55 4x100 m boðhlaup kvenna
Sunnudagur:
14.00 Kringlukast kvenna
14.00 400 m grindahlaup karla
14.00 Þrístökk karla
14.00 Stangarstökk kvenna
14.00 Kúluvarp karla
14.10 400 m grindahlaup kvenna
14.15 800 m hlaup karla
14.20 800 m hlaup kvenna
14.30 200 m hlaup karla - Úrslit
14.35 200 m hlaup kvenna - Úrslit
14.40 5000 m hlaup karla
15.00 Kúluvarp kvenna
15.00 Hástökk kvenna
15.00 Þrístökk kvenna
15.00 Kringlukast karla
15.05 3000 m hlaup kvenna
15.25 4x400 m boðhlaup karla
15.45 4x400 m boðhlaup kvenna
GOLF – Einherjar keppa
Golfmót Einherja verður á Bakkakotsvelli í
Mosfellsbæ á morgun, sunnudag. Ræst
verður út frá kl. 9 til 12. Sagt er að Ein-
herjaklúbburinn sé vinsælasti golfklúbbur
landsins. Aðeins lítill hluti þeirra sem leika
golf komast í hann eða einungis þeir sem
hafa farið holu í höggi.
UM HELGINA
KNATTSPYRNA
1. deild karla:
Haukar – Víkingur R. ..............................0:0
Leiftur/Dalvík – Njarðvík.......................6:6
William Geir Þorsteinsson 27., Guðmundur
Kristinsson 29., Zeid Yasin 39.,
Árni Thor Guðmundsson (víti) 50., Ingvi
Hrafn Ingvason 65., sjálfsmark 75. -
Óskar Örn Hauksson 4., 64., 72., Marteinn
Guðjónsson 6., Gunnar Örn
Einarsson 62., Kristinn Magnússon 83.
HK – Þór ....................................................1:3
Hörður Már Magnússon 75. - Freyr Guð-
laugsson 34., Alexandre Santos 65., Jóhann
Þorhallsson 90.
Keflavík – Breiðablik...............................3:1
Hörður Sveinsson 26., Magnús Þorsteins-
son 88., Zoran Ljubicic 90. - Ívar Sigurjóns-
son 34.
Staðan:
Keflavík 11 8 2 1 29:12 26
Þór 11 6 3 2 26:18 21
Víkingur R. 11 5 5 1 14:7 20
Haukar 11 4 3 4 15:15 15
Stjarnan 11 3 5 3 15:16 14
HK 11 4 2 5 14:16 14
Njarðvík 11 3 3 5 22:24 12
Afturelding 11 3 2 6 13:22 11
Breiðablik 11 3 1 7 10:16 10
Leiftur/Dalvík 11 2 2 7 16:28 8
2. deild karla:
Tindastóll – Selfoss ..................................2:1
Kristinn Tóbías Björgvinsson 58., Kristmar
Geir Björnsson 68. - Jón Guðbrandsson 19.
Staðan:
Völsungur 11 8 1 2 36:18 25
Fjölnir 11 7 2 2 32:16 23
Selfoss 12 7 1 4 28:16 22
Tindastóll 12 6 1 5 22:22 19
KS 11 5 3 3 20:17 18
Víðir 12 5 2 5 15:16 17
ÍR 12 5 1 6 22:22 16
KFS 11 4 1 6 25:31 13
Léttir 11 2 1 8 9:39 7
Sindri 11 0 3 8 15:27 3
3. deild karla A:
Bolungarvík – Víkingur Ó. .......................1:4
Deiglan – Númi..........................................0:2
Staðan:
Víkingur Ó 10 8 2 0 35:10 26
Númi 11 7 3 1 32:21 24
Skallagr. 11 6 2 3 27:18 20
BÍ 11 5 2 4 23:25 17
Drangur 9 3 1 5 19:28 10
Grótta 10 2 2 6 13:15 8
Bolungarvík 11 2 1 8 22:37 7
Deiglan 11 2 1 8 16:33 7
3. deild karla B:
Ægir – Afríka.............................................3:1
Staðan:
Leiknir R. 10 9 1 0 50:5 28
Reynir S. 10 8 2 0 39:5 26
Árborg 10 5 2 3 36:19 17
ÍH 10 5 1 4 21:19 16
Freyr 10 5 0 5 18:29 15
Hamar 10 2 1 7 11:40 7
Ægir 10 1 1 8 10:41 4
Afríka 10 1 0 9 6:33 3
3. deild karla C:
Magni – Hvöt .............................................5:2
Neisti H. – Snörtur....................................5:4
Staðan:
Vaskur 11 8 1 2 32:14 25
Magni 11 6 2 3 30:17 20
Reynir Á 11 6 2 3 20:16 20
Hvöt 11 4 3 4 23:14 15
Neisti H. 11 3 2 6 23:31 11
Snörtur 11 0 2 9 13:49 2
3. deild karla D:
Einherji – Neisti D....................................4:1
Huginn – Fjarðabyggð .............................0:3
Staðan:
Fjarðabyggð 11 8 0 3 28:12 24
Höttur 11 6 2 3 20:13 20
Huginn 11 5 0 6 21:25 15
Neisti D. 10 4 1 5 15:23 13
Leiknir F. 11 4 0 7 22:26 12
Einherji 10 3 1 6 14:21 10
Opna Norðurlandamótið
Keppni kvennalandsliða, skipað leikmönn-
um undir 21 árs, í Danmörku:
A-RIÐILL:
Ísland - Danmörk ......................................0:2
Noregur - Bandaríkin ...............................1:1
Bandaríkin 3 2 1 0 5:1 7
Danmörk 3 2 1 1 3:2 4
Noregur 3 0 3 0 3:3 3
Ísland 3 0 1 2 1:6 1
Ísland leikur við Finna á morgun um 7.
sæti.
B-RIÐILL:
Grikkland - Þýskaland ..............................0:1
Svíþjóð - Finnland .....................................1:1
Svíþjóð 3 2 1 0 4:1 7
Þýskaland 3 2 0 1 5:1 6
Grikkland 3 1 0 2 2:4 3
Finnland 3 0 1 2 2:7 0
GOLF
Íslandsmótið í höggleik – í Vestmannaeyj-
um. Listinn yfir þá kylfinga sem hafa náð
bestum árangri eftir tvo keppnisdaga. Alls
komust 73 kylfingar áfram eftir tvo daga úr
karlaflokki, 162 högg eða minna.
KARLAR
Birgir L. Hafþórsson, GKG ....132 (65-65) -8
Magnús Lárusson, GKj...........135 (66-66) -5
Sigurpáll Geir Sveinss., GA ....136 (68-68) -4
Björgvin Sigurbergsson, GK......140 (69-71)
Ólafur Már Sigurðsson, GK........141 (69-72)
Örn Ævar Hjartarson, GS ..........141 (69-72)
Birgir M. Vigfússon, GR .............143 (72-71)
Heiðar Davíð Bragason, GKj......143 (72-71)
Davíð Már Vilhjálmsson, GKj ....143 (69-74)
Guðmundur I. Einarsson, GR ....144 (73-71)
Kristinn G. Bjarnason, GKG ......144 (70-74)
Hjalti Atlason, GOB ....................145 (72-73)
Brynjólfur E. Sigmarss., GKG ...145 (71-74)
Haraldur H. Heimisson, GR.......145 (71-74)
Úlfar Jónsson, GK .......................145 (72-73)
Sigurjón Arnarsson, GR .............146 (74-72)
Björn Þór Hilmarsson, GR .........146 (71-75)
Willy Blumenstein Vald., GL......147 (76-71)
Stefán Orri Ólafsson, GL ............147 (76-71)
Júlíus Hallgrímsson, GV.............147 (75-72)
Þorsteinn Hallgrímsson, GR ......147 (75-72)
Helgi Dan Steinsson, GS.............147 (73-74)
Sveinn Sigurbergsson, GK .........147 (71-76)
Viggó H. Viggósson, GR .............147 (71-76)
Sturla Ómarsson, GR ..................147 (74-73)
Örlygur Helgi Grímsson, GV......147 (74-73)
Sigurþór Jónsson, GK .................148 (74-74)
Jóhannes K. Ármannsson, GL....149 (76-73)
Karl Haraldsson, GV...................149 (78-71)
Davíð Jónsson, GS .......................150 (75-75)
Ólafur H. Jóhannesson, GSE......150 (76-74)
Pétur Óskar Sigurðsson, GR ......150 (79-71)
Ottó Sigurðsson, GKG.................150 (77-73)
Nökkvi Gunnarsson, NK.............150 (75-75)
Gunnar Þór Gunnarss., GKG......150 (72-78)
KONUR
Ólöf María Jónsdóttir, GK ........ 148 (77-71)
Ragnhildur Sigurðard., GR ....... 152 (78-74)
Þórdís Geirsdóttir, GK ............... 154 (77-77)
Nína Björk Geirsdóttir, GKJ .... 155 (78-77)
Anna Lísa Jóhannsd., GR .......... 157 (79-78)
Katrín Dögg Hilmarsd., GKJ .... 157 (78 79)
Helena Árnadóttir, GA .............. 158 (77 81)
Helga R. Svanbergsd., GKJ ...... 159 (80 79)
Tinna Jóhannsdóttir, GK ........... 172 (87 85)
Karlotta Einarsdóttir, GKJ ....... 174 (88 86)
Snæfríður Magnúsd., GKJ ........ 181 (86 95)
Anna J. Sigurbergsd., GK .......... 183 (95 88)
Þórsarar í
annað sætið
Benedikt Rafn
Rafnsson
skrifar
Gestirnir byrjuðu leikinn meðlátum og voru komnir í 2:0
eftir sex mínútur. Fyrsta markið
var afar glæsilegt
en þá skoraði hinn
18 ára Óskar Örn
Hauksson með skoti
frá miðju og tveim-
ur mínútum síðar lagði hann upp
mark fyrir Martein Guðjónsson.
Það tók heimamenn nokkurn tíma
að koma sér inn í leikinn en þeir
jöfnuðu með tveimur mörkum á
tveggja mínútna kafla eftir hálftíma
leik. Zeid Yasin kom þeim svo yfir
á 39. mínútu með flugskalla eftir
hornspyrnu. Staðan í hálfleik var
því 3:2. Í síðari hálfleik virtust
heimamenn ætla að taka leikinn í
sínar hendur og þeir bættu við
marki á 50. mínútu úr vítaspyrnu.
Raunin varð þó önnur og enn á ný
komu tvö mörk á tveimur mínútum,
það síðara skoraði Óskar Örn með
skoti upp í samskeytin. Njarðvík-
ingar voru enn að fagna jöfnunar-
marki sínu þegar Leiftur/Dalvík
geystist í sókn og komst aftur yfir,
5:4. Nokkru síðar jafnaði Óskar
Örn aftur með enn einu lang-
skotinu, stöngin inn. Heimamenn
komust yfir skömmu síðar með
sjálfsmarki gestanna og þá voru
fimmtán mínútur eftir. Það var svo
Kristinn Magnússon sem átti síð-
asta markið og jafnaði hann leikinn
í 6:6. Njarðvíkingar voru svo nærri
búnir að tryggja sér sigurinn
skömmu fyrir leikslok en Sævar
Eysteinsson, markvörður norðan-
pilta, varði vel í þrígang.
Sanngjarnt jafntefli varð niður-
staðan og liðin eiga hrós skilið fyrir
frábæra skemmtun.
Maður leiksins: Óskar Örn
Hauksson, Njarðvík.
Markaregn
á Dalvík
ÞAÐ var boðið upp á sannkallaða markaveislu á Dalvík í gær í full-
komnu knattspyrnuveðri. Þar voru Njarðvíkingar í heimsókn og áð-
ur en yfir lauk hafði hvort lið skorað sex mörk. Leiftur/Dalvík situr
því sem fastast á botni deildarinnar en Njarðvíkingar eru skammt
undan og í bullandi fallhættu.
Einar
Sigtryggsson
skrifar
Leikurinn byrjaði mjög vel. Bæðiliðin áttu hörkuskot að marki
strax á upphafsmínútunum – fyrst
var það Stefán
Gíslason fyrir Kefl-
víkinga, en fyrir
gestina var það
Kristófer Sigur-
geirsson sem skaut rétt framhjá.
Liðin skiptust á að sækja og voru
að spila mjög skemmtilega knatt-
spyrnu í fyrri hálfleik. Á 26. mínútu
fengu Keflvíkingar hornspyrnu.
Haraldur Guðmundsson og Stefán
Gíslason stukku manna hæst í víta-
teignum en náðu þó ekki að gera
sér mat úr spyrnunni. Knötturinn
datt inn í markteig og þar var
Hörður Sveinsson vel vakandi og
náði að skora, 1:0. Á 34. mín. náðu
Blikar að skora eftir hornspyrnu,
1:1. Þar var að verki Ívar Sig-
urjónsson, en hann nýtti sér varn-
armistök Keflvíkinga. Eftir að gest-
irnir náðu að jafna leikinn róaðist
leikurinn. Þau færi sem heimamenn
fengu, stöðvuðust flest í höndum
Páls Gísla Jónssonar, markvarðar
Breiðabliks, sem átti mjög góðan
leik.
Seinni hálfleikur var mjög bragð-
daufur. Keflvíkingar voru meira
með knöttinn, en sköpuðu sér fá
færi. Það var á síðustu 10. mín-
útunum sem leikurinn fór aftur í
gang. Þá voru Keflvíkingar mun
hættulegri. Besta færi Blikanna var
þegar Hörður Bjarnason komst
einn inn fyrir vörn Keflvíkinga eftir
glæsilegan einleik, en Ómar Jó-
hannsson, markvörður Keflvíkinga,
kom á réttum tíma út úr markinu
og varði vel skot Harðar. Á 88. mín-
útu lék Magnús Þorsteinsson í
gegnum vörn Breiðabliks og skor-
aði fallgegt mark, 2:1. Gestirnir úr
Kópavogi sóttu hart að marki Kefl-
víkinga undir lokin. Þeir fengu
hornspyrnu á síðustu mínútu leiks-
ins. Keflvíkingar náðu knettinum
og Guðjón Antoníusson sendi hann
fram völlinn. Þar var Þórarinn
Kristjánsson einn á auðum sjó. Þór-
arinn lék á markvörð Blikanna, sem
felldi hann inni í teig. Gylfi Orra-
son, ágætur dómari leiksins, dæmdi
vítaspyrnu og gaf Páli markverði
rautt spjald. Úr vítaspyrnunni
skoraði Zoran Ljubicic, 3:1.
Í liði gestanna var Páll Gísli
markvörður mjög góður. Þá áttu
þeir Sævar Pétursson og Kristófer
Sigurgeirsson ágætan leik. Í sókn-
inni hjá Blikum bar einna mest á
Ívari Sigurjónssyni og Herði
Bjarnasyni, eftir að hann kom inn
á.
Í liði heimamanna áttu þeir Stef-
án Gíslason og Jónas Sævarsson
mjög góðan leik. Jónas var mjög
vinnusamur á miðjunni. Scott
Ramsey sýndi oft ágæta takta.
Magnús Þorsteinsson var sprækur í
framlínunni eins og Þórarinn, eftir
að hann kom inn á. Þá áttu varn-
armenn Keflvíkinga góðan leik.
Maður leiksins: Jónas Sævarsson
Keflavík
Æsispennandi
lokasprettur
KEFLVÍKINGAR fögnuðu sigri á Blikum í Keflavík í gærkvöldi og má
segja að þeir hafi landað sigrinum á æsispennandi lokamínútum
fyrir áhorfendur. Þeir skoruðu tvö síðustu mörkin á tveimur síðustu
mín. leiksins, 3:1. Keflvíkingar halda öruggri forustu í 1. deild en
liðið er með 26 stig að loknum 11 umferðum en Þór frá Akureyri er
þar næst í röðinni með 21 stig. Staða Breiðabliks er hinsvegar verri
en liði er í fallsæti með 10 stig en Leiftur/Dalvík er þar fyrir neðan
með átta stig.
Atli
Þorsteinsson
skrifar
Ljósmynd/Árni Torfason
Stefán Gíslason lék vel í liði
Keflvíkinga.