Morgunblaðið - 16.08.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, þáverandi
borgarstjóri í Reykjavík, fór í opinbera heim-
sókn til Winnipeg haustið 2000 og er Glen
Murray meðal annars að endurgjalda þá heim-
sókn en hann fer aftur til Kanada 21. ágúst.
,,Tilgangurinn er líka að styrkja tengsl þessara
vinaborga og tíminn er valinn með Menning-
arnótt Reykjavíkur og afmælis borgarinnar í
huga, en markmiðið með heimsókninni er einnig
að fylgja eftir heimsókn Gary Doers, forsætis-
ráðherra Manitoba, til Íslands fyrir tveimur ár-
um,“ segir Glen Murray í samtali við Morg-
unblaðið.
Samvinna í vetnismálum
Nýting Íslendinga á endurnýjanlegum orku-
gjöfum, þ.e. á vatnsorku og jarðvarma, og vetn-
isrannsóknir þeirra hafa vakið athygli víða er-
lendis og ekki síst í Kanada, en forystumenn í
Manitoba og á Íslandi eru m.a. í samstarfi í
þeim málum.
,,Orkumálin eru okkur mjög hugleikin og
ekki síst vetnismálin,“ segir Glen Murray, sem
er 41. borgarstjóri Winnipeg og hefur verið
borgarstjóri síðan 1998 en heimsækir vinaborg-
ina á Íslandi í fyrsta sinn. Winnipeg, sem heldur
upp á 130 ára afmæli sitt í ár, á 11 vinaborgir
víðs vegar um heiminn og var fyrsti samningur
þess efnis undirritaður við Setagaya í Tókýó
1970 en ári síðar var sambærilegur samningur
gerður í annað sinn og þá við Reykjavík.
,,Fulltrúar okkar voru í Reykjavík viðstaddir
opnun fyrstu vetnisstöðvar heims á almennings-
bensínstöð í apríl sem leið og við fylgjumst
grannt með tilraununum með vetnisknúna al-
menningsvagna í Reykjavík enda stefnum við
að því að koma á nýju og breyttu orkukerfi
varðandi almenningsvagna í Winnipeg. Við eig-
um samleið í þessum tæknimálum og viljum efla
þetta samstarf því Ísland er almennt við-
urkennt víða um heim sem leiðandi ríki í skiln-
ingi á nýtingu á hreinni orku og tækni í þeim
efnum.“
Menningarborgir
Wanda Koop er einn virtasti myndlist-
armaður Kanada og í tilefni afmælis Reykjavík-
urborgar færir Glen Murray fyrir hönd Winni-
peg Reykjavík verk eftir hana að gjöf.
,,Winnipeg er viðurkennd sem ein helsta menn-
ingarborg Kanada,“ segir hann. ,, Í því sam-
bandi má nefna að við eigum einn besta ball-
ettflokk landsins, sinfóníuhljómsveit okkar
nýtur mikillar hylli og almennt listalíf er í há-
vegum haft, en listastarfsemin er meiri en í
nokkurri borg af sambærilegri stærð í Kanada.
Reykjavík hefur verið ein af menningarborgum
Evrópu og í menningunni liggja leiðir okkar
saman að mörgu leyti eins og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir lagði áherslu á í heimsókn sinni til
Manitoba fyrir nær þremur árum.“
Glen Murray segir að menningin skipti miklu
máli fyrir borgir og íbúa þeirra og hafi mikið að
segja í lífi hvers einstaklings. Því
þurfi að leggja þessum málum lið
en Winnipeg og Reykjavík vinni
saman á ýmsum sviðum og mik-
ilvægt sé að treysta það samstarf.
,,Ég hef til dæmis áhuga á að
koma á einhvers konar borg-
arstarfsmannaskiptum. Það gæti
verið gagnlegt fyrir fólk í sam-
göngumálum okkar að kynnast
vetnistilraununum í Reykjavík og
eins gætu starfsfélagar þeirra í
Reykjavík lært af því sem við er-
um að fást við í samgöngumálum
borgarinnar og verður tekið í
gagnið á næsta ári.“
Fulltrúi næstfjölmennasta
íslenska samfélagsins
Um þessar mundir stendur yfir þjóðahátíð í
Winnipeg en íbúar frá meira en 50 ríkjum búa í
borginni. Þjóðabrotin greina frá menningu sinni
á ýmsan hátt og eru Norðurlöndin saman að
þessu leyti í ,,Norræna húsinu“ í Winnipeg. ,,Því
miður er ég ekki af íslenskum uppruna en ég er
fulltrúi fleiri Íslendinga og hef verið kosinn af
fleiri Íslendingum en nokkur annar borgarstjóri
í heiminum fyrir utan borgarstjórann í Reykja-
vík,“ segir Glen Murray. ,,Því ber ég ábyrgð
gagnvart Íslendingum og tek þá ábyrgð mjög
alvarlega. Íslendingar hafa alltaf gegnt mik-
ilvægu hlutverki í Winnipeg og Manitoba og Ís-
lendingar hafa lagt mikið til mála í borginni og
fylkinu. Tengslin við Ísland eru því mikilvæg og
ekki síst tengslin milli vinaborganna Winnipeg
og Reykjavíkur. Heimsókn mín til Íslands gerir
mér vonandi kleift að skilja betur íslenskt sam-
félag og þar með að þjóna betur íslenska sam-
félaginu hérna.“
Glen Murray bendir á að samvinnan milli
Winnipeg og Reykjavíkur og reyndar annarra
erlendra borga hafi í raun ekki verið mikil í
gegnum tíðina að undanskildu
tímabili í tíð Williams Norries sem
borgarstjóra í Winnipeg 1979 til
1992. Á þessu hafi orðið breyting
á nýliðnum árum. ,,Ég hef lagt
mikla áherslu á menningar-
samvinnu við vinaborgirnar og við
erum að opna alþjóðaskrifstofu,
þá fyrstu í sögu borgarinnar, í
þeim tilgangi, en Bill Norrie, fyrr-
verandi borgarstjóri, veitir henni
forstöðu. Nefnd fulltrúa, sem eiga
ættir að rekja til vinaborganna,
hefur verið skipuð, og við leggjum
150.000 kanadíska dollara (um
7,25 millj. kr.) í ár til þessa mála-
flokks. Í þessu sambandi má
nefna að við veittum Sinfón-
íuhljómsveit Íslands 40.000 doll-
ara styrk (um 2,2 millj. kr.) vegna hljómleika-
ferðar hennar hingað árið 2000. Við höfum
styrkt aðra íslenska listamenn en þetta er í
fyrsta sinn sem skipulagt verkefni í þessa veru
er í gangi. Í mínum huga skiptir miklu máli að
borgir hafi hlutverki að gegna í alþjóðavæðing-
unni og opnun þessarar alþjóðaskrifstofu er leið
til þess. Heimurinn verður æ borgarvæddari og
í mörgum tilvikum eru borgir þekktari en ríki
þeirra. Mikil bein viðskipti eiga sér stað á milli
borga og Reykjavík er mikilvæg borg vegna
staðsetningar hennar á jarðarkringlunni,
nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum, lýð-
ræðislegra stjórnarhátta og hlutverks á alþjóð-
legum vettvangi. Samskipti Winnipeg við
Reykjavík skipta því miklu máli og í þessu al-
þjóðlega umhverfi hérna hefur mikið að segja
að geta sagt Íslendingadagurinn rétt og átaka-
laust rétt eins og það skiptir máli að virða rétt
allra, sama af hvaða uppruna þeir eru. Íbúar
Kanada eiga ættir að rekja til allra heimshorna
og þeir eiga allir sama rétt. Við virðum ekki að-
eins hvert annað heldur stöndum saman og
höldum upp á menningu hver annars saman.
Við borðum þjóðarréttina saman, skálum í þjóð-
ardrykkjum og skemmtum okkur saman.
Stundum getur verið erfitt fyrir Kanadamann
að útskýra fyrir erlendi fólki að hann sé frá
Kanada en af einhverjum öðrum uppruna. Ég
er til dæmis af úkraínskum og skoskum ættum í
móðurætt, en þó upprunalega írskur. Ég ólst
upp við að borða úkraínskan mat og þannig er
það í Kanada. Menningararfleifð forfeðranna
lifir hjá þegnum þessa ríkis sem annars eru
Kanadamenn. Íslensk menning og íslensk tunga
hafa varðveist vel í Winnipeg og í því sambandi
skiptir styrkur íslenskra stjórnvalda, Reykja-
víkurborgar og fleiri til íslenskudeildar
Manitobaháskóla og íslenska bókasafnsins við
háskólann miklu máli. Íslenska aðalræð-
ismannsskrifstofan í Winnipeg hefur líka mikið
að segja varðandi samskiptin. Hún gerir Ísland
sýnilegra í borginni rétt eins og opnun sendi-
ráðs Kanada í Reykjavík skiptir miklu máli fyrir
Kanada. Íslenska sendiráðið í Ottawa gegnir
veigamiklu hlutverki en það að hafa kanadískt
sendiráð í Reykjavík og íslenska aðalræð-
ismannsskrifstofu í Winnipeg auðveldar sam-
skipti borganna.“
Beint í skemmtiskokkið
Glen Murray segir að hann hafi farið víða en
tilhlökkunin hafi aldrei verið eins mikil og nú.
,,Ég er mjög spenntur enda eigum við svo
margt sameiginlegt. Mannréttindi eru í háveg-
um höfð hér sem þar og á þingi lúterska heims-
sambandsins í Winnipeg á dögunum var vel tek-
ið eftir röddum Íslands og Kanada.
Kvenréttindamál eru í góðum farvegi á báðum
stöðum og réttindi samkynhneigðra eru virt. Ég
hlakka því meira til þessarar heimsóknar en
annarra heimsókna til þessa.“
Áætlað er að Glen Murray og fylgdarlið lendi
í Keflavík í bítið en hann hefur í hyggju að taka
þátt í Reykjavíkur-maraþoninu sem hefst um
hádegisbil. ,,Ein besta leið til að komast yfir
flugþreytu er að hreyfa sig og því ætla ég að
taka þátt í 3 kílómetra skokkinu. Ég er reyndar
ekki hlaupari heldur hjólreiðamaður og hef hjól-
að héðan til Atlanta í Georgíu í Bandaríkjunum,
um 3.000 kílómetrar, og Kansas í Missouri til
Winnipeg, um 1.700 kílómetra. Hins vegar er ég
ekki í sömu æfingu nú og þegar ég hjólaði þess-
ar vegalengdir og geri mér því ekki miklar vonir
um sigur en vonandi veiti ég Þórólfi Árnasyni,
borgarstjóra í Reykjavík, einhverja keppni.“
Í fylgdarliði borgarstjóra eru Bill Clement
borgarfulltrúi, sem er af íslenskum ættum í
móðurætt og hefur m.a. með málefni íbúa af ís-
lenskum ættum að gera, Gordon Steeves, borg-
arfulltrúi og formaður vinaborganefndar Winni-
peg, Heather Mack, aðstoðarstarfsmannastjóri
borgarinnar, og Jason Stefanson viðskiptamað-
ur.
Glen Murray, borgarstjóri Winnipeg í Kanada, er í opinberri heimsókn í Reykjavík
Samvinna og
skemmtiskokk
Glen Murray, borgarstjóri Winnipeg í Kanada, kemur í
opinbera heimsókn til Reykjavíkur í dag, en Reykjavík
og Winnipeg eru vinaborgir. Steinþór Guðbjartsson hitti
borgarstjórann skömmu fyrir brottför frá Winnipeg.
Glen Murray, borg-
arstjóri í Winnipeg.
steg@mbl.is
FULLTRÚAR lesblind.com afhentu
formlega íslenska þýðingu bók-
arinnar „Náðargáfan lesblinda“ eft-
ir Ron Davis í Lágafellsskóla í Mos-
fellsbæ í gær. Lesblind.com hefur
ákveðið að gefa öllum grunn– og
framhaldsskólum landsins eintak af
bókinni, og tók menntamálaráð-
herra, Tómas Ingi Olrich, við fyrsta
eintakinu. Prentsmiðjan Oddi
styrkti útgáfu bókarinnar.
Að sögn Arnar Kjærnested, eins
aðstandenda lesblind.com, er al-
menn ánægja með útgáfu bók-
arinnar og kenningar Ron Davis um
lesblindu og möguleg úrlausnarefni
gagnvart henni. „Menntamálaráð-
herra sýndi málinu mikinn áhuga,
og er það mjög ánægjulegt. Sömu-
leiðis höfum við hjá Lesblind.com
orðið vör við mikinn áhuga á kenn-
ingum Ron Davis, og munu einir 12
skólar, til dæmis Smáraskóli í Kópa-
vogi og Lágafellsskóli í Mosfellsbæ,
nýta sér kenningar Davis strax í
haust,“ sagði Örn í samtali við Morg-
unblaðið.
Morgunblaðið/Kristinn
Axel Guðmundsson og Örn Kjærnested frá lesblind.com ásamt Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra.
Bók um lesblindukenningar Ron Davis á íslensku
Gefa eintak í alla skóla landsins
Í EFTIRLITSÁTAKI Vinnueftir-
litsins á byggingavinnustöðum í júní
sl. var vinna stöðvuð á tveimur vinnu-
stöðum og einn aðili kærður fyrir
vítavert gáleysi vegna mikils van-
búnaðar á vinnupöllum.
Heimsóttir voru 74 bygginga-
vinnustaðir á öllu landinu þar sem
samtals 1.453 starfsmenn voru að
störfum. Gerðar voru kröfur um
meiri eða minni úrbætur á 60 af þess-
um 74 stöðum. Umsjónaraðilar fengu
75 skrifleg fyrirmæli um það sem
betur má fara og 81 munnlega ábend-
ingu.
Vinnueftirlitið tekur þátt í evr-
ópsku eftirlitsátaki sem fram fer á
þessu og næsta ári. Alls taka 17 þjóð-
ir þátt í því; 15 aðildarríki ESB auk
Íslands og Noregs sem eru aðilar að
Evrópska efnahagssvæðinu.
Sigfús Sigurðsson, fagstjóri þró-
unar- og eftirlitsdeildar Vinnueftir-
litsins, segir mikið um slys í bygging-
ariðnaði í Evrópu. Um 1.300
dauðsföll verði af þeim völdum á ári
og því hafi ESB ákveðið að beina
sjónum sínum að þessum vinnusvæð-
um.
Eftirlit með fallvörnum
Eftirlitsátakið í Evrópu beindist
að fallvörnum þar sem starfsfólk er
að vinna í nokkurri eða mikilli hæð.
Varúðarráðstafanir voru athugaðar,
hvernig val, notkun og viðhald tækja
og búnaðar fór fram og hvort val á
undirverktökum réðst m.a. af því
hvernig öryggismálum þeirra var
háttað. Notkun og viðhald tækja var
kannað hér á landi í júní en hin atrið-
in verða skoðuð í september, um leið
og fyrri ábendingum verður fylgt eft-
ir.
Sigfús segir annan hluta átaksins
snúa að því hvort eftirlitsaðili hafi
verið skipaður á byggingarstað, ör-
yggis- og heilbrigðisáætlun gerð, til-
kynning send til Vinnueftirlitsins áð-
ur en verk hæfist og hvort
öryggishandbók lægi fyrir svo starfs-
menn gætu kynnt sér öryggismál.
„Stærri fyrirtæki uppfylla al-
mennt reglur og kröfur betur en
smærri fyrirtæki,“ segir Sigfús.
Þetta sé svipuð niðurstaða og fæst í
öðrum löndum Evrópu. Þegar fleiri
en 50 starfsmenn starfi hjá fyrirtæk-
inu séu öryggisskilyrði betur uppfyllt
og raunar batni ástandið til muna
þegar starfsmannafjöldinn sé kom-
inn yfir 20.
Sigfús segir að öryggi á vinnustað
hafi batnað mikið í byggingariðnaði á
undanförnum árum og margar lag-
færingar verið gerðar. Þetta átak
standi nú yfir og árið 2004 verði hald-
ið áfram í október.
Vinnueftirlitið í evrópsku eftirlitsátaki
Kærður vegna van-
búinna vinnupalla