Morgunblaðið - 16.08.2003, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 16.08.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2003 53 EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 1.30, 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára. ÁLFABAKKI Kl. 8 og 10. B.i. 16. KEFLAVÍK Sýnd kl. 2 og 4. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. Sýnd með íslensku tali KRINGLAN kl. 8 og 10.10. AKUREYRI Sýnd kl. 10. Stranglega bönnuð börnun innan 16 ára. Stórsmellur úr smiðju Jerry Bruckheimer og Disney sem stefnir hraðbyri að vera vinsælasta mynd sumarsins í USA. ll i j i i i i i l i í . Stórsmellur úr smiðju Jerry Bruckheimer og Disney sem stefnir hraðbyri að vera vinsælasta mynd sumarsins í USA. ll i j i i i i i l i í . 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2 KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL  SG DV  MBL KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.10 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2, 4 og 8. Enskt tal. AKUREYRI Sýnd kl. 2, 4, 6. Ísl tal KEFLAVÍK Sýnd kl. 2, 4, 6. Ísl tal AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 10 ára. ÁLFABAKKI Kl. 1.45, 3.45 og 5.50 KRINGLAN kl. 1.40, 3.45 og 5.50 AKUREYRI Sýnd kl. 2, 4, 6. KRINGLAN Sýnd kl. 3.45, 5.50 og 8. Frumsýning FRÁ FRAMLEIÐENDUM SHREK ATH! Munið eftir Sinbað litasamkeppninni á ok.is SG. DV SG. DVÓ.H.T Rás2 MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI FYRIR ýmsar sakir hefur dreg- ist úr hófi að fjalla um þennan geisladisk Ókindar sem kom út fyrir nokkru. Það er hið versta mál í sjálfu sér en þó aðallega fyrir það að færri en ella hafa haft af því spurnir hvílíkur afbragðsgripur hér er á ferð, enda er Ókind ein efni- legasta rokksveit sem starfandi er hér á landi í dag, svo mikið er víst. Ókindar er fyrst getið fyrir það er sveitin varð í öðru sæti á Mús- íktilraunum 2002 en Búdrýgindi sigruðu. Síðan hefur sveitin verið nokkuð dugleg við spilamennsku og sendi frá sér þann gæðadisk sem hér er gerður að umtalsefni. Sveitarmenn gefa diskinn út sjálfir og vinna að öllu leyti umbúðir og innihald, en platan er tekin upp í Grjótnámunni. Það eina sem er út á Heimsenda 18 að setja, og eins gott að koma því frá, er að hljómur á plötunni er full leðjulegur ef svo má segja („Hraðbanki“, eitt besta lag skíf- unnar, til að mynda, hefði orðið enn betri með smá snerpu í hljómnum). Hann er þó merkilega góður í ljósi þess að platan var tek- in upp á einni helgi – geri aðrir betur. Steingrímur Karl Trague er fyr- irtaks söngvari, að vísu með nokk- uð eintóna rödd, en er ófeiminn við að beita henni. Víst hefði hljóð- blöndun á röddinni mátt vera markvissari, en segja má að eitt helsta sérkenni Ókindar sé söngur Steingríms Karls svo hann á sér- stakt hrós skilið. Textarnir skrif- ast líka allir á hann og þeir eru misjafnir að gæðum, hnyttnir en ekki alltaf gott að greina innihald- ið. Sumir eru skemmtilega marg- ræðir, eins og til að mynda textinn við „Hraðbanka“. Þessi plata Ókindar er mikil gít- arplata, oft bráðskemmtilegt gít- arurg og gelt, trommu og bassa- leikur er hreint fyrirtak og í þeim lögum þar sem hljómborð fær að njóta sín lyftir það þeim til muna. Þeir Ingi Einar Jóhannesson gít- arleikari og Ólafur Freyr Frí- mannsson trommuleikari eiga báð- ir stjörnuleik á plötunni og Birgir Örn Árnason er framúrskarandi bassaleikari. Ókind er nokkuð sér á báti í ís- lensku nýbylgjurokki, þeir félagar bræða saman ólíka strauma, lag- línulegt gítarrokk og skemmtilega súra hljómborðskafla með góðum árangri, skapa eigin stíl. Dæmi eru inngangurinn að „Ókind“, einu besta lagi skífunnar, og síðan loka- kafli lokalagsins, „Snýtubréf“ sem stingur skemmtilega í stúf við það sem á undan er komið. Í sem fæstum orðum sagt: Heimsendi 18 er hreinasta afbragð og hljómsveitinni Ókind til sóma. Tónlist Sér á báti á heimsenda Ókind Heimsendi 18 Eigin útgáfa Heimsendi 18 með hljómsveitinni Ókind. Sveitina skipa þeir Ingi Einar Jóhann- esson gítarleikari, Steingrímur Karl Trague söngvari og hljómborðsleikari, Ólafur Freyr Frímannsson trommuleikari og Birgir Örn Árnason bassaleikari. Árni Matthíasson PILTARNIR í Jagúar hafa verið iðn- ir við kolann undanfarið. Væntanleg er 12 tommu vínyl-útgáfa með lög- um hljómsveitarinnar þar sem verða þrjú lög af síðustu plötu þeirra, Get the Funk Out, sem kom út árið 2001. „Aidan Gibson heitir maður sem er stjórnandi á klúbbnum Jass Café í Bretlandi þar sem við höfum spilað,“ segir Samúel Jón Samúelsson, bás- únuleikari hljómsveitarinnar. „Hann er að byrja með nýtt plötufyrirtæki, Freestyle Records, og þetta er fyrsta platan sem kemur út hjá þeim.“ Freestyle Records kemur til með að einbeita sér að 12 tommu útgáfu og kemur plata þeirra Jagúarliða út í Bretlandi og víðar, en áætlaður út- gáfudagur er 8. september. Sammi jánkar því að tónlist þeirra eigi vel heima á vínyl: „Það hefur alltaf staðið til að gefa næstu plötu okkar út á vínyl og jafnvel eldri plöt- ur líka. Maður nær líka ekki til þessa afmarkaða hóps plötusnúða og grúskara öðruvísi.“ Hljómsveitin vinnur að nýjum diski en Samúel segir ekkert ráðið með útgáfudag, þó stefnt sé á haust- mánuði. Framundan eru hjá hljóm- sveitinni tónleikar í Lundúnum í október, og hugsanlega í Bandaríkj- unum í september. Einnig munu þeir standa fyrir uppákomu á Airwaves tónlistarhátíðinni í samstarfi við fyrrnefndan djassklúbb Aidan Gib- son í Lundúnum. Í kvöld munu þeir taka þátt í Menningarnótt, en hljómsveitin fagnar einmitt 5 ára afmæli í dag enda tróðu þeir fyrst upp á Menn- ingarnótt árið 1998. „Við erum bún- ir að bjóða fyrrverandi meðlimum að spila,“ segir Samúel. „Við ætlum bara að hafa gaman af þessu og spila nýtt og gamalt efni í bland.“ Hljómsveitin Jagúar fagnar fimm ára afmæli og gefur út vínylplötu Fönkí í fimm ár Hljómsveitin Jagúar lék fyrst á Menningarnótt fyrir 5 árum. Tónleikar Jagúar á Menningarnótt verða í Þjóðleikhúskjallaranum og húsið opnað á miðnætti. asgeiri@mbl.is TOPP 20 mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.