Morgunblaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2003 9
ÍSLENSK hænsn eru litskrúðug
hvort sem er undir Eyjafjöllunum
eða annars staðar á landinu. Þessa
fugla fangaði fréttaritari við bæinn
Raufarfell og ekki var þvotturinn
síður litskrúðugur.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Litskrúðug hænsn
UMFJÖLLUN fjölmiðla og ásakan-
ir um aðgerðarleysi barnaverndar-
nefndar Vesturbyggðar og Tálkna-
fjarðarhrepps vegna kynferðis-
brotamáls þar sem karlmaður var
nýlega dæmdur í 3 ára fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn ungri stúlku, eru
á misskilningi byggðar, segir í
fréttatilkynningu barnaverndar-
nefndar.
„Í dómi Héraðsdóms Vestfjarða í
máli nr. S-53/2003 er rannsókn um-
rædds máls rakin. Þar kemur fram
að fórnarlamb kynferðisofbeldis
greindi hjúkrunarfræðingi frá kyn-
ferðislegri áreitni í viðtali 17. októ-
ber 2001. Jafnframt kemur fram, að
sú frásögn var ekki kærð til lögreglu
fyrr en eftir að barnaverndarnefnd
Vesturbyggðar og Tálknafjarðar-
hrepps ræður félagsráðgjafa að mál-
inu í apríl 2002. Ekki verður annað
séð af umræddum gögnum Héraðs-
dóms Vestfjarða en að barnavernd-
aryfirvöld hafi ekkert aðhafst frá 17.
október 2001 til þess tíma sem fé-
lagsráðgjafinn, fyrir hönd nefndar-
innar, kærir málið.
Enginn fulltrúi úr barnaverndar-
nefndinni var kallaður fyrir Héraðs-
dóm Vestfjarða vegna þessa máls en
látið duga að kalla fyrir réttinn fé-
lagsráðgjafann sem tók við málinu
frá því í apríl 2002. Því kemur hvergi
fram í gögnum dómsins að nefndin
vann í málinu frá fyrsta degi, þ.e. eft-
ir að hjúkrunarfræðingur kynnir
barnaverndarnefnd málið í fram-
haldi áðurnefnds viðtals 17. október
2001. Eðli málsins samkvæmt getur
barnaverndarnefnd ekki upplýst um
einstaka þætti starfa sinna frá því að
máli er skotið til hennar. Hins vegar
má upplýsa, að fulltrúi úr barna-
verndarnefnd kynnti málið fyrir
starfsmanni Barnaverndarstofu eft-
ir að nefndin var upplýst um málið
og leitað leiðsagnar. Leiðsögn starfs-
manns Barnaverndarstofu var fylgt.
Umfjöllun fjölmiðla og ásakanir
um aðgerðarleysi nefndarinnar
byggjast á orðanna hljóðan í dómi
Héraðsdóms Vestfjarða. Eins og að
framan er rakið eru þær ásakanir á
misskilningi byggðar,“ segir í frétta-
tilkynningunni.
Ásakanir um að-
gerðarleysi á mis-
skilningi byggðar
ENGIN stofnun innan heilbrigðis-
geirans hér á landi fæst á skipu-
lagðan hátt við svokallað öldrunar-
þunglyndi en talið er að um 5%
aldraðra þjáist af þunglyndi. Ásgeir
Bragason, öldrunargeðlæknir í Osló
og formaður öldrunardeildar norska
Geðlæknafélagsins, segir það vel
þekkt meðal geðlækna að þunglyndi
hjá eldra fólki sigli oft undir fölsku
flaggi. Sjúklingarnir eigi til að létt-
ast án þess að vitað sé af hverju,
auk þess sem gjarnan fylgi líkamleg
einkenni og verkir sem fólk kvarti
yfir í stað þess að viðurkenna að
það sé þunglynt.
Á nýafstöðnu geðlæknaþingi sem
haldið var í Reykjavík fjallaði Ás-
geir um uppbyggingu öldrunargeð-
þjónustu í Noregi undanfarin 30 ár.
Síðastliðin 10 ár hefur uppbygging-
in verið hröð og einungis tvö af 19
fylkjum bjóða ekki upp á slík úr-
ræði í dag. Mjög algengt er að á
hverju upptökusvæði séu reknar
bæði göngudeild og legudeild. Segir
Ásgeir að hvað Ísland snerti væri
unnt að reka tvær slíkar stofnanir
hér á landi miðað við mannfjölda.
Almennar bráðageðdeildir
of hávaðasamar
Hann segir margt mæla gegn því
að aldraðir séu meðhöndlaðir við
þunglyndi á almennum bráðageð-
deildum. Þær séu oftar en ekki
mjög illa búnar til að sinna gömlu
þunglyndu fólki, þær séu hávaða-
samar og oftast læstar auk þess
sem þær mótist oft af ungu fólki
með alvarleg vandamál en slíkt um-
hverfi geti í sumum tilvikum verkað
mjög ógnvekjandi á aldraða.
Hluti af þeim kjarnahópi sem
öldrunargeðdeildir í Noregi fást við
eru heilabilaðir með atferlisvanda-
mál og geðræn vandamál. Ásgeir
segir að þótt þessum hópi sé sinnt
hér á landi sé öldrunarþunglyndum
sjúklingum ekki sinnt sérstaklega. Í
Noregi hefur meðferð við þunglyndi
hjá öldruðum gefist vel. Stofnanirn-
ar eru reknar í náinni samvinnu við
ættingja og heilsugæslu og sjúk-
lingar að jafnaði útskrifaðir eftir
6–8 vikur.
Ásgeir segir algengt að þung-
lyndi komi upp hjá öldruðum um
leið og alvarlegir líkamlegir sjúk-
dómar. Vel þekkt sé hins vegar að
meðferð við þunglyndi bæti líkur
sjúklingsins hvað líkamlega sjúk-
dóma snertir.
„Það er mjög mikilvægt að þess-
ari meðferð sé beitt því þetta er
sjúkdómur sem getur hreinlega
leitt fólk til dauða og alls ekki alltaf
vegna sjálfsvígs heldur vegna þess
að fólk sveltir sig, það léttist og fær
líkamlega sjúkdóma í kjölfarið,“
segir Ásgeir Bragason.
Um 5% aldraðra þjást af þunglyndi
Ekki skipulögð með-
höndlun hérlendis
alltaf á föstudögum
Bankastræti 14, sími 552 1555
Buxur og vattkápur
með hettu frá
Þri. 26/8: Indverskur pottréttur og
gulrótarbuff m/fersku salati,
hrísgrjónum & meðlæti.
Mið. 27/8: Hnetusteik & Waldorfsalat
m/fersku salati, hrísgrjónum
og meðlæti.
Fim 28/8: Ítalskur pottréttur og
linsubuff m/fersku salati,
hrísgrjónum og meðlæti.
Fös. 29/8: Ofnbakað grænmeti og dahl
m/fersku salati, hrísgrjónum
og meðlæti.
Helgin 30. - 31/8: Gestakokkar töfra
fram kræsingar.
Mán. 1/9: Girnilegur
grænmetispottréttur.
Matseðill
www.graennkostur.is
Siffon skyrtur
Samkvæmis buxur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
Aðhald án sauma
Þú minnkar
um 1 númer
Póstsendum
Ný sending af síðbuxum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
Fataprýði
Verið velkomnar
Haustveisla
Öðruvísi fatnaður
Peysur • pils • buxur • jakkar •
töskur • klútar • húfur • hattar
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán.-fös. kl. 10-18 • lau. kl. 10-14.
Útijakkar - úlpur - vesti
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Tvíréttað í hádeginu
á aðeins 1.900 krónur
einnig þrírétta
matseðill
Kringlunni & Hamraborg
568 4900 552 3636
H
au
st
2
0
0
3
Laugavegi 63, sími 551 4422
HAUSTVÖRURNAR
KOMNAR