Morgunblaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Regal Princess og
Crystal Symphony
koma og fara í dag.
Helgafell og Hanseduo
koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Krylow kemur í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg
5. Fataúthlutun þriðju-
daga kl. 16–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað, vinnustofa, kl. 13
vinnustofa.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað. Handavinnu-
stofan opin, kl. 9.30
dans, kl. 10.30 leikfimi,
kl. 13.30 létt ganga.
Púttvöllur opinn mánu-
dag til föstudags kl. 9–
16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 14 dans.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofan opin, kl.
10 samverustund, pútt-
völlurinn opinn kl. 9–
16.30.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–16 vefnaður, kl. 10–
13 opin verslunin, kl.
13.30 myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16 op-
in vinnustofa, leikfimi
byrjar aftur 2. sept., kl.
12.40 verslunarferð í
Bónus, kl. 12 hár-
greiðsla. Bókabíllinn er
í fríi til 9. sept.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Brids kl.
13, biljard kl. 13.30,
púttæfingar á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf, kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, frá
hádegi spilasalur op-
inn, kl. 13 boccia. Veit-
ingar í Kaffi Berg. S.
575–7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um. frá kl. 9–17, kl. 14
ganga.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga, heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
kaffi, spjall, dagblöð-
in,kl. 10 boccia, kl.
12.15 verslunarferð, kl.
13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 boccia. Fótaaðgerðir,
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 13–16
frjáls spil.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð, kl. 14 félagsvist.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
Félagi eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Miðvikud.:
Göngu-Hrólfar ganga
frá Hlemmi kl. 9.45.
Minningarkort
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félags-
ins eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda
upplýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma
og í öllum helstu apó-
tekum. Gíró-og kred-
itkortagreiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis fást á
skrifstofu endur-
hæfingadeildar Land-
spítalans Kópavogi
(fyrrverandi Kópa-
vogshæli), síma 560-
2700 og skrifstofu
Styrktarfélags vangef-
inna, s. 551-5941 gegn
heimsendingu gíróseð-
ils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Landssamtökin
Þroskahjálp. Minning-
arsjóður Jóhanns Guð-
mundssonar læknis.
Tekið á móti minning-
argjöfum í síma 588-
9390.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skóg-
um fást á eftirtöldum
stöðum: Í Byggðasafn-
inu hjá Þórði Tóm-
assyni, s. 487-8842, í
Mýrdal hjá Eyþóri
Ólafssyni, Skeiðflöt, s.
487-1299, í Reykjavík
hjá Frímerkjahúsinu,
Laufásvegi 2, s. 551-
1814 og hjá Jóni Að-
alsteini Jónssyni,
Geitastekk 9, s. 557-
4977.
Í dag er þriðjudagur 26. ágúst,
238. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Á þeim degi munuð þér skilja,
að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður.
(Jóh. 14,20.)
Á Deiglunni.com fjallarEðvarð Jón Bjarna-
son um skattamál. „Frá
upphafi samfélagsmynd-
unar hefur skattlagning
verið órjúfanlegur hluti
samfélagsins sjálfs. Í
fyrstu má ætla að skatt-
lagning hafi verið í formi
vinnuskyldu til uppbygg-
ingar sameiginlegra
hagsmuna. Síðar voru
skattar settir á eignir,
neyslu og viðskipti bæði
sem tollar og söluskatt-
ar. Megintilgangur
skatta hefur verið að afla
tekna svo hægt sé að
hrinda í framkvæmd til-
teknum verkefnum og
stuðla að hagvexti en
einnig að veita þjónustu
og hafa áhrif á hegðun
skattgreiðenda. Þannig
lögðu Rómverjar sem
dæmi á sérstakan skatt á
einstæða menn með það
fyrir augum að stuðla að
fólksfjölgun,“ segir Eð-
varð Jón. Hann segir
einnig frá því að Róm-
verjar hafi tekið upp á
því að setja skatt á þvag.
Eðvarð segir að þróunskattlagningar hafi
verið þannig að hún
verði sífellt umfangs-
meiri. „Þessi þróun hefur
verið áberandi eftir
seinni heimsstyrjöldina.
Það er orðið áhyggjuefni
bæði hversu mikil skatt-
lagningin er orðin og
hversu misskipt skatt-
byrðin í raun er,“ segir
hann.
Eðvarð segir að heppi-
legt væri að lækka tekju-
skatt verulega eða af-
nema hann alveg. Hann
telur hins vegar að ólík-
legt sé að pólitísk sátt
náist um slíka aðgerð. Í
staðinn leggur hann til
að skattgreiðendur fái
val um það hvernig
skattfé þeirra sé varið.
Þannig fengi fólk tæki-færi til að „ráðstafa
tekjuskattinum sínum
eða hluta af honum til
þeirra málaflokka eða
verkefna sem það kysi.
Þegar skattframtali væri
skilað gætu skattgreið-
endur eyrnamerkt
ákveðnar upphæðir til
þeirra málaflokka sem
þeir teldu að skatt-
greiðslu sinni væri best
varið. Þannig gæti hver
og einn haft áhrif á
hversu miklu hann verði
af tekjuskatti sínum til
öryggismála, heilbrigð-
ismála, samgöngumála
og annarra málaflokka.“
Svo segir hann: „Þessileið myndi ekki sjálf-
krafa leiða til samdráttar
tekna ríkisins heldur ein-
ungis takmarka ákvörð-
unarvald þess yfir því
hvernig þeim fjármunum
sem það hefur hingað til
aflað með tekjuskatti
væri varið. Sé þátttaka
skattgreiðenda aukin
þegar kemur að ráð-
stöfun skattgreiðslnanna
mun það hafa í för með
sér að ábyrgð skattgreið-
enda á ráðstöfun tekna
sinna eykst og þeir yrðu
virkari þátttakendur í
rekstri samfélagsins.
Hvort tveggja mjög já-
kvætt og líklegt til þess
að bæta samfélagið.“
STAKSTEINAR
Aukið frelsi
skattgreiðenda
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI dagsins ereinn þeirra sem eiga erf-
itt með að sætta sig við þá
staðreynd að hvalveiðar
hafa verið hafnar á ný. Ekki
svo að skilja að hann beri
einhverjar sérstakar tilfinn-
ingar til hvala umfram aðrar
dýrategundir. Vissulega eru
hvalir stórkostlegar skepn-
ur. Víkverji komst einu sinni
í návígi við stóran hval í sigl-
ingu á Faxaflóa og það var
að mörgu leyti ógleymanleg
upplifun. Hins vegar eru
litlu lömbin sem hlaupa um
holt og móa (að ekki sé
minnst á þjóðvegi landsins)
ekki síður falleg og sæt.
Það vefst hins vegar ekk-
ert fyrir Víkverja að skella
lambafilé á grillið og hann á
heldur ekki í neinu sálarstríði þegar
kemur að því að leggja sér hvalkjöt
til munns.
x x x
HINS vegar er það svo að við búumí heimi þar sem mjög margir eru
á annarri skoðun þegar hvalir eru
annars vegar. Víkverji bjó í nokkur
ár á meginlandi Evrópu og man vel
eftir því hversu mikil andstaðan var
við hvalveiðar Íslendinga á sínum
tíma. Jafnvel mörgum árum eftir að
hvalveiðum var hætt voru hvalveiðar
það fyrsta sem mörgum datt í hug
þegar Ísland bar á góma. Þessi sjón-
armið hafa ekki breyst og jafnvel má
gera ráð fyrir því að andstaðan hafi
aukist með árunum eftir því sem
lengri tími líður frá því að hval-
veiðum var hætt.
x x x
AF VIÐBRÖGÐUM erlendra fjöl-miðla má dæma að þeir telji
upphaf hvalveiða á Íslandi vera stór-
frétt og blöð víða um heim, hvort sem
er í Singapore, Suður-Afríku, Nýja-
Sjálandi eða Alabama í
Bandaríkjunum, sem lík-
lega hafa aldrei áður séð
ástæðu til að segja fréttir
frá Íslandi, slá nú upp
fréttum um hvalveiðar okk-
ar dag eftir dag.
Auðvitað má segja sem
svo að við séum sjálfstæð
þjóð og getum gert það
sem við viljum í okkar lög-
sögu. Við verðum þá hins
vegar jafnframt að taka af-
leiðingum gjörða okkar og
þar stendur hnífurinn í
kúnni. Víkverji á mjög erf-
itt með að sjá þann hag
sem við kunnum að hafa af
hvalveiðum í framtíðinni.
Neysla á hvalkjöti hér á
landi verður aldrei nema
lítið brot af annarri kjöt-
neyslu og ekki hefur verið sýnt fram
á að neinn markaður sé fyrir útflutn-
ing á hvalaafurðum.
x x x
EF EITTHVAÐ er að markaóformlega könnun meðal ungra
stúlkna í kringum börn Víkverja
bendir jafnframt margt til að ís-
lenska ungviðið líti hvali svipuðum
augum og fólk á meginlandi Evrópu.
Þannig voru ungu stúlkurnar með
tárin í augunum er þær sáu myndir í
fréttatíma sjónvarps af hvalveiðum.
Bara skoða, ekki drepa?
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
MIKIÐ er ég ánægður
með það sem ég þykist sjá
á hjólaferðum mínum um
borgina þessa dagana. Það
hefur lengi farið í taug-
arnar á mér veggjakrotið
sem er alls staðar og eng-
um til ánægju. Nú bregður
svo við að farið er að mála
yfir krot í ýmsum undir-
göngum í borginni. Bara
nokkuð mörg sem ég hef
farið um og búið er að
gera fín. Reyndar er það
líka svo að í sumum göng-
um hefur verið málað yfir
veggjakrot jafnóðum í all-
an vetur.
Ég ætla bara ekki að
segja hvað ég er ánægður
með þetta framtak.
Eftir því sem ég kemst
næst þá er heiðurinn
gatnadeildar borgarinnar
og færi ég því heiðursfólki
mínar bestu þakkir með
von um enn frekari átak í
þessum efnum.
Kátur hjólreiðamaður.
Tvær
fyrirspurnir
ÉG vil koma þeirri fyrir-
spurn á framfæri til Lýsis
ehf. hvort lúðulýsisperlur
komi ekki aftur á mark-
aðinn og hvers vegna þær
voru teknar af markaði.
Þegar farið var í feluleik
í gamla daga var farið með
vísuna Úllen, dúllen doff.
Er ég búin að gleyma rest-
inni af þessari vísu. Ef ein-
hver getur gefið mér upp-
lýsingar um vísuna þá
vinsamlega hringið í síma
431 1409.
Allan enska
boltann á Sýn
HÆTTIÐ þið nú að snuða
áskrifendur Sýnar um
stórleikina sem eru hafðir
á Stöð 2 á laugardögum.
Þetta er eins og að sýna
fjórða hvern þátt úr
spennumyndaflokki á ann-
arri stöð. Ég hvet nýráðna
yfirmenn Sýnar til dáða í
þessu máli. Ekki svíkja
dygga áskrifendur Sýnar
um laugardagsleikinn.
Jóhanna Pálsdóttir,
áskrifandi að Sýn
til margra ára.
Tapað/fundið
Peningar týndust
í Bónus
ÉG er ung kona, nýfarin
að búa, og var að kaupa í
matinn í Bónus við Smára-
torg, ásamt fleira til bús-
ins.
Við innganginn í búðinni
hafa peningar, kr. 12.000,
dottið í gólfið þegar ég tek
upp minnismiða sem var
með peningunum, en pen-
inginn hafði ég nýverið
tekið úr banka og veskið
mitt var lokað þar til ég
opnaði það í versluninni.
Ég stóð eins og asni
peningalaus við kassann
og hóf að leita um búðina
og elskulegir starfsmenn
búðarinnar spurðust fyrir
um hvort peningurinn
hefði fundist og leituðu
með mér án árangurs.
Það er greinilegt að ein-
hver hefur fundið pen-
ingana og hefur ekki haft í
hyggju að koma þeim til
skila. Þetta eru einu pen-
ingarnir okkar sem þurfa
að duga okkur til mánaða-
mótanna og ríflega það.
Bið ég þann sem fann
peninginn að hugsa sig
tvisvar um og bið viðkom-
andi aðila að skila þeim
aftur annaðhvort til mín
eða þá til starfsfólks Bón-
uss.
Valgerður s. 663-7828.
Lyklakippa
í óskilum
LYKLAKIPPA fannst á
Sundlaugarvegi (á horninu
við Laugalæk) föstudaginn
22. ágúst. Upplýsingar í
síma 553 0447 (e. kl. 17)
eða 438 1632.
Blá Speedo-
taska týndist
BLÁ Speedo-taska, með
grárri flíspeysu og rauðum
og bláum regnjakka, týnd-
ist í Grasagarðinum eða
Húsdýragarðinum sl.
fimmtudag milli kl. 14 og
16. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 695 4843.
Dýrahald
Kettlingar fást
gefins
ÞRÍR gullfallegir 3 mán-
aða kisustrákar fást gef-
ins. Eru allir kolsvartir
með lítinn hvítan blett á
bringunni og maganum.
Eru kassavanir, gæfir,
góðir, kelnir og ekki mat-
vandir. Eru tilbúnir til að
fara að heiman, á góð,
ábyrg og áreiðanleg heim-
ili. Einungis heimili þar
sem þeir komast út koma
til greina. Nánari upplýs-
ingar í símum 588 2378 og
861 2378.
Kettling
vantar heimili
ÞRIGGJA mánaða gul-
bröndóttan fress vantar
framtíðarheimili. Upplýs-
ingar í síma 517 2603.
Goggi er týndur
GRÁR dísarpáfagaukur
týndist sl. laugardag frá
Þórufelli. Hann sást fljúga
yfir Asparfellið. Þeir sem
hafa orðið varir við fuglinn
vinsamlega hafi samband í
síma 894 5056.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Veggjakrot
í burtu
LÁRÉTT
1 daga að sumri, 8 hníf-
um, 9 erfiðar, 10 neðan,
11 nemur, 13 svarar, 15
hugboðs, 18 stunda smíð-
ar, 21 skynsemi, 22
metta, 23 kynið, 24 bögu-
mælið.
LÓÐRÉTT
2 kæpur, 3 vesæll, 4 dep-
ill, 5 málms, 6 smábátur,
7 ósoðinn, 12 greinir, 14
tek, 15 næðing, 16 furða
sig á, 17 álftar, 18 þrátta,
19 vömb, 20 geta gert.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hlunk, 4 kopar, 7 norpa, 8 rétta, 9 met, 11 autt,
13 grút, 14 ertur, 15 þjöl, 17 óvit, 20 ára, 22 túlum, 23
sulla, 24 ragar, 25 spaka.
Lóðrétt: 1 henda, 2 umrót, 3 kram, 4 kort, 5 pútur, 6
róast, 10 eitur, 12 tel, 13 gró, 15 þýtur, 16 öflug, 18
vilpa, 19 tjara, 20 ámur, 21 asks.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16