Morgunblaðið - 02.09.2003, Page 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 19
bílar
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM
SMÁAUGLÝSING
AÐEINS 995 KR.*
Áskrifendum Morgunblaðsins
býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.*
Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum.
* 4 línur og mynd.
HAFÐU SAMBAND!
Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is
Á FIMMTUDAGINNALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM
BOÐIÐ verður upp á námskeiðin
Snerting, jóga og slökun í leik-
skólastarfi, og Könnunarleikur
yngstu barnanna í leikskólum, í
metnaðarfullu endur- og símennt-
unarstarfi fyrir starfsmenn leik-
skóla í Garðabæ, Kópavogi, Mos-
fellsbæ og Seltjarnarnesi í vetur,
en samtals verða á milli 25 og 30
námskeið í boði.
Sveitafélögin fjögur hafa haft
með sér samstarf um þessi nám-
skeið undanfarin ár, og hafa nám-
skeiðin vakið mikinn áhuga leik-
skólakennara, segir Hrafnhildur
Sigurðardóttir, leikskólafulltrúi á
Seltjarnarnesi. Hún segir mæt-
inguna hafa verið mjög góða und-
anfarna vetur: „Það hafa verið
hvað eftir annað yfir 100 manns á
fyrirlestrum á kvöldin.“ Dæmi um
vinsæl námskeið í fyrra segir hún
fyrirlestra um sorg leikskóla-
barna, ofbeldi gegn börnum og
fjölgreindarkenninguna.
Hrafnhildur segir að samstarfið
hafi gengið ótrúlega vel, og að
það geri mun metnaðarfyllri dag-
skrá mögulega: „Það er auðvitað
dýrt fyrir litlu sveitarfélögin, til
dæmis Seltjarnarnes og Mos-
fellsbæ, að halda úti svona nám-
skeiðum ein og sér. Þá gætum við
aldrei boðið upp á svona úrval
heldur þyrftum að vera með miklu
minna í boði.“
Samstarf um endur-
menntun á leikskólum
Ljósmynd/Hrafnhildur Sigurðardóttir
Yfir hundrað manns mættu á fyrirlestur um fjölgreindarkenningu Howards Gardners, sem fluttur var af Erlu
Kristjánsdóttur, lektor við KHÍ, í fyrra, en Gardner kom einmitt hingað til lands og hélt fyrirlestur í sumar.
Höfuðborgarsvæðið
SKÁTAR fögnuðu því um helgina að tekin var í
notkun ný Skátamiðstöð í Hraunbænum, en
húsið mun gegna hlutverki þjónustumiðstöðvar
fyrir skátastarf í landinu, auk þess að vera
skátaheimili Árbæinga.
Húsið er hið glæsilegasta og var hannað sér-
staklega fyrir þá starfsemi sem í því verður og
er samtals 1.150 fermetrar. Skátahreyfingin
seldi húsnæði sitt á Snorrabraut árið 2000 í kjöl-
far þess að Skátabúðin hætti starfsemi. „Við
gátum illa nýtt það húsnæði svo það var ákveðið
að selja það húsnæði í heild sinni og byggja nýja
miðstöð,“ segir Þorsteinn Fr. Sigðurðsson,
framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta.
Húsið var um ár í byggingu og hannað sér-
staklega með þá starfsemi sem þar á sér stað í
huga, að sögn Þorsteins: „Það gerir alla starf-
semina miklu þægilegri. Við erum komnir með
á einn stað geymsluaðstöðu, vinnuaðstöðu og
skrifstofu. Við erum í samstarfi við skátafélagið
á staðnum svo það verður betri nýting á hús-
næðinu.“
Húsinu deila Bandalag íslenskra skáta,
Skátasamband Reykjavíkur, St. Georgsgildin
og Skátafélag radíóskáta, ásamt skátafélagi
hverfisins, Skátafélaginu Árbúum. Einnig er
geymsluaðstaða og lagerrými á staðnum, sem
áður var á öðrum stað en höfuðstöðvarnar. Í
húsinu eru einnig flokkaðar og geymdar einnota
gosumbúðir úr dósakúlunum. „Svo er hérna
fundar- og félagsaðstaða fyrir nefndir og ráð
landssamtakanna og skátafélaganna í Reykja-
vík. Þetta er margfalt betri aðstaða, hér erum
við með alla hlutina hjá okkur, þetta gerir alla
verkefnavinnslu milklu þægilegri en hún var.
Vinnurými er miklu heppilegra, sem og starfs-
aðstaða starfsfólks. Ég reikna með að þetta
muni koma hreyfingunni til góða þegar horft er
fram á veginn,“ segir Þorsteinn
Nýja skátamiðstöðin á eftir að nýtast félögunum vel enda er nú öll starfsemin á einum stað.
Morgunblaðið/Ásdís
Þorsteinn Kr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Bandalags íslenskra skáta, segir húsið sér-
hannað fyrir starfsemina.
Ný miðstöð
skáta tekin
í gagnið
Reykjavík