Morgunblaðið - 02.09.2003, Síða 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 47
ARNAR Gunnlaugsson skoraði tvö
mörk fyrir KR en hann hefur gert
fimm mörk í síðustu tveimur leikj-
um fyrir liðið. „Þetta var mjög erf-
iður leikur. Grindavík er með frá-
bært lið og það er erfitt að leika
gegn þeim. Aðstæðurnar voru frek-
ar erfiðar en okkur tókst að sigra
og það er það eina sem skiptir máli.
Ég bjóst ekki við því að við yrðum
meistarar í kvöld en það var frá-
bært að klára þetta. Nú tökum við
stefnuna á að sigra í bikarnum líka.
Að vinna tvöfalt væri æðislegt og
vonandi gerist það,“ sagði Arnar
Gunnlaugsson en hann hefur nú
skorað 7 mörk það sem af er Ís-
landsmótinu og þar af 5 mörk í síð-
ustu tveimur leikjum liðsins.
Markahæstu leikmenn Íslandsmóts-
ins eru þeir Björgólfur Takefusa og
Sören Hermansen hjá Þrótti en þeir
hafa báðir skorað 10 mörk í 16
leikjum. Þess má geta að Arnar
skoraði 15 mörk í 7 leikjum fyrir
Skagamenn er liðið varð Íslands-
meistari árið 1995 og má því búast
við því að hann fái úr miklu að
moða í framlínu liðsins í næstu
leikjum.
Við erum langbesta liðið
á landinu
Bjarki Gunnlaugsson þurfti að
fara meiddur af velli á 83.mínútu
eftir að hafa fengið spark í hnéð á
sér. „Ég fékk slæmt spark í mig en
þetta er ekkert alvarlegt. Þetta
fylgir fótboltanum og við þessu er
ekkert að gera. Ég held að flestir
hafi ekki búist við því að við yrðum
meistarar í kvöld en það var fínt að
klára þetta í Grindavík. Það er frá-
bær árangur að tryggja sér titilinn
þegar tveimur umferðum er enn
ólokið. Við höfum verið að leika
mjög vel í júlí og ágúst og við erum
enn að bæta okkur. Það eru spenn-
andi tímar framundan því við erum
í undanúrslitum í bikarnum og við
ætlum okkur í úrslitaleikinn, það er
engin spurning. Fyrr í sumar vor-
um við ekki að leika nægilega vel
en við náðum samt að sigra í mörg-
um leikjum þó að spilamennskan
hafi ekki verið burðug. Liðið hefur
sýnt mikinn karakter og þegar við
komust á almennilegt skrið var
ljóst að við erum með langbesta lið-
ið á landinu,“ sagði Bjarki.
HELGA Þorvaldsdóttir, einn af
burðarásum kvennaliðs KR í körfu-
knattleik undanfarin ár, verður ekki
með liðinu í vetur þar sem hún á von
á barni. Hinsvegar munu Linda
Stefánsdóttir og Sigrún Skarphéð-
insdóttir taka fram skóna á ný og
leika með KR. Þetta kemur fram í
viðtali við Grétu Grétarsdóttur,
þjálfara KR-liðsins, á heimasíðu fé-
lagsins.
PATREKUR Jóhannesson skor-
aði 4 mörk, þaraf eitt úr vítakasti
þegar Bidasoa tapaði fyrir Ademar
Leon, 33:25, í æfingaleik um síðustu
helgi. Heiðmar Felixson, sem einnig
leikur með Bidasoa, skoraði einnig
fjögur mörk í leiknum.
ÓLAFUR Stefánsson gerði fjögur
mörk, þaraf þrjú úr vítaköstum,
þegar lið hans Ciudad Real vann
Prasa Pozoblanco, 36:20, í æfinga-
leik. Keppni í spænsku 1. deildinni í
handknattleik hefst laugardaginn
13. september.
DAVE Jones, knattspyrnustjóri
Wolves, hefur skrifað undir nýjan
þriggja ára samning við félagið.
Þrátt fyrir að Wolves hafi byrjað
leiktíðina í ensku úrvalsdeildinni
mjög illa hafa forráðamenn Wolves
tröllatrú á Jones. „Ég er mjög
ánægður með þennan nýja samning
og nú get ég algjörlega einbeitt mér
að knattspyrnunni hjá Wolves,“
sagði Jones.
LINDSEY Hunter mun leika með
Detroit Pistons í NBA-deildinni í
körfubolta næsta vetur. Hunter var
í herbúðum Toronto Raptors á síð-
asta tímabili en hann spilar í stöðu
bakvarðar. Hann skoraði að meðal-
tali 9,7 stig í leik síðasta vetur.
FRANCIS Jeffers, sóknarmaður
Arsenal, hefur verið lánaður til
Everton út leiktíðina. Arsenal
keypti Jeffers frá Everton árið 2001
en honum hefur gengið illa hjá Ars-
enal og fengið fá tækifæri með að-
alliðinu.
Í GÆR voru innsigluð kaup
Chelsea á Claude Makelele frá Real
Madrid fyrir 16 millj. punda, jafn-
virði tveggja milljarða króna. Þetta
voru síðustu kaup félagsins sem hef-
ur eytt yfir 100 millj. punda í nýja
leikmenn á nokkrum vikum.
GARY Megson, knattspyrnustjóri
WBA, sem Lárus Orri Sigurðsson
leikur með, var í gær útnefndur
knattspyrnustjóri mánaðarins í
ensku 1. deildinni. WBA féll úr úr-
valsdeildinni í vor en hefur hafið
vertíðina í 1. deildinni af krafti og
unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum
sínum og er í efsta sæti deildarinn-
ar.
BRIAN Horton, knattspyrnu-
stjóri Port Vale, var valinn knatt-
spyrnustjóri 2. deildar fyrir ágúst
mánuð.
FÓLK
KR-ingar fögnuðu þegar flautaðvar til leiksloka, en á sama tíma
skoruðu Skagamenn í Árbænum og
þá var fagnað enn
frekar. Nokkur efi
læddist þó að KR-
ingum þegar þeir
gerðu sér ljósa grein
fyrir því að leikurinn í Árbænum var
ekki búinn og allt gat gerst. Ekki það
að með sigrinum voru þeir svo gott
sem búnir að tryggja sér Íslands-
meistaratitilinn, þó svo Fylkir næði
að jafna. Það gekk ekki eftir og þeg-
ar flautað var til leiksloka á Fylk-
isvelli var loks komin ástæða til að
fagna af innileik. Og það gerðu KR-
ingar.
Þeir höfðu líka fulla ástæðu til því
þeir lögðu hart að sér í leiknum við
Grindavík. Tveir bestu menn þeirra í
sumar voru í banni, Kristján Sig-
urðsson og Veigar Páll Gunnarsson
en það breytti engu fyrir þá. Krist-
inn Hafliðason fór í miðvörðinn og
stóð sig vel þar og Kristinn Magnús-
son kom á miðjuna og skilaði sínu
hlutverki vel.
Grindvíkingar sáu samt að mestu
um að sækja í leiknum og oft munaði
sáralitlu að þeim tækist að fá úrvals
færi. Vítaspyrnan kom upp úr litlu
sem engu og sóknir heimamanna
héldu áfram eftir hana en samt voru
það gestirnir sem skoruðu næsta
mark – og reyndar næstu þrjú mörk.
Fyrsta markið var klaufalegt og
skráist á Helga Má Helgason, hinn
unga markvörð Grindvíkinga.
Alfreð Elías Jóhannsson fékk trú-
lega besta færi leiksins um miðjan
fyrri hálfleik, fékk sendingu inn á
markteiginn en lagði boltann rétt
framhjá markinu. Leiðinlegt, því
hann var gríðarlega duglegur í gær
og átti fínan leik.
Þó svo heimamenn hafi sótt meira
þá komu ekki mörg hættuleg færi,
það hættulegasta í fyrri hálfleik var
undir lok hans en Kristján Finn-
bogason varði meistaralega þegar
Kristinn Hafliðason var nærri búinn
að setja boltann í eigið mark.
Hin svokölluðu hálffæri héldu
áfram að falla Grindvíkingum í
skaut, en ekki tókst að skora. Það
tókst hins vegar gestunum og það
var ekkert smámark hjá Sigurvini
Ólafssyni.
Bæði lið áttu góð skot að marki
það sem eftir lifði leiks, Kristján
varði vel frá Ray og Alfreð og hinum
megin varði Helgi Már meistaralega
frá Kristni Magnússyni.
Grindvíkingar hefðu hæglega get-
að krækt í öll stigin í leiknum, en til
þess þarf að skora meira en mótherj-
inn. Tvö klaufamörk og eitt glæsi-
mark KR var meira en Grindvíking-
ar réðu við að þessu sinni og verða
þeir að ná í einhver stig í síðustu um-
ferðunum til að vera öruggir um sæti
sitt í deildinni.
KR-ingar léku gríðarlega skyn-
samlega í gær. Þeir létu Grindvík-
inga um að sækja að mestu, en lok-
uðu svæðum vel og héldu þeim að
mestu í skefjum. Síðan var sótt hratt
þegar færi gafst og það gaf svo sann-
arlega góða raun í gær.
KR mætir liði ÍBV í næst síðustu
umferð Íslandsmótsins á heimavelli
sínum í Frostaskjóli þar sem liðið
mun eflaust fá afhent sigurverðlaun-
in en lið ÍBV rær nú lífróðri um að
halda sæti sínu í deildinni.
Í lokaumferðinni mætir KR liði
FH í Kaplakrika en sömu lið eigast
við í undanúrslitum VISA-bikar-
keppninnar þann 10. september á
Laugardalsvelli. Það er því í mörg
horn að líta hjá Íslandsmeisturum
KR og eflaust ætla menn þar á bæ að
fagna öðrum titli í lok september.
KR fagnaði titl-
inum í Grindavík
ÞRÁTT fyrir að Grindvíkingar ættu mun fleiri skot að marki og
fengju betri marktækifæri tókst þeim ekki að leggja KR að velli í
Landsbankadeildinni í gær. KR-ingar nýttu færin vel, unnu 3:1 og
fögnuðu í lokin bæði sigrinum í Grindavík og Íslandsmeistaratitl-
inum sem Skagamenn tryggðu þeim með því að leggja Fylki í Ár-
bænum á sama tíma.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Morgunblaðið/Jim Smart
KR-ingar fjölmenntu til Grindavíkur í gær og urðu ekki fyrir
vonbrigðum þar sem Íslandsmeistaratitillinn var í höfn.
Við ætlum okkur að vinna báða
titlana sem eru í boði