Morgunblaðið - 03.09.2003, Blaðsíða 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 21
Verið velkomin í verslun okkar á Þýskum dögum.
Fjöldi tilboða og sérstök afsláttarkjör í ljósadeild.
Þýskir dagar!
Umboðsmenn um allt land.
69.900 kr. stgr.
Kæli- og frystiskápur
KG 31V421
Aktionspreis
(tilboðsverð)
8.900 kr. stgr.
Farsími - A50
Aktionspreis
(tilboðsverð)
79.900 kr. stgr.
Þvottavél
WXL 1241
Aktionspreis
(tilboðsverð)
OD
DI
HF
K0
15
1
LANDSBÓKASAFN Íslands – há-
skólabókasafn gengst fyrir málstofu
í Þjóðarbókhlöðu kl. 16 á morgun,
fimmtudag. Hún er í tengslum við
sýningu safnsins Eins og í sögu –
samspil texta og myndskreytinga í
barnabókum 1910–2000.
Erindi flytja: Margrét Tryggva-
dóttir bókmenntafræðingur: Lestur
upp á líf eða dauða; Þórarinn Eld-
járn rithöfundur, Sigrún Eldjárn
myndlistarmaður: Málmynd og
myndmál og Andri Snær Magnason
rithöfundur, Áslaug Jónsdóttir
myndlistarmaður: Leiðin til bláa
hnattarins.
Málstofa í
tengslum
við barna-
bækur
Áslaug Jónsdóttir Þórarinn Eldjárn
PÉTUR Már Gunnarsson
myndlistarmaður opnar sýn-
ingu sína Bréfasprengjur kl. 17
í dag, fimmtudag, í Galleríi
Dvergi við Grundarstíg 21. Til
sýnis og sölu verða heimagerð,
borgaraleg vopn og ástarbréf,
einskonar tilbrigði við Guern-
icu Picassos. Þetta er önnur
einkasýning Péturs Más.
Pétur lauk B.A.-námi frá
LHÍ árið 2002.
Sýningin er opin fimmtudag
til sunnudags k. 17–19, til 14.
september.
Borgaraleg
verk í Gall-
eríi Dverg
TRÍÓ Reykjavíkur er nú að hefja sitt
14. starfsár í samvinnu við Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Tónleikaröðin verður
með svipuðu sniði og undanfarin ár.
Fyrstu tónleikarnir verða sunnudag-
inn 7. september og hefjast kl. 20. Á
efnisskránni verður tríó í e-moll eftir
Joseph Haydn og tríó í C-dúr eftir Jó-
hannes Brahms. Að auki mun tríóið
flytja Out og the Gothic North, píanó-
tríó eftir John Speight. Verkið var
samið fyrir hollenska tríóið Osiris og
frumflutt þar í landi árið 1996. Tríó
Reykjavíkur frumflutti verkið á Ís-
landi vorið 1998, en gefur áheyrend-
um nú kost á að heyra verkið aftur
fimm árum síðar.
John Speight hefur starfað á Ís-
landi um áratuga skeið, sem tónskáld,
söngvari og kennari. Hann er eitt af-
kastamesta tónskáld hérlendis og
hafa tónsmíðar hans vakið æ meiri at-
hygli á undanförnum árum. Jólaóra-
tóría hans hlaut góðar viðtökur bæði
áheyrenda og gagnrýnenda og voru
honum veitt Íslensku tónlistarverð-
launin fyrir hana við síðustu úthlutun.
Næstu tónleikar í röðinni verða
hinn 16. nóvember og bera þeir yf-
irskriftina Mozart að mestu. Þar mun
Sigurður Yngvi Snorrason klarin-
ettuleikari leggja tríóinu lið og eins
og nafnið bendir til mun Mozart eiga
þar stóran hlut að máli.
Nýárstónleikarnir með Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur og Bergþóri Pálssyni
verða á sínum stað hinn 25. janúar.
Síðustu tónleikarnir verða síðan 28.
mars. Þá verður frumflutt nýtt píanó-
tríó eftir bandaríska tónskáldið Ger-
ald Shapiro, en verkið er sérstaklega
samið fyrir og tileinkað Tríói Reykja-
víkur.
Aðrir gestir á tónleikunum verða
bandarísku hjónin, fiðluleikarinn og
víóluleikarinn Almita og Roland
Vamos, en þau eru heimsþekktir
kennarar og flytjendur.
Með þeim mun tríóið leika verk eft-
ir Kodály og Dvorák.
Morgunblaðið/Ásdís
Tríó Reykjavíkur: Pétur Máté, Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran.
Tríó Reykja-
víkur að hefja
14. starfsárið
LEIKFÉLAG Kópavogs heldur á
leiklistarhátíðina Aidas í Litháen
í lok september með sýninguna
Grimmsævintýri. Af tilefninu býð-
ur leikfélagið gestum að sjá fjór-
ar sýningar í Félagsheimili Kópa-
vogs á næstunni. Sú fyrsta annað
kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20,
sunnudaginn 7. sept. kl. 14 og
laugardaginn 13. sept. kl. 14 og
kl. 16.30.
Sýningin var m.a. valin athygl-
isverðasta áhugasýning ársins í
fyrra og fór á fjalir Þjóðleikhúss-
ins í kjölfarið. Einnig fékk hún
sérstök verðlaun samtakanna
Barna og bóka fyrir framlag til
barnamenningar.
Leikfélagið sýndi Grimms-
ævintýri á leiklistarhátíð í Sví-
þjóð í fyrra og í kjölfarið fékk fé-
lagið boð um að koma með
sýninguna til Rússlands, Hvíta-
Rússlands og Litháens. Boðinu
frá Litháen var tekið og heldur
hópurinn þangað 24. september
næstkomandi. Undanfarið hefur
leikhópurinn verið að æfa sýn-
inguna undir stjórn Ágústu
Skúladóttur leikstjóra.
Sýning LK samanstendur af
fimm Grimmsævintýrum og er
sagan af Hans og Grétu þeirra
kunnust. Hin ævintýrin eru Gull-
gæsin, Spunakerlingarnar þrjár,
Hérinn og broddgölturinn og
Herra Kuskan. Sjö leikarar taka
þátt í sýningunni og auk þeirra
eru á sviðinu tveir hljóðfæraleik-
arar sem sjá um tónlist og leik-
hljóð.
Nánari upplýsingar um sýn-
inguna er einnig hægt að fá á vef
Leikfélags Kópavogs www.kop-
leik.is.
Grimm aftur á svið
Grimmsævintýri í sýningu
Leikfélags Kópavogs.
VEGNA veikinda fiðluleikarans
Maxims Vengerovs falla viðhafnar-
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, sem áttu að fara fram annað
kvöld, niður. Miðarnir á tónleikana
fást endurgreiddir í miðasölu Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói.
Þröstur Ólafsson framkvæmda-
stjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar
segir að það sé tap í öllum skilningi
að þurfa að fella tónleikana niður.
„Þetta er tap í listrænum skilningi
fyrir okkur öll, að missa af þessum
snillingi. Það er mikið tap fjárhags-
lega, því við erum búin að leggja út
fyrir ýmsum kostnaði, fyrir utan að
þurfa að endurgreiða miða. Þar að
auki verður búið að æfa hljómsveit-
ina í eina viku, - tíma sem hefði verið
hægt að nýta í annað hefði verið
hægt að sjá þetta fyrir. Þetta er því
áfall fyrir okkur.“
Þröstur segir hljómsveitina ekki
tryggða fyrir áföllum af þessum
toga, enda séu þau sjaldgæf. „Ég hef
ekki spurst fyrir um það hjá trygg-
ingarfélögunum, en sjálfsagt er
hægt að kaupa tryggingu á ýmsu, -
til dæmis rekstrartryggingu. Oft er
það nú þannig að við vitum um forföll
með meiri fyrirvara og þá er hægt að
fá aðra til að hlaupa í skarðið. Það
gerir maður ekki með svo litlum fyr-
irvara, og alls ekki með nafn sem
hefur sömu merkingu í hugum fólks
og nafn Vengerovs.“
Þröstur segir að umboðsskrifstofu
Vengerovs hafi verið tilkynnt að
þennan skaða þyrfti að bæta upp
með tónleikum, og er þegar farið að
huga að dagsetningu síðar í vetur.
„Vengerov er undir miklu álagi, og
búinn að vera að spila stanslaust frá
því hann var smákrakki. Hann ætlar
að taka sér frí á næsta ári, og er þess
vegna að keyra sig í botn á þessu ári.
En við reynum allt sem við getum til
að fá hann.“
„Tap í öllum skilningi“
Morgunblaðið/Golli
Maxim Vengerov er veikur og leikur ekki hér á landi á morgun.
Tónleikar Sinfóníunnar með Vengerov falla niður
TÓNLEIKASKRÁ Salarins starfs-
árið 2003–2004 er komin út og fjöl-
breytt starfsemi Salarins í þann
mund að hefjast að loknu sumarleyfi.
Tónleikaskránni hefur verið dreift á
öll heimili í Kópavogi, en einnig verð-
ur hægt að nálgast skrána í Salnum,
á bókasöfnum og víðar.
Fyrirferðarmest er tónleikaröðin
Tíbrá sem hefst laugardaginn 7.
september, að venju á afmælisdegi
Sigfúsar Halldórssonar tónskálds og
heiðursborgara Kópavogs, og teygir
hún sig til 11. maí, en það er afmæl-
isdagur bæjarins.
Í Tíbrá eru að þessu sinni 44 tón-
leikar með ólíkum viðfangsefnum og
meðal flytjenda, sem eru yfir hundr-
að á starfsárinu, er að finna marga
listamenn í fremstu röð, íslenska og
erlenda.
Miðasala á alla tónleika í Tíbrá er í
miðasölu Salarins.
Tónleikaskrá
Salarins komin út
Sigfús Halldórsson
Skattur á fyrirtæki nefnist ný hand-
bók sem hefur að geyma um þúsund
tilvitnanir í dóma og úrskurði skatt-
yfirvalda hér á landi og Norðurlönd-
unum. Ásmundur G. Vilhjálmsson,
héraðsdómslögmaður og for-
stöðumaður skattasviðs endurskoð-
unarfyrirtækisins Grant Thornton,
skráði. Bókin skiptist í þrjá þætti.
Fjallar fyrsti þáttur um hugtakið at-
vinnurekstur, hvaða tekjur tilheyra
honum og hvenær, það er, á hvaða ári
atvinnurekanda telst hafa hlotnast
þær. Í öðrum þætti ræðir svo um frá-
drátt frá þessum tekjum. Bókinni lýk-
ur svo á greinargerð um skattlagningu
einstakra fyrirtækjaforma, svo sem
hlutafélaga, sameignarfélaga og ein-
staklingsfyrirtækja, og skattfrjálsa
umbreytingu þeirra úr einu rekstr-
arformi í annað.
Útgefandi er þekkingarfélagið
SkattVís, samlagsfélag. Ritið er 885
bls. Verð: 9.700 kr. agv@skattvis.is.
Skattur