Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 2
ÞAÐ getur reynst erfitt að mála ut- anhúss í haustrigningum og vindi, að ekki sé talað um í roki, en þess- um málara tókst ætlunarverkið á húsi við Laugaveginn í Reykjavík. Morgunblaðið/Jim Smart Hann lét utanaðkomandi áhrif ekki trufla sig við nákvæmnisverkið og einbeitti sér að því sem mestu máli skipti, að mála gluggapóstana fyrir veturinn. Póstar málaðir fyrir veturinn FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MIKILL SPARNAÐUR Með því að lengja skólaár fram- haldsskólanna um fimm kennslu- daga og fækka prófadögum um fimm á ári er hægt að stytta náms- tíma til stúdentsprófs um eitt ár. Það þýðir að kennsludagar á ári verði 155 í stað 145 og skólaárið 180 dagar í stað 175. Heildarkennslu- stundum til stúdentsprófs fækkar úr 2.707 í 2.170 eða um 20%. Breytingin myndi hafa í för með sér sparnað upp á um 1,7 milljarða króna. Fjárfesting í Finnlandi Kaupþing Búnaðarbanki hefur eignast 30,35% hlutafjár í finnska fjárfestingarfélaginu Norvestia Oyj. Kaupþing Búnaðarbanki fer með 54,44% atkvæðisréttar í félaginu og greiðir fyrir Norvestia með útgáfu 33,2 milljóna nýrra hluta, en and- virði kaupanna er um 5,5 milljarðar króna. Juppé fyrir dómara Fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, Alain Juppé, kom fyrir dómara í París í gær er þar hófust réttarhöld sem standa munu í þrjár vikur og varpa eiga ljósi á meinta, ólöglega fjármálaumsýslu í flokki Jacques Chiracs forseta fram á miðjan síðasta áratug. Chirac var þá borgarstjóri í París. Juppé var for- sætisráðherra á árunum 1995–1997 og er einn nánasti ráðgjafi Chiracs. Alþjóðleg skákhátíð Skákfélagið Hrókurinn gengst fyrir alþjóðlegri skákhátíð á Suður- landi 28. október til 7. nóvember. Tvö sterk skákmót verða á Hótel Selfossi og er annað þeirra eitt sterkasta skákmót sem haldið hefur verið á Íslandi. Friðrik Ólafsson verður verndari mótsins og Daninn Bent Larsen skákskýrandi. Setning Alþingis Alþingi Íslendinga, 130. löggjaf- arþing, kemur saman á morgun, miðvikudag. Þingsetningin fer venju samkvæmt fram í Alþingishúsinu að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkj- unni. Þingið er annað þingið eftir al- þingiskosningarnar í vor. Það kom saman í sumar skömmu eftir kosn- ingarnar. Átök í Írak Bandarískir hermenn beittu skriðdrekum og árásarþyrlum til að skjóta sér leið út úr fyrirsátum í gær, er herflutningalestir hernáms- liðsins í Írak urðu fyrir árásum skæruliða á vegum úti, í héraði súnní-múslima vestur af Bagdad. Að minnsta kosti einn hermaður beið bana. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Viðskipti 12 Íþróttir 37 Erlent 14/15 Minningar 32/36 Höfuðborgin 17 Bréf 40 Akureyri 18 Dagbók 42/43 Suðurnes 19 Kvikmyndir 52 Landið 21 Fólk 48/53 Daglegt líf 22/23 Bíó 50/53 Listir 24/25 Ljósvakar 54 Forystugrein 28 Veður 55 * * * LÍFSHORFUR krabbameinssjúk- linga í 22 Evrópulöndum eru einna bestar hjá sjúklingum á Norðurlönd- um og kemur Ísland vel út miðað við hin norrænu löndin. Til dæmis var Ís- land í efsta sæti varðandi horfur sjúk- linga með magakrabbamein. Þá var Ísland einnig mjög ofarlega varðandi horfur fyrir krabbamein í leghálsi, brjóstum og blöðruhálskirtli og í efsta sæti hvað varðar lífshorfur barna með krabbamein. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem náði til 22 landa í Evrópu en að henni standa 56 krabbameinsskrár í þessum löndum. Bornar voru saman fimm ára lífshorfur krabbameins- sjúklinga miðað við horfur jafnaldra í hverju landi. Náði rannsóknin til 1,8 milljóna fullorðinna og tæplega 24 þúsund barna sem greindust á árun- um 1990 til 1994 og var þeim fylgt eft- ir til 1999. Laufey Tryggvadóttir, fram- kvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags Íslands, er fulltrúi Íslands í verkefninu. Segir hún tilgang rannsóknarinnar að kanna mismunandi lífshorfur krabba- meinssjúklinga hjá hinum ýmsu Evr- ópuþjóðum og öðlast skilning á orsök- um þess með samanburði á aðdraganda greiningar og meðferð til að unnt sé að ráðast í umbætur þar sem þörf krefur. Laufey segir horfur krabbameins- sjúklinga mjög mismunandi milli landanna. Þær séu bestar á Norður- löndunum, nokkuð góðar í Austurríki, Frakklandi, á Spáni og í Sviss en lé- legar í löndum Austur-Evrópu, Dan- mörku, Bretlandi og fremur lélegar í Portúgal og á Möltu. „Almennt hafa horfurnar batnað talsvert frá því Eurocare-rannsóknin hófst, á árunum 1983 til 1985, en minnst í löndum Austur-Evrópu,“ segir Laufey og bendir á að mikill munur sé milli ein- stakra meina. „Þannig eru horfur alls staðar góðar fyrir krabbamein í vör, eistum og skjaldkirtli, einnig fyrir sortuæxli og Hodgkins-sjúkdóm en horfurnar eru lakari fyrir krabbamein í lungum, brisi og lifur. Þá höfðu kon- ur alls staðar betri horfur en karlar.“ Laufey segir að horfur séu almennt verri eftir því sem meinin greinist á hærra stigi og að það skýri stóran hluta af mismunandi horfum milli landa fyrir krabbamein í meltingar- vegi, brjóstum, skjaldkirtli og sortu- æxli í húð. „Fyrir mein í þvagrás og blöðruhálskirtli var skýringa á mun- inum einkum að leita í ólíkum grein- ingaraðferðum og fyrir mein þar sem til er árangursrík lyfjameðferð, eins og krabbamein í eistum og Hodgkins- sjúkdóm, var lítill munur milli land- anna.“ Laufey tekur fram að vegna fá- mennis séu niðurstöðurnar stundum ónákvæmar fyrir Ísland. Horfur barna með krabba- mein einna bestar á Íslandi „VIÐ erum afskaplega stoltir af því að fimm ára lífslíkur skuli áfram vera með því besta sem gerist í Evrópu,“ segir Sigurður Björnsson, sérfræðingur í krabbameinslækningum, um niðurstöður rannsóknar krabbameinsskránna. Sigurður segir að margir þættir stuðli að þessum árangri. Nefnir að margir sjúkdómar greinist tiltölulega snemma hér og nánast allir sjúklingar sem greinist með krabbamein eigi völ á meðferð. Þá séu lífsgæði mikil og heilbrigðisþjónusta góð. Sigurður nefnir sér- staklega að Íslendingar standi vel varðandi krabbamein í blöðruhálskirtli þar sem 76% líkur séu á að sjúklingur sé á lífi eftir fimm ár, á móti til dæmis 40% í Danmörku, en tekur fram að það þurfti ekki endilega að endurspegla lífslíkur. Eins séu horfur hér bestar varðandi leg- hálskrabbamein vegna öflugs leitarstarfs. Hins vegar telur hann að hér mætti standa betur að málum varðandi ristilkrabbamein, þar séu íslenskir karlar fyrir neðan meðallag í Evrópu samkvæmt þessari rannsókn. Sumar þjóðir hafi náð góðum árangri á því sviði með leitarstarfi. Áfram með því besta VINNUMÁLASTOFNUN hefur farið þess á leit við Impregilo að fulltrúi stofnunarinnar fái að vera viðstaddur útborgun launa til starfs- manna Tecnoservice en þeir eiga að taka við fyrstu greiðslu launa á morg- un, 1. október. Fer Vinnumálastofn- un fram á að Impregilo svari beiðn- inni eigi síðar en á hádegi í dag. Starfsmenn Vinnumálastofnunar vinna nú að því að yfirfara gögn um launagreiðslur til erlendra starfs- manna sem starfa við uppsetningu vinnubúða á vegum Impregilo á Kárahnjúkasvæðinu og segir í til- kynningu stofnunarinnar að verið sé að kanna hvort þær upplýsingar sem þar er að finna um launakjör erlendu starfsmannanna reynist fullnægj- andi. Enn nokkur atriði sem standa út af Fulltrúar verkalýðshreyfingarinn- ar í samráðsnefnd um virkjanasamn- ing við Kárahnjúkavirkjun áttu óformlegan fund með lögmanni Impregilo í gær en stefnt er að því að halda formlegan fund í samráðs- nefndinni í dag sem fulltrúar bæði at- vinnurekenda og verkalýðshreyfing- arinnar sitji. Þorbjörn Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Samiðnar, sem sæti á í samráðsnefndinni, segir að stefnt sé að því að leysa ágrein- ingsefnin. „Það er alveg klárt en það er auðvitað ekki samkomulag um allt en vinnulagið er að klára málin. Að mínu viti liggur málið nokkuð ljóst fyrir. Það eru þarna tvö þrjú atriði sem við þurfum að ná saman um en að öðru leyti hafa menn lagt málið nokkuð vel niður fyrir sig.“ Þorbjörn segir ferlið nokkuð flók- ið, menn ræði saman fyrir sunnan, síðan þurfi að senda upplýsingar austur að Kárahnjúkum og þaðan fari þær síðan til Mílanó þaðan sem svör séu send til Íslands. Þetta taki því allt nokkurn tíma þar sem allar stærri ákvarðanir séu teknar í Míl- anó. „Þetta er því ekki einfalt í fram- kvæmd.“ Aðspurður um ágreiningsatriði segir Þorbjörn að verið sé að skoða hvar laun séu greidd. Það standi mest í mönnum en lögmenn muni setjast yfir það mál í dag. Þorbjörn segist telja það æskilegt að öll laun starfsmanna verði greidd á Íslandi en nokkuð erfitt virðist að ná sátt um það mál, m.a. vegna þess að starfs- menn á vegum starfsmannaleiga séu í ráðningarsambandi erlendis. Í fréttatilkynningu Vinnumála- stofnunar segir að fjallað verði um launamál erlendra starfsmanna á fundi samstarfsnefndar á föstudag en í henni eiga sæti fulltrúar félags- málaráðuneytis, Vinnumálastofnun- ar, ASÍ, SA og Útlendingastofnunar. „Mun nefndin m.a. fjalla um fyrir- komulag á afgreiðslu þeirra umsókna um atvinnuleyfi sem nú bíða af- greiðslu og þeirra sem eiga eftir að berast vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka,“ segir í tilkynningu Vinnumálastofnunar. Vilja fá að fylgjast með út- borgun launa ATHUGUN lögreglunnar á Eg- ilsstöðum á vinnuvélarétt- indum starfsmanna við Kára- hnjúkavirkjun hefur leitt í ljós að sex erlendir starfsmenn voru ekki með tilskilin vinnu- vélaréttindi, svo sem á jarð- ýtur, hjólaskóflur og slík tæki. Mega þeir búast við sektum ef í ljós kemur við nánari rannsókn hjá sýslumanni að háttsemi þeirra reynist refsiverð. Við at- hugun lögreglunnar kom enn- fremur í ljós að í tveimur til- vikum höfðu menn ekki tilskilin réttindi til að flytja hættulegan farm. Þurfa menn að uppfylla svokallaðar ADR- reglur til þess. Einnig var gerð athugasemd við geymslu á sprengiefni sem fannst eftir- litslaust á vörubílspalli, en ís- lenskt fyrirtæki mun bera ábyrgð á sprengiefninu. Alls voru gerðar 13 skýrslur á málin og heldur rannsókn áfram hjá sýslumanni. Sumir starfsmenn án vinnu- vélaréttinda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.