Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Arnarfell, kemur í dag. Coimbra og Ey- kon fara í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Fataúthlutun þriðjudaga kl. 16–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 bað og vinnustofa, kl. 9 jóga, kl. 13 postu- línsmálun. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og handavinna, kl. 9–12.30 bókband, kl. 9 leikfimi, kl. 9.30 dans, kl. 9.45 boccia, kl. 13– 16.30 smíðar, kl. 20.30 línudans. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9– 16 handavinna, kl. 10– 11.30 sund, kl. 14–15 dans. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist, kl. 9–16.30 púttvöllurinn opinn. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 handavinnustofan op- in og vefnaður, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16 vinnustofa, tréskurð- ur, postulín, kl. 10–11 leikfimi, kl. 12.40 verslunarferð, kl. 13.15–13.45 bókabíll. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kl. 10 leir- list, kl. 12.50 leikfimi karla, kl. 13.30 tré- skurður. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Opnað kl. 9. Frjáls prjónastund, leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11.30, brids og saumar kl. 13, biljard kl. 13.30. Púttæfingar á Hrafnistuvelli kl. 14– 16. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Skák kl. 13. Alkort spilað kl. 13.30. Miðvikud.: Göngu- Hrólfar ganga frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 10. Félagsstarf eldri borgara, Mosfellsbæ. Opið kl. 13–16, kl. 17 spænska. Félag aldr- aðra í Mosfellsbæ boðar til almenns fundar í Safnaðar- heimilinu í Þverholti 3, miðvikudaginn 1. okt. kl. 20.30, í tilefni ársafmælis félagsins. Söngsveit Vorboðanna syngur. Allir 60 ára og eldri velkomnir. Kaffiveitingar. Skrif- stofan opin á þriðju- dögum kl. 10–12 í Hlé- garði. Gerðuberg, félags- starf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar frá hádegi silasalur opinn, kl. 13. boccia. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handa- vinna, kl. 9.30 gler- og postulínsmálun, kl. 9.05 og kl. 9.55 leik- fimi, kl. 10.50 róleg leikfimi, kl. 14 ganga, kl. 14.45 boccia, kl. 19 brids. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulín, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handavinna. Hraunbær 105. Kl. 9 postlín og gler- skurður, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð, kl. 13 myndlist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–10 boccia, kl. 9– 16.30 handavinna, kl. 13.30 helgistund. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 10–11 boccia, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7. Kl. 9.15–12 skinnasaum- ur, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.15– 16 postulín, kl.10.15– 11. 45 enska, 13–16 spilað og bútasaumur. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 gler- skurður og morgun- stund, kl. 10 leikfimi, kl. 13 handmennt, og postulín, kl. 14 félags- vist. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leikfimi í Bláa saln- um kl. 11. ÍAK, Íþróttafélag aldraðra í Kópavogi. Leikfimi kl. 11.20 í Digraneskirkju. FEBK. Brids spilað kl. 19 í Gjábakka. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, kl. 20, svarað í s. 552 6644 á fundartíma. Blóðbankabíllinn. Ferðir blóðbankabíls- ins: sjá www.blod- bankinn.is Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborgar- svæðinu, Hátúni 12. Kl. 20 bingó. Kvenfélag Fríkirkj- unnar í Reykjavík, heldur fund fimmtu- daginn 2. október kl. 20 í safnaðarheimilinu Laufásvegi 13, gestur fundarins verður með snyrtivörukynningu. Kaffiveitingar. Þjóðdansafélag Reykjavíkur, fyrsta „opna hús“ vetrarins verður haldið á þriðju- dagskvöldið 30. sept- ember kl. 20.30 í Álfa- bakka 14a. Gömlu dansarnir. Allir vel- komnir. Í dag er þriðjudagur 30. sept- ember, 273. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Ég, ég er Drottinn, og enginn frelsari er til nema ég. (Jes. 43, 11.)     Alþingi verður sett ámiðvikudaginn. Nokkrir þingmenn ræða komandi þing á heimasíð- um sínum.     Einn yngsti nýkjörniþingmaðurinn, Dagný Jónsdóttir, lýsir helginni hjá sér og segir m.a.: „Ég reyndi að nota helgina vel enda alveg ljóst að ekki verður mikill frítími næstu vikur. Byrjaði gær- daginn á að skella mér í leikfimi og sýndi síðan nokkrum fjölskyldu- meðlimum hinn nýja vinnustað. Anddyri gamla þinghússins er orðið tilbúið eftir gagngerar breytingar í sumar og er það stórkostlegt. Það var fært í upprunalegt horf og hefur heppnast afar vel ... Nú er ný vika hafin og á miðvikudag verður 130. löggjafarþingið sett við hátíðlega athöfn. Ég hlakka mikið til enda mörg mál sem gaman verður að fást við, en einnig erfið mál sem kannski erfiðara verður að kyngja. Þannig er þetta bara. Verð að við- urkenna að það er mjög góð tilfinning að vera bú- in að halda jómfrúarræð- una, man hvað ég var stressuð yfir henni í vor.“     Öllu reyndari þingmað-ur, Björn Bjarnason dóms- og kirkju- málaráðherra, segir á sinni síðu: „Hjól efna- hagslífsins eru farin að snúast hraðar á nýjan leik og tekjur þjóðarbúsins vaxa. Efnahags- og at- vinnustefna stjórnvalda hefur enn og aftur skilað árangri og ekki er unnt að saka þau um að halda ekki skynsamlega á þeim málum. Fjárlagafrum- varpið og umræður um það munu setja mestan svip á þingstörfin fram að áramótum. Engin skýr átakamál blasa við í upphafi þings. Fjölmörg stjórnarfrum- vörp um ýmsa þætti þjóð- lífsins verða lögð fram og tekin til umræðu. Stjórn- arandstaðan mun einnig leggja fram sín mál, en líklegt er, að hún reyni helst að draga að sér at- hygli með umræðum utan dagskrár eða fyrirspurn- um og óskum um skýrsl- ur. Kapphlaupið meðal þingmanna stjórnarand- stöðunnar við að tryggja sér mál til að taka upp ut- an dagskrár er oft næsta undarlegt.“     Annar gamalreyndurþingmaður, Jóhanna Sigurðardóttir, skrifar á vef sinn að á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í mars sl. hafi Davíð Odds- son boðað „að skatta- lækkanir sem skiptu milljarðatugum yrðu lög- festar strax á komandi þingi og tímasett hvenær þær komi til fram- kvæmda.“ Svo segir Jóhanna: „Nú er bara að bíða og sjá hvort Davíð standi við stóru orðin, þannig að á komandi þingi verði skattalækkanir lögfestar og tímasett hvenær þær komi til framkvæmda á kjörtímabilinu.“ STAKSTEINAR Þingmenn hlakka til Víkverji skrifar... FÁIR gamanþættir í sjónvarpi eruVíkverja minnisstæðari en Já, ráðherra, sem síðar varð Já, for- sætisráðherra. Þetta breska eðal- grín, sem sýnt var í Ríkissjónvarp- inu á níunda áratugnum, féll vel að húmor Víkverja. Frábærlega vel skrifaðir og leiknir þættir um kostu- leg samskipti hins vammlausa ráð- herra, James Hacker, og ráðuneyt- isstjórans slæga, Sir Humphrey Appleby. Dásamlegri karaktera minnist Víkverji vart úr sjónvarpi. Leikendurnir, Paul Eddington og Nigel Hawthorne, eru nú báðir látn- ir en snilli þeirra lifir – á skjánum. Það er ekki tilviljun að Víkverji rifjar þetta upp núna. Þannig er nefnilega mál með vexti að þættirnir eru endursýndir um þessar mundir á sjónvarpsstöðinni BBC Prime, sem næst á Fjölvarpinu. Nánar til- tekið kl. 21:30 á virkum dögum. Svona fyrir áhugamenn um klassískt grínefni í sjónvarpi. Og þeir eru ófá- ir. x x x ÞAÐ getur verið varasamt að siglaundir fölsku flaggi. Víkverji kann góða sögu um það. Það var fyr- ir mörgum árum í gömlu 4. deildinni í knattspyrnu hér heima að ónefnt félag var í vandræðum með að manna lið fyrir leik vegna forfalla leikmanna. Var þá brugðið á það ráð að virkja krafta leikmanns, sem ekki var skráður í félagið. Var honum ein- faldlega „lánað“ nafn og kennitala annars leikmanns sem ekki gat leik- ið enda enginn tími til að tilkynna fé- lagaskipti. Hófust svo leikar og lék nýi maðurinn við hvurn sinn fingur, eins og kýrnar forðum, skoraði mark og lagði upp tvö önnur. Allt gekk að óskum og engan grunaði neitt. Að leik loknum kárnaði hins vegar gamanið. Blaðamaður nokkur vatt sér að „lánsmanninum“ til að fá hjá honum upplýsingar um markaskor- ara. „Já, það voru Baddi, Siggi, Óli og...“ Þá versnaði í því. Hann mátti vitaskuld ekki gefa upp rétt nafn og mundi ekki fyrir sitt litla líf hvað maðurinn sem „lánaði“ honum nafn- ið hét. Nú voru góð ráð dýr. Og í fát- inu datt aumingja manninum aðeins eitt í hug. Hann sá félagana í liðinu ganga sigurreifa til búnings- herbergja í fjarska. Og hrópaði á eft- ir þeim: „Strákar, hvað heiti ég?“ Engum sögum fer af viðbrögðum blaðamannsins. x x x STJÖRNULEITIN er hafin áStöð 2. Víkverji hefur lítið séð af þættinum ennþá en sýnist þarna gott sjónvarpsefni á ferð. Sér- staklega framan af meðan misgóðir söngvarar láta ljós sitt skína. Sumir með skemmtilegar ranghugmyndir um eigið ágæti. Það er bara ein at- hugasemd: Er fært að alíslenskur sjónvarpsþáttur heiti Idol? Nigel Hawthorne og Paul Edding- ton í Já, ráðherra. LÁRÉTT 1 durtur, 4 beiskur, 7 áleit, 8 skurðurinn, 9 tók, 11 skelin, 13 forboð, 14 sjúkdómur, 15 málm- vafning, 17 sár, 20 ókyrrð, 22 áhaldið, 23 dreng, 24 þröngi, 25 rekkjurnar. LÓÐRÉTT 1 úldna, 2 ösla í bleytu, 3 ástundunarsöm, 4 brjóst, 5 kvaka, 6 glerið, 10 hagnaður, 12 tek, 13 tjara, 15 varkár, 16 kvabbs, 18 peningum, 19 ber, 20 guði, 21 mynni. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 fullhugar, 8 fagur, 9 angan, 10 kið, 11 syrgi, 13 sárni, 15 groms, 18 sterk, 21 tól, 22 labba, 23 apans, 24 aðkreppta. Lóðrétt: 2 uggur, 3 lerki, 4 unaðs, 5 angur, 6 ofns, 7 unni, 12 góm, 14 ást, 15 gölt, 16 ofboð, 17 staur, 18 slapp, 19 efast, 20 kúst. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 ÞJÓRSÁRVER sunnan Hofsjökuls eru óumdeilan- lega ein af perlum hálend- isins. Þetta hafa heima- menn í Gnúpverjahreppi lengi vitað. Um miðja síðustu öld varð þetta heiminum kunn- ugt með rannsóknum Bret- ans Peter Scotts og Finns Guðmundssonar fuglafræð- ings. Samtímis því sem Scott og Finnur færðu heiminum fréttir af nátt- úruundrum í Þjórsárverum komu fram hugmyndir um að nýta mætti vatnið á svæðinu til hagkvæmrar raforkuframleiðslu. Í um hálfa öld hafa sjónarmið verndunar og virkjunar tekist á. Undanfarið hefur eink- um verið litið til Þjórsár- vera sem raunhæfs virkjun- arkosts til að afla orku fyrir stærra álver í Hvalfirði. Svo mátti lengi skilja að raf- magn úr Þjórsárverum væri forsenda þess að stækka mætti álver Norðuráls. Fjölmargir náttúruverndarsinnar og sveitarstjórn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi gátu ekki fallist á framkomnar til- lögur um lón í 581, 578, 575 eða 568 m. y.s. Þessir sömu aðilar voru hins vegar reiðubúnir að una við til- lögu um lón í 566 m.y.s. sem kynnt var með úrskurði Jóns Kristjánssonar, sem viðunandi sátt í málinu, í þeim tilgangi að koma ekki í veg fyrir vöxt og viðgang ál- vers í Hvalfirði. En því er ekki að leyna að jafnvel lón í 566 m.y.s. mun hafa nei- kvæð áhrif á náttúru og landslag í Þjósárverum og vatnafar í fögrum fossum í Þjórsá. Nú hefur komið fram að Hitaveita Suðurnesja og Orkuveita Reykjavíkur geta séð álveri fyrir orku og ekki þarf að hrófla við Þjórsárverum í þeim til- gangi. Það er því deginum ljósara að virkjun í Þjórs- árverum er ekki forsenda stækkunar álversins í Hval- firði. Það er því rík ástæða til að fagna; virkjun í Þjórs- árverum er óþörf þar sem mæta má eftirspurn eftir orku með öðrum hætti. Það er því tímabært að leggja á hilluna öll áform um mann- virkjagerð á þessu svæði, stækka friðlandið og tryggja verndun svæðisins. Bæði áhugamenn um stór- iðju og náttúruvernd hafa því ríka ástæðu til að fagna nýrri stöðu í þessu erfiða deilumáli. Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Landverndar. Hungry Jack og Legenb Chevy GETUR einhver sagt mér hvar Hungry Jack-kart- öflumúsin fæst í Reykjavík? Og veit einhver hvar hægt er að fá prjónagarnið Leg- enb Chevy? Þeir sem gætu gefið upplýsingar um þetta hringi í síma 431 4250. Góð þjónusta ÉG vil koma á framfæri ánægju minni með Bón- usvideó í Drafnarfelli. Starfsfólkið þar er alveg frábært, þar er ódýrt og svo góð þjónusta. Ingibjörg. Óviðeigandi auglýsing ÉG sá auglýsingu í Frétta- blaðinu nýverið þar sem veitingahús eitt auglýsir hvolpafillet. Að vísu kemur fram í smærra letri að not- að sé lambakjöt í þennan rétt en mér finnst þessi auglýsing mjög óviðeig- andi. Hvað finnst öðrum um svona auglýsingar? Hundavinur. Tapað/fundið Gleraugu týndust BRÚN sjóngleraugu, Dies- el, týndust laugardags- kvöldið 20. september, ann- aðhvort við Bollagarða á Seltjarnarnesi eða í Eski- hlíð. Skilvís finnandi hafi samband í síma 862 1819. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Þjórsárverum loks borgið Morgunblaðið/RAXÚr Þjórsárverum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.