Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 41 Bláu húsunum Faxafeni • Sími 553 6622 • www.hjortur.is OPIÐ laugard. kl. 11-16, sunnud. kl. 11-16, mánud. kl. 11-18 og þriðjud. kl. 11-18. 30% AF ÖLLUM VÖRUM Síðustu dagar VIÐ FLYTJUM... Fjórir nemendur Páls Ísólfs- sonar enn starfandi organistar Í frétt um aðalfund Félags ís- lenskra organleikara í blaðinu sl. föstudag var sagt að þrír fyrrverandi nemendur Páls Ísólfssonar væru enn starfandi organistar, Kjartan Sigur- jónsson, Árni Arinbjarnarson og Jón Stefánsson. Í þennan hóp vantaði Birgi Ás Guðmundsson. LEIÐRÉTT AÐALFUNDUR smábátafélagsins Eldingar hefur sent frá sér ályktun þar sem fordæmd eru þau „lúalegu vinnubrögð andstæðinga línuívilnun- ar að ráðast með persónulegum hætti á formann Eldingar, Guðmund Halldórsson. Vinnubrögð af þessu tagi eru alkunn af hendi þeirra sem glíma við rökþrot og málefnafátækt. Nauðvörn slíkra aðila er að gera andstæðinga sína tortryggilega og gildir þá einu hvað er rangt eða rétt. Guðmundur Halldórsson hefur stað- ið í eldlínu þeirrar umræðu sem fram hefur farið um komandi línuívilnun og lýsir fundurinn fullu trausti á hans störf og framgöngu. Jafnframt vill fundurinn þakka einurð hans og heilindi sem formaður Eldingar, vestfirskum byggðum til heilla.“ Fordæmir vinnubrögðin EFTIRFARANDI ályktun var sam- þykkt hjá stjórn Verslunarmanna- félags Húsavíkur um álver í ná- grenni Húsavíkur: „Stjórn Verslunarmannafélags Húsavíkur fagnar þeim áfanga sem náðst hefur með undirritun viljayfir- lýsingar Húsavíkurbæjar og Atl- antsáls vegna fyrirhugaðrar upp- byggingar álvers við Húsavík. Stjórnin væntir þess að unnið verði af fullri einurð og festu við þetta mikilvæga mál – af þeim að- ilum sem að málinu koma. Stjórnin hvetur þessa aðila og stjórn Landsvirkjunar til að flýta vinnu við þetta verkefni eins og kost- ur er, þannig að uppbygging hefjist í samræmi við óskir Atlantsáls árið 2006–2007. Samfélagið á norðausturhluta landsins þarfnast fleiri, stærri og fjölbreyttari atvinnukosta á svæð- inu, svo íbúaþróun verði aftur já- kvæð á svæðinu.“ Fagna álveri við Húsavík Listasafn Íslands kl. 12.10–12.40 Dagný Heiðdal verður með hádegis- leiðsögn um sýninguna Vef lands og lita – yfirlitssýningu á verkum Júl- íönu Sveinsdóttur. Fræðslufundur um blöðruháls- kirtilskrabbamein. Krabbameins- félag Hafnarfjarðar efnir til fræðslu- fundar í Hásölum, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju við Strandgötu, í dag, þriðjudaginn 30. september, kl. 20. Eiríkur Jónsson yfirlæknir og Bjarni Magnússon fv. bankaútibús- stjóri flytja erindi. Í DAG Lagadeild Háskóla Íslands og Orator, félag laganema, halda málstofu um dóm Hæstaréttar í meiðyrðamáli Magnúsar Þórs Haf- steinssonar gegn Árna M. Mathie- sen. Málstofan verður haldin á morgun, miðvikudaginn 1. október kl. 12.15 – 14, í stofu L–101 í Lög- bergi. Málshefjendur verða Björg Thor- arensen prófessor, Róbert R. Spanó, lektor og aðstoðarmaður umboðs- manns Alþingis, og Snorri Stefáns- son, laganemi og funda- og menning- armálastjóri Orators. Fundarstjóri verður Eiríkur Tómasson, prófessor og forseti lagadeildar. Málstofa Hagfræðistofnunar Há- skóla Íslands. Á morgun, miðviku- daginn 1. október, kl. 16.15 að Ara- götu 14. Stefán Bjarni Gunnlaugsson, frá Háskólanum á Akureyri mun fjalla um hvort verið hafi samband á milli daga, mánaða, hátíða og ávöxtunar íslensku úrvals- vísitölunnar frá janúar 1993 til maí 2003. Margar rannsóknir á erlendum hlutabréfamörkuðum hafa sýnt að ávöxtun hefur verið lægri á mánu- dögum en aðra daga, ávöxtun hefur verið óvenjulega há í janúar og mjög há daginn fyrir lokanir markaða vegna hátíða. Á MORGUN Landsþing Ungra jafnaðarmanna verður haldið 3. – 5. október. Þema landsþingsins verður ,,Glæpir 2003“ þar sem m.a. verður rætt um glæpi, refsingar, klámvæðingu, vændi, man- sal, forvarnir og siðferði. Landsþingið verður sett kl. 17 í Hressingarskál- anum í Austurstræti föstudaginn 3. október og þá fara fram kosningar til framkvæmdastjórnar. Landsþingið mun svo starfa áfram alla helgina í húsnæði Kvennaskólans í Reykjavík, í Uppsölum, í Þingholtsstræti 37. Á NÆSTUNNI HELGIN gekk ágæt- lega hjá lögreglu þrátt fyrir ýmsan eril. 41 um- ferðaróhapp með eigna- tjóni var tilkynnt lögreglu. Sjö öku- menn voru grunaðir um ölvun við akstur, voru 23 teknir fyrir of hraðan akstur og fimm ökumenn fyrir akst- ur gegn rauðu ljósi. Um kl. 20 á föstudagskvöld hafði lögregla afskipti af tveimur bifreið- um vegna gruns um fíkniefnamis- ferli. Þegar lögregla reyndi að hafa tal af öðrum ökumanninum ók hann bifreiðinni af stað með miklu offorsi og næstum á lögreglumann. Bifreið- inni var veitt eftirför og hún stöðvuð við Arnarbakka. Við eftirförina sást hvar ökumaður kastaði út böggli sem í var ætlað hass. Var því framkvæmd húsleit hjá ökumanni. Þar fannst meira af fíkniefnum, neysluáhöldum og talsvert af peningum. Rétt eftir miðnætti aðfaranótt laugardags var tilkynnt um sam- kvæmi þar sem allt hafði farið úr böndunum. Lögreglumenn aðstoð- uðu húsráðanda við að rýma húsið. Um svipað leyti var bifreið stöðvuð við Höfðabakka. Ökumaður reyndist ekki vera með ökuréttindi og voru stolnar númeraplötur á bifreiðinni. Ökumanni og farþega var ekið heim og rætt við foreldra þeirra. Um kl. 2.30 var tilkynnt um bruna í miðborginni. Íbúðin var full af reyk, en eldur ekki sjáanlegur. Þarna hafði eldur komið upp í milligólfi en ekki er vitað út frá hverju kviknaði. Slökkviliðið sá um að slökkva eldinn. Um 10 mínútum síðar var tilkynnt um áflog á Lækjartorgi. Þarna höfðu menn verið að ganga Austurstræti þegar ungur maður hrifsaði veski af einum þeirra. Náðist til þjófsins á Lækjartorgi en honum tókst að hlaupa á brott. Veskið fannst hins vegar rétt hjá. Hrækti á leigubílstjóra Um kl. hálfsex á laugardags- morgni óskaði leigubifreiðarstjóri eftir aðstoð lögreglu. Hann var í vandræðum með farþega sem hafði sóðað út leigubifreiðina, hrækt fram- an í hann og neitaði að greiða áfallið ökugjald. Málið var leyst á staðnum. Um klukkustund síðar var tilkynnt rán í Lækjargötu. Tveir menn höfðu veist að tilkynnanda og heimtað af honum peninga. Þegar hann lét sig ekki hrifsuðu þeir af honum seðla- veskið og stálu úr því 1–2.000 krón- um. Tilkynnandi slapp ómeiddur, mannanna var leitað en þeir fundust ekki. Tilkynnt var um 24 eignaspjöll og 19 innbrot um helgina. Um kvöld- matarleyti á laugardag var brotist inn í bíl í Hlíðahverfinu. Stolið var úr honum geislaspilara, geisladiskum og skemmdir unnar á innréttingu. Um kl. 23 voru tilkynnt ólæti og skemmdarverk á skemmtistað. Mað- ur hafði brotið plexigler í spilakassa. Hafði hann síðan farið upp á þak á húsinu. Þar grýtti hann starfsmenn skemmtistaðarins með steinum, en þeir höfðu veitt honum eftirför. Mað- urinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Rétt fyrir kl. 5 um morguninn var tilkynnt um konu sem hafði fallið milli hæða á skemmtistað í miðborg- inni. Konan var meðvitundarlítil, hafði sár á höfði og var ölvuð. Var hún flutt á slysadeild með sjúkrabíl. Úr dagbók lögreglunnar 26. til 29. september Nokkuð um innbrot og ofbeldi um helgina UM 80 nemendur í Grunnskólanum á Hólmavík létu slagviðrið á föstu- daginn ekki aftra sér frá því að taka þátt í Norræna skólahlaupinu. Hlaupið er árviss viðburður í skóla- starfinu og hægt er að velja um 2,5 km, 5 km eða 10 km vegalengdir. Tóku allir nemendur sem mættir voru í skólann þennan dag þátt í hlaupinu ásamt kennurum. Ekki er um keppni að ræða, heldur er markmiðið að allir séu með og var það til marks um stemninguna í hlaupinu að tveir fyrstu þátttak- endur í 10 km vegalengdinni urðu samferða yfir marklínuna. Hins vegar hefur verið venjan í Grunnskólanum á Hólmavík að veita viðurkenningu þeim bekk sem nær lengstu meðalvegalengdinni. Tilkynnt verður um árangur hvers bekkjar síðar í haust. Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Nemendur 10. bekkjar voru ákveðnir í að ná hæsta meðaltalinu. Saga Ólafsdóttir, Anna Þórunn Guðbjörnsdóttir og Jakob Már Snævarsson. Á bak við þau er Steinar Ingi Gunnarsson að hvetja þau til dáða. Skólahlaup í slagviðri Hólmavík. Morgunblaðið. STARFSMENN Símans eru að koma fyrir GSM-sendi á túninu framan við Höfðabrekku í Mýrdal. Sendirinn bætir sambandið á kafla af þjóðveginum og á Hótel Höfða- brekku sem hingað til hefur verið sambandslaus í gegn um GSM- síma, og í einhverjum tilfellum hef- ur það valdið vandræðum hjá gest- um hótelsins. Þar að auki er síminn öryggistæki því björgunarsveit- irnar nota GSM til að kalla út fé- laga sína ef á þarf að halda og á svona svæði þar sem búið er í skugga Kötlu er nauðsynlegt að vera í góðu sambandi. Nýr GSM- sendir við Höfðabrekku Fagradal. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.