Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 47 ÓLAFUR Örn Bjarnason, landsliðsmaður í knatt- spyrnu og fyrirliði Grindvíkinga, fékk í gær samningstilboð frá norska úrvalsdeildarlið- inu Brann í Björgvin. Forráðamenn Brann hrifust mjög af Ólafi þegar þeir sáu hann í leik Íslendinga og Þjóð- verja á Laugardalsvelli fyrr í mánuðinum og í kjölfarið buðu þeir honum til viðræðna og að skoða aðstæður hjá félaginu „Ég sat fund með stjórnar- mönnum Brann í dag (í gær) og þar fékk ég í hendur tilboð frá félaginu sem hljóðar upp á þriggja ára samning. Ég ætla að nota næstu dagana til að skoða málið vandlega en helst vill ég draga fram yfir landsleikinn að gefa þeim svar. Mér líst mjög vel á allt sem félagið hefur upp á bjóða og það kemur sterklega til greina að fara til Brann,“ sagði Ólafur Örn við Morgunblaðið í gær. Samningur Ólafs við Grindavík rennur út um áramótin en Grind- víkingar hafa þegar boðið honum nýjan þriggja ára samning. Ólafur heldur í dag yfir til Englands þar sem hann kemur til með að æfa með Stoke fram að landsleiknum við Þjóðverja. Ólafur Örn Bjarnason með tilboð frá Brann Ólafur Örn TOBIAS Rau leikmaður Bay- ern München verður ekki með Þjóðverjum þegar þeir taka á móti Íslendingum á Stadium Hamburg þann 11. október næstkomandi. Rau tognaði á læri og verður frá æfingum og keppni næstu þrjár vikurnar. Hann tók ekki þátt í leiknum við Íslendinga á Laugardals- vellinum í byrjun þessa mán- aðar vegna leikbanns en hann var í byrjunarliði Þjóðverja í stöðu vinstri bakvarðar þegar þeir höfðu betur á móti Skot- um, 2:1, á Westfalen í Dort- mund fjórum dögum eftir leik- inn við Íslendinga. Tobias Rau ekki með gegn Ís- lendingum LITHÁAR hafa tilkynnt 26 manna landsliðshóp sinn fyrir átök við Skota í Evrópukeppni landsliða í Glasgow 11. október. Litháar hafa sett stefnuna á sigur og ef þeir taka stig af Skotum eru Íslendingar öruggir með annað sætið í fimmta riðli EM þó svo að Ísland myndi tapa fyrir Þýskalandi í Hamborg sama dag. Leikirnir fara fram samtímis – kl. 15 að íslenskum tíma. Litháar lögðu Skota að velli í fyrri viðureign þjóðanna – 1:0 í Kaunas í apríl. Með sigri í Glasgow myndi Litháen ná þriðja sæti í riðlinum. Landsliðshópur Litháen er þann- ig: Markverðir: Gintaras Stauce (Kallithea GS), Gytis Padimansksas (FC Kaunas) og Eduardas Kurskis (FC Kaunas). Varnarmenn: Ignas Dedura (Skonto Riga), Rolandas Dziaukstas (Torpedo-Metallurg Moskva), Vidas Alunderis (FC Vetra), Tomas Zvirgzdauskas (Halmstad), Darius Regelskis (FC Kaunas), Nerijus Barasa (Spartak-Alania Vladi- kavkaz), Nerijus Radzius (Chern- omorets) og Andrius Skerla (Dunfermline). Miðjumenn: Vadimas Petrenko (FC Kaunas), Deividas Cesnauskis (Dynamo Moskva), Orestas Buitkus (Skonto Riga), Igoris Morinas (Mainz), Donatas Vencevicius (Marsaxlokk), Tomas Razanauskas (Akratitos Aþenu), Andrius Gedg- audas (FC Kaunas), Arturas Stesko (Zalgiris Vilnius), Eimantas Poderis (FC Kaunas), Andrius Ksanavicius (Skonto Riga) og Deimantas Bicka (Ventspils). Sóknarmenn: Ricardas Beniusis (FC Kaunas), Edgaras Jankauskas (Porto), Dmitrijus Guscinas (Osna- brück) og Robertas Poskus (Krylya Sovietov Samara). Litháar stefna á sigur í Glasgow MANCHESTER United sækir Leeds heim í þriðju umferð ensku deildabikarkeppninnar en dregið var um helgina. Þá mæta núverandi deildabikar- meistarar Liverpool lærisveinum Graeme Souness í Blackburn á Ewood Park, en síðasti leikur lið- anna þótti nokkuð harður þar eftir lágu m.a. tveir leikmenn Liverpool illa sárir. Eiður Smári Guðjohnsen og sam- herjar í Chelsea fá næstneðsta lið 2. deildar, Notts County, í heimsókn, en liðið er í greiðslustöðvun um þess- ar mundir og því í afar ólíkri stöðu og Lundúnaliðið þar sem smjör drýpur af hverju strái um þessar mundir. Leikir þriðju umferðar verða þessir: Bristol City – Southampton Everton – Charlton Nottingham Forest – Portsmouth Blackburn – Liverpool Bolton – Gillingham Wigan – Middlesbrough Wolves – Burnley Blackpool – Crystal Palace Chelsea – Notts County QPR – Manchester City Reading – Huddersfield Aston Villa – Leicester Tottenham – West Ham Arsenal – Rotherham Newcastle – West Brom Leeds – Manchester United Leikirnir fara fram í síðustu viku október. Liverpool mætir Blackburn  DAVID Beckham verður ekki með Real Madrid þegar liðið mætir Porto í Meistadeildinni annað kvöld. Beck- ham meiddist á hægri fæti í leik Real Madrid og Valencia um helgina og er ekki leikfær. Þá er óvíst hvort fyr- irliðinn Raúl geti verið með en hann á við meiðsli að stríða í mjöðm.  ARSENAL á í nokkrum vandræð- um fyrir leikinn á móti Dynamo Moskva í Meistaradeildinni í dag. Patrick Vieira og Frederik Ljung- berg sem meiddust báðir í leiknum við Newcastle á föstudagskvöld verða ekki með og þá er ljóst að Sol Campbell tekur ekki þátt í leiknum en hann er enn að jafna sig eftir föð- urmissi.  PETER Varney, framkvæmda- stjóri Charlton, segir að forráða- menn Tottenham skuli ekki láta sig dreyma um að fá Alan Curbishley, knattspyrnustjóra Charlton, til liðs við sig. Curbishley hefur stýrt Charl- ton í 12 ár með athyglisverðum ár- angri og er sá knattspyrnustjóri sem hefur verið næstlengst í starfi hjá þeim liðum sem nú eru í úrvalsdeild- inni. Aðeins Sir Alex Ferguson hefur verið lengur hjá Manchester United.  VITAÐ er að forráðamenn Totten- ham hafa haft Curbishley undir smá- sjánni undanfarna daga eftir að þeir leystu Glenn Hoddle frá störfum. „Curbishley hefur skotið sterkum rótum hjá Charlton og það þarf eitt- hvað einstakt að koma upp til þess að hann verði rifinn upp með rótum. Öll- um fyrirspurnum frá Tottenham verður vinsamlega vísað á bug,“ sagði Varney í gær.  SKOTAR urðu fyrir áfalli í gær þegar í ljós kom að meiðsli framherj- ans Stevens Thompsons eru það al- varleg að hann verður frá í allt að sex mánuði. Þar með er ljóst að hann verður ekki með Skotum þegar þeir taka á móti Litháum í undankeppni EM á Hampden Park í Glasgow í næsta mánuði en Skotar eiga í harðri baráttu við Íslendinga og Þjóðverja um tvö efstu sætin í 5. riðli EM. FÓLK Hermann hefur ekkert getað spil-að frá því í jafnteflisleiknum gegn Þjóðverjum á Laugardalsvell- inum þann 6. september en hann varð fyrir því óláni að meiðast á æf- ingu Charltonliðsins á fyrstu æfingu eftir landsleikinn. „Ég er allur að koma til og get vonandi farið að æfa með liðinu á miðvikudag eða fimmtudag. Það kom rifa í liðband í hnénu og það tekur sinn tíma að jafna sig á því. Ég hef samt getað hlaupið og haldið mér í formi en ég hef ekki get- að sparkað. Ég reima á mig takkaskóna í vik- unni og þá kemur í ljós hvernig ég er en ég verð 100% klár í leikinn við Þjóðverja,“ sagði Her- mann við Morgunblaðið í gær. Hermann á ekki von á að hann spili með Charl- ton á móti Portsmouth um næstu helgi og þar nær hann ekki að spila neinn leik fyrir leikinn þýðingar- mikla á móti Þjóðverjum. „Vissulega hefði verið gott að ná að spila eitthvað fyrir landsleikinn en það verður víst ekki á allt kosið í þessu. Ég tel hæpið að ég komi inn í liðið um næstu helgi þar sem ég er rétt að skríða saman; ekki nema að meiri háttar meiðsl verði í hópnum,“ sagði Hermann sem sá félaga sína vinna góðan sigur á Liverpool á sunnudag- inn. „Þetta var virkilega sætur sigur og sárabót fyrir tapið á móti Manchester Unit- ed. Okkur tókst loks að vinna heima- sigur og það var mikil gleði í okkar herbúðum eftir leikinn.“ Hermann klár í slaginn í Hamborg HERMANN Hreiðarsson lands- liðsmaður í knattspyrnu, sem leikur með enska úrvalsdeildar- liðinu Charlton, segir 100% öruggt að hann verði klár í slag- inn með íslenska landsliðinu þegar það mætir Þjóðverjum í undankeppni EM í Hamborg í næsta mánuði. Hermann Hreiðarsson AP Helgi Sigurðsson, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu, fyrir miðju, fagnar marki sínu sem tryggði Lyn sigur á PAOK í UEFA-leik í Grikklandi í sl. viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.