Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÞEGAR sólin lækkar á lofti getur
hún teiknað skrýtnar og skemmti-
legar myndir með skuggunum.
Trjánum fjölgar, einn maður verð-
ur sem tveir menn og allt endur-
varpast þetta í nýjum myndum á
næsta húsvegg eða annars staðar
þar sem pláss er fyrir þessi sjálf-
virku listaverk.
Morgunblaðið/Kristinn
Nýjar
myndir með
skugganum
SIF Vígþórsdóttir, skólastjóri Hall-
ormsstaðarskóla, segir það lán fyrir
skólann að fötluð börn skuli vera þar
í námi og leggur jafnframt áherslu á
að hver nemandi fái menntun við
hæfi og öðlist jákvætt viðhorf til
menntunar.
„Við erum svo heppin að vera með
fötluð börn í skólanum sem fá okkur
enn frekar til að beina sjónum að því
að hvert barn er einstakt, enda eru
orðin „Nemendur eru einstakir“ ein-
kunnarorð skólans,“ segir Sif.
Í skólanum fer fram nám sem er
lagað að þörfum hvers barns og
áhersla lögð á sjálfsmyndina. Að
sögn Sifjar skilar sjálfsöryggið þeim
vonandi vellíðan í framtíðinni.
Fleiri fréttum fer af skólastarfi á
landsbyggðinni því Fjölbrautaskóli
Vesturlands á Akranesi og Verk-
menntaskólinn IT IS Giorgi í Mílanó
hafa myndað með sér samstarf og nú
í september hafa tíu ítalskir ungling-
ar dvalið hér á landi. Í ferðinni lögðu
nokkrir hugrakkir úr hópnum fram-
andi fæðu sér til munns, nefnilega
hákarl. Einnig fóru Ítalirnir í réttir
þar sem tveir þeirra fengu að kynn-
ast þeirri hefð að draga fé í dilka.
Frá Hafnarfirði berast einnig
fréttir af Menntaskólanum Hrað-
braut sem er að hefja sitt fyrsta
starfsár. Skólastjórinn, Ólafur
Haukur Johnson, segir nemendum
ganga vel, en meðaleinkunn eftir
fyrstu námslotuna var 7,4.
Í blaðinu í dag er sagt frá kennara
í Glerárskóla sem nýtir sér tæknina
með því að tala í hátalarakerfi í
kennslunni. „Mér finnst að þetta
ætti að vera staðalbúnaður í hverri
kennslustofu eftir að hafa nýtt mér
þessa tækni,“ segir Guðrún Þóra
Björnsdóttir. „Ég finn mikinn mun á
mér og þarf ekkert að vera að mis-
beita röddinni, heldur get ég hækk-
að og lækkað í tækinu eftir þörfum.“
„Heppin að vera
með fötluð börn
í skólanum“
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hrefna Egilsdóttir kennari og Rut Karlsdóttir í sjöunda bekk Hallorms-
staðarskóla fara yfir námstilhögun næstu daga og vikna.
Minn staður/16–21
UNGUR selur sem skreið upp
á bryggjur á Seyðisfirði á flóði
í gær sýndi engin merki mann-
fælni er sex ára snót, Elísa
Björk, heilsaði upp á hann.
Bærði hann sig vart þótt
mannfólkið kæmi nálægt.
Hann greip þó tækifærið er
flæddi að til að láta sig hverfa
í hafið á ný.
Mannblend-
inn selur
Ljósmynd/Einar Bragi Bragason
KAUPÞING-BÚNAÐARBANKI
hefur eignast 30,35% hlutafjár í
finnska fjárfestingarfélaginu
Norvestia Oyj sem skráð er í kaup-
höllinni í Helsinki. Kaupþing-Bún-
aðarbanki fer með 54,44% atkvæð-
isréttar í félaginu. Bankinn greiðir
fyrir Norvestia með útgáfu 33,2
milljóna nýrra hluta og er andvirði
kaupanna um 5,5 milljarðar króna.
Gengi á hlutunum sem bankinn
gefur út er meðalgengi Kaupþings-
Búnaðarbanka síðustu þriggja
mánaða, eða 167. Seljandi hlutanna
er sænska fjárfestingarfélagið
Havsfrun AB sem skráð er á
O-lista Kauphallarinnar í Stokk-
hólmi. Havsfrun á enga hluti í
Norvestia eftir söluna.
Starfsemi á öllum
Norðurlöndunum
Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings-Búnaðarbanka,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
kaupin á Norvesta hefðu fengið já-
kvæðar viðtökur hjá öðrum hlut-
höfum Norvesta. „Þau skilaboð
sem við fáum frá stærstu eigendum
í minnihluta er að þeir líta á þetta
sem mjög jákvæða þróun fyrir
Norvesta,“ sagði Hreiðar Már.
Hann sagði að næst á dagskrá í
Finnlandi væri að auka eigið fé
Kaupþings Sofi, sem á næstunni
verður breytt í Kaupþing Bank
Finland, og sækja síðan um banka-
leyfi. Hann sagði að viðskiptahug-
mynd bankans væri að reka banka
á öllum Norðurlöndunum og sú
umgjörð sem félagið hefði skapað
sér í Svíþjóð í dag, þar sem búið er
að byggja upp fjölþætta banka-
þjónustu, væri sú umgjörð sem
ætti að skapa í Helsinki, Osló og
Kaupmannahöfn. „Hugmyndin er
að reka alhliða fjármálafyrirtæki á
Íslandi og reka síðan fjárfesting-
arbanka í Finnlandi, Noregi, Sví-
þjóð og Danmörku.
Kaupþing-Búnaðarbanki fjárfestir
í finnsku fjárfestingarfélagi
Greiðir 5,5
milljarða
fyrir hlutinn
Kaupverðið/12
VERIÐ er að rannsaka hvort kind af
bæ í Hrunamannahreppi sé sýkt af
riðuveiki. Reynist grunurinn á rök-
um reistur verður fjárstofninum
fargað. Þrisvar áður hefur greinst
riða í Hrunamannahreppi, í öllum til-
vikum á sömu slóðum.
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir
á Keldum, segir að við aðra leit á af-
rétti hafi komið fram veik kind.
Bændur væru á varðbergi því áður
hefði greinst riða á þessu svæði.
Kindin var felld og sýni tekin til
rannsóknar í tilraunastöð Háskólans
í meinafræði á Keldum. Sigurður á
von á að endanlegar niðurstöður
liggi fyrir eftir um það bil tvo daga.
Hann segir að ef þetta reynist
riðuveiki verði leitað eftir samkomu-
lagi við ábúendur um að farga öllu fé
á bænum og því fé sem gengið hafi
saman við það. Því fylgi að fjárlaust
verði á bænum í að minnsta kosti tvö
ár. Sigurður segir ekki tímabært að
segja hvort víðtækari niðurskurður
á svæðinu komi til greina, það fari
eftir aðstæðum og um það verði haft
samráð við heimamenn.
Fjórða tilfellið
Þrisvar hefur greinst riða í
Hrunamannahreppi á síðstu fimm-
tán árum, síðast fyrir rúmum tveim-
ur árum, og í öllum tilvikum á sama
svæði og grunaða kindin er af.
Reynist þessi grunur réttur er
þetta fjórða riðutilfellið á landinu í
ár. Áður hefur komið upp riða á bæj-
um í Víðidal, Ölfusi og Svarfaðardal.
Á árinu 2002 voru tvö riðutilfelli og
eitt árið á undan.
Grunur
um riðu-
smit á bæ í
Hreppum
FRUMSÝNING leikhópsins Vest-
urports á Rómeó og Júlíu eftir
Shakespeare í Young Vic-leik-
húsinu í Lundúnum var um tíma í
uppnámi vegna ágreinings leik-
hópsins og öryggisráðgjafa leik-
hússins en flóknir loftfimleikar eru
snar þáttur í sýningunni. Málum
var þó miðlað og frumsýningin
verður annað kvöld.
Að sögn Ólafs Egils Egilssonar,
sem leikur í sýningunni, leist ör-
yggisráðgjöfunum, hópi atvinnu-
manna á sviði loftfimleika ytra,
ekki á blikuna. „Þeir stungu við fót-
um og tjáðu okkur af breskri hátt-
vísi að þó að það gæti vel verið að
við hefðum komist klakklaust í
gegnum okkar 60 sýningar með
þessum útbúnaði gætu þeir ekki
gengið í ábyrgð fyrir næstu 60 sýn-
ingar nema við sættum okkur við
að nota þeirra flugkerfi, sverari
víra, öryggislínur og fleiri afar
sjónmengandi fyrirbæri.
Um stund virtist vandamálið óyf-
irstíganlegt og það var ekki fyrr en
forsprakki leikhópsins, Gísli Örn
Garðarsson, tefldi á tæpasta vað og
bjóst til þess að blása sýninguna af
ef ekki yrði sest að einhvers konar
samningum um málamiðlun að stífl-
an brast. Leikhússtjórinn sjálfur,
öðlingurinn David Lan, var kall-
aður til og settur inn í málið, allir
mögulegir kostir tíndir til og hafist
var handa við að finna einhverja úr-
lausn sem allir gætu sæst á. Nokkr-
um tímum síðar lá lausnin fyrir; ís-
lensku áhöldin – með bresku öryggi
og allt skyldi þrautreynt í umfangs-
miklu tæknirennsli sem hefði for-
gang fram yfir aðrar æfingar.“
Loftfimleikar fóru fyrir
brjóstið á öryggisráðgjöfum
Gísli Örn Garðarsson í loftunum í
hlutverki Rómeós í Young Vic. Litlar áhyggjur/25