Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 11 „ÞAÐ ER erfitt að fá vinnu og var það sérstaklega þegar ég var að leita sem mest að vinnu fyrir hálfu ári,“ segir Sigmundur S. Jónsson, 19 ára, sem starfar á trésmíða- verkstæði Fjölsmiðjunnar. Í sama streng tekur Silja Hanna Guð- mundsdóttir, 17 ára, úr Breiðholti. Hún starfar nú í mötuneytinu í Fjölsmiðjunni enda segist hún hafa mikinn áhuga á matreiðslu. Þau segjast bæði hafa fengið vinnu í Fjölsmiðjunni í gegnum vinnu- miðlun en Silja bendir á að hún hafi fyrst heyrt um Fjölsmiðjuna og þá starfsemi sem þar fer fram í fjölmiðlum. „Ég var búin að vera á atvinnuleysisbótum í tvo mánuði áður en mér var bent á Fjölsmiðj- una og núna hef ég verið hér í rúma fimm mánuði,“ segir Sig- mundur. Silja hefur verið skemur í vinnu hjá Fjölsmiðjunni eða í fjór- ar vikur. „Mig langaði að prófa þetta,“ segir Sigmundur spurður um ástæður þess að hann ákvað að fara í vinnu í Fjölsmiðjunni og Silja segir það sama eiga við um sig. „Það er mjög gaman að vinna með jafnöldrum sínum, það eru fín- ir krakkar hérna, góður félags- skapur,“ segir Silja. Sigmundur er sammála. „Það að vinna með jafn- öldrum er aðallega það sem er skemmtilegt við þetta,“ útskýrir hann og segir hópinn samheldinn. Sigmundur segir vinnuna á tré- smíðaverkstæðinu fjölbreytta og nefnir sem dæmi að undanfarið hafi starfsmennirnir verið að setja saman sumarhús og klæða þau. „En það eru líka mörg önnur verk- efni sem tengjast tré.“ Hann hafði ekki áður komið nálægt smíðum en segist hafa fengið góða leiðsögn á trésmíðaverkstæðinu. „Ég veit það ekki, kannski,“ svarar hann spurð- ur um hvort hann vilji verða smið- ur í framtíðinni en játar að áhugi sinn á greininni sé nú kveiktur. Silja segir sömuleiðis nóg að gera í eldhúsinu en starfsmenn- irnir þar sjá um morgunmat og há- degismat. „Ég hef mikinn áhuga á matreiðslu og hef kannski áhuga á að læra hana,“ segir Silja. „En það kemur mjög margt annað líka til greina.“ Silja og Sigmundur stefna bæði að því að fara í nám fljótlega, Sig- mundur hyggst hefja framhalds- nám til stúdentsprófs um áramótin og Silja á eftir að gera upp við sig hvað hún vilji læra. Þau nýta sér bæði það nám sem boðið er upp á í Fjölsmiðjunni sem þau segja góðan undirbúning fyrir frekara nám. Silja Hanna Guðmundsdóttir og Sigmundur S. Jónsson vinna í Fjölsmiðjunni Skemmti- legt að vinna með jafnöldrum Silja Hanna Guðmundsdóttir vinn- ur í mötuneyti Fjölsmiðjunnar. Sigmundur S. Jónsson er að sögn kunnugra listasmiður en hann starfar á trésmíðaverkstæði Fjölsmiðjunnar og segist kannski vilja verða smiður.  FJÖLSMIÐJAN er sjálfs- eignarstofnun þar sem starfrækt er verkþjálf- unar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16–24 ára, sem hætt hefur námi og ekki fótað sig á vinnumarkaði. Hugmyndin er fengin frá dönsku „Pro- duktion“-skólunum, en slík starfsemi þekkist víða í Evrópu þótt Danir séu taldir fremstir á þessu sviði. Hefur Fjölsmiðjan átt mjög gott samstarf við slíkan skóla í Óðinsvéum, og þegið þaðan góð ráð.  Markmiðið er að bjóða fjöl- þætta verkþjálfun og fræðslustarfsemi því unga fólki er þar starfar og greiða fyrir störf þeirra sem svarar til atvinnuleys- isbóta. Þar vinna um 40 nemar í 7–10 manna verk- deildum undir verkstjórn fagfólks. Eftirtaldar deildir eru í boði: Trésmíðadeild, hússtjórnar- og mat- reiðsludeild, tölvu- og prentdeild og bílaþvotta- deild.  Fjölsmiðjan er líka þjálf- unar- og endurhæfing- arstaður fyrir ungt fólk, sem þarf undirbúning fyrir frekara nám eða störf. Hún er ekki meðferð- arstofnun, heldur hentugur vinnustaður fyrir ungt fólk sem er að fóta sig að nýju úti á lífsins vegum eftir áföll. Það getur skipt um verkdeild eftir að það hef- ur störf, ef því sýnist önnnur deild áhugaverðari en sú er þeir völdu í upp- hafi. Framleiðsla og þjón- usta Fjölsmiðjunnar er seld á markaði og tekj- urnar standa undir hluta af þeim kostnaði sem hlýst af rekstri hennar.  Fjölsmiðjan var formlega stofnuð 15. mars árið 2001. Stofnendur eru félagsmála- ráðuneytið/Vinnu- málastofnun, Rauði kross Íslands, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær, Kópa- vogsbær, Seltjarn- arnesbær, Mosfellsbær, Garðabær og Bessa- staðahreppur. Mennta- málaráðuneytið stuðlaði einnig að stofnun Fjöl- smiðjunnar og á fulltrúa í stjórn hennar. V IÐ erum ekki meðferð- arúrræði heldur vinnu- staður fyrir ungt fólk. Við erum kannski svo- lítið öðruvísi vinnu- staður að því leyti að þegar mæting starfsmannanna er orðin góð, þeir farnir að ná tökum á vinnunni og geta látið sér lynda við samstarfs- fólkið, sem við teljum mjög mik- ilvægt, viljum við losna við þá,“ seg- ir Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar í Kópavogi, þriggja ára tilraunaverkefnis sem byrjaði fyrir rúmum tveimur árum. Í júlí á næsta ári verður árangur starfsins metinn og ákvörðun um framhaldið tekin. Þorbjörn segist stoltur af unga fólkinu sem sótt hefur vinnu í Fjöl- smiðjunni á þessum tíma. Um 40 ungmenni á aldrinum 16-24 ára vinna þar að jafnaði. Þau eiga það sammerkt að hafa flosnað upp úr skóla og vinnu af ýmsum ástæðum. Þorbjörn segir að stutt sé við bakið á ungmennunum með ýmsum hætti í Fjölsmiðjunni. Þar sé strangt eftirlit með mætingu og ár- angri og þegar krakkarnir standa sig vel er þeim umbunað með ýms- um hætti. „Við reynum að vera vinir þeirra og þau geta leitað til okkar í fullum trúnaði með ýmis mál,“ út- skýrir hann en sjö manna starfslið er unga fólkinu innan handar á vinnusetrinu. Hann leggur áherslu á að í gegnum vinnu og nám sé sjálfstraust þeirra byggt upp en margir séu nú ekki borubrattir er þeir hefji störf í Fjölsmiðjunni. Hann bendir á að oft hafi ungmenn- in sótt um fjölmörg störf, en íslensk fyrirtæki virðast hafa tamið sér að svara ekki einu sinni starfs- umsóknum. Það skilur umsækj- endur eftir í óöryggi og getur haft slæmar afleiðingar á ungt fólk sem ekki er fullt sjálfstrausts fyrir. Fjölsmiðjan á sér danska fyr- irmynd en hugmyndin var þó út- færð og aðlöguð að íslenskum að- stæðum. Margskonar starfsemi fer þar fram og eru fyrirtæki og stofn- anir jafnt sem einstaklingar í hópi dyggra viðskiptavina. Smíðað, bónað, prentað og eldað Á trésmíðaverkstæðinu sem er vel tækjum búið er smíðað allt frá gluggakörmum upp í sumarhús. Þá er rekin bón- og bílaþvottastöð þar sem vandvirknin er höfð ofar öllu að sögn Guðmundar Þorsteinssonar, sem hefur umsjón með þvottastöð- inni. „Við viljum frekar skila góðri vinnu heldur en flýta okkur,“ segir hann og blaðamaður sannfærist er hann sér ungan mann bóna af mik- illi varfærni. Í prent- og tölvudeild- inni fást ungmennin við ýmis verk- efni tengd tölvum, frágang á ýmsum verkum, prenta á plastkort, gorma bæklinga og ljósrita svo fátt eitt sé nefnt. Vörum frá Heilsuhús- inu er pakkað á annarri starfsstöð í húsinu og þá vinna ungmennin einnig í mötuneytinu sem starfsfólk Landspítala - háskólasjúkrahúss sækir. Kennari starfar í Fjölsmiðjunni og geta ungmennin ráðið því hvort þau stundi nám hluta vinnutímans. Guðlaug Teitsdóttir kennari segir að mörg þeirra ákveði í kjölfarið að hefja nám í framhaldsskóla að hausti eða um áramót. Ungmennin geta einnig fengið út- rás fyrir listsköpun sína og víða má sjá listaverk á veggjum sem ung- mennin hafa sjálf unnið. Gistihús og útgerð Þorbjörn segist sjá enn frekari uppbyggingu Fjölsmiðjunnar fyrir sér verði áframhald á verkefninu. Hann bendir t.d. á þann möguleika að reka gistiheimili í gamla Holds- veikraspítalanum sem er rétt hjá Fjölsmiðjunni. Þá segir hann hug- myndir um útgerð enn lengra á veg komnar. „Við erum sjávarútvegs- þjóð og því væri útgerð alveg til- valin,“ segir hann. Ungmennin starfa mislengi hjá Fjölsmiðjunni. Er þau eru komin á rétt ról aðstoðar starfsfólkið þau við að sækja um vinnu annars staðar. Þorbjörn segir reynsluna af starfseminni góða og sífellt sé betri árangur að nást. Um 80% þeirra sem sótt hafa þar vinnu og „útskrif- ast“ hafa annaðhvort farið í skóla eða fengið vinnu annars staðar. Hann segir það sparnað fyrir fé- lagsmálayfirvöld og sveitarfélögin til lengri tíma litið að krakkarnir vinni í Fjölsmiðjunni í stað þess að vera á bótum sem eru örlítið lægri en atvinnuleysisbæturnar sem laun ungmennanna í Fjölsmiðjunni mið- ast við. Þó að vel sé stutt við bakið á Fjölsmiðjunni og tekjur af starf- seminni séu þó nokkrar má betur gera ef duga skal. Fjölmörgum um- sækjendum þarf að vísa frá þar sem vinnusetrið getur ekki haft nema 40 ungmenni í vinnu á hverjum tíma. Þorbjörn bendir á að ávinningurinn af starfinu sé mikill og margskonar. Hann segist hafa séð margt ung- mennið springa út og blómstra í Fjölsmiðjunni, sem ekki verður metið til fjár. Vinnusetrið Fjölsmiðjan í Kópavogi hefur 40 ungmenni í vinnu í margs konar störfum Morgunblaðið/Þorkell Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, segir árangur af starfinu góðan. Kringum 80% þeirra sem stundað hafa þar vinnu hingað til hafa í kjölfarið fengið vinnu á almennum vinnumarkaði eða farið í skóla. Ungt fólk búið undir almennan vinnumarkað Í Fjölsmiðjunni í Kópavogi starfar ungt fólk sem hefur hætt námi og ekki náð að fóta sig á almennum vinnumarkaði. Sunna Ósk Loga- dóttir kíkti í heimsókn og komst að því að með því að byggja upp sjálfstraust ungmenna í gegnum vinnu og nám er heilmargt unnið. Markmið Fjölsmiðj- unnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.