Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigurbjörn GuðniSigurgeirsson fæddist í Reykjavík 1. desember 1981. Hann lést hinn 20. september síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Margrét Erla Benónýsdóttir, f. 23.10. 1956, og Sigur- geir Ingimundarson, f. 25.11. 1955. Systk- ini Sigurbjörns eru: 1) Benóný Hilmar Sigurgeirsson, f. 25.11. 1976, unnusta Vigdís Kristjánsdótt- ir. Dóttir Benónýs er Sunneva Lind, f. 19.8. 2001, móðir hennar er Katrín Ásbjörnsdóttir. 2) Guð- laug Íris Sigurgeirsdóttir, f. 20.10. 1978. Hálf- systkini Sigurbjörns eru: Yrsa Þöll Sigur- geirsdóttir, f. 22.10. 1997, móðir Særún Gunnarsdóttir; Sig- tryggur Kjartan Sig- urgeirsson, f. 4.8. 2003, móðir hans og eiginkona Sigur- geirs er Barbara Þ. Kjartansdóttir. Sonur Sigurbjörns er Grétar Rafn Sig- urbjörnsson, f. 9.8. 1999, móðir Birgitta Birgisdóttir, f. 4.2. 1983. Útför Sigurbjörns verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. „Innra með mér er myrkt, en hjá þér er ljós. Ég er einmana en þú lætur mig ekki eftir einan. Veikur er ég en hjá þér er hjálp. Ég er órólegur en hjá þér er friður. Innra með mér er biturleiki en hjá þér er þolinmæði. Ég skil ekki vegu þína en þú þekkir veginn sem ég á að ganga. Amen.“(Bonhoeffer) Elsku Sigurbjörn minn. Ég vona að þér líði betur núna þó að það sé erfitt að skilja af hverju þú valdir þessa leið út úr lífinu þar sem þú hafðir svo margt að lifa fyrir. Þú átt yndislegan son, sem fær að vita hvað hann átti sterkan og duglegan pabba sem hann getur alltaf verið stoltur af. Fyrirgefðu að ég hlust- aði ekki nógu vel á það sem þú hafðir að segja og reyndi ekki að sýna áhugamálum þínum meiri at- hygli. Ég vildi að ég gæti breytt svo miklu, en það er orðið of seint núna. Ég mun biðja fyrir þér og minnast þín sem hetju sem gerði sitt í lífinu til að gleðja aðra. Ég mun alltaf elska þig og ég á eftir að sakna þín mikið, en ég vona að þú og Benni afi, sem við litum báðir svo mikið upp til, vaki yfir okkur öllum og styrki okkur í gegnum súrt og sætt. Þinn stóri bróðir Benóný. Ég bíð þess að þú vekir mig upp úr þessum vonda draumi og segir mér að allt muni verða í lagi. Þar er erfitt að vita að þú sért farinn og komir ekki aftur, að ég geti aldrei aftur talað við þig og haldið utan um þig. En til að hjálpa mér á þessum erfiðu stundum hef ég allar þær fallegu minningar sem þú hef- ur gefið mér. Margt er það, og margt er það, sem minningarnar vekur, og þær eru það eina, sem enginn frá mér tekur. Aldrei var mér heitara en undir vængnum mjúka. Fjaðrir hans sem flýgur hæst, fékk ég að strjúka. (Davíð Stefánsson.) Þó er ég glöð að hafa fengið að kynnast þér, elska þig og vera með þér, og að þú hafir tekið allan þann tíma úr lífi þínu til að vera með mér. Ég sakna þín meira en orð fá lýst, og aldrei mun ég gleyma þér og þeim yndislegu stundum sem við áttum saman. Þú varst minn vetrareldur. Þú varst mín hvíta lilja, bæn af mínum bænum og brot af mínum vilja. Við elskuðum hvort annað, en urðum þó að skilja. Ég geymi gjafir þínar sem gamla helgidóma. Af orðum þínum öllum var ilmur víns og blóma. Af öllum fundum okkar slær ævintýraljóma. Og þó mér auðnist aldrei neinn óskastein að finna, þá verða ástir okkar og eldur brjósta þinna ljós á vegi mínum og lampi fóta minna. (Davíð Stefánsson.) Þín Signý. Elsku Sigurbjörn minn. Ég veit eiginlega ekki hvað ég get sagt á stundu sem þessari. Að kveðja þig reynist mér og öllum sem þig þekktu ólýsanlega erfitt. Ég kynnt- ist þér fyrst fyrir um það bil níu ár- um og þótti strax vænt um þig, enda varstu slíkur demantur að það var ekki hægt annað en að sýna þér væntumþykju. Þú varst alveg einstakur strákur, góðhjart- aður, síbrosandi og gast grínast endalaust í manni með þessum skemmtilega kaldhæðnishúmor sem tilheyrir þinni fjölskyldu. Það var ósjaldan sem ég var heima hjá þér og þínum og hló mig máttlausa af vitleysisganginum í ykkur systk- inunum. Svo var alltaf gaman að heyra einhverja kjánalega rödd svara í símann hennar Írisar að reyna að plata mig. Ég mun sakna þess. En nú er komið að því að kveðja þig í síðasta sinn. Elsku Sibbi minn, ég vona að þú hafir vitað hvað mér þótti vænt um þig og þykir enn og ég mun aldrei gleyma þér. Megi Guð blessa þig og varð- veita að eilífu. Elsku Magga mín, Benni minn, Íris mín, Didda mín og aðrir að- standendur, Guð blessi ykkur og styrki í sorg ykkar og missi. Jóna Hlín. SIGURBJÖRN GUÐNI SIGURGEIRSSON ✝ Stefanía Ásbjarn-ardóttir hjúkrun- arkona fæddist á Guðmundarstöðum í Vopnafirði 18. nóv- ember 1919. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopna- firði miðvikudaginn 17. september síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Ásbjörn Stefánsson, bóndi á Guðmundarstöðum, f. 27. október 1877, d. 4. júní 1947, og Ást- ríður Kristjana Sveinsdóttir, f. 6. desember 1886, d. 12. nóvember 1956. Foreldrar Ásbjarnar voru Stefán Ásbjarnarson, bóndi á Guð- mundarstöðum, og Stefanía Jóns- dóttir. Foreldrar Ástríðar voru Sveinn Valdimarsson og Anna stöðum, hún stundaði nám við Hús- mæðraskólann á Laugum 1938– 1939 og lauk síðan námi frá Hjúkr- unarskóla Íslands 1952. Stefanía starfaði á lyflækninga- og hand- lækningadeild Landspítalans fyrstu mánuðina að námi loknu en hóf síð- an störf á skurðstofu Landspítalans þar sem hún starfaði nær óslitið til ársins 1965 en þá fór hún til Odense amts og bys sygehus þar sem hún var í tvo mánuði að sérhæfa sig í sótthreinsun og starfar síðan á sótt- hreinsunardeild Borgarspítalans í nokkur ár. Frá árinu 1970 til ársins 1979 starfaði hún við heimahjúkrun aldraðra og í Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12. Stefanía bjó í Reykjavík þar til hún fluttist til Vopnafjarðar í september árið 2000 þar sem hún bjó í Sundabúð, dvalarheimili aldr- aðra, til dauðadags. Stefanía var ógift og barnlaus. Útför Stefaníu fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði þar sem Stef- anía mun hvíla við hlið Guðrúnar Ólafíu systur sinnar. Guðnadóttir. Systkini Stefaníu voru: Stefán, f. 4. október 1910, Þór- dís, f. 9. desember 1911, d. 19. júní 1912, Kristjana, f. 21. sept- ember 1913, d. 13. febrúar 1990, Björn, f. 21. desember 1914, d. 14. desember 1936, Guðrún Ólafía, f. 19. júní 1916, d. 16. októ- ber 2002, Sighvatur, f. 8. ágúst 1918, d. 3. febrúar 1999, Anna Sigríður, f. 9. apríl 1922, d. 22. janúar 1950, Ástríður Sólveig, f. 26. janúar 1926. Uppeld- issystur Stefaníu voru Ástríður Helgadóttir, f. 14. júlí 1933, og Hrönn Jónsdóttir, f. 28. apríl 1944 en hún er dóttir Guðrúnar Ólafíu. Stefanía ólst upp á Guðmundar- STEFANÍA ÁSBJARNARDÓTTIR Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, TOVE JÓSEPSSON, Álasundi, Noregi, áður búsettri á Patreksfirði. Guðbjörg Þórðardóttir, Jens Ringstad, Anna Þórðardóttir, Steinþór Agnarsson, Edith Þórðardóttir, Auðbergur Magnússon og barnabörn. Sérstakar þakkir til tónlistarfólksins sem gerði útför HALLDÓRS J. HANSEN fyrrverandi yfirlæknis, ógleymanlega. Einnig þakkir til þeirra sem önnuðust hann á 5-L Landspítala Landakoti og þeim mörgu sem vottuðu honum virðingu sína með heimsóknum og minningarkortum. Agla Marta Marteinsdóttir, Ragnheiður M. Ásgrímsdóttir og aðrir ættingjar og vinir hans. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, systur, ömmu, langömmu og langa- langömmu, ÞORBJARGAR HALLMANNSDÓTTUR frá Króki í Ölfusi. Guðmundur Einar Pálsson, Reynir Pálsson, Maríe LaCour Hansen, Sigurður Ingi Óskarsson, Gunnhildur Aagot Gunnarsdóttir, Hallmann Ágúst Óskarsson, Erna Pétursdóttir, Björgvin Snævar Edvardsson, Björg Óskarsdóttir, Guðni Andreasen, Garðar Óskarsson, Árný Guðrún Jakobsdóttir, Óskar Þór Óskarsson, Sigrún Sigurðardóttir, Jón Ólafur Óskarsson, Þórdís Sigurþórsdóttir, Sigurður Hallmannsson, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs sonar okkar, bróður, mágs, barnabarns og frænda, ÍVARS GUÐJÓNSSONAR, Klapparbraut 14, Garði. Guð blessi ykkur öll. Erla Elísdóttir, Guðjón Ívarsson, Heiða Björk Guðjónsdóttir, Carl Jóhann Gränz, Elísabet Guðjónsdóttir, Úrsúla María Guðjónsdóttir, Ívar Magnússon, Ursula Magnússon, Ásdís Elva Gränz. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, ÞORSTEINN SNORRI AXELSSON, Teigaseli 3, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 2. október kl. 13.30. Aðalheiður Björg Þorsteinsdóttir, Grétar Sigurðsson, Axel Þórarinn Þorsteinsson, Veronica Nyman Karen, Helga Guðrún Þorsteinsdóttir, Ulf Christer Snorri, Kolbrún, Þórdís, Lovísa og Sylvia, Óskar Egill, Ingimundur, Steinunn, Hallgrímur og Guðlaug, Lárus og Hugrún, Páll og Kristjana, Erla og Bjarni Torfi. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug vegna andláts og útfarar ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HÁRLAUGS INGVARSSONAR, Hlíðartúni, Biskupstungum. Guðrún Guðmundsdóttir, Guðrún S. Hárlaugsdóttir, Kristján Kristjánsson, Ingvar R. Hárlaugsson, Svala Hjaltadóttir, Guðmundur Hárlaugsson, Hrafnhildur Magnúsdóttir, Elín M. Hárlaugsdóttir, Garðar Sigursteinsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.