Morgunblaðið - 30.09.2003, Side 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 13
LAURA Bush, forsetafrú í Banda-
ríkjunum, átti í gær fund með Jacq-
ues Chirac Frakklandsforseta, en
hún er nú í fimm daga ferð til Par-
ísar og Moskvu. Á fundinum með
Chirac leitaðist Laura Bush við að
bæta samskipti Bandaríkjanna og
Frakklands, er hafa beðið verulegan
hnekki vegna deilna ríkjanna um
herförina til Íraks.
Fulltrúi Chiracs sagði að á fund-
inum, er fram fór í Elysee-höllinni í
París, hefðu forsetafrúin bandaríska
og franski forsetinn átt „vinsam-
legar samræður“ um heilbrigðis-,
mennta- og menningarmál, þ.á m.
menningarlega fjölbreytni og bar-
áttuna við ólæsi hvarvetna í heim-
inum. Chriac tók á móti Lauru Bush
á tröppum hallarinnar og kyssti
hönd hennar er hún steig út úr bif-
reið sinni, undir vökulu auga banda-
rískra öryggisvarða. Við upphaf
fundarins sagði sendiherra Banda-
ríkjanna í Frakklandi, Howard
Leach, að Bandaríkjaforseti hefði
sent „mikilvægasta sendifulltrúa
sinn“ á fund Chiracs, en Laura Bush
sagði: „Nei, þann nánasta.“
Forsetafrúin tók einnig í gær þátt
í athöfn í tilefni af því að Banda-
ríkjamenn hafa á ný gerst aðilar að
UNESCO, Menningarmálastofnun
Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkja-
menn drógu sig út úr stofnuninni
1984, í forsetatíð Ronalds Reagans, í
mótmælaskyni við meint fjár-
málamisferli innan stofnunarinnar
og óvild í garð Bandaríkjanna.
AP
Jacques Chirac Frakklandsforseti kyssti hönd Lauru Bush er hún kom til fundar við hann í Elysee-höll í gær.
Laura Bush í Evrópuferð
París. AFP, AP.
DANSKUR prófessor hefur valdið
miklu uppnámi með því að hvetja til,
að ríkið reki áróður fyrir fleiri barns-
fæðingum hjá vel gefnu fólki en reyni
aftur á móti að draga úr þeim hjá
þeim, sem verr eru gefnir. Segir
hann, að með þessu móti megi skapa
betra samfélag í Danmörku.
Helmuth Nyborg, kunnur sál-
fræðiprófessor við Árósaháskóla,
sagði, að tími væri kominn til að
„hætta pólitískri rétthugsun“ og taka
upp meðvitað val í því skyni að „bæta
komandi kynslóðir og forðast úrkynj-
un“. Hafa allir helstu fjölmiðlar í Dan-
mörku gert mikið úr þessum ummæl-
um hans.
„Ég veit, að þetta er umdeilt og
með þessu er ég að rjúfa bannhelgi,
sem gilt hefur í meira en hálfa öld eða
síðan Hitler og nasistar reyndu að
koma sínum kynþáttahugmyndum í
framkvæmd,“ sagði Nyborg í viðtali
við fréttamann AFP-fréttastofunnar.
„Um þetta þarf samt að ræða því að
þróunin er sú í Danmörku, að vand-
ræðabörnunum fjölgar stöðugt.“
Hneykslun og fordæming
Nyborg leggur mikla áherslu á, að
skoðanir sínar eigi ekkert skylt við
viðhorf nasista, sem hafi viljað út-
rýma ákveðnum kynþáttum.
Hugmyndir Nyborgs hafa vakið
hneykslan og fordæmingu, meðal
annars stjórnmálamanna. Bertel
Haarder, sem fer með málefni inn-
flytjenda, sagði til dæmis, að þær
gengju þvert gegn öllum siðalögmál-
um. Nyborg segir, að stefnan eigi að
vera að fjölga vel gefnum börnum en
fækka hinum.
„Á milli 10 og 20 prósenta þjóðar-
innar, það fólk, sem verst er gefið,
ætti ekki að eiga börn. Við vitum
þetta en höfum ekki þorað að tala um
það. Það ættum við þó að gera vegna
samfélagsins og framtíðarinnar.
Stefnan á að vera á ötult og vel gefið
fólk en ekki á þá, sem þarfnast hjálp-
ar.“
Hugmyndir dansks sálfræðiprófessors valda uppnámi
Vill opinbera stjórn
á barnsfæðingum
Kaupmannahöfn. AFP.
MOHAMMED Dahlan, sem var yf-
irmaður öryggismála í skammlífri
ríkisstjórn Mahmouds Abbas, telur
að uppreisn Palestínumanna, sem
nú hefur staðið í
fjögur ár, hafi
verið mistök.
Hann segir að
lífsskilyrði pal-
estínsks almenn-
ings séu verri nú
en þau voru áður
en uppreisnin
braust út, í kjöl-
far þess að Ariel
Sharon, sem þá
var leiðtogi ísraelsku stjórnarand-
stöðunnar, heimsótti helgustu
mosku Palestínumanna í Jerúsal-
em. Sharon, sem nú er forsætis-
ráðherra Ísraels, heimsótti Haram
as-Sharif-moskuna hinn 28. sept-
ember 2000 og olli það mikilli reiði
í röðum Palestínumanna. Braust út
alda ofbeldis daginn eftir sem enn
sér ekki fyrir endann á.
Mohammed Dahlan var öryggis-
málastjóri í forsætisráðherratíð
Mahmoud Abbas en Abbas sagði af
sér embætti fyrir þremur vikum
eftir harðvítuga valdabaráttu við
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna.
Voru áður í betri stöðu
Dagblaðið The Daily Star í Líb-
anon hafði eftir Dahlan á sunnudag
að uppreisnin hefði verið mistök af
hálfu Palestínumanna og í gær
sagði hann í samtali við Associated
Press að fyrsta uppreisn Palest-
ínumanna, sem stóð 1987–1993,
hefði skilað meiri árangri en sú
sem nú stendur yfir. Hún „færði
okkur aftur fósturjörðina“, sagði
Dahlan. Sagði hann að áður en
uppreisnin braust út 29. september
2000 „vorum við í betri stöðu en
við erum nú í; í pólitískum skiln-
ingi og hvað varðar afstöðu um-
heimsins“.
Dahlan sagði ennfremur í viðtal-
inu við AP að Palestínumenn hefðu
engan veginn áttað sig á því
hversu djúpstæð áhrif atburðir 11.
september 2001 myndu hafa á þró-
un mála í Mið-Austurlöndum.
Segir uppreisn Palestínu-
manna hafa verið mistök
Gazaborg. AFP.
Mohammed Dahlan